Morgunblaðið - 13.11.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1976
Kennarar MA ætla
að vinna á mánud.
Iscargo
flutti tvo
háhyrninga
út í nótt
EFTIR miðnætti I nótt hélt
flugvél Iscargo af stað frá
Reykjavík til Hollands með tvo
háhyrninga innanborðs, sem
vélbáturinn Guðrún frá
Hafnarfirði náði austan við
Ingólfshöfða 1 fyrrinótt.
Háhyrningarnir eiga að fara 1
Dolphinaquarium sædýrasafn-
ið f Harderwijk f Hollandi.
Nú hafa verið fluttir út þrír
háhyrningar á þessu ári. Eins
og kunnugt er flutti Iscargo
einn háhyrning til Frakklands
fyrir skömmu. Guðrún fékk há-
hyrningana tvo 1 fyrrinótt í
hringnót og kom til Grindavík-
ur um klukkan 21 1 gærkvöldi.
Þar voru háhyrningarnir settir
á land og settir í sérstök ker á
vörubíl, sem flutti þá til
Reykjavíkur. Þeir voru hafðir i
þessam kerjum á leiðinni út, en
I þeim voru þykkar svampdýn-
ur, sem þeir lágu á.
Gert var ráð fyrir að flugið til
Hollands tæki 4 klukkustundir.
Laxárvirkjun:
Rafmagnsskortur yfirvofandi
Akureyri, 12. nóvember.
RAFMAGNSSKORTUR er
yfirvofandi á orkuveitu-
svæði Laxárvirkjunar,
180 ára afmæli
Dómkirkjunnar
A MORGUN, sunnudag kl. 11 s.h.,
verður hátfðarguðsþjónusta í
Dómkirkjunni 1 tilefni af 180 ára
vfgsluafmæli hennar, sem var 6.
nóv. sl.
Við messuna þjóna allir dóm-
kirkjuprestarnir fjórir, því þeir
sr. Jón Auðuns og sr. Óskar J.
Þorláksson munu lesa pistil og
guðspjall, en sr. Þórir Stephensen
prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Hjalta Guðmundssyni.
Mun þetta einstæður atburður 1
sögu Dómkirkjunnar, að fjórir
prestar hennar starfi saman að
einni og sömu guðsþjónustunni.
»««#«== =
vegna vatnsþurrðar og
rennslstruflana f Laxá. í
gær var nokkurt frost og
gola við Mývatn og hafði
það veðurlag strax þær af-
leiðingar að vatnsrennsli í
Laxá minnkaði til nyina,
enda var vatnið autt og ár-
kvfslarnar Ifka.
Afl Laxárvirkjunar minnkaði
um meira en helming um tíma,
eða úr 18—19 megawöttum niður
í 8 MW og var lengi dags um 10
MW. Nokkurn hluta dags varð að
skammta rafmagn og var
straumur tekinn af sveitalínunni
1 Eyjafirði um tíma, auk þess sem
rafmagn til húsahitunar var tekið
Jónína Þorfinns-
dóttir
formaður Hvatar
Jónína Þorfinnsdóttir kennari
var kjörinn formaður Sjálfstæðis-
kvennafélagsins Hvatar á aðal-
fundi félagsins í Sjálfstæðishús-
inu 1 fyrrakvöld. Fráfarandi for-
maður er Ólöf Benediktsdóttir
kennari, sem hafði gengt for-
mennsku s.l. 4 ár eða eins lengi og
lög félagsins gera ráð fyrir að
sama kona geti gegnt formensku.
af. 1 dag hefur ástandið heldur
farið batnandi, en
rafmagnsframleiðsla Laxárvirkj-
unar er þó ekki komin 1 eðlilegt
horf enn.
Knútur Otterstedt rafveitu-
stjóri sagði I dag, að
horfur í rafmagnsmálum
svæðisins næstu vikur væru mjög
tvísýnar og hlyti ástandið að fara
algjörlega eftir veðurfari. Ekkert
mætti verða að veðri án þess að
verulegar rennslistruslanir I Laxá
hlytust af og þar með
rafmagnsskortur. Þó væri von um
að ástandið lagaðist um áramót,
en þá er ætlunin að ljúka við
byggðalínuna, sem á að tengja allt
Laxársvæðið og
Landsvirkjunarsvæðið. sv.p.
Jónina Þorfinnsdóttir
Akureyri, 12. nóvember.
SVOHLJÓÐANDI yfirlýs-
ing frá Akureyrardeild
Staðinn
að lygum
— ástæðidaust að
tala við slíka
„blaðamenn”
AÐ GEFNU tilefni rangrar
fréttar í Þjóðviljanum skýrði
Morgunblaðið frá því í fyrra-
dag, að meðaltalsupplag blaðs-
ins á dag í októbermánuði
hefði numið 40.194 eintökum.
Jafnframt var frá því skýrt, að
Morgunblaðið væri reiðubúið
til þess að taka þátt I upplags-
eftirliti, sem byggðist á
ströngu eftirliti með upplagi
dagblaðanna á grundvelli upp-
lýsinga úr bókhaldi þeirra um
fjölda greiddra eintaka.
Þann sama dag hringdi
blaðamaður Þjóðviljans I fram-
kvæmdastjóra Morgunblaðsins
og óskaði eftir aðgangi að tölu-
legum skýrslum um upplag
blaðsins. Framkvæmdastjóri
Morgunblaðsins veitti blaða-
manninum þau svör, að hann
talaði ekki við menn, sem
staðnir hefðu verið að lygum.
Morgunblaðið sér ekki ástæðu
til að eyða fleiri orðum í Þjóð-
viljann af þessu tilefni. Þess
má þó geta að blaðamaður
Þjóðviljans þóttist hafa lyga-
frétt slna um upplag Mbl. frá
pressumönnum Mbl., en hann
hafði aldrei við þá talað eins
og fram hefur komið í yfirlýs-
ingu þeirra.
Tvær konur voru í framboði til
formanns, Jónlna Þorfinnsdóttir
sem fékk 137 atkvæði og Bessý
Jóhannsdóttir sem fékk 119 at-
kvæði. 1 seðill var auður. Um 70
konur hafa gengið I Hvöt frá síð-
asta aðalfundi félagsins.
Meðstjórnendur Jónínu eru:
Margrét Einarsdóttir, Jóna
Sigurðardóttir, Sigrún Jónsdóttir,
Hrönn Pétursdóttir, Ragnheiður
Eggertsdóttir, Björg Einarsdóttir,
Bergljót Halldórsdóttir og Ingi-
björg Ingimarsdóttir.
Morgunblaðið ræddi stuttlega I
gærkvöldi við Jóninu Þorfinns-
Framhald á bls. 18
Félags menntaskólakenn-
ara barst blaðinu f dag:
„Stjórn Félags mennta-
skólakennara, Akureyrar-
deild, lýsir eindregnum
stuðningi við kröfur BHM
um bætt kjör. Hins vegar
eru verkfallsaðgerðir á
mánudag, 15. nóvember
n.k., okkur óviðkomandi
þar eð okkur er ókunnugt
um aðdraganda og undir-
búnmg. stjórn Félags
menntaskólakennara,
Akureyrardeild.“
SV.P.
Hátíðadag-
skrá í Sel-
fosskirkju
Á MORGUN, sunnudag,
verður haldinn kirkjudag-
ur Selfosskirkju, og af því
tilefni verður samfelld
dagskrá í kirkjunni og
Tryggvaskála.
Dagskráin hefst kl. 11.00
um morguninn. Þá verður
sunnudagaskóli og mun
Stína Gísladóttir æskulýðs-
fulltrúi koma í heimsókn.
Klukkan 14.00 verður síð-
an hátíðamessa í Selfoss-
kirkju og mun sr. Sigurður
Pálsson vígslubiskup pré-
dika.
Að messu lokinni gengst
Kvenfélag Selfosskirkju
fyrir kaffisölu í Tryggva-
skála og verður ágóða varið
til þeirra framkvæmda,
sem eru framundan við
kirkjuna, bygging turns og
safnaðarheimilis.
Dagskránni lýkur síðan með
samkomu i kirkjunni kl. 20.30.
Þar mun sr. Frank M. Halldórs-
son flytja erindi og Gunnlaugur
Jónsson guðfræðinemi flytur hug-
vekju og bæn. Sólveig Björling
mun syngja einsöng við undirleik
Gústafs Jóhannessonar og kirkju-
kórinn syngur undir stjórn Glúms
Gylfasonar. Loks verður almenn-
ur söngur.
Álit Hæstaréttan
Sterkar líkur eru á því að
Hamranesi hafi verið sökkt
MORGUNBLAÐIÐ hefur aflað
sér dóms Hæstaréttar I Hamra-
nesmálinu, en þar kemur m.a.
fram rökstuðningur dómsins. 1
dómi Hæstaréttar segir m.a.:
„Sterkar líkur eru að því
leiddar, að b/v Hamranes hafi
farist vegna sprengingar, sem
orðið hafi I fiskilest þess af
manna völdum. Einnig benda
sakargögn sterklega til þess, að
áfryjendurnir Bjarni R. Guð-
mundsson, Haraldur og Hreiðar
Júllussynir (eigendur togarans
— innsk. Mbl.) hafi, áður en
skipið fórst, haft samráð um, að
því skyldi sökkt, til að vátrygg-
ingarfé þess fengist greitt. En
þótt eigi yrði talið, að skipið
hafi farist af völdum spreng-
ingar, sem þessir áfrýjendur
hafi af ásettu ráði átt hlut að,
verða athafnir áfryjandans
Bjarna, eftir að leki kom að
skipinu, ekki skýrðar á annan
veg en þann, að hann hafi vls-
vitandi haldið að sér höndum
um björgun þess. Að mati sjó-
og verslunardóms kom hann
með aðgerðarleysi slnu I veg
fyrir björgun skipsins. Verður
að leggja þetta til grundvallar
dómi I málinu. Af framansögðu
leiðir, að áfryjandinn Bjarni
getur eigi krafið stefnda um
vátryggingarbætur sér til
handa vegna ákvæða 52. gr.
laga nr. 20/1954. Þegar litið er
til þess, að Haraldur og Hreiðar
Framhald á bls. 18
Engar nýjar upplýs-
ingar hafa komið fram
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í
gær til Braga Steinarssonar
saksóknara við rfkissaksókn-
araembættið og spurði hann
hvort það yrði hugsanlega tek-
ið til endurmats hjá embætt-
inu hvort höfða ætti opinbert
refsimál á hendur eigendum
Hamraness, nú þegar dómur
væri fallinn I málinu og réttur-
inn teldi sterkar Ifkur á þvf að
skipinu hafi verið sökkt af
mannavöldum
Bragi Steinarsson sagði, að
hann hefði á sínum tíma af-
greitt mál þetta frá embættinu
til bæjarfógetans i Hafnarfirði
á þann hátt, að ekki væri af
ákæruvaldsins hálfu krafizt
frekari aðgerða nema nýjar
upplýsingar kæmu fram I mál-
inu. Sagði Bragi að engar nýj-
ar upplýsingar hefðu komið
fram slðan rannsóknan. var
gerð á sínum tíma, en þá hefði
ekki þótt ástæða til málshöfð-
unar gegn einstökum mönn-
um.
Einnig sterkar líkur á því að eigendurnir hafi haft
samráð um að sökkva skipinu til að fá vátryggingarfé