Morgunblaðið - 13.11.1976, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1976
OPIÐ TIL HADEGIS
SÆNSKU ÚTILUKTIRNAR
NÝKOMNAR
1010/1? Smidd járnlykta
Kopparlykta
1021/14 Smidd jámlykta
202 Koþparlykta
10052/13 Smidd jarnlykta 232 Kopparlykta
241 B Kopparlykta 209 Kopparlykta
227 Kopparlykta | 411 Kopparlykta
416 Kopparlykta
1055 Smidd jarnlykta
SENDUM í PÓSTKRÖFU
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJÓS & ORKA
Sudurhmdsbraut 12
sími 84488
OPIÐ TIL KL. 4 í DAG.
Sendum í póstkröfu.
Ln!Tv!)
jtu/
Hamraborg 3, sími 42022
VELVAKAIMIDI
% Bætir ekki
málstaðinn.
Námsmaður skrifar eftir-
farandi bréf og þar telur hann að
námsmenn hafi ekki beitt alls
kostar réttum aðferðum í baráttu
sinni fyrir bættum kjörum náms-
manna:
„Fyrir framan mig hef ég
dreifirit frá kjarabaráttunefnd
námsmanna. Blaðið ber yfirskrift-
ina: Til alþýðu. Það eru nokkrir
punktar sem ég er óánægð með.
Á blaðinu stendur orðrétt: „Á
s.l. vori setti Alþingi ný lög um
námslán, sem fótu í sér fulla
vísitölubindingu lánanna. Þessari
vísitölubindingu mótmæltu allir
námsmenn. En þó námsmenn
endurgreiði nú lán sín að lang-
mestum hluta í fullu raungildi
ætlar nú ríkið enn að skerða kjör
okkar.“
Ég er hissa á þessu. Það er
alveg sjálfsagt að lánin séu vísi-
tölutryggð. Hvaða vit er í því að
námsmenn fái t.d. 20 þúsund
króna lán. Þegar hann fer að
endurgreiða er þessi upphæð orð-
in eins og 10 þúsund, jafnvel 5
þúsund krónur í dag. Hver á að
borga mismuninn? Ríkið? Hverjir
eru ríkið? Þessi visitölubinding
verður kannski og vonandi til
þess að aðeins þeir, sem þurfa
nauðsynlega á lánum að halda,
taki þau, en ekki þeir sem fata sig
upp að nýju eða kaupa finan bíl,
sem dæmi eru um, því miður.
Næsti sári punktur á þessu
blaði er: „er ekki tekið tillit til
útgjalda vegna t.d. tóbaks, leik-
hússferða o.fl.“
Hvenær hefur tóbak verið talið
nauðsynlegt? Hverjir haldið þið
að vilji lána ykkur til að kaupa
tóbak? Og það er margur vinn-
andi maðurinn, og konan meðtal-
in, sem getur ekki leyft sér að
fara í bíó eða leikhús og svo kom-
um við og heimtum peninga til að
fara. Nei, þetta nær ekki
nokkurri átt.
Að lokum finnst mér þau, sem
rituðu þetta plagg, rekast harka-
lega á sjálf sig. Fyrst segja þau:
... námsfólk úr iista-, verk-
menntunar og æðri skólum...“
Ég hélt nú að það væri hætt að
telja háskólamenntun þýðingar-
meiri ’en aðra menntun, víst er
hún nauðsynleg, en þó jafnt á við
verkmenntun og listmenntun.
Seinna á blaðinu reyna þau að
bæta sig. Þetta plagg tel ég ekki
að bæti málstað okkar. Ég
skammast mín fyrir þetta.
Námsmaður."
að gera segi ég yður kannski allt
af létta ... að minnsta kosti er ég
yður ævarandi þakklát fyrir að
bjarga mér...
Þegar við komum svo til Porte
Mailot þakkaði hún fyrir og sté af
virðuleg sem konungsdóttír.
Maigret og Lucas horfa hvor á
annan.
— Og ef þér hafið ekkert á
móti því legg ég til við fáum
okkur eitt glas f viðbót. Nú býó ég
... Og svo ætla ég að fara heim og
fá mér eitthvað að borða .. Ég
vona ég lendi ekki ( þrasi út af
þessu, ha? Skál.
Kiukkan tíu um kvöldið. Lucas
tekur við vaktstöðunni við Gap
Horn í stað Janviers sem fer aftur
til Parfsar. I.oftið I Gullhringnum
er mettað af reyk. Maigret hefur
borðað of mikið og er að fá sér
þriðja eða fjórða glasið af hvft-
vfni staðarins.
Sem hann situr þarna og hvdir
armana á borðinu mætli halda að
hann dottaði öðru hverju. Fjórir
menn sitja »étt hjá honum og
spila á spil.
Og þeir kasla fitugum spilum á
borðið, tala og svara spurningum
Denim buxur
Dömublússur og bolir
hljómplötur
Sailor
Ringo Starr
Tina Charles
Who
% Rjúpnaveiði.
Nú stendur yfir tími rjúpna-
veiða og fara margir upp um fjöll
og heiðar til að elta þennan fugl
uppi og reyna að afla sér fæðu,
sem notuð verður í jólamat. Það
þarf varla að minna á það að
oftlega hefur það komið fyrir að
þurft hafi að leita rjúpna-
skytturnar uppi, þær hafa af ein-
hverjum ástæðum orðið viðskila
við félaga sína, eða verið einar á
ferð og eitthvað komið fyrir jafn-
vel og þær hafi ekki alltaf getað
gert vart við sig.
Ástæða er til að minna á þetta
og er það gert fyrir ábendingar
sem borizt hafa til Velvakanda.
Haustið hefur verið með eindæm-
um gott og stillt a.m.k. hér á suð-
vesturlandi og því ekki mkil
hætta á að fólk geti orðið úti hér,
nema óhapp hendi. En það ætti að
vera nokkuð auðvelt að hafa út-
búnað til að gera vart við sig með
t.d. neyðarblys og fleira í þeim
dúr. Ef Velvakandi man rétt þá
hafa skátar líka gengizt fyrir
námskeiðum fyrir rjúpnaskyttur
og aðra fjallaferðamenn og kennt
notkun áttavita og annarra nauð-
synlegra tækja sem rétt er að hafa
meðferðis í slíkum ferðum. Það
má enda þessa áminningu með
skrítlunni, ofurlítið breyttri að
vísu: Rjúpnaveiðimenn, látið ekki
áhugann hlaupa með ykkur í gön-
ur, því þá verðið þið að labba
heim.
0 Frágangur
bréfa.
Að lokum er hér smá ábending
til bréfritara Velvakanda. Þetta
er að vísu ekkert skemmtiefni, en
það er engu síður nauðsynlegt að
minna á nokkur atriði í sambandi
við bréfaskriftir.
Bezt er að bréf séu vélrituð, en
þó er það ekki skilyrði fyrir
birtingu. Ef þau eru ekki vélrit-
uð, þá skal skrifa greinilega og
alltaf hafa gott línubil.
Bréf eru aldrei birt ef nafn og
heimilisfang fylgir ekki. Tekið er
tillit til óska um að birta ekki
nafn ef sérstakar ástæður eru
fyrir hendi. Einnig er gott að
símanúmer fylgi, ef það er eitt-
hvað í bréfunum sem þarf að bera
nánar undir bréfritara. En: Nafn-
laus bréf — engin birting.
Símatíminn er milli kl. 10 og 11
á morgnana, frá mánudegi til
föstudags og geta þeir, sem vilja
koma með stuttar ábendingar,
notfært sér hann, en ef um langt
mál er að ræða er e.t.v. betra að
skrifa.
HÖGNI HREKKVÍSI
Það er alveg óþarfi, þetta. Okkar stuðningsmenn
eru nægilega margir mættir.
BR22-
io*%6
© 1976
McNaught
DRÁTTHAGI BLÝANTURINN
©PIB
COPtNNKlH
Velvakandi svarar 1 sfma 10-
100 kl. 10—11 f.h. frá mánu-
deg
í&CoCPtL.*