Morgunblaðið - 14.11.1976, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NOVEMBER 1976
7
a
BIÐLUND
Tveir menn, sem sama
húsbónda þjónuðu, mætast.
Annar kemur hróðugur og
glaður af fundi húsbóndans,
sem sýnt hafði honum það
veglyndi að gefa honum upp
stóra skuld. En ekki hafði það
veglyndi örfað hann til hins
sama, því að hann veitist að
samþjóni, er skuldaði honum
örlitla upphæð, sem hann
gat ekki greitt, og lét hann
sæta afarkostum.
„Haf biðlund við mig, og
ég mun borga þér allt." Hann
biður um frest til að greiða
litlu skuldina sina, en árang-
urslaust.
Mynd úr mannlegum sam-
skiptum dregin meistara-
hendi, sem missirekki
marks, mynd sem ég þekki
og þú þekkir. Við biðjum
báðir um, að biðlund mæti
yfirsjónum okkar, en sýnum
við biðlund sjálfir?
Hve langt á biðlundin að
ná? Hve lengi er hægt og rétt
að taka mildum höndum á
þeim, sem stofna til stórrar
skuldar við samfélagið, og
veita þeim gjaldfrest?
Sú spurning hefur verið á
margra manna vörum and-
spænis þeirri óhugnanlegu
öldu glæpa og fjármálaspill-
ingar, sem oltið hefur yfir
þessa þjóð en menn héldu til
skamms tíma að okkur væri
fjarlæg. Misferli i fjármálum
er ískyggilegra en við áttum
von á, fjárdráttur stórkost-
legri, blygðunarleysið meira í
meðferð fjár, sem í rauninni
er almannaeign. Á að veita
frest til greiðslu slikra
skulda? Getur ekki sú gullna
biðlund orðið til að sanna
það,að
„sé drepinu hlúð, visnar heil-
brigt lif
en hefndin grærá þess leiði"
Þó er enn óhugnanlegra
hið víðtæka eiturlyfjasmygl
og nautn fíkniefna, sem talin
er einkum eiga sér stað hjá
ungu fólki. BIÐLUND, er ekki
að vonum að við heyrum
daglega, hve fólki blöskrar
linkind og vægð dómanna í
slíkum málum sem fíknilyfja-
sölu? Smygli á eitri, sem á
skömmum tíma umhverfir
góðum manni svo, að hann
drýgir voðaverknað á að
fylgja þyngri dómur en svo,
að hann gangi úr varðhalds-
vist út til að taka upp iðju
sína aftur.
Biðlund? Já, en er þess
ekki von, að foreldra ungl-
ings hrylli við þvi að slík
leynd sé höfð um nafn af-
brotamanns, sem er eitur-
lyfjasali, að hann geti eins og
ekkert sé að haft daglega
umgengni við börn þeirra, án
þess börnin eða foreldrana
gruni, hver hætta leynist hér
við veginn? Á þessa hlið
málsins er of sjaldan minnzt.
Hér verður þó vitanlega að
fara að með mikilli varúð, án
þess þó meinsemdinni sé
gefið tóm og heimilunum bú-
in hætta í leyni. Biðlund? Já,
en án þess þó að leidd sé
ógæfa yfir þá, sem enn eru
ekki orðnir henni að bráð.
Varnaðarorðið má ekki
gleymast:
„Við fallandi engil og freist-
andi orm
þarf fyrirgefning og
hjarta",—
það lögmál hefur enginn
kennt og enginn iðkað eins
og Kristur. En sú rangtúlkun
á kenningu hans hefir víða
vaðið uppi i kristninni, að
fyrirgefning Guðs sé sama og
uppgjöfsaka. Hvað kennir
sagan um þjónana tvo? Hin-
um stórseka þjóni dugði ekki
að hrópa á biðlund húsbónd-
ans, sína stóru skuld varð
hann að greiða til síðasta
eyris sjálfur, hana gat enginn
fyrir hann greitt.
„Haf biSlund við mig".
— hvert afbrot veldur sár-
sauka þeim, sem saklausir
eru. Til að vernda samfélagið
er ekki ævinlega unnt að
þyrma þeim, sem þó eru sak-
lausir sjálfir en hlýtur að bera
syndir hinna seku. En sakir
má aldrei dæma með jarðlífið
eitt fyrir augum. Það er ekki
nema spölkorn á leiðinni
allri. Þessvegna stendur
hvert afbrot andspænis af-
leiðingum hinum megin við
heim og hel. Þar eins og hér
mun bíðlund Guðs vera mik-
il. því að hann veit það sem
skammsýnum mönnum sést
yfir, að það er aldrei vonlaust
um mannssálina. Þótt leiðin
sé löng lýkur henni heima,
þau örlög eru öllum sálum
spunnin.
Á besta stað í borginni.
TIL LEIGU
160 fermetra verslunarpláss við Grensásveg.
Góð bílastæði. — Upplýsingar í sima 37144 í
dag og næstu daga.
V
Fastur
UNGBARNAFATNAÐUR:
Bleiur .......................... Centrotex.
Bleiubuxur frotte 4 mynstur ..... Erla.
Frottepeysur..................... Stummer
Peysur .......................... Chica Loo
Bómullarbolir 4 litir Pippy
Smekkbuxur 4 gerðir ............. Bjærri
Hettuhandklæði Pippy
Vettlingar....................... N.M.
Úlpur, stærðir 1—4 .............. Teddy
Útigallarst. 1 — 2 — 3 .......... Teddy
TELPU- OG DRENGJAFATNAÐUR:
Telpunærfatnaður, st. 4—14 ...... Erla
Sokkar........................... K. T.
Röndóttir rúllukragabolir ....... Lyhne
Velourpeysur, st 6—18 Lyhne
Peysur. st 116—140 .............. Chica Loo
Peysur, st. 4— 12 ............... Hvalsöe
Peysur, st. 4—14, 4 gerðir ...... Larike
Terlinbuxur, st. 2—16 ........... Skippy
Flauelsbuxur st 4—16............. Skippy
Denimbuxur, st. 4—12 ............ Skippy,
Denimvesti, st. 4— 16 ........... Skippy
Vettlingar, st. 2—7 ............. N.M.
Loðfóðraðar lúffur............... Ramskov
Telpnaúlpur, st. 2— 14,2 gerðir.. Ramskov
Drengjaúlpur, st 4—14, 3 gerðir Teddy
Úlpur Hong Kong ................. A.M
KVENFATNAÐUR:
Sokkabuxur ...................... Tauscher
Sportsokkar ..................... K . T.
Lífsstykkjavara ................. Triumph
Náttkjólar....................... íris
Sloppar ......................... íris
Blússur. st. 36—44 .............. H.P.
Frúarpeysur, 20 gerðir .......... M.N.
Rúllukragabolir 4 litir ......... Holtas
Einlitar terelinbuxur ........... Pardus
Flauelsbuxur grófriflaðar ....... Pardus
Kvenjakkar, flauels stungnir .... Eurofashion
Flauels vesti ................... Pardus
HERRAFATNAÐUR:
Sokkar........................... K.T.
Frottesokkar .................... Roylon,
Nærfatnaður...................... Hammerthor
GARDINUEFNI:
Stórisefni,
90 cm, 1 20 cm 1 80 cm Filigree
Stórisefni,
1 70 cm, 1 80 cm, 240 cm Faber
Gardfnuvelur ....................... Bernhard
Gardinubönd ........................ Gester
Utanyfirgardinur, 1 20 cm........... Zell
Eldhúsgardínuefni .................. Horse
Baðherbergisgardínuefni ............ Horse
Tilbúnar eldhúsgardínur ............ Gena
BUXNA- OG FATAEFNI:
45% Pol 55% Ull .................... Centrotex,
70% Pol. 30% Vis.................... Hammerle
Grófrifflað flauel ................. Centrotex
Fínriflað flauel ................... Centrotex
Denim 4 gerðir...................... Hammerle
Minstrað denim ..................... Texoprint
Úlpuefni ........................... Norion
KJÓLAEFNI:
Mynstruð prjónaefni ............. Texoprint
Einlit prjónaefni .................. Schwarzenbach
Rifluð prjónaefni ............... Marrratex
Mynstruð bómullarefni ........... Texoprint
Einlit bómullarefni ............. Gavaco
Kjólavelour ..................... Jenning
Kjólaterelinefni ................ Jenning
Mynstrað flauel .............. Novently
—1 ■■
*
/ *** ' X
Terylenebuxur
og
terylenevesti
í stærðum
f rá 4 — 14
Flauelsbuxur — denimbuxur — terylenesam-
festingar.
Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okk-
ar sem fyrst.
/
/
Framleiðandi
Solido s.f.
AGUST ARMAIMN hf.
UMBOÐS-OG HEILDVERSLUN ,
SUNDABORG 24- REYKJAVÍK