Morgunblaðið - 28.11.1976, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.11.1976, Blaðsíða 14
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÖVEMBER 1976 ^—^^^mam^^^ma—mmmmmmmmm Nýkomið Minkahúfur — Loðhúfur — Angórahúfur — Maryflexhúfur — Alpahúfur — Filthattar — Húfusett — Stakar húfur og treflar. Hattabúð Reykjavikur, Laugavegi 2 ^mmmmammmm^m^aamam^^^mmmamí — Farmaður í friði Framhald af hls.42 strengdum við segl yfir dekkiö, sprautuðum sjó í, gerðum laug, og svo kepptu menn um hver gæti verið lengst með höfuðið í kafi, veðjuðum. Jón Matt tók ekki þátt í þessum leik. Bara að ekki fari fyrir ykkur eins og skotunum á baðhótelinu, sagði hann. Þeir veðjuðu um hvor gæti verið leng- ur í kafi, lögðu pund undir. Ef þið komið á þetta baðhótel getið þið fengið að sjá pundseðilinn inn- rammaðan, hann hefur ekki verið sóttur enn. Þrenns konar matur var fram- reiddur um borð í Gullfossi, allt afbragðs matur. Hásetarnir fengu sama og þriðja pláss, kröftugan mat, en margarín i stað smjörs, yfirmennirnir fengu sama og annað pláss. Skipstjórinn einn borðaði sama og fyrsta pláss far- þegar — og var það ekki of gott. Oskar Halldórssn, sá landskunni sildarsaltandi, sem lagði Halldóri Laxness til efnið I Guðsgjafaþulu, matmaður svo mikll að með ólík- indum var, ferðaðist oft með okkur, hann borðaði fyrst á fyrsta plássi og síðan i messanum með okkur — á við þrjá. Einu sinni var saltkjöt á borðum og ég segi við Óskar í gamni: Hvernig er það Óskar? Ertu ekki búinn að borða þig mettan á farrýminu? Óskar svaraði með fyrirlitningu: Kall- arðu það mat? Posteiur (hveitisnúðar) pumpaðar upp með lofti puntaðar með nokkrum grænum baunum. — Og Óskar stakk gafflinum í saltkjötsstykki, svo annað og siðan það þriðja. Hjalti Jónsson konsúll er líka minnisstæður farþegi; hann var á yngri árum skipstjóri á April, hafði orgel í brúnni — og svo söng kórinn, stakkklædd áhöfnin. Jón Matt og Hjalti voru miklir mátar, Hjalti gamall vinur Matthiasar föður Jóns. Hjalti reyndi að kenna Jóni að hætta að taka i nefið. Hjalti var gamansam- ur. * Þú skalt Jón, sagði Hjalti, fylla dósirnar með ilmandi tóbaki á hverjum morgni, banka úr þeim á handarbakið eins og venjulega lykta af tóbakinu, láta það svo detta á gólfið i staðinn fyrir að látaþað fara uppi nösina. Þessa aðferð notaði Napóleon og ég, bætti Hjalti við, og ég veit ekki til að öðrum hafi tekist að hætta. Einmitt það, sagði Jón og var skemmt. Við ykkur Napóleon get ég nú samt ekki keppt. Það skil ég vel, sagði Hjalti og tók upp silfurdósirnar sínar, fékk sér hressilega i nefið og bauð sið- an Jóni. Veskú, það er konjak saman við það Jón. Hjalti var nautnamaður, drakk göfug vín og reykti dýra vindla, öðlingur sem skrifaði uppá vixla fyrir margan manninn um dag- ana, þjóðsagnapersóna I lifanda lifi. Eitt sinn sem oftar siglir Hjalti á Gullfossi til Kaupmanna- hafnar, þá orðinn gamall og fótfú- inn, þoldi ekki aðra skó en inni- skó úr flóka — og á þeim skóm labbaði hann sig inn á hótel Angleterre, átti þar frátekið her- bergi. Starfsliði i móttökunni þótti þar skrýtinn fugl á ferð og hélt hann ekkert minna en geggj- aðan þegar hann bað símastúlk- una um simasamband við Friðrik krónprins. Fyrir hvurn með leyfi? spurði pian snúðug. Segið honum að Hjalti sé kom- inn. Friðrik kom I simann. Sæll Friðrik minn, sagði Hjalti. Velkominn i riki mitt Hjalti, sagði Friðrik. Mig langar að skreppa, sagði Hjalti. Fyrir alla muni, sagði Friðrik. Hvenær viltu koma? Um fjögurleytið þegar ég hef lagt mig. Ég sendi þá eftir þér, sagði Friðrik. Gerðu það góði, sagði Hjalti. A slaginu fjögur renndi gjáandi bifreið undir konungsfána að anddyri hótel Angleterre og Hjalti gamli labbaði út i hana á flókaskónum. Eftir það buktaði starfsliðið sig niður I gólf bara ef það sáHjalta álengdar. Hjalti varð konsúll þegar hann hætti á sjónum, gekk með þrí- strendan hatt og korða við hlið. Friðrik var þá sjóliðsforingi á Fyllu sem annaðist landhelgis- vörslu við Islandsstrendur og konungsefnið var þá heimagang- ur hjá Hjalta. Minningarnar um einhuginn meðal áhafnarinnar áGullfossi, um einhuginn meðal þjóðarinnar á þessum góðu árum, hafa oft ornað mér. En nú dró til stór- tíðinda, váleg blika var komin á himin vesturlanda, þýskar fall- byssur reiðubúnar að skjóta Evrópu I rúst, og þess skammt að biða að Islensk skip og íslenskir sjómenn drægjust inn I hildar- leikinn. Siglingar eru nauðsyn, islenskir sjómenn hlutu að færa þjóð sinni björg í bú þótt vopn- lausir væru og stuðla að sigri lýð- ræðisþjóðanna með sjófangi af tslandsmiðum. — Leikhús Framhald af bls. 53 mesta fjölbreytni í verkefnavali. Vonandi tekst okkur að finna fleiri verk, þar sem húmorinn ræður ríkjum, eða er hann ekki enn eitt bitrasta vopnið? Og er „pólitískt" leikhús réttnefni á því leikhúsi, sem vill taka ótvíræða afstöðu til málefna dagsins? Einu sinni nægði að kalla slík verk ádeilu. Er það kannski sams kon- ar hótfyndni og að kalla Alþingi leikhús? Að Iokum vil ég skora á lesend- ur að hlusta vel á leikrit, sem væntanlega verður flutt í Ríkisút- varpinu á næstunni. Það er leik- gerð á frægri ádeilu eftir Arthur Köstler, „Myrkur um miðjan dag“, og segir okkur söguna af þvi hvernig byltingin étur börnin sin. 30. marz 1949 Framhald af bls. 47 væri á slíkum liðssafnaði og „fékk svo stimpil dómsmálaráð herra eftir á". Má Ijóst vera að í þessu tilviki getur ekki hafa verið um neina fyrirstöðu dóms- málaráðherra að ræða að veita slíka heimild og líklegast að hún hafi þá verið gefin munnlega, þar sem athugun á gögnum dómsmálaráðuneytisins leiddi ekki í Ijós að skrifleg heimild hafi verið gefin út sérstaklega, nema að skrár þær, sem getið er um hér á eftir teljist vera slík heimíld. Flest bendir til að það hafi ekki verið fyrr en að morgni 30. mars, að skipu- leggjendur liðssafnaðarins könnuðu rækilega réttarstöðu liðsins og rétt ein- stakra liðsmanna til skaðabóta ef slys, örkuml eða dauða bæri að höndum í þeim átökum, sem menn töldu að fyrir höndum gætu verið. Varð niðurstaðan sú, að sérstök skrá var útbúin yfir vara- lið lögreglunnar í herbergi Framsóknar og hún fengin dómsmálayfirvöldum, sem munu hafa áritað hana og þar með löggilt þá menn, sem lögreglumenn með þeim réttindum og skyldum, sem því fylgja. Þá var gerð önnur skrá með nöfn- um þeirra manna, sem stóðu á gangstétt- innni fyrir framan húsið, voru á þing- pöllum og annars staðar í þinghúsinu, og einnig látin dómsmálayfirvöldum í té. Þegar bók þessi var í smíðum var óskað eftir að sjá þessar skrár, en þær voru sagðar vera í höndum lögreglustjór- ans í Reykjavík. Vísaði hann á dóms- málaráðuneytið, sem aftur visaði á lög- reglustjóra, en hann vísaði enn á dóms- málaráðuneytið og er skemmst frá því að segja aC ekki er unnt að fullyrða að umrædd löggilding og viðeigandi stimðl- un á þessum plöggum hafi átt sér stað. Hinsvegar er unnt að fullyrða, að þessar skrár voru gerðar af skipuleggjendum liðssafnaðarins og vélrituð eintök afhent dómsmálayfirvöidum. Þegar þessi stað- reynd er höfð í huga, er vandséð hvernig svar lögreglustjóra frá 1. febrúar 1952— „Eigi hefur tíökast að skrásetja menn sérstaklega, þóit þeii séu kvaddir lög- reglunni til aðstóðar skv. 10. gr. lög- reglusamþykktarinnar—", við spurn- ingu Sigurðar uh.sonar ha'staréttarlög- mánns frá 29. janúar 1952. fær staðist. Frásagnir nokkuna þeirra manna, sem dvöldu í fh-kksherbergi Fram- sóknarmanna, bera það með sór að tals- vert hefur það ,v< nð á reiki, hvort þeir gerðu sérgrein fyrir réttindum sínum og skyldum sem lögreglumenn. Sumir töldu sig hafa vitað i><i<’> fyir vist og fengið um það upplvsingar fyrirfram, en aðrir kváðust ekki hafa heyrt á það minnst og enn aðrir munu ekki hafa hirt um að kynna sér þessi atriði. Enda þótt fundarherbergi fram- sóknarmanna þætti rýmra en sjálf- stæðismanna handan inngangsins, er Ijóst að þrengsli hafa verið mikil og loftleysi í herberginu, en af einhverjum ástæðum var bannað að hafa opna glugga. Þá virðist ekki hafa verið hugsað fyrir því, að varaliðsmenn þyrftu að nær- ast eins og annað fólk og fékk enginn þeirra vott eða þurrt þann tíma, sem dvalist var í herberginu. Er ljóst af öllu, að vistin hefur verið óþægileg svo ekki sé meira sagt þær 5 — 6 klukkustundir, sem þeir er fyrstir komu á vettvang, voru látnir bíða þarna. Reynt var að grenslast fyrir um það, hvað menn hefðu haft sér til afþreyingar. „Við kjöftuðum saman og reyndum að fylgjast með eins og við gátum,“ var svar Arnar Clausen. Lítur út fyrir að honum hafi á einhvern hátt tekist að sjá betur hvað um v,ar að vera úti fyrir en félögum hans, sem var einfaldlega sagt að biða og harðbannað að fara út úr herberginu, nema til þess að „hlýða kalli náttúrunn- ar“, og aðeins einn maður í senn. Var þess stranglega gætt að menn tækju þá niður embættistákn sin; hjálminn, kylf- una og armbandið. Lúðvík Gissurarson minnist þess eink- um hve löng biðin var og leiðinleg og Jóhannes Proppi var á sömu skoðun: „Menn voru eiginlega fegnir, þegar kall- ið loksins kom að fara út“ — en það er örinur saga. Að sögn Lúðvíks „litu menn á þetta með takmarkaðri alvöru — yfir- leitt voru allir i góðu skapi og menn gerðu að gamni sínu — tóku niður hjálmana og settu þá upp á víxl, grínuð- ust hver við annan, fóru í skilmingaleiki með kylfunum og göntuðust". Lúðvík var sennilega yngsti maðurinn í liðinu, 17 ára að aldri: „Ég var svona rétt vaxinn upp úr því um þetta Ieyti að fara niður í bæ á gamlárs- kvöld og gera at í lögreglunni, en þetta var siður hér — en þarna fannst mér allt í einu eins og það væri búið að hafa hlutverkaskipti og mér þótti það í aðra röndina vera dálítið furðulegt — að vera nú þarna með hjálm, kylfu og borða og kominn í varalið lögreglunnar------.“ Leifur Sveinsson minnist þess að menn sátu eða lágu á gólfinu eða reyndu að tilla sér á borðið í herberginu, þar sem mikið skorti á að nægir stólar væru fyrir allt liðið, enda aðeins 13 menn í þingflokki framsóknarmanna um þetta leytí: „Á einhvern hátt fengum við spil, en hvernig það var man ég ekki — senni- lega hefur einhver skotist út í Bókabúð Æskunnnar í Kirkjuhvoli. Við sátum þarna með.alvæpni og spiluðum birdge. Baldur sagði „fjóra spaða“, sem var al- veg upplagt spil, en fór svo hryllilega með það, að ég setti hann „fjóra Down“. Ég man að einhverjir menn horfðu á og þeim ofbauð þessi spilamennska alveg. Einn þeirra gall við: „Hann getur ekki hugsað með hjálminn á hausnum!" En svo var áhuginn á spilamennskunni mik- ill, að við fylgdumst ekkert með því, sem var að ske úti fyrir---- Dvöl lísins í Framsóknarherberginu átti að fara mjög leynt og sömuleiðis uppköllun þess, eins og áður hefur verið greint frá. Mun hafa tekist að viðhalda þessari leynd að nokkru leyti, enda þótt ljóst sé að einn varaliðsmanna „hafi lek- ið i kommana", eins og bréfið frá „einum sekum", sem birt var í Bæjarpósti Þjóð- viljans 14. apríl 1949 ber með sér. Að minnsta kosti verður ekki betur séð, en erindreka Framsóknarflokksins, Þránni Valdimarssyni, hafi verið algjörlega ókunnugt um tilvist liðsins þarna í fundarherbergi flokksins: „Eysteinn Jónsson sendi mig niður í herbergið til að sækja einhver plögg fyrir sig meðan á fundinum stóð. Her- bergið var myrkvað og hlerar fyrir gluggunum og mér tókst ekki að kveikja. Vissi ég ekki fyrr en ég hnaut um ein- hverri mann, sem sat á gólfinu. Var þar komið varaliðið með alvæpni. Ég varð bæði sár og reiður, en þóttist sjá hvers kyns var-------.“ Sigurður M. Þorsteihsson varðstjóri, segist ekki hafa haft hugmynd um tilvist varaliðsins í Alþingishúsinu fyrr en hann hafi mætt þar til skyldustarfa og fékk það verkefni að hafa stjórn á liðinu og gæta þess að liðsmenn færu að fyrir- mælum. Raunar kom það hvergi fram að Sigurður hefði orðið „sár og reiður", eins og Þráinn Valdimarsson, en í sam- tali skilgreindi hann verkefni sitt sem það „að halda þeim í skefjun — þeir voru ansi órólegir yfir þeim fréttum, sem bárust um það að mikið gengi á úti fyrir og það var erfitt að halda mönnum þarna. Ég gerði það nú samt þar til kallað var á þá!“ Ekki minnist Sigurður þess að hafa fengið önnur fyrirmæli en þau, að „þeir ættu að vera stilltir þangað til kallað yrði á þá —“, og ekki kvaðst hann hafa þekkt nema fáa menn í liðinu. Engu að siður dró hann þá ályktun m.a. af návist Clausensbræðra, Hauks og Arnar, að „þeir væru þeim megin í málinu — maður gekk einhvernvegin út frá þvi að þetta væri þannig lið-----“. Áður var þess getið að varaliðið hlaut enga þjálfun í lögreglustörfum eða kylfuburði gagnstætt því sem haldið hef- ur verið fram, en þarna um morguninn mun mönnum þó hafa verið veitt ein- hver tilsögn í því hvernig nota ætti kylf- urnar og þá ekki síður, hvernig ekki mátti beita þeim. Er liklegast að Sigurð- ur hafi sagt mönnum til um það, þótt ekki minnist hann þess sjálfur. Það er nú ljóst af frásögnum ýmissa manna, sem þarna voru og öðrum heim- ildum, að alvarlega kom til greina hjá yfirmönnum lögreglunnar að senda liðið út áður en það var endanlega gert. Nokkrir varaliðsmenn minnast þess að þeim hafi verið sagt að taka niður fána- borðann og hjálminn og að stinga kylf- unum inn á sig, þannig að þær sæjust ekki. Áttu þeir síðan að fara út á Austur- völl, taka þar upp kylfur sínar og berja frá sér í allar áttir. Komust þessar ráða- gerðir á það stig, að menn fjarlægðu ytri „embættistákn" sín og stilltu sér upp í röð, þegar sá maður, sem mestan veg og vanda hafði af skipulagningu og upp- köllun þessa mikla liðssafnaðar, frétti af þessum fyrirætlunum. Fékk hann þvi framgengt að fallið var frá þeim og naut til þess fulltingis dómsmálaráðherra. Má fullyrða að afleiðingar þessa tiltækis hefðu orðið hroðalegar, þegar reynsla liðsins siðar er höfð í huga: „Hausarnir á okkur væru þá ekki með því innihaldi, sem þeir eru í dag!“ voru orð Leifs Sveinssonar og Stefán Péturs- son kvaðst þess fullviss, að hann væri ekki i „lifenda tölu í dag“, hefði úr þessu orðið. Þess skal getið að lögregluyfirvöld könnuðust ekki við þessar ráðagerðir, þegar eftir var spurt, en engu að síður má fullyrða að þær hafi verið ræddar í alvöru af yfirmönnum lögreglunnar og að litlu hafi munað að ekki varð úr framkvæmdum. I bréfi frá „einum sek- um“, segir: „Þegar þingfundi var lokið var okkur tilkynnt að við skyldum taka borðana og hjálmana og skilja eftir, en stinga kylf- unum inn á okkur (Leturbr. Þjóðvilj- ans). Er við vorum í þann veginn að framkvæmda þá skipun, kom Jögreglu- stjóri inn í dyrnar og fyrirskipaði að fylkja liði og ryðja götuna fyrir framan þinghúsið--------.“ í samræmi við aðrar upplýsingar í bréfi þessu, sem allar koma heim og saman við það, sem nú er vitað um liðssafnaðinn og fundi hans, er enginn ástæða að draga frásögn bréfritara í efa, en hvað sem „sekt“ hans líður vegna þátttöku i varaliðinu, er alveg Ijóst að „sekur" var hann um „að leka í kotrim- ana!“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.