Morgunblaðið - 28.11.1976, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.11.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1976 63 Umsjón: Rúna Gísladóttir og Þórir S. Guðbergsson. Barna- og fjölskyldusíða Morgunblaðsins Ungur maður sat eitt sinn hjá gömlum manni og sagði hinum margar óhróðurssögur um ýmsa kunningja sína. Á meðan gamli maðurinn hlustaði á sögurnar tók ungi maður- inn eftir því, að hann var alltaf að skrifa eitthvað á blað Þegar ungi maður- inn ætlaði að fara, sagði gamli maðurinn við hann: „Viltu nú ekki skrifa nafnið þitt undir þetta?" Litla sagan: Lærðémnr „Hvað er það?" spurði ungi maðurinn hissa. „Ég hef skrifað níður allt það, sem þú hefur sagt um félaga þfna. Þetta snertir mannorð þeirra, og þeir hafa ekki átt þess kost að verja sig Nú ætla ég að leyfa þeim sjálfum að sjá það sem þú hefur sagt, og þú skalt muna það, að þú verður að bera fulla ábyrgðá orðum þínum." Þess þarf ekki að geta, að ungi maðurinn tók aft- ur allt það, sem hann hafði sagt við gamla manninn um félaga sina 4. Og Hannes hélt áfram að hugsa um kofann. Hann átti að verða reglulega ffnn. Kannski gæti hann boðið öllum krökkunum i bekknum. Og kennarinn gæti iíka komið og bakað pönnukök- ur handa öllum. En allt f einu hrökk Hannes litli við. Var einhver að nefna nafnið hans? Hannes með hamarinn 5. Allir krakkarnir fóru að hlæja. Hann fann hvernig sér hitnaði f framan og hann langaði helst til þess að fara að gráta. En kennarinn bjargaði málunum. „Usssss!“ sagði hann og setti fingurinn upp að munninum. „Þó að einhver hugsi meðan ég er að tala, megum við ekki fara að hlæja. Hver veit nema Hannes hafi verið að hugsa eitthvað merkilegra en ég var að tala um. Kannski Hannes vilji reyna að segja okkur, hvað hann var að hugsa.“ öll börnin þögnuðu og fóru að hlusta. 6. Hannes sagði þeim frá kofanum og sýndi þeim hamarinn sinn. Og kennarinn lagði áherslu á, að allir þyrftu að læra að virða aðra þó að þeir hugsuðu öðru vfsi eða væru öðru vfsi en aðrir. Þegar Hannes fór heim úr skólanum, var hann glaður og ánægður. Hann hlakkaði til þess að hitta pabba sinn og mömmu — og til þess að fara aftur f skólann næsta dag. 7B££~ Stjörno- kíkir Galileo Galilei (1564—1642) var ftalskur eðlisfræðingur, stjörnufræðingur og heimspekingur. Hann var fyrstur manna. sem notaði kiki til stjörnu- rannsókna og uppgötv- aði m.a. fjóra fylgi- hnetti Júpíters. Hann komst líka að raun um, að jörðin snýst um- hverfis sólina, en and- stæðingar hans þving- uðu hann til þess að afneita þeirri kenningu. UIÍHS •uinisfiujnpvm ’uufiu iujbu ‘|uiuinji( ‘J*UI QJUI npnddoJH 80 pu npuio>| *uuj)(snj»S So ítSÁjq ‘jjpjqjB pnjoq uubj 83 :uuis bujbu $ Jvueq ‘jjp jequnjq juiuinj>| uinioaqHiiau eiAJOAS FÖNDUR Aðventu-almanak Aðventu-aimanök verða sffellt glæsilegri og dýrari f verzlunum ár frá ári. Framleiðendur hafa selt vel, og notfæra sér löngun barnanna til þess að metast við vini og kunningja um hver eigi ffnasta almanakið. Hvernig væri að sleppa samkeppninni og útbúa almanak með krökkunum. Ánægja þeirra yrði sfzt minni. A. Broddgöltur: Gerið stóra kúlu úr leir, e.t.v. úr trölladeigi, og myndið trýni á. Tveimur tituprjónum með glerhaus er stungið inn fyrir augu. Stingið 24 tann- stönglum i „göltinn", og látið oddinn snúa út. Setjið síðan súkkuiaðibita, rúsínu eða eitt- hvað slfkt á hvern odd. Börnin fá síðan einn mola dag hvern. Bezt er, að hvert barn eigi sinn broddgölt. B. Veggstrengur: Margar hugmyndir er að finna i blöðum og handavinnu- heftum. Nota má filt, efnisaf- ganga og útsaumsgarn, og ým- ist líma niður myndirnar eða sauma þær á. Litlum bögglum með góðgæti í er síðan fest á myndina — 24 bögglum alls, og tölur má setja á, ef vill. C. Flannelograf: Stór pappa-plata er þakin dökku filti. Stigi með 24 þrep- um er teiknaður eða límdur á (notaður iitur eða garn). Klippið út engil eða jólasvein úr filti. Sfðan er hann færður til um eitt þrep dag hvern, frá 1. desember og fram til jóla. Hann á að loða við, án þess að festa hann sérstaklega. Skreyta má himininn með gull- stjörnum. Heilabrot Hvað er þetta? Kru Mmik Runka Rúti Kal Larán Af Nas Inn Egfa Nnhö Fuða Fhrú Ti Hr Yggogg Ærusk Inn. Ko Mdunú ogkro PPað Umeðm Ér Krum Mina Fnim Inn. Konungar og prestar, herramenn og bændur neyta af því, ogþó kemur það aldrei ánokkurs manns borð. Hvað er það? Þau hlaupa yfir láð og lög (land og sjó) og hafa þó enga fætur. Hver eru þau? Svör neðst á sfðunni. Aðventa Orðið aðventa þýðir koma í dag hefst aðventan, en hver er þá að koma? Mörg hundruð árum fyrir fæð- ingu Jesú Krists vissi spámaður Guðs, að sonur hans, frelsarinn, myndi koma. Nú eru mörg hundr- uð ár siðan Jesús kom. fæddist i heiminn, og á hverju ári höldum við hátið vegna þess. Fjórum sunnudögum fyrir jól hefst þessi timi: komutími Jesú, aðventan Til þess að minna okkur á — og gera þennan dimma tíma bjartari. hefur skapast góður siður: Að kveikja á kertum i aðventu-kransi. Kransinn er venjulega kringlóttur, og á honum eru 4 stór kerti. í dag er fyrsti sunnudagur i að- ventu, og þá kveikjum við á fyrsta kertinu Við látum loga á þvi góða stund, setjumst saman og spjöllum það, sem i vændum er. Gaman er lika, ef einhver úr fjölskyldunni les upphátt góða jólasögu Öll hlökk- um við mikið til jólanna, sem eru að koma, en gleymum ekki, að jólin eru afmæli Jesú, sonar Guðs Við erum að fagna komu hans til okkar manna Jesús, þú ert vort jólaljós, um jólin Ijómar þin stjarna. Þér englarnir kveða himneskt hrós. það hljómar og raust Guðs barna. Skammdegismyrkrið skyggir svart, ei skugga sjáum þó tóma. Þú IjósiS af hæðum. blitt og bjart, þú ber oss svo fagran Ijóma. V Briem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.