Morgunblaðið - 28.11.1976, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.11.1976, Blaðsíða 24
64 MORGUNBI.AÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1976 Somt öcdandic recipts Sotne 'Jctlandic recipes Elín Kristjánsdóttir Some lcelandic Recipes Litla matreiðslubókin sem þú sendir erlendum vinum í jólagjöf — og hún kostar lítið. Þessi bók er ekki stór, aðeins 80 litlar síður, en hver segir að gjöf þurfi alltaf að vera svo voða stór og dýr. Það eru gæðin sem skipta máli. Þessi litla bók geymir fjölmargar uppskriftir ís- lenskra rétta, sem margir útlendingar hafa þegar prófað og lokið lofsyrði á. Bókin er svo lítil fyrir- ferðar að hægt er að senda í stóru umslagi hvert sem er. Könnun Kyrrahafsins 4. bindi í bókaflokknum Lönd og landkönnun í þýðingu Steindórs Steindórssonar Mannkynssagan er meira en morð og dráp, hún geymir ekki aðeins nöfn herskárra hershöfð- ingja, sem leiða milljónir til skipulagðrar aftöku, heldur einnig nöfn manna sem knúnir af ævin- týraþrá og löngun til þess að láta gott af sér leiða leituðu á vit þess ókunna og fremur fórnuðu eigin lífi en annarra fyrir hugsjón sína. Þróunar- saga mannsins er samofin sífelldri leit til þess að nýjum löndum og leiðum. LÖND OG LANDKÖNNUN Könnun Kyrrahafsins öm&Óflygw ÓLAFUR NOTAR ENGA TÆPITUNGU OG DREGUR EKKERT UNDAN, HVORKI SÍN ÆVINTÝRI NÉ ANNARRA. BÓK ÓLAFS FRÁ ODDHOLI MUN LENGI í MINNUM HÖFÐ FYRIR BERSÖGLI OG BRAGÐMIKIÐ GRÍN Snjólaug Bragadóttlr frá Skáldalæk Enginn veit hver annars konu hlýtur Bókin segir frá ungum stúlkum á hálum brautum höfuðborgarinnar og ástarævintýrum þeirra. Þær taka á leigu gamalt hús við Grettisgötu. Brátt bætast fleiri í hópinn, karlar og konur, og ástin birtist í margskonar myndum. Ýmist er ástarfuninn að brenna upp báða elskendurna, eða ástin tekið svo óvænta stefnu, svo enginn veit aö lokum hver annars konu hlýtur. Séra Gunnar Benediktsson Stiklað á stóru frá bernsku til brauðleysis Frásagnargáfa þessa byltingasinnaða klerks, hispursleysi og ritleikni er þjóðkunn. Aldrei hef- ur hann verið hreinskilnari og opinskárri um einkamál sín og ævikjör en í þessari bók, en margþætt reynsla hans og félagsleg skyggni gera minningar hans að samtíðarskuggsjá. Ekkert mannlegt lætur hann sér óviðkomandi, þekking hans víðtæk, penni hans léttur, en hvass og markviss. , ég vil nú hafa mínarkonur s/alfur segir Okifiirá Oddhóli ogfyrrumi OIEIFIE Ólafur »«gir hisþufslaust frá margslungitu tlfshtaupi *inu og dregur ekkert undatl. Hann er léttur I lund og JT " gamaniemin veður A iCiðum, gerlr grfn uð ujálfum »ér f l'U&Ur Miti ödrum, »vo xm fram kemur i kaflanum f þorfpjfssoU 1 efaldrei hlegidyjaM /Jtf i l' ‘’g lcsendum þesiarar bókar verdur létt Cf/fvl um hlátur, (ivó |í«lf muna vah annad eiits. Svæðameðferðin — Zone Terapi — eða Frásagnir fóta eftir Eunice D. Ingham í þýðingu Jóns Gissurarsonar Hér er um mjög sérstæða bók að ræða og í formála hennar segir höfundur m.a.: ,,Með nuddi réttra staða á fæti, eða fótum, má því hafa heillarík áhrif á aumt líffæri, hversu fjarri, sem það er nuddstað. Hundruð sjúklinga minna hafa fengið undraverðan bata. Steinar J. Lúðvíksson Þrautgóðir á raunastund 8. bindi björgunar- og sjóslysasögu Islands Þessi bók fjallar um árin 1920—1924 og nú er komið að þeim þætti í útgerðarsögu íslendinga, þar sem skúturnar skipa sinn mikla sess. Meðal atburða má nefna strand Talismans við Kleifar- vík, Krossmessugarðinn mikla og strand Sterl- ings við Brimnes. þá er í bókinni fjöldi Ijósmynda frá þessu tímabili og þar á meðal myndaflokkur frá síldveiðunum fyrir Norðurlandi. Hornstrendingabók Þórleifs Bjarnasonar að miklu leyti nýtt verk í þremur bindum og myndskreyttum kassa. Prýdd 80 Ijósmyndum, sem margar hverjar hafa hvergi birst áður. Hornstrendingabók greinir frá byggðarlögum Hornstranda og mannlífi þar um slóðir um langan aldur, harðri lífsbaráttu fólksins í þessum afskekkta og hrjóstruga landshluta, en jafnframt sérstæðri menningu þess og einkennilegum háttum. Drjúgur hluti bókarinnar er sagnaþættir og þjóðsögur af Hornströndum, og tekst höfundi að bregða sterku Ijósi á liðnar aldir. Horn- strendingabók er eitt af merkilegustu átthagaritum á íslenskri tungu og frábært rit vegna fróðleiks og ritsnilli Þórleifs Bjarnasonar. Baldur Guðlaugsson og Páll Heiðar Jónsson Þrítugasti marz 1949 mestu innanlandsátök frá siðaskiptum Þann 30. mars 1949 fékk innibyrgð spenna, tortryggni og gagn- kvæm andúð útrás í athöfnum og átökum, sem ekki hafa orðið önnur og meiri síðan um siðaskipti. Bókin er byggð á innlendum og erlendum gögnum úr skjalasöfnum ráðuneyta og hæstaréttar og viðtölum við stjórnmálamenn, lögreglumenn, varaliðsmenn, áhorfendur og sakborninga. f bókinni eru 60 Ijósmyndir, flestar áður óbirtar, þ.á m. úr kvikmynd. Góð bók er gulli betri ÖRN OG ÖRLYGUR Vesturgötu 42, Sími: 25722

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.