Morgunblaðið - 30.11.1976, Blaðsíða 22
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1976
1. deild kvenna
FRAM MARÐISIGUR 10:9
Á MÚTIVAXANDIKR-LIÐI
SA LEIKUR sem mesta athygli vakti
I. 1. deild kvenna um helgina og var
sennilega bezt leikinn var leikur
Fram og KR á sunnudaginn. Fram-
stúlkurnar hrósuðu sigri I leiknum,
10:9, en jafntefli eða KR-sigur hefði
allt eins getað orðið staðreynd. Þó svo
að þessi leikur hafi verið bezti
kvennaleikurinn, þá er ekki þar með
sagt að hann hafi verið góður, í heild
sinni virðast liðin I 1. deild kvenna
nú lélegri en áður og t.d. slakari en f
fyrravetur.
Framliðið er nær alveg skipað sömu
stúlkum og í fyrravetur og því sætir
furðu að liðið skuli ekki ná meiru út
úr leik sinum en t.d. á laugardaginn.
Þá er það löstur á liði að þær skuli
láta dómarana fara í taugarnar á sér,
þó svo að þeir séu ekki alltaf upp á
það bezta, þá er það sjaldnast til bóta
aó vera eilíflega að nöldra og mót-
mæla dómum.
KR-liðið er nú jafn betra en áður og
eina liðið sem undirritaður hefur séð
í vetur, sem er betra nú en áður.
Ungu stúlkurnar í liðinu eru að sækja
sig og liðinu hefur bætzt góður liðs-
auki, þar sem er Svara Sigtryggsdótt-
ir, sem áður lék með Val. Með þvi að
nýta betur tækifæri sín f leiknum
gegn Fram hefði KR-liðið átt að geta
náð a.m.k. öðru stiginu og er liklegt
til að vera í einu af efstu sætunum í 1.
deildinni í vetur, en nær tæplega alla
leið á toppinn.
Leikur Fram og KR þróaðist þannig
að Fram tók forystu strax f upphafi
og hélt henni allan leikinn. Aldrei
munaði þó miklu og var t.d. aðeins
eins marks munur í hálfleik, 5:4. Á
síðustu mínútunni var mikil spenna
meðal leikmanna og fengu Fram-
stúlkurnar þá gefins vítakast — það
eina sem þær fengu gefins í leiknum.
(Jr leik Vals og Þór. Oddný skorar fyrir Val.
Þói krækti í 2 óvænt stig
NYLIÐAR Þórs ■ 1. deild kvenna gerðu sér lítið fyrir og lögðu að velli
íslandsmeistara FH í útihandknattleik frá i sumar er liðin mættust í 1. deildar
keppni íslandsmótsins i Hafnarfirði á sunnudaginn. 12—9 fyrir Þór urðu úrslit
leiksins. og voru þau i hæsta máta sanngjörn, þar sem Þórsliðið var allan leikinn
betri aðílinn og sýndi betri handknattleik. FH-liðið er sýnilega i hálfgerðum molum
um þessar mundir og náði aldrei að sýna sinar beztu hliðar. Var leikur liðsins á
köflum mjög ráðleysislegur. en sennilega hefur einnig verið rikjandi vanmat á
andstæðingnum fyrirfram.
FH-stúlkurnar skoruðu fyrsta mark leiksins úr vitakasti og var það i eina skiptið
sem þær höfðu yfir i leiknum. Þór náði fljótlega að jafna og var einu marki yfir i
hálfleik 4—3. í seinni hálfleiknum náðu Þórsstúlkurnar svo góðum tökum á
leiknum og áður en varði höfðu þær náð þriggja marka forystu, sem liðinu tókst
að halda til loka.
Í Þórsliðinu áttu beztan leik þær Auður Dúadóttir markvörður Anna Gréta
Halldórsdóttir og Soffia Hreinsdóttir. Liðið vann vel saman i þessum leik, og lék af
sæmilegri yfirvegun, eftir að forystunni var náð. Oft létu þær' þó FH-stúlkurnar um
of trufla sig. er þær komu fram á völlinn, og misstu knöttinn. Kom það þó
sjaldnast að sök, þar sem FH-stúlkurnar voru furðu lagnar að nýta illa tækifæri
sin. Beztar hjá FH i Þessum leik voru þær Kristjana Aradóttir og Katrin
Danivalsdóttir, og var sú fyrrnefnda raunar bezti leikmaður þessa leiks. Hætt er
við að þessi ósigur verði til þess að vonir FH-stúlknanna um íslandsmeistaratitil-
inn i ár verði minni.
(Jr þvi var skorað og staðan varð 11:9.
KR átti síðasta orðið á lokasekúndun-
um, en tíminn, sem eftir var, dugði
þeim ekki til að jafna.
I liði Fram áttu þær Jóhanna og
Jenný Grétudóttir beztan leik, en
einnig átti Oddný þokkalegan leik þó
svo að hún geti skorað mun fleiri
mörk með langskotum en hún gerir.
Af KR-stúlkunum stóð Hansína sig
einna bezt, en liðið er mun jafnara en
áður eins og fyrr sagði. Svala Sig-
tryggsdóttir sýndi mikið öryggi i
vítaköstunum í þessum leik og skor-
aði 5 lagleg mörk þannig.
Mörk Fram: Oddný 5, Guðrfður 2,
Guðrún, Jóhanna, Jenný og Kristín 1
hver.
Mörk KR: Svala 5, Sigrún 2, Olga,
Hansfna og Hjálmfríður 1 hver.
-áij.
Öruggur Vals-
sigur gegn Þór
ÁN þess að sýna nokkurn stór-
leik sigraði Valur örugglega
lið Þórs í Laugardalshöllinni
á laugardaginn. tJrslit urðu
15:7, en í leikhléi var staðan
8:5. Valsliðið var langt frá því
að vera sannfærandi í þessum
leik og má gera gott betur í
vetur, ef liðið ætlar sér ein-
hvern hlut frá 1. deildinni í
vetur.
Þórsstúlkurnar héldu í við Valslið-
ið fram yfir miðjan fyrri hálfleikinn
og var t.d. jafnt á öllum tölum upp í
4:4. Þá tók Valsliðið loks örugga for-
ystu og jók hana smátt og smátt upp í
15:7 í lok leiksins. Vann Valur því
seinni hálfleikinn, 7:2.
1 Valsliðinu var það engin ein sem
skaraði fram úr og fjarvera Sigrúnar
Guðmundsdóttur háir liðinu greini-
lega mikið. I fyrra byggðist allt spil
liðsins í kringum Sigrúnu og nú þeg-
ar hún er ekki með þorir enginn að
taka ákvarðanir þó svo að í liðinu séu
ágætir leikmenn. Ragnheiður Blöndal
og Inga markvörður voru einna
drýgstar í þessum leik.
Lið Þórs átti slakan leik eins og
Valur að þessu sinni og það var helzt
Magnea, sem sýndi skemmtilega
takta, en einnig Anna Gréta f upphafi
leiksins.
Mörk Vals. Ragnheiður 6, Agústa
Dúa, Björg Guðmundsdóttir og
Sigrún Ingólfsdóttir 2 hver, Halldóra,
Harpa og Oddný 1 hver.
Mörk Þórs: Anna Gréíá 2, Magnéa
2, Harpa 1, Soíííá 1, Freydfs 1. —áij
ARMANNSLIÐIÐ er ekki sterkt
núna frekar en hin kvennaliðin f 1.
deild kvenna. Liðið var þó nógu
sterkt á sunnudaginn til að sigra
Breiðablik örugglega 10:6. Ármanns-
liðið hefur misst nokkrar góðar stúlk-
ur úr liðinu og munar þá mest um
Erlu Sverrisdóttur, Breiðabliksliðið
saknar einnig góðra leikman^.i eins
og t.d. öldu ”é-lga{jóttur og Guðrúnu
Helgadóttur.
Auk þess sem léikur liðanna á
sunnudagÍLn var laus við flest það
Sém prýða má góðan handknattleik,
þá vantaði i hann allan áhuga og alla
spennu. Ármannsliðið komst yfir
strax í upphafi leiksins og leiddi 4:2 í
leikhléi. 1 seinni hálfleik jókst mun-
Lítill áhugi er Ar-
mann vann Breiðablik
urinn aðeins og þegar upp var staðið I
leikslok munaði fjórum mörkum,
10:6.
í liði Ármanns var Auður Rafns-
dóttir bezt og sú eina sem barðist
allan tímann, einnig var Magnea góð í
markinu og Erna er mjög efnilegur
leikmaður. Breiðabliksliðið er mjög
jafnt, en að þessu sinni var engin ein
betri en önnur.
Mörk Ármanns: Guðrún 3, Anna 2,
Erna 2, Jórunn 2, Auður 1.
Mörk Breiðabliks: Sigurborg 3,
Hrefna 2, Arndís 1. — áij.
KRIBASLI
MEÐUBK
KR-INGAR áttu f miklum erfið-
leikum með Breiðablik f körfu-
knattleiknum nú um helgina. KR
sigraði að vfsu, en ekki er hægt að
hæla þeim fyrir þann sigur, enda
voru þeir alveg áhugalausir og
Steinn Sveinsson, var bezti tS f
leiknum gegn Val og skoraði 20
stig.
var eins og þeir héldu að þeir
þyrftu ekkert að hafa fyrir sigri f
þessum leik. Þeir sigruðu aðeins
með 17 stiga mun og var það
talsvert minna en fyrir fram var
búizt við.
Gangur leiksins var annars sá
að KR-ingar byrjuðu með miklum
látum og komust f 18—4 á 7.
mfnútu fyrri hálfleiks og á 16.
mfnútu var staðan orðin 31—14
KR f vil, en þá hættu KR-ingar að
leika körfuknattleik, vörnin gal-
opnaðist og Blikarnir sóttu sig
mikið og staðan f hálfleik var
37—24 KR f vil.
I seinni hálfleik gekk þetta
eins, vörn KR var galopin og sókn-
in bitlaus, að vfsu skoruðu KR-
ingar 43 stig í seinni hálfleik, en
þeir fengu líka 39 stig á sig. Leik-
urinn leystist upp f tóma vitleysu
og hefur ábyggilega sjaldan verið
leikinn jafn leiðinlegur körfu-
knattleikur í fyrstu deild. Annars
þarf ekkert að vera að fjölyrða
um þennan leik, en rétt er þó að
geta þess að Blikarnir léku nú
sinn bezta leik og hefur leikur
þeirra heldur farið skánandi upp
á síðkastið.
Stigin fyrir Breiðablik skoruðu:
Guttormur Ölafsson 20, Óskar
Baldursson 16, Ágúst Líndal 13,
Rafn Thorarensen 10, Ömar
Gunnarsson 4.
Fyrir KR skoruðu: Einar Bolla-
son 32, Gísli Gíslason 12, Birgir
Guðbjörnsson 10, Gunnar Ingi-
mundarson, Kolbeinn Pálsson og
Carsten Kristinsson 4 hver, Eirík-
ur Jóhannesson 8, Gunnar Jóa-
kimsson, Hilmar Viktorsson og
Ásgeir Hallgrímsson 2 stig hver.
HG.
STAÐAN
STAÐAN í 1. deildar keppni íslands-
mótsins í körfuknattleik er tiú þessi:
Ármann 4 4 0 333:302 8
UMFN 3 2 1 233:164 4
ÍS 3 2 1 273:243 4
ÍR 3 2 1 231:210 4
KR 3 2 1 273:243 4
Valur 4 1 3 299:309 2
Fram 3 0 3 213:256 0
UBK 3 0 3 164:268 0
STÚDENTAR UNNU
VAL MEÐ 97-81
STUDENTAR unnu Val nokkuð
örugglega í leik liðann; — ne(g.
'í1.” » Korfuknattleik. Stúdentar
voru Sterkari aðilinn allan tím-
ann, ef fyrstu mínútur leiksins
eru frátaldar og unnu þeir verð-
skuldaðan sigur, 97—81.
Gangur leiksins var annars sá
að Valsmenn byrjuðu vel og kom-
ust í 12—8 og hafði þá vörn stú-
dentanna verið illa á verði. En
stúdentar sóttu i sig veðrið og
tókst þeim að jafna leikinn og
komast yfir og héldu þeir foryst-
unni út allan fyrri hálfleik, en í
leikhléi var staðan 50—42 þeim f
vil.
Valsmenn mættu svo ákveðnir
til leiks í seinni hálfleik og tókst
þeim að minnka forskot stúdent-
anna niður í eitt stig á 7. minútu
hálfleiksins, en þá var staðan orð-
in 61—60, IS í vil, en stúdentar
voru sterkir á endasprettinum og
tóku leikinn I sfnar hendur og
unnu yfirburða sigur yfir Val
97—81.
Þe?-’. .C'.n.ur var vel leikinn af
hálfu stúdenta, sem áttu allir
fremur jafnan leik, en Steinn
Sveinsson var þeirra þó beztur. Á
köflum var leikur Vals nokkuð
góður og sást margt skemmtilegt
til Valsmanna í þessum leik, en
það virðist sem þeir geti ekki leik-
ið vel allan leikinn og einnig
gengur þeim illa að þola mótlæti
og hættir þeim oft til að gefast
upp ef þunglega gengur.
Bezti maður þeirra í þessum
leik var tvímælalaust Kristján
Agústsson og gekk stúdentum
ákaflega erfiðlega að stöðva hann.
Stigin fyrir stúdenta skoruðu:
Bjarni Gunnar Sveinsson 21, Ingi
Stefánsson 20, Steinn Sveinsson
20, Jón Héðinsson 14, Guðni Kol-
beinsson 13, Ingvar Jónsson 5, og
Helgi Jensson 4 stig.
Fyrir Val skoruðu: Kristján
Ágústsson 26, Ríkharður Hrafn-
kelsson 18, Þórir Magnússon 16,
Torfi Magnússon 11, Gísli Jónsson
6, og Lárus Hólm 4 stig.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1976
13
- EN AÐRIR BLAKLEIKIR VDRU TÍÐINDAMINNI
ÞRtR leikir voru leiknir f fyrstu
deild fslandsmótsins f blaki nú
um helgina. Fyrst léku Laugar-
vatnsliðin UMFL og Stfgandi og
lauk leik þeirra með öruggum
sigri UMFL, 3—0 (15—13, 15—3
og 15—1). Þessi leikur er þvf
miður enginn mælikvarði á getu
UMFL, en þetta var fyrsti leikur-
inn þeirra I mótinu. en hins vegar
rennir hann stoðum undir þær
lfkur að Stfgandi vinni ekki einn
einasta leik f mótinu. og leiki þvf
f 2. deild á næsta ári.
og einnig átti Tómas Jónsson
nokkra fasta skelli f gólfið hjá
Víkingunum. Einu ljósu punkt-
arnir i leik Víkinganna í þessari
hrinu voru stuttu skellirnir frá
Páli Ólafssyni, en hrinunni lauk
með sigri UMFL, 15—11.
önnur hrinan var einnig Laug-
vetninganna ef sleppt er upphaf-
inu, en Víkingar byrjuðu mjög vel
og komust í 5—0, en þá var allur
vindur úr þeim og þeir unnu að-
eins tvö stig til viðbótar. Þetta var
á hinn bóginn bezta hrina Laug-
vetninganna og þegar þeim Tóm-
asi Jónssyni og Haraldi Geir Hlöð-
verssyni tekst vel upp er afar
erfitt að verjast föstum skellum
þeirra, en þessari hrinu lauk með
15—7 sigri UMFL.
I þriðju hrinunni sóttu Víking-
ar sig mikið og munaði mest um
betri móttöku og uppspil og einn-
ig var meiri barátta í þeim en
áður, enda var þetta sfðasta tæki-
færið til að vinna leikinn. Annars
var hrinan mjög jöfn, en þó höfðu
Laugvetningar frumkvæðið fram-
an af og komust þeir f 8—4, en svo
sóttu Víkingar sig og tókst þeim
að vinna eftir mikla baráttu og
lauk hrinunni með sigri þeirra
15—9.
Fjórða hrinan var svo bezt af
hálfu Vikinganna og börðust þeir
á fullu allan tfmanna og unnu
verðskuldað, 15—5.
Þá var komið að odda-hrinunni
og hana unnu Víkingar einnig og
báru þeir þvi sigur úr býtum,
3—2. Víkingarnir höfðu alltaf
frumkvæðið f hrinunni og var sig-
ur þeirra verðskuldaður, en henni
lauk með 15—12, Víkingi f vil.
Það sem gerði gæfumuninn í
þessum leik var betri móttaka og
uppspil hjá Vikingunum og einn-
ig voru þeir baráttuglaðari og
ákveðnari þegar á reyndi. Bezti
maður Víkinganna var Páll Ólafs-
son og er gaman að sjá til hans
þegar hann nær stuttu skellun-
um, annars átti liðið í heildina
góðan leik.
Beztu menn UMFL voru þeir
Tómas Jónsson og Haraldur Geir
Hlöðversson, en þeir eru ábyggi-
lega sterkustu skellarnir f blak-
inu f dag, einnig átti Birkir Þor-
kelsson góðan leik og kom Víking-
unum oft í opna skjöldu með lag-
legum laumum. Ánnars háir það
liðinu mikið hve móttaka knattar-
ins og uppspil er slakt, en ef upp-
spilið væri betra yrði sókn liðsins
mun beittari með þá Harald og
Tómas sem sterkustu menn.
Þá var leikinn einn leikur f
fyrstu deild kvenna og áttust þar
við Þróttur og UBK. Leiknum
leuk með sigri Þróttar, 3—1
(15—4, 10—15, 18—16, og
15—11). Þetta var mikill baráttu-
leikur eins og sést á úrslitatölun-
um og virðist sem breiddin i
kvennaflokknum sé aðeins að
aukast.
Að lokum léku b-lið Þróttar og
UBK og lauk þeim leik með ör-
uggum sigri UBK, 3—0 (15—10,
15—8og 15—8).
HG
Páll Ólafsson lendir á gólfinu eftir glæsilega lágvörn, en hann var
bezti maður Vfkinga f þessum leik
Hraði KR-inga setti
Sijörnuna út af laginu
KR-ingar sigruöu Stjörnuna 27—20
i leik liðanna i 2. deild íslands
mótsins i handknattleik, sem fram
fór i Ásgarði i Garðabæ á sunnudag
inn, eftir að staðan hafði verið
15—8 fyrir KR i hálfleik. Má segja
að KR-ingar hafi kaffært Stjörnuna
þegar á upphafsminútum leiksins,
þar sem þeir höfðu náð 9 marka
forystu um miðjan fyrri hálfleikinn.
Eftir þessa fyrstu stórskotahrinu KR-
inga var leikurinn allt til loka —
munurinn var 5—7 mörk.
Það var einkum hraði og harka KR-
liðsins sem virtist koma Stjörnunni i
opna Skjöldu til að byja með i leiknum.
Smituðust Stjörnuleikmennirnir af
„hasar" KR-inganna og sóknir þeirra
stóðu jafnan ekki nema örskamma
stund áður en skotið var — oftast með
litlum árangri Þegar KR-sótti voru
varnarleikmenn Stjörnunnar svo til að
byrja með alltof seinir út á móti skytt-
unum, og hættu þeir sér fram móti
þeim voru linumenn KR oft dauðafriir
En strax og sæmileg ró komst á hélt
Stjarnan fullkomlega i við KR og sýndi
oft allgóða takta Þó fóru of mörg
tækifæri liðsins forgörðum KR-ingar
nýttu tækifæri sin hins vegar betur og
voru yfirleitt yfirvegaðri i leik sinum. Er
greinilegt að KR-liðið sækir stöðugt i
sig veðrið, og hefur vissulega mann-
skap til þess að vinna 2 deildína i
vetur. hvort sem það tekst eða ekki
Beztu leikmenn KR i þessum leik
voru Pétur Hjálmarsson markvörður
sem varði oft með miklum ágætum.
Hilmar Björnsson sem var potturinn og
pannan i spili liðsins og Simon
Unndórsson sem skoraði nokkur stór-
kostlega falleg mörk úr föstum skotum
Hjá Stjörnunni áttu þeir nafnar
Magnus Teitsson og Magnús
Andrésson einna beztan . leik, en
Gunnar Björnsson náði sér einnig vel á
strik í seinni hálfleiknum og skoraði þá
um tima i nánast hverri sókn Stjörn-
unnar
Mörk Stjörnunnar Magóus Teitsson
6. Gunnar Björnsson 6, Magnús
Andrésson 3. Eyjólfur Bragason 3,
Guðmundur Yngvason 2
Mörk KR: Simon Unndórsson 7.
Hilmar Björnsson 5. Þorvarður Jón
Guðmundsson 4, Kristinn Ingvarsson
3. Sigurður P: II Óskarsson 2. Haukur
Ottesen 2. Ingvi Steinn Björgvinsson
2. Ævar Sigurðsson 1, Friðrik Þor-
björnsson 1
Góðir dómarar voru Jón Hermans-
son og Grétar Vilmundarson —stjl.
Þorvaldur Geirsson hirðir eitt af mörgutn fráköstum sfnum f leiknum
við Ármann um helgina.
Næsti leikur var leikinn á
Akureyri og fór hann fram á
laugardag. Þar áttust við Þróttur
og UMSE og þrátt fyrir að Þrótt-
arar væru án tveggja sinna sterk-
ustu manna, þeirra Guðmundar
Böðvarssonar og Antons Bjarna-
sonar unnu þeir 3—0 (15—4,
15—8, og 17—15). Eins og sjá má
af þessum tölum var það aðeins í
síðustu hrinunni sem Eyfirðing-
arnir sýndu þokkalegan leik og
voru Þróttarar heppnir að vinna
hana því að UMSE hafði foryst-
una 15—14, en þeim tókst ekki að
knýja fram sigur þrátt fyrir mikla
baráttu og má segja að þessir leik-
ir hafi farið eins og við var búizt
fyrir fram.
Síðasti fyrstu deildar leikurinn
var svo á milli Víkinga og UMFL.
I fyrstu hrinunni höfðu Laug-
vetningar alltaf frumkvæðið og
voru þeir mun baráttuglaðari og
var gaman að sjá hve val stuttu
skellirnir tókust hjá Haraldi Geir
Kæruleysi varð Ármenn-
ingum næstum að falli
ARMENNINGAR voru svo slapp-
ir og áhugalausir f leik sfnum
gegn Fram að minnstu munaði að
þeir töpuðu fyrir Frömurum sem
voru sýnilega mun ákveðnari og
sýndu þokkalegan leik með Guð-
mund Böðvarsson f fararbroddi,
en hann skoraði alls 30 stig f
leiknum og réð Jimmy Rogers
ekkert við hann, enda átti hann
óvenju slakan Ieik. Það sama má
segja um Jón Sigurðsson, að hann
var venju fremur daufur og gerði
sig sekan um of mikið af mistök-
um og þegar þeir báðir eiga slak-
an dag er Armannsliðið eH'5
° _.>nl
nema miðlw""”''' *
..Mugsno.
Annars var gangur leiksins sá
að Fram hafði forystuna framan
af og náðu þeir 6 stiga forystu um
miðjan fyrri hálfleikinn þegar
staðan var 22—16, Fram-liðinu í
vil. Þá skiptu Armenningar úr
svæðisvörn yfir í stffa pressu og
kom það Frömurum í opna
skjöldu, en þeir höfðu þó forystu
þar til á 18. mín. að Armenningar
tóku góðan sprett og höfðu yfir f
hálfleik, 40—36.
I seinni hálfleik héldu Ármenn-
ingar svo áfram að pressa og náðu
þeir 15 stiga forskoti á 8. mín. er
staðan var 57—42, þeim I vil. En
þá skipti Birgir Örn Birgis, þjálf-
ari liðsins, öllum varamönnunum
inná í einu og misstu þeir forskot-
ið niður f 9 stig á 15. mín. hálf-
leiksins og ekki batnaði leikur
liðsins þegar aðal-liðið kom inná
aftur, þvf að það missti forskotið
niður í 2 stig á lokamínútu leiks-
ins og voru þeir þá heppnir að
Framarar áttuðu sig ekki á því
hve skammt var til leiksloka og
nýttu ekki tfmann nógu vel, en þó
munaði litlu að Guðmundi
Böðvarssyni tækist að skora á síð-
ustu sekúndu leiksins og jafna en
skot hans geigaði og Ármenning-
ar sluppu með skrekkinn og leikn-
um lauk með sigri þeirra 78—76.
Eins og áður sagði áttu Ármenn-
ingar í heild sinni afar slakan leik
og það var aðeins einn maður sem
eitthvað lét um sig muna, en það
var Jón Björgvinsson, sem var
þeirra líflegastur og skoraði hann
mikið úr hraðaupphlaupum og
gegnumbrotun. Þá átti Guðmund-
ur Sigurðsson ^'Kalegan leik
Það er slæmt fyrir Ármenninga
að lið þeirra skuli byggjast svona
mikið upp á tveimur einstakling-
um, því að þegar þeir eiga slakan
dag er liðið hvorki fugl né fiskur
og gæti tapað fyrir hvaða 1. deild-
ar liði sem er og þeir voru heppn-
ir að lenda ekki á móti sterkara
liði í þetta sinn. Annars verður
einnig að viðurkenna það að góð
lið falla oft niður á sama plan og
slakir mótherjar eru á og einnig
það að oftast nota „betri" liðin
leikina á móti „slöku" liðunum
sem eins konar æfingar, en hvað
um það Ármenningar áttu slakan
dag, hvernig sem á því stóð.
Framarar án Helga Valdimars-
sonar áttu þokkalegan leik og
ekki er ólíklegt að fjarvera Helga
hafi gert gæfumuninn, því að lið-
ið hefur aðeins einn annan bak-
vörð sem er nógu góður til að
leika í fyrstu deild, en það er
Jónas Ketilsson. Annars er ekki
hægt að segja ap Fram liðið hafi
átt góðan leik, heldur var það
bara slappleiki Ármenninga sem
olli þvf hvað þeir náðu langt.
Beztu menn liðsins voru þeir Guð-
mundur Böðvarsson og Þorvaldur
Geirsson.
Stigin fyrir Ármann skoruðu:
Jón Björgvinsson 19, Jón Sigurðs-
son 16, Jimmy Rogers 15, Guð-
mundur Sigurðsson og Björn
Magnússon 10 hvor, Björn Christ-
enssen 4, Haraldur Hauksson 2 og
Sigurður Halldórsson og Helgi
Sigurðsson 1 hver.
Fyrir Fram skoruðu: Guðmund-
ur Böðvarsson 30, Þorvaldur
Geirsson 12, Jónas Ketilsson o"
. ----------------
Kistjansson 11 hvor, Gunn-
ar Bjarnason 6, Arngrimur
Thorlacius 4, Sigurður Ingvason
2. H.G.
Olafur og
Gunnar urðu
sigurvegarar
UM helgina fór fram fyrsta punkta-
mót vetrarins f borðtennis. Var þá
keppt í 3. og 2. flokki. í 3. flokki
sigraði Óalfur H. Ólafsson, Erninum,
en í öðru sæti varð Sighvatur Karls-
son, Gerplu. Hlutu þeir nægilega
mörg stig í þessari keppni til þess að
færast í 2. flokk. í 3. — 4. sæti f
þessum flokki urðu svo þeir Hilmar
Konráðsson, Gerplu og Brynjónfur
Þórisson, Gerplu.
í öðrum flokki bar islandsmeistar-
inn, Gunnar Finnbjörnsson, Erninum
sigur úr býtum. Stefan Konráðsson,
Gerplu varð i öðru sæti og i 3. — 4.
sæti urðu þeir Hjálmar Aðalsteins
son, KR og Tómas Guðjónsson, KR.
VÍKINGAR UNNU UMFL
3:2 í MIKLUM BARÁTTULEIK