Morgunblaðið - 30.11.1976, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. NÖVEMBER 1976
17
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Æðardúnn
Vél- og handhreinsaður
æðardúnn til sölu. Upplýs-
ingar i sima 32079 Reykja-
vik og i Æðey ísafjarðardjúpi.
Sófasett til sölu
ásamt borði. Simi 71 926.
Ný kjólasending
Fallegir kjúlar, gott verð.
Dragtin Klapparstig 3 7.
Keflavik — Njarðvik
Til sölu 2ja herb. íbúðir til-
búnar undir tréverk. Verða til
afhendingar fljótlega.
Fasteignasalan Hafnargötu
27 Keflavík Simi 1420.
Til sölu
notað svefnsófasett.
Uppl i sima 92—2876 eftir
kl. 7 á kvöldin.
Blómasúfurnar
sem ná frá gólfi til lofts eru
komnar aftur. Sendum i póst-
kröfu.
Blómaglugginn, Laugavegi
30, sími 16525.
Frúarkápur
nylonpels, ódýrar ullarkápur í
litlum nr. til sölu.
Kápusaumastofan Diana,
Miðtúni 78. sími 1 8481.
Vörubifreið
Til sölu er Volvo F 85, árg.
67, góð díeselvél úr Benz
312 með öllu tilheyrandi og
pallur með sturtum.
Simar 34349 — 30505.
Vesturbær
Barngóð kona óskast til að
gæta heimilis hluta úr tveim
dögum í viku. Simi
1 2502, f.h. og eftir kl. 5.
Frá Þvottahúsi
Keflavíkur
Höfum opnað aftur i nýjum
húsakynnum. Húsmæður at-
hugið komið timanlega með
þvott fyrir jól.
Þvottahús Keflavikur, Vallar-
túni 5, sima 2395.
Arinhleðsla—
Skrautsteinahleðsla
Uppl. í sima 84736.
Keflavik — Njarðvík
Til leigu nýleg 3ja herb. ibúð,
teppalögð. Laus nú þegar.
Uppl. i sima 92—2162.
er fluttur að Ármúla 28, simi
37033. Kaupi allan brota-
málm langhæsta verði. Stað-
greiðsla.
Lopapeysur
Kaupi vandaðar og þétt-
prjónaðar lopapeysur. Lok-
aðar (aðeins stórar stærðir)
og opnar (allar stærðir).
Bárnapeysur opnar og lok-
aðar. Einnig hettupeysur i
fullorðinsstærðum. Kaupi að-
eins hvitar Ijósgráar og
mórauðar peysur. Upplýs-
ingar i sima 12490, i dag
milli kl.5—7.
Sigriður Pétursdóttir.
Helgafell 59761 1307 IV/V
— H.& V.
Hamar 59761 1308 — 1
K.F.U.K. Reykjavik.
Aðventufundur i kvöld kl.
20r30 Kaffi á könnunni.
Hugleiðing: Helga St.
Hróbjartsdóttir.
Við minnum á basarinn n.k.
laugardag 4. desember. Gjöf-
um veitt móttaka að Amt-
mannsstig 2b fimmtudag og
föstudag 2. og 3. desember.
Stjórnin.
Skrifstofa félags
einstæðra foreldra
Traðarkotssundi 6, er opin
mánudag og fimmtudag kl.
2—6, þriðjudaga, miðviku-
daga og föstudaga kl. 1—5.
Okeypis lögfræðiaðstoð
fimmtudaga kl. 3 — 5 Simi
11822.
Filadelfia
Almennur bibliulestur i kvöld
kl. 2C.30.
Guðmundur Markússon.
Anglia
Félagið Anglia tilkynnir að
diskótek skemmtikvöld verð-
ur haldið laugardaginn 4.
des. kl. 21. að Siðumúla 1 1.
Skemmtikvöldið er endurtek-
ið samkvæmt ósk félags-
manna. Húsinu lokað kl. 23.
Anglia félagar fjölmennið og
takið með ykkur gesti.
Upplýsingar í síma 1 3669.
Stjórn Anglia.
Kvikmyndasýning i
Franska bókasafninu
Franska kvikmyndin ..Lestin"
verður sýnd í Franska bóka-
safninu, Laufásvegi 12,
þriðjudaginn 30. nóv. kl.
20.30. Leikstjóp: Pierre
Granier-Deferre. Aðalhlut-
verk: J. — L. Trintignant og
Romy Schneider.
Kvikmyndin sem gerð er árið
1974, er í litum og er með
frönsku tali og enskum texta.
— Nýja Hrafn-
istan . . .
Framhald af bls. 15
hið almenna dagvistunarheimili hefur
aldrei verið farið eftir búsetu um-
sækjenda Þvi er Hrafnista í Reykjavík
og sú starfsemi. sem þar er rekin og
verður á þessu heimili hér í Hafnarfirði,
heimili allra landsmanna, en ekki ein-
stakra sveitarfélaga.
Við höfum aldrei í samtökum okkar
fylgt þeirri skoðun, að nú eigi að
sveitfesta að nýju gamalt fólk, þótt
eindregin ósk þess um flutning sé til
staðar, ekki aðeins vegna vissunnar
um betri aðbúnað og læknisþjónustu á
efri árum sínum, heldur einnig vilja
þess sjálfs að fylgja eftir sínum næstu
aðstandendum, svo sem flutnings-
skýrslur einstakra kjördæma bera Ijós-
an vott um Og virðist þá full ástæða til
að minnast á ósk gamla fólksins sjálfs
um búsetuskiptingu m a. til að nálgast
gamla vini og njóta þess, sem ekki er
til staðar á þeirra gömlu „heimavig-
stöðvum".
Virðist svo sem staðföst „byggða-
stefna'' fylgi áætlunum ýmissa ráða-
manna um að aldrað fólk eigi engu að
ráða um búsetu sina, en vera til staðar
á sinu gamla heimili misvitrum stjórn-
málamönnum til trausts og halds."
Pétur Jökull Hákonarson tók næstur
til máls og talaði fyrir Hamarinn h.f.,
verktakann. Hann þakkaði samstarfið
við alla aðila og kvað Sjómannadags-
ráð vissulega hafa sýnt kjark, er það
hefði samið við Hamarinn þvert ofan i
ráðleggingar allra lánastofnana. Hann
kvaðst ótrauður halda áfram og rómaði
mjög alla samvinnu við húsbyggjendur
— kvað aldrei hafa staðið á greiðslum.
Þá flutti Anton Nikulásson. eftirlits-
maður og trúnaðarmaður Sjómanna-
dagsráðs. nokkur orð og í lokin hróp-
uðu allir viðstaddir ferfalt húrra fyrir
Sjómannadagsráði
Þá kom það fram í ræðu Péturs
Sigurðssonar, að stefnt væri að þvi að
geta lagt hornstein að byggingunni á
sjómannadaginn í vor og vilji forseti
íslands sýna ráðinu þann heiður að
leggja steininn, mun hann gera það —
sagði Pétur Sigurðsson.
— Færð
Framhald af bls. 2
orðið ófært um Rafnseyrarheiði.
Vegurinn yfir Breiðadalsheiði og
Botnsheiði var hins vegar mokað-
ur í gær.
Greiðfært var í gær frá Akur-
eyri til Reykjavíkur, en þó var
hálka á öxnadalsheiði. Jeppafært
var til Siglufjarðar, en Lágheiði
var ófær.
Vaðlaheiði og Fljótsheiði voru
færar stórum bílum í gær.
Samkvæmt upplýsingum Arn-
kels voru vegir á NA-landi víða
orðnir þungfærir, en talið var að
stórir bílar kæmust víða. Þá var
orðið ófært um Hólssand, öxar-
fjarðarheiði og Vopnafjarðar-
heiði.
Á Austurlandi voru allir fjall-
vegir orðnir ófærir, og var þar
ekki hægt að hefja snjómokstur í
gærmorgun vegna skafrennings.
Þó var vegurinn frá Egilsstöðum í
Eiðar opnaður, þar sem starfs-
menn Rafmagnsveitna ríkisins
þurftu nauðsynlega að komast í
Lagarfljótsvirkjun vegna bilunar
í orkuveri. Lónsheiði var ófær í
gærmorgun, en greiðfært var frá
Höfn til Reykjavíkur.
— Landakot
Framhald af bls. 2
hafa þegar verið samin drög að
skipulagsskrá slíkrar stofnunar.
Stefnt er að því með þessu að
spítalinn verði rekinn áfram með
líku fyrirkomulagi og hingað til.
Heilbrigðisráðherra skipar
stjórn sjálfseignarstofnunar i
samráði við seljanda.
Stjórn spitalans verður siðan
kosin samkvæmt lögum um heil-
brigðisþjónustu, þ.e. stjórn sjálfs-
eignarstofnunar kýs 3 stjórnar-
menn, starfsmannaráð sjúkra-
hússins 1 mann og borgarstjórn
Reykjavikur 1 mann.
Kaupverð eignarinnar með öll-
um búnaði, tækjum og birgðum er
kr. 1.200.000.000.
Greiðslum er þannig háttað að
1. jan 1977 greiðist út kr.
70.000.000. og hinn 1. janúar 1978
kr. 80.000.000.
Eftirstöðvar greiðast með jöfn-
um greiðslum á næstu 20 árum
með 5% vöxtum, þannig að á
hverju ári greiðast 8% skuldar.
Á skuldina greiðist árleg upp-
bót í samræmi við framfærsluvísi-
tölu.
Seljandi hefur leyfi til að yfir-
færa árlega 1/3 hluta greiðslu i
danskar krónur á gildandi gengi
hvers tíma.
Ríkið tekur við öllum skuld-
bindingum seljanda sem stofnað
hefur verið til vegna spitalarekst-
ursins og fara þau skipti fram um
næstu áramót.
Ráðherra mun á næstu dögum
ganga frá skipulagsskrá sjálfeign-
arstofnunarinnar og skipa henni
stjórn.
— Jólasundmót
Framhald af bls. 20
þátt i þessu jólasundmóti og
yfirleitt að stunda sund. Hann
sagði það þó ekki vera svo þægi-
legt fyrir sig, þvi vegna bækl-
unar sinnar þyrfti hann aðstoð
við að komast ofan i laugina og
upp úr henni, en erfitt væri að
fá slíka hjálp frá vandalausum.
Er fólk hér með hvatt til að
hjálpa þeim sem hjálpar eru
þurfi, til að þeir geti notið
þeirrar góðu heilsubótar sem
sundið er.
Til Færeyja
Þrátt fyrir margvísleg samskipti íslendinga
og færeyinga um langan aldur hafa
samskiptin i raun aldrei oröið svo náin,
sem frændsemi þjóöanna og vinátta gefur
tilefni til. Stopular samgöngur fyrr á
árum áttu þar stærstan þátt.
Undanfarin ár höfum við annast reglu-
bundiö áætlunarflug milli íslands og
Færeyja, 4 ferðir vikulega yfir sumariö,
og einu sinni í viku yfir veturinn.
Nú höfum viö hins vegar ákveðið að
fjölga ferðum í Færeyjaflugi okkar og
og munum fljúga þangað tvisvar í viku
i vetur fram til 1. maí.
Flogið verður á fimmtudögum og sunnu-
dögum frá Reykjavik um Egilsstaði, og
Færeyjaflugið þannig tengt innanlands-
fluginu.
Með tveim ferðum í viku opnast mögu-
leiki á stuttum heimsóknum, og þar sem
við höfum gert samning við hótel Hafnía
um gistingu, og býðst nú þeim lægra
verð sem kaupa saman flugfar og gist-
ingu í 3 nætur.
Þessar ódýru 3ja daga ferðir, gera
kleift að skreppa til Færeyja - skólafólki,
starfshópum, þeim sem ætla að heim-
sækja vini og vandamenn, og svo auð-
vitað þeim sem þurfa að sinna viðskipta-
erindum. Verðið er frá 33.785 krónum
fyrir manninn.
Það veróur enginn svikinn af ferð til
Færeyja. Færeyjaferð er öóruvisi.
flucfélac L0FTLEIDIR
/SLAMDS