Morgunblaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1976 3 Oslóarsamkomu- lagið og viðurkenn- ing 200 mílna OSLÓARSAMNINGURINN svokallaði, sem þeir Einar Ágústsson, utanrlkisráðherra, og Matthfas Bjarnason, sjávar- útvegsráðherra, gerðu fyrir 6 mánuðum f Ósló við utanrfkis- ráðherra Breta, Anthony Cros- land, er nú að renna út. Þar með er iokið margra alda fisk- veiðum Breta við Island, þar sem þeir f samningi þessum viðurkenndu að þeir myndu ekki geta veitt innan fslenzkrar fiskveiðilögsögu eftir 1. desem- ber 1976, nema með leyfi Is- lendinga. Þar með fékkst iang- þráð viðurkenning erfiðasta andstæðings okkar f baráttunni fyrir yfirráðum yfir fiskveiði- lögsögu Isiands. Óslóarsamningurinn varð til eftir algjöra sjálfheldu, sem fiskveiðideila Breta og íslend- inga var komin f. Mjög alvar- legt ástand hafði rfkt á Islands- miðum um nokkurra mánaða skeið og stöðugar ásiglingar freigátna á íslenzk varðskip gerðu mönnum ljóst að stór- hætta var á ferðum, þótt svo giftusamlega tækist til, að ekki urðu slys í þessum geðveikis- lega hamagangi. Þegar nokkuð var liðið á miðjan maí fór utan- ríkisráðherra Islands til Óslóar, þar sem halda átti utanríkisráð- herrafund Atlantshafsbanda- lagsins. Framkvæmdastjóri þess, Joseph Luns, og utanríkis- ráðherra Noregs, Knut Fryden- lund, höfðu báðir lagt sig allan fram um að sætta deiluaðila og fyrir milligöngu norska ráð- herrans bað Crosland slðan um fund með Einari Agústssyni strax f upphafi ráðherrafundar- ins. Þar með var ísinn brotinn og ráðherrarnir áttu nokkra fundi með sér í Ósló, þar sem skipzt var á skoðunum. I ljós kom að Crosland var mikið í mun að binda enda á þorskastríðið og eftir að ráðherrarnir voru komnir heim og rfkisstjórnir landanna höfðu fjallað um nið- urstöður funda þeirra í Ósló, var ákveðið að hittast þar aftur. Samningafundir voru boðaðir f gestahúsi norsku rfkisstjórnar- innar um mánaðamótin maí- júní. Sfðdegis þriðjudaginn 1. júnf 1976 komust sáðan ráðherrarnir tveir, Einar Ágústsson og Matt- hfas Bjarnason, að samkomu- lagi við Crosland og utanríkis- ráðherrarnir skiptust á orð- sendingum og samkomulagið tók gildi. Efni þess f meginat- riðum var á þessa lund: Bretar viðurkenndu 200 mflna lögsögu tslands með orðunum: „Eftir að samningur- inn fellur úr gildi, munu brezk skip aðeins stunda veiðar á þvf svæði, sem tilgrein er f hinni íslenzku reglugerð frá 15. júlf 1975 f samræmi við það sem samþykkt kann að verða af Islands hálfu.“ Þessi reglugerð, sem nefnd var í niðurlags- orðum samningsins, var reglu- gerðin um útfærslu fslenzku fiskveiðilögsögunnar sem Matthfas Bjarnason hafði undirritað árinu áður og gerði að veruleika 200 mflur frá og með 15. október 1975. 1 samkomulaginu var einnig gert ráð fyrir þvf að á næstu 6 mánuðum mættu 24 brezkir togarar veiða hvern dag hér við land utan 20 og 30 mflna frá grunnlfnupunktum. Togaratal- an 24 var meðaltalstala, en togararnir máttu þó aldrei verða fleiri en 29. Jafnframt Framhald á bls. 21 Einar Agústsson og Anthony Crosland skiptast á orðsendingum um fiskveiðideilu landanna, sem þar með var lokið, friður saminn og tslendingar hrósuðu sigri. Einar Ágústsson og Matthfas Bjarnason á blaðamannafundi eftir að samkomulagið náðist I Osló. „Tvimælalaust átti ekki að semja við Breta” — Viðbrögð stjórnarandstæðinga, er r Oslóarsamningurinn var gerður | ÞÓTT flestir hafi þegar f upp- hafi, er ráðherrarnir Einar ' Ágústsson og Matthfas Bjarna- | son komu heim með Óslóar- ■ samninginn, gert sér ljóst að 1 um sigur var að ræða fyrir | fslenzkan málstað I fiskveiði- | deilunni við Breta, var stjórn- arandstaðan ekki sannfærð um I ágæti hans. Þannig efndi sam- I starfsnefnd áhugamanna um verndun landhelginnar til al- I menns fundar á Lækjartorgi til þess að mótmæla samkomu- laginu. Sá útifundur var þó I ekki f jölmennur. Forystumenn stjórnarand- stöðunnar voru einnig and- • snúnir samkomulaginu. I vað- tölum við Morgunblaðið dag- inn eftir gerð samkomulagsins, 2. júní, sögðu talsmenn þess- ara þriggja flokka, Alþýðu- I bandalagsins, Alþýðuflokksins og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, meðal annars. Ragnar Arnalds: „Ég hefði talið tvfmælalaust að ekki ætti að semja við Breta, og rifta um leið samningum við Vestur- Þjóðverja.Það er nefnilega alveg ljóst, að Bretar munu krefjast þess þegar þessi nýi samningur rennur út að fá að veiða jafnlengi og Þjóðverjar eða fram til 1. desember 1977, eða f heilt ár eftir að samning- urinn rennur út. Þetta gera þeir með því að láta EBE beita okkur efnahagsþvingunum, en ákvæðið um bókun 6 f hinum nýja samningi er einmitt svo loðið, að Bretar geta túlkað það sér í hag.“ Benedikt Gröndal: „I til- kynningunni, sem Alþýðu- flokkurinn gaf út um helgina, sáum við mikla annmarka á þessum samningum. Við Al- þýðuflokksmenn teljum að þeir hafi verulega galla og þess vegna erum við andvígir þeim. Að vísu er það mikil- vægt, að mannslíf eru ekki f hættu lengur, en við erum ekki sammála fslenzku ráðherrun- um, sem samningana gerðu, að viðurkenning sé nægilega skýr.“ Karvel Pálmason: „Um þennan samning, sem búið er að gera við Breta, vil ég ekkert segja á þessu stigi. Ég hef að- eins haft fregnir af honum i fjölmiðlum og vil ekki dæma hann eftir því. Ég get því ekk- ert sagt fyrr en ég hef fengið samninginn í hendur. En hinu er ekki að leyna, að ég var og er andvígur þvf að gengið yrði til samninga við Breta nú.“ 32 SffiW ♦ 1 ^TetoftOmílut' nnilíl iketvna Cr»m»*>y l»l»n<» •• 1 s’s‘" “■STftSssíLÍÍ 'ssssr oiarel Bretar -innaitíslew Forsfða Morgunblaðsins 2. júnf síðastliðinn þar sem skýrt er frá samkomulaginu við Breta. Geir Hallgrímsson: Brottför Breta ávöxtur Óslóarsamkomulagsins STAÐREYND er að brezk fiskveiðiskip hverfa úr fslenzkri fiskveiðilandhelgi á fullveldisdaginn, sagði Geir Hallgrfmsson forsætisráðherra f svarræðu á Alþingi f gær, sem staðfestir, að I Óslóarsamkomulaginu fólst formleg viðurkenning Breta á 200 mllna fiskveiðilandhelgi okkar. Tollfrfðindi, samkvæmt bókun sex, munu gilda áfram, eftir brottför Breta. Við getum nú metið, út frá okkar eigin hagsmunum einum, hvort gengið verður til samninga um gagnkvæman fiskveiðirétt eða ekki. Tortryggni sú, sem stjórnarand- stæðingar reyndu að sá til við gerð Óslóarsamkomulagsins, hefur þvl orðið sér til minnkuna, sagði forsætisráðherra, efnislega eftir haft. Viðræður við EBE nú munu og verða okkur tii góðs eins, hvort sem þær leiða til samkomulags eða ekki. Lúðvlk Jósepsson, fyrrv. sjávarútvegsráðherra, kvaddi sér hljóðs utan dagskrár á Alþinga f gær, og gerði að umtalsefni könnunarviðræður við EBE, varð- andi fiskfriðunarmál og stjórnun fiskveiða á Norðaustur- Atlantshafi. er hann taldi kunna að leiða til nýrra veiðiheimilda EBE-rfkja innan fslenzkrar fisk- veiðilögsögu. I þessum viðræðum hefðu tekið þátt 2 ráðherrar,- 2 alþingismenn, 8 embættismenn og loks forsætisráðherra sjálfur. Framhaldsviðræður væru ráð- gerðar, eftir að Alþingi yrði sent heim f jólafrf. Leiða mætti að þvf líkur, hvað biði þingmanna kom- inna til starfa á ný eftir áramótin. Vitnaði hann til séryfirlýsinga samningamanns EBE, eftir við- ræður við islenzka ráðamenn, og erlendra fréttastofufregna um líkur á veiðileyfum til 12 brezkra togara. — Lúðvfk sagði ekki eftir neinu að sækjast af okkar hálfu, hvorki í Norðursjó, þar sem tak- marka þyrfti veiðisókn f sfld, né við Grænland, þar sem ástand fiskstofn a væri mjög bágborið. Auk þess væri umboð EBE til samningagerðar um veiðirétt við Grænland vafasamt. Þar við bætt- ist enn að við hefðum ekkert að bjóða. Krafðist hann yfirlýsingar frá forsætisráðherra um, að hvers konar samningar væru útilokaðir og málið lagt fyrir Alþingi með eðlilegum hætti — ella myndi Alþýðubandalagið krefjast útvarpsumræðna um málið f heild. Geir Hallgrímsson sagði að þetta mál væri í raun margrætt á Alþingi í vetur. I framhaldi af viðræðum nýverið hefði málið verið lagt fyrir utanríkismála- nefnd og yrði lagt fyrir land- helgisnefnd eftir helgina. Þann veg yrði fullt samráð haft við Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.