Morgunblaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1976 Höskuldur Stefánsson verkstjóri Sútunarveksmiðjan Loðskinn h.f. á Sauðárkróki var stofnuð 1969, byggð upp úr Sameinuðu sútunarverksmiðjunni í Reykja- vík. 1969 var hafin bygging á 1900 fm. verksmiðjuhúsi og vinnsla hófst i húsinu 1970. Enginn sútunariðnaður hafði verið á Sauðárkróki fram að þeim tíma, en hins vegar voru þar starfrækt sláturhús á vegum Kaupfélags Skagfirðinga og Slátursamlags Skagfirðinga h.f. Aðilar á Sauðár- króki höfðu þó haft mikinn áhuga á stofnun sútunarverksmiðju og m.a. voru um árabil fluttar tillög- ur á aðalfundum Kaupfélagsins um að hefjast handa en ekkert varð af framkvæmdum. S.l. ár var hafist handa um að stækka verk- smiðjuhús Loðskinns h.f., um 1760 fm, þannig að það er nú um 3700 fm að stærð. Vinnzlan nær þrefaldast Vinnsla Loðskinns hefur aukizt smám saman úr 100 þús. gæru- skinnum á ári í 272 þús. skinn s.l. ár. Yfirleitt hafa um 20 manns haft fasta atvinnu við verk- smiðjuna. Vélakostur var og endurnýjaður talsvert á s.l. ári og á þessu ári hefur verksmiðjan keypt vélar fyrir 9 millj.kr. Undirbúningur að fullvinnslu „Með stækkun verksmiðjuhúss- ins að auknum og endurbættum vélakosti erum við að undirbúa okkur undir að fullvinna það gærumagn, sem við höfum fengið til sútunar síðastliðin ár,“ sagði Jón Ásbergsson, forstjóri Loð- skinns h.f., I samtali þegar við heimsóttum Loðskinn um miðjan nóvember til þess að kynnast starfi þessarar vaxandi verk- smiðju, sem er orðinn snar þáttur í atvinnulífi Sauðkræklinga, en á nú yfir höfði sér rekstrarstövun vegna skorts á hráefni. Sú staða kom óvænt upp, því SlS sem hef- ur selt Loðskinni megin hluta hráefnisins undanfarin ár til- kynnti skyndilega fyrir stuttu að þeir væru ekki aflögufærir vegna þess að þeir ætluðu að auka vinnslu sína sjálfir og einnig væru þeir skuldbundnir Pól- verjum með sölu á óunnum og hálfunnum gærum, alls 250 þús. skinn. 10% hærra kaup til starfsfólks S.l. ár vann Loðskinn 35 þús. langhára teppagærur, en hitt fór í vinnslu forsútaðra gæruskinna fyrir Póllandsmarkað, þ.e. var þvegið, klippt, skafið, sútað og þurrkað. Loðskinn hefur því hald- ið uppi þróttmikilli starfsemi og fyrirtækið greiðir starfsfólki sfnu 10% hærra kaup en samningar gera ráð fyrir. Vantar 150 þús. gærur minnst Við spurðum Jón um fram- leiðsluna: .Ji’ramleiðsla fyrirtæk- isins hefur einkum verið forsút- aðar gærur sem seldar hafa verið til Póllands, en fyrirtækið opnaði þann markað árið 1972 og hefur setið eitt að þeim viðskiptum sfð- an þar til nú I haust að Iðnaðar- deild Sambands fslenzkra Sam- vinnufélaga bauð fram á móti Rannveig Haraldsdóttir, skrif- Jón Ásbergsson framkvæmda- stofustúlka hjð Loðskinni, brá stjóri Loðskinns. einni gæru á öxlina og brosti sinu blfðasta I trú á framtfðina. Heimsókn í sútunar- verksmiðjuna Loðskinn á Sauðárkróki Jón Karlsson forseti bæjarstjórn- ar Sauðárkróks og formaður verkamannafélagsins Fram. Ljós- myndir Mbl. Árni Johnsen. Loðskinn h.f. sams konar skinn og náði til sfn töluverðum hluta þess- ara viðskipta. Hefur Iðnaðardeild 5.1.5. undirritað samninga við Pólverja um sölu á 150.000 forsút- uðum skinnum, Búvörudeild 5.1.5. hefur undirritað sölusamn- inga upp á 100.000 saltaðar gærur til Póllands og Loðskinn h.f. samning upp á 200.000 forsútuð skinn. Þó að hlutur Loðskinns h.f. sé minni nú f viðskiptunum við Pólland en áður ( eða 200.000 stk., miðað við 265.000 stk, f fyrra ) þá er eftirspurn eftir annarri fram- leiðslu fyrirækisins góð og þvf bjartar horfur framundan ef fyrirtækinu tekst að afla sér nægs hráefnis. Nú er hins vegar ljóst að mjög erfitt verður að afla hráefnis til vinnslunnar í vetur þvf stærsti gærusalinn þ.e. Búvörudeild S.IS hefur gefið til kynna að mjög verði dregið úr viðskiptum þeirra við Loðskinn h.f. Kann þvf svo að fara að fyrirtækið verði að draga segl sín mjög saman og ef ekki tekst að skipta hrágærum milli innlendra aðila og hugsanlgs út- flutnings á skynsamlegan hátt þá verði fyrirtækið að hætta rekstri með öllu. Loðskinn h.f. vantar 150.000 gærur til að hafa hráefni í fyrir- framgerða samninga og að minnsta kosti 70.000 gærur þar til viðbótar til að geta annað annarri eftirspurn og nýtt afkastagetu verksmiðjunnar á svipaðan hátt og á s.l. ári. Á sama tfma hyggst Búvörudeild S.l.S. auka sfna vinnslu um 250.000 gærur.“ Gærumagn og skipting Haustið 1975 varð heildarslátr- un á landinu um 962.000 fjár. Skiptust gærur þá á eftirfarandi hátt milli innlendra verksmiðja og svo útflutnings: 5.1.5. Akureyri 350.000.- 5.5. Reykjav. 130.000,- Loðskinn h.f. 272.000,- Pólland (út hrátt) 150.000,- Gráar gærur (út) 60.000.- 962.000- Á fundi sem viðskiptaráðuneyt- ið beitti sér fyrir með gæru- seljendum og gærukaupendum 8. október s.l. kom fram að áætluð heildarslátrun f haust er 1.030.000 fjár, þar af er 780.000 fjár slátrað í sláturhúsum á vegum S.I.S., 180.000 í húsum S.S. og um 70.000 f ýmsum sláturhúsum f einkaeign. Á fundinum tilkynnti fulltrúi Iðnaðardeildar S.I.S. að þeir hefðu I hyggju að auka kaup sfn á grágærum úr 350.000 stk. 1975 í 550.000 stk. Fulltrúi Búvörudeild- ar S.l.S. tilkynnti að hans deild hefði þegar undirritað samninga um sölu á 100.000 söltuðum gær- um til Póllands og væri eingöngu beðið eftir leyfi viðskiptaráðu- neytisins fyrir útflutningnum. Einnig tilkynnti hann að eins og áður yrðu um 60.000 stk. gráar gærur seldar óunnar til Svfþjóð- ar. Fulltrúi Sláturfélags Suður- lands tilkynnti að sútunarverk- smfja S.S. hyggðist vinna úr 150.000 gærum. Var þá ljóst að þó svo að heildarslátrun hefði aukist talsvert þá voru aðeins 170.000 gærur til skiptanna fyrir Loð- „t>essa verksmidju megum vid ekki missa” í 6 ár hefur sútunar- verksmiðjan Loðskinn á Sauðárkróki veitt um 20 af starfsmönnum fasta og góða atvinnu, fyrir- tækið er einn af þremur stærstu viðskiptavinum bæjarins og aflar bæjar- sjóði um 6 millj.kr. f tekjur. Fyrirtækið borg- ar starfsfólki sínu 10% hærri laun en því er skylt samkvæmt samn- ingum og það hefur auk- ið húsakost sinn um 100% á s.l. tveimur árum með fullvinnslu gæru- skinna fyrir augum. En nú vofir yfir að fyrirtæk- ið verði að leggja upp laupana vegna „gæru- skinnsmálsins“ svokall- aða. Við heimsóttum Sauðárkrók og kynntum okkur starfsemi verk- smiðjunnar og gildi hennar fyrir bæjarfélag- ið í heild. Fara helztu atriði hér á eftir: Vinnsla langhára gæru. skinn h.f. eða rúmlega 100.000 færri gærur en fyrirtækið keypti af haustslátrun 1975. Nú er þó ljóst að haustslátrun er töluvert minni en gert hafði verið ráð fyrir á þessum fundi eða rétt rúmlega 960.000 fjár. Einnig hefur Iðnaðardeild S.IS. tilkynnt viðskiptaráðuneytinu að þeir vilji fá til sín 600.000 gærur. Er því greinilegt að Loðskinn h.f. á kost á að kaupa u.þ.b. 50.000 gærur. Til að auðvelda samanburð skulu tölurnar frá i fyrra endurteknar hér ásamt þeirri skiptingu sem nú liggur fyrir: 1975 1976 S.I.S. Akureyri 350.000 600.000 S.S. Reykjavík 130.000 150.000 Lodskinn h.f. 272.000 50.000 Pólland (út hrátt) 150.000 100.000 Gráar gærur (út) f 60.000 60.000 962.000 960.000 Mál stjórnvalda að grfpa f taumana Aðspurður um mögulega fram- tfðarlausn á gæruvandamálinu sagði Jón: Frambúðarlausn á þeim slag sem nú er greinilega hafinn um ís- lenzkar gærur verður f raun ekki fundin nema að opinberir aðilar hlutist til um að f eitt skipti fyrir öll verði gengið frá ákveðinni skiptingu kvóta á því takmarkaða hráefni sem til skiptanna er milli verksmiðjanna innanlands. Hafa ber f huga að sútunarverksmiðja S.I.S. á Akureyri er á samh hátt og verksmiðja Loðskinns h.f. /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.