Morgunblaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1976 Leikurinn æsist GETRAUNAÞATTUR MORGUNBLAÐSINS ÞAÐ skal játað, að við tókum heldur mikið upp í okkur er við birtum pottþétta seðilinn í sfðustu viku, en þó var hann 50% réttur. Það eru vissulega margar skýringar á óförunum, en það sem vegur líklega þyngst er sú staðreynd, að sex leikjum lauk ekki eins og vað höfðum ákveðið að þeir skyldu og því fór sem fór. Hér eftir verður því engu lofað. Arsenal — Newcastle. Tvöfaldur 1 eðaX Newcastle hafa verið miklu sterkari í haust en nokkurn óraði og það sama má segja um Arsenal. Hér verður þvi meðalvegurinn troðinn, þar eð leikur þessi virðist tvísýnn í meira lagi. Jafntefli (2—2) en til vara gæti heimaliðið rétt marið það (2—1). Aston Villa — Tottenham 1. Sá óvænti atburður átti sér stað síðasta laugardag, að Tottenham hélt hreinu og krækti um leið í iangþráðan sigur. Þau úrslit gætu gefið liðinu byr undir báða vængi og ættu leikmenn Villa að fara að öllu með gát. Það er samt spá okkar, að Aston Villa sigri og þá nokkuð örugglega. Heimasigur (3—1). Bristol C — Leeds Utd. X Þrátt fyrir tap Bristol-liðsins fyrir Liverpool síðustu helgi, er liðið meira en lfklegt til að velgja Leedsurum undir uggum þó að lfklega nái þeir eigi að knýja fram sigur gegn Leeds-liði sem hefur nú leikið allmarga leiki í röð án taps. Jafntefli (1—1) Everton — Norwich 1 Everton hefur hlotið slæma rassskelli í síðustu deildaleikjum sínum og hrapað um leið töluvert niður töfluna. Ætli þeir hefni sín ekki á aumingja Norwich? Heima- sigur (2—0), Ipswich — Liverpool. Tvöfaldur 1 eða X Gaman væri, ef Ipswich gæta sigrað í leiknum og aukið þannig spennuna í toppbaráttunni. Það er vissulega möguleiki og er það önnur spá okkar, heimasigur (2—1). Hinn möguleikinn og lík- lega sá líklegri er að Liverpool kreisti út jafntefli og þá vafalaust eftir að hafa jafnað á lokamfnút- unum eins og þeirra er siður á útivöllum, Jafntefli (1—1). Leicester — Birmingham. Tvöfaldur X eða 1. Jæja, þá er það pottþétti leikur- inn. Tippa bara á jafntefli og þá er maður a.m.k. með einn réttan á seðlinum. Þó hyggjumst við hafa heimasigur til vara. (1—1) og (3—2). Manchester City — Derby 1 Manchester-liðið er lfklegra til að hreppa hnossið úr þessari viðureign gegn hauslausu Derby- liði. Heimasigur (4—2). QPR — Manchester Utd. Tvöfaldur 1 eða X Aðalspáin er heimasigur, vegna þess að QPR hafa reynst sterkir á heimavelli sínum. Til vara giskum við á jafntefli vegna þess að þó að Manchester-liðið hafi staðið sig illa síðustu vikurnar, þá hafa þó betri leikir þess verið á útivöllum. Heimasigur eða jafn- tefli. (3—1) eða (2—2). Stoke — Coventry 1. Enn sem komið er hafa gestir Stoke varla skorað mark gegn þeim hvað þá meira og þykir okkur, að Coventry sé ólfklegt til að gera einhverja byltingu þar um slóðir. Heimasigur (1—0). Sunderland — WBA 1 Það er svo mikið f húfi, að Sunderland má alls ekki tapa leiknum og spáum við þvf, að þeir geri það eigi heldur sigri (2—0). West Ham — Middlesboro X West Ham náði merkum áfanga síðustu helgi, er þeir sigruðu í sfnum fyrsta útileik á leiktíma- bilinu gegn götóttri vörn Mancheoter Utd. Þeir fá nú að glfma við sterkari vörn næsta laugardag og er það spá okkar að hún reynist þeim ofviða og þeim takist ei að skora. Þar eð Middles- boro er heldur ekki líklegt til að skora frekar en fyrri daginn, eru lfkur á steindauðu jafntefli (0—0). Burnley —Cardiff 1 Burnley sigrar það er jafn öruggt og undirritaður er öruggur spámaður. Heimasigur (2—0). —gg Snörp átök f sveitakeppninni. Eysteinn Þorvaldsson dómari fylgist með að farið sé eftir settum reglum, en áhugi og ákefð skfn úr svip júdómannanna sem fylgjast með félögum sfnum. JÚDÓFÉLAGSMENN UNNU ( SVEITAKEPPNINNI - EN VIÐAR GUÐJOHNSEN VAKTI MESTA ATHYGLI A-SVEIT Júdófélags Reykjavfkur bar sigur úr býtum f sveitakeppni Júdósambands Islands sem lauk um helgina. Sigraði sveitin A- sveit Armanns f úrslitum með fjórum vinningum gegn einum. Var það Viðar Guðjohnsen, hinn ungi en snjalli júdómaður Ar- menninga, sem krækti f einn vinning fyrir sveit sfna f útslita- keppninni, en Viðar sýndi ótrú- lega mikið öryggi f keppni þess- ari og vann alla andstæðinga sfna á „ ippon“ — þ.e. hann hlaut 10 stig áður en tfminn var runninn út. Viðar er greinilega í ágætri æf- ingu og má mikils vænta af þessum efnilega íþróttamanni, ekki sfzt ef hann getur farið utan til æfinga, en til stendur að Viðar fari til Japan eftir áramótin og æfi þar um tfma. Má mikið vera ef Viðar á ekki eftir að komast f fremstu röð í þessari skemmti- legu fþróttagrein. í sigursveit Júdófélags Reykja- víkur voru þeir Sigurður Pálsson, Halldór Guðbjörnsson, Kári Jakobsson, Benedikt Pálsson og Svavar Carlsen. I þriðja sæti á mótinu var sveit UMFK, en Keflvíkingar eru í mikilli framför f júdó, og eiga örugglega eftir að láta enn meira til sfn taka þegar fram líða stund- ir. Sú glfma sem vakti hvað mesta athygli f keppninni var viðureign Gunnars Guðmundssonar, Islandsmeistara f léttmillivigt, og Halldórs Guðbjörnssonar, fyrr- verandi Islandsmeistara. Var keppni þeirra geysilega fjörug og spennandi — báðir eru þeir harð- skeyttir keppnismenn og láta ekki sitt fyrr en f fulla hnefna. Fór svo að viðureign þeirra lyktaði með jafntefli og verður því frekara uppgjör þeirra að bíða betri tíma. EKKIHEIL BRÚ HJA LEIKNI OG ÁRMANN VANN 28:15 ísland - Noregur 82:48 ÍSLENZKA landsliðið í körfu- knattleik vann yfirburðasigur á Norðmönnum í leik liðanna I gærkvöldi 82—48. Það var aðeins í fyrri hálfleik sem Norðmenn veittu íslending- um nokkra keppni og var staðan í leikhléi 29—23, íslandi I vil. í seinni hálfleik var getuleysi Norðmanna svo nánast algjort og sem dæmi um það má nefna að þeir skoruðu aðeins 7 stig I fyrri helmingi hálfleiksins og lauk leiknum svo með yfirburða sigri íslands eins og áður sagði, 82—48. íslendingar geta aðallega þakkað tveimur mönnum sigurinn i þessum leik, en það voru þeir Kristinn Jörunds- son og Bjarm Gunnar Sveinsson, en Jón Sigurðsson átti einnig góðan leik Annars lék liðið þennan leik fremur vel þegar á heildina er litið, ef frá eru skildar fyrstu mínútur leiksins, en þá gætti talsverðs taugaóstyrks hjá leik- mönnum og gekk illa að skora fyrstu körfuna Annars var gangur leiksins þannig að Norðmenn skoruðu fyrstu 4 stigin, öll úr vítum. en þá tók íslen/ka lands- liðið við sér og Jón Sigurðsson og Kolbeinn Kristinsson jöfnuðu og komu landanum yfir og komust Islendingarn- ir i 10—4 Norðmönnum tókst svo að minnka bilið nokkuð, komust I 12—10, íslandi I vil, en svo kom góður kafli hjá islenska landsliðinu og á 16 niinútu var staðan orðin 2 7—16 og hafði þá mest munað um góðan leik Kristins Jörundssonar, sem bæði hirti fráköst og komst inn i send- ingar Norðmannaanna. en staðan i leikhléi var svo 29-—23 íslandi I vil í seinni ,hálfleik var svo getuleysi Norð- manna nánast algjört, eins og áður sagði og réðu þeir ekkert við íslending- ana, sem skoruðu hverja körfuna á eftir annarri og varð munurinn mestur á 19. min. hálfleiksins þegar staðan var orðin 80—42, eða 38 stig, en leikn- um lauk svo eins og áður sagði með yfirburðasigri íslendinga, 82—48 Þessi mikli munur gefur þvi miður ekki nægilega góða mynd af getu landsliðsins vegna þess hve slakir Norðmenn voru, en lið þeirra er mjög ungt og reynslulitið og því ekki von að vel gangi Þó má búast við að þetta lið geti náð nokkrum árangri i framtiðinni eins og Norðmenn reyndar stefna að Eh nóg um það islenzka landsliðið Framhald á bls. 35 LEIKNISLIÐIÐ er eitt furðuleg- asta handknattleiksliðið, sem lengi hefur komið fram hér á landi. Einn daginn leikur það eins og bezt gerist I 2. deildinni hér á landi, en þess á millaer ekki heÚ brú f leik liðsins. Á laugar- daginn mættu Leiknismenn liði Ármanns, sem er eitt albezta liðið I 2. deildinni, ( fyrri hálfleiknum skilda ekki á milli með liðunum og staðan f leikhléi var 11:10 fyrir Ármann. t seinni hálfleiknum dró svo heldur betur f sundur og sigraði Ármann 28:15, seinni hálfleikinn sem sagt 17:5. I fyrri hálfleiknum lék Leiknis- liðað nokkuð vel, með Ásgeir Elfasson í broddi fylkingar og skot voru ekki reynd nema I fær- um. I seinni hálfleiknum var hins vegar skotið í tfma og ótfma og ekki var heil brú í leik liðsins, auk þess sem allur áhugi rauk út í veður og vind. Ármennangar gengu á lagið, náðu upp góðum keyrslum í sókninni og skotanýt- ing liðsins var nú mjög góð, eins og hún hafði verið afleit f fyrri hálfleiknum. Beztu menn Leiknis I þessum leik voru Ásgeir Elfasson, en Finnbjörn var einnig sæmilegur. I Leiknisliðið vantaði þá Hafliða Pétursson og ögmund Kristins- son. Þá er Finnbogi æfingalaus i markinu, en ef þessir sterku leik- menn fara að æfa, ætti Leiknislið- ið að geta klifrað upp um nokkur sæti á stigatöflunni í 2. deild. I leiknum misnotaði Leiknir sex vítaköst. Ármannsliðið átti í heild sinni góðan leak i seinni hálfleiknum, en ekki í þeim fyrri. Liðið er skipað að stofni til ungum leik- mönnum og undirritaður hefur trú á að liðið beri sigur úr býtum í keppninni f 2. deild. Menn leiksins: Pétur Ingólfs- son og Hörður Harðarson Ár- manni. Mörk Ármanns: Hörður 10, Pét- ur 8, Friðrik 4, Björn 2, Vilberg 2, Öskar 1, Jón 1. Mörk Leiknis: Finnbjörn 3, Sig- urður 3, Ásgeir 2, Ásmúndur 2, Ágúst 1, Guðmann 1, örn 2, Arni E. 1, Arni J. 1. —áij Fullkomin frjálsíþróttaaðstaða 1978? Hús með 85x50 m gólffleti í áætlun AÐ ÖLLU óbreyttu ætti að vera til staðar fullkomin aðstaða til iðkunar frjálsfþrótta á nýjum velli f Laugardalnum á árinu 1978. Kom þetta fram f ávarpi sem formaður fþróttaráðs Reykjavfkur, Sveinn Björnsson, flutti á 30. ársþingi FRl, sem háð var um sfðustu helgi. Sagði Sveinn að áætlað væri að hin nýja aðstaða kost- aði alls um 100 milljónir króna, og væri þá með talið gerviefni á hlaupa- og atrennubrautir og annar útbúnaður tilheyrandi. Hinn nýi völlur mun vera austan núverandi vallar, en framkvæmdir hófust þar á ár- inu 1975, en hafa svo til alveg legið niðri sfðan. A næsta ári verður veitt um 40 milljónum til framkvæmdanna, og ætlunin er að verkinu ljúki á árinu 1978. Þá sagði Sveinn að það væri einnig á áætlun að byggja stórt og mikið íþróttahús í svo- nefp.dri Mjódd á Breiðholts- svæðinu. Það íþróttahús mun hafa gólfflöt að stærð 85x50 metra, svo að þar verður hægt að koma fyrir fullkominni aðstöðu til iðkunar frjálsfþrótta innanhúss, en þessi gólfflatar- stærð er m.a. nauðsynleg til að koma megi fyrir 200 metra hringbraut til keppni í hlaup- um. Tilkoma þess húss mun einnig bæta aðstöðu annarra íþrótta, með tilliti til æfinga og keppni. Ekki er ákveðið hvenær þetta hús mun rísa, en sennilega verður það f bráð, því þörfin fyrir slíka aðstöðu er mikil nú þegar. Með tilkomu hins nýja frjáls- fþróttavallar og inniaðstöðunn- ar sfðar meir, geta íslenzkar frjálsiþróttir svo sannarlega horft björtum augum til fram- tíðarinnar, þvf ekki mun bætt aðstaða aðeins fæða af sér betri árangur, heldur mun með þessu skapast grundvöllur fyrir þvf að fá meira erlent frjáls- íþróttafólk til að heimsækja okkur, en allt fremsta frjáls- íþróttafólk I dag iítur varla við malarbrautum og þeirri aðstöðu sem slíkir vellir hafa upp á að bjóða. - ágás

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.