Morgunblaðið - 28.12.1976, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1976
LOFTLEIDIR
ÍSmBÍLALEIGA
ZT 2 11 90 2 11 88
BÍLALEIGAN
5IEYSIR
LAUGAVEGI 66
CAR RENTAL
gnmm 24460
• 28810
® 22*0*22*
RAUDARÁRSTÍG 31
V____________________/
íslenzka brfreióaleigan
Brautarholti 24.
Sími 27220
V.W. Microbus
Cortinur
Hópferðabílar
8—21 farþega.
Kjartan Ingimarsson
Sími 86155. 32716
og B.S.Í.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐLNU
Finnland:
Njósnari
handtekinn
Helsingfors. 23. desember. NTB.
NÝTT njósnamál hefur komið
upp í Finnlandi. t þetta sinn varð-
ar það mann, sem er háttsettur f
rafeindatækniiðnaðinum, sem
hefur verið handtekinn, grunaður
um að hafa afhent erlendu rfki
skjöl með trúnaðarstimpli á, að
sögn blaðsins Uusi Suomi.
Finnsk yfirvöld hafa ekki viljað
fjalla nánar um skrif Uusi Suomi,
en segja að umræddur maður hafi
lengi verið undir eftirliti lögregl-
unnar áður en hann var handtek-
inn.
Ekki er vitað hvort þessi maður
er viðriðinn annað njósnamál,
sem verið er að fletta ofan af í
Finnlandi. Það mál varðar starfs-
mann tollstjóra, sem handtekinn
var fyrir að gefa Sovétríkjunum
leynilegar upplýsingar. Sam-
kvæmt Uusi Suomi vex það mál
stöðugt að umfangi.
Útvárp Reykjavík
MORGUNNINN
ÞRIÐJUDAGUR
28. desember
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Jðnas Jónasson les sögu
sína „Ja hérna, Bfna“ (2).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Hin gömlu kynni kl. 10.25:
Valborg Bentsdóttir sér um
þáttinn.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Heinz Holliger og Enska
kammersveitin leika Konsert
nr. 3 f g-moll fyrir óbó,
strengjasveit og fylgirödd
eftir Hándel, Raymond
Leppard stjórnar / I Musici
leika Konsert f d-moll op. 3
nr. 11 eftir Vivaldi og
Konsert fyrir pfanó og
strengjasveit i F-dúr eftir
Martini / Ungverska ffl-
harmonfusveitin leikur
Sinfóníu nr. 50 f C-dúr eftir
Haydn; Antal Dorati
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Spjall frá Noregi
Ingólfur Margeirsson flytur
ásamt Berki Karlssyni.
15.00 Miðdegistónieikar
Isaac Stern og Alexander
Zakin leika Sónötu nr. 1 fyrir
fiðlu og pfanó eftir Ernest
Blich.
Vfnaroktettinn leikur Oktett
í þrem þáttum eftir Henk
Badings.
ÞRIÐJUDAGUR
28. desember 1976.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Frá Listahátíð 1976.
Helgi Tómasson og Anna
Aragno dansa tvldansa úr
Hnotubrjótnum og Don
Quixote.
Stjórn upptöku Andrés Ind-
riðason.
21.00 Brúðan
Breskur sakamálamynda-
flokkur, byggður á sögu eft-
Ir Francis Durbridge.
2. þáttur.
Efni fyrsta þáttar:
Peter Matty, auðugur bóka-
útgefandi, er á leið heim til
Lundúna frá Genf, þar sem
hann hefur hlýtt á pfanótón-
leika bróður sfns. Á flugvell-
inum kynnst hann ungri,
glæsilegri ekkju, Phyllis Du
Salle. Góð kynni takast með
þeim, og hún segir honum,
hvernig dauða eiginmanns
16.00 Fréttir. Tilkvnningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.30 Litli barnatfminn
Guðrún Guðlaugsdóttir
stjórnar tímanum.
17.50 Á hvftum reitum og
svörtum
Jón Þ. Þór flytur skákþátt.
hennar bar að höndum.
Hann safnaði brúðum.
Phyllis hyggst hitta Sir
Árnold Wyatt, lögfræðing
sinn, og Matty lánar henni
bifreið sfna. Hann ætlar að
hitta hana síðar, en hún
kemur ekki. Þegar hann
kemur vonsvikinn heim til
sfn, er brúða á floti f baðkar-
inu.
Þýðandi Stefán Jökulsson.
21.50 Olnbogabörn 1 auðug-
um heimi
Bresk heimildamynd um
hlutskipti barna 1 ýmsum fá-
tækustu löndum heims og
eins f fátækrahverfum auð-
ugra iðnrfkja. Þeir, sem
stóðu að gerð myndarinnar,
lentu oft f útistöðum við
stjórnvöld og komust stund-
um i Hfsháska af þeim sök-
um.
Þýðandi og þulur Ingi Karl
Jóhannesson
22.40 Dagskrárlok.
18.50 Tónleikar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Hver er réttur þinn?
Lögfræðingarnir Eirfkur
Tómason og Jón Steinar
Gunnlaugsson sjá um þátt-
inn.
20.00 Lög unga fólksins.
Sverrir Sverrisson kynnir.
21.00 ASl 1 dag — horft um
öxl og fram á við
Samsett dagskrá f tilefni af
60 ára afmæli Alþýðusam-
bands Islands. Umsjónar-
menn: Ólafur Hannibalsson
og Ólafur R. Einarsson.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Minningabók
Þorvalds Thoroddsens“
Sveinn Skorri Höskuldsson
prófessor les (24)
22.40 Harmonikulög
Morgens Ellegaard leikur.
23.00 Á hljóðbergi
„Rómeó og Júlía“, harmleik-
ur f fimm þáttum eftir
William Shakespeare. Með
aðalhlutverkin fara Claire
Bloom, Edith Evans og
Albert Finney. Leikstjóri er
Howard Sackler. — Fyrri
hluti.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Nokkrir fastir
þættir í dag
í dag eru allmargir fastir þættir
sem rétt er að minna á og byrja á
Hin gomlu kynni, sem hefst kl
10:25 Hann er í umsjá Valborgar
Bentsdóttur Litli barnatfminn er kl
1 7 30 og að honum loknum kl
1 7 50 er skákþátturinn Á hvftum
reitum og svörtum. Það er Jón Þ
Þór. sem sér um hann í dag
Eftir fréttirnar kl 19 35 er þáttur
lögfræðinganna Eiríks Tómassonar
og Jóns Steinars Gunnlaugssonar.
Hver er réttur þinn? Klukkan20 00
eru svo Lög unga fólksins en þátt-
urinn fyrir unga fólkið sem er vana-
lega að þeim loknum fellur niður í
kvöld. vegna dagskrár um A.S.Í.
A.S.Í. - horft
um öxl og
fram á við
Klukkan 21 00 í kvöld hefst í
útvarpmu dagskrá með ofangreindu
heiti um A.S.Í. Það eru þeir Ólafur
Hannibalsson og Ólafur R Einars-
son sem taka saman dagskrá í tilefni
60 ára afmælis Alþýðusambands
íslands og mun þar kenna margra
grasa þar sem skyggnst er bæði
fram á við og litið til baka í 60 ára
sögu félagsins
„Rómeó og Júlía”
í þættinum á hljóðbergi klukkan
23:00 í kvöld verður flutt leikrit eftir
William Shakespeare Það er harm-
leikunnn „Rómeó og Júlía" Er hann
í fimm þáttum og með aðalhlutverk
fara ekki ómerkari leikarar en Claire
Bloom Edith Evans og Albert
Finney Leikstjóri er Howard Sackl-
er í kvöld verður fluttur fyrri hluti
verksins og hefst flutningurinn eins
og fyrr segir kl 23 00
Helgi Tómasson og Anna Arargno.
Frá Listahátíð og olnbogabörn í auðugum heimi
EFTIR fréttir í sjónvarpi I kvöld verður sýndur þáttur frá Listahátið 1976. Helgi Tómasson og Anna
Aragno dansa tvidansa úr Hnotubrjótnum og Don Quixote.
Siðast á dagskránni verður þáttur um olnbogabörn í auðugum heimi. Það er brezk heimildamynd um
hlutskipti barna i ýmsum fátækustu löndum heims og í fátækrahverfum auðugra iðnríkja. Þeir sem
stóðu að gerð myndarinnar lentu oft í útistöðum við yfirvöld og komust jafnvel stundum í lífsháska af
þeim sökum. Þýðandi er Ingi Karl Jóhannesson.
Ur myndinni um olnbogabörnin.