Morgunblaðið - 28.12.1976, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1976
11
„Útideildin hefur
sannað að starf-
semi hennar er nauð-
synleg bœði fyrir
foreldra og unglinga*
0 í sumar var starfrækt svo-
nefnd útideild á vegum
Félagsmálastofnunar Reykja-
víkur og Æskulýðsráðs
Reykjavíkur. Hlutverk hennar
var m.a. að vera uti meðal
unglinga i Breiðholtshverfum
og reyna að koma í veg fyrir
afbrot, og veita aðhald með
öðrum orðum vinna fyrir-
byggjandi starf. Meðal starfs-
manna útideildar voru Valur
Þórarinsson og Eiríkur
Ragnarsson. Þeir greindu frá
starfsemi deildarinnar í sam-
tali við Morgunblaðið nú ný-
verið.
— Útideildin var starfrækt frá 21.
maí til 29 ágúst í sumar, sagði Eiríkur.
og má segja að ýmsar ástæður liggi að
baki því að útideildin var stofnuð
Meðal þeirra er að Framfarafélag
Breiðholts III fjallaði um það á fundi í
mars s.l. hvernig ætti að bregðast við
vandamálum sem sköpuðust í hverfinu
vegna hegðunar unglinga Starfsfólk
Félagsmálastofnunar Reykjavikur i
Breiðholti hafði af og til rætt nauðsyn
þess að vinna meira starf í þágu ungl-
inga og starfsfólk Fellahellis óskaði
eftir nánara samstarfi við Félagsmála-
stofnun um málefni unglinga
Komið var á samstarfsnefnd 5 aðila í
Breiðholti III er einkum hafa samskipti
við unglinga, Félagsmálastofnunar,
Æskulýðsráðs — Fellahellis, Sálfræði-
deildar skóla i Fellaskóla og fulltrúa
skólastjóra Fella- og Hólabrekkuskóla
Nefnd þessi kom með ýmsar tillögur
að starfi fyrir unglinga og er útideildin
ein þeirra.
— Það er varla hægt að segja að
starfið hafi takmarkast við Breiðholtið.
sagði Valur, því við vorum á ferðinni í
miðbænum, við Tónabæ, i Heiðmörk,
Úlfljótsvatn og á Þingvöllum Mest var
samt verið á ferli hér í Breiðholtinu og
yfirleitt byrjað i Fellahelli Við vorum á
ferðinn 2 nætur i viku og starfsmenn
voru alls bæði frá Félagsmálastofnun
og Æskulýðsráði. og störfuðu tveir i
einu.
— Það var yfirleitt þannig að við
fórum á þann stað þar sem við áttum
von á að unglingarnir væru og röltum
um hverfið og ræddum við unglingana
sem voru i hópum hér og þar.
Þeir sögðust i upphafi hafa orðið
Eiríkur Ragnarsson félagsráð-
gjafi. Ljósm. Mbl. RAX.
varir við tortryggni krakkanna, þau
hefðu haldið þá vera senda af lögreglu.
verzlunareigendum eða foreldrum.
Þetta viðhorf hvarf smám saman þegar
þeir fóru að ávinna sér traust ungling-
anna og líta þeir nú á starf útideildar-
innar sem sjálfsagðan hlut.
— Það fór að koma fyrir að krakk-
arnir leituðu til okkar, þau vissu til þess
að innbrot hafði verið framið og þá létu
þau okkur vita Við tilkynntum það
lögreglu en siðan reyndum við að fá
unglingana til að láta vita af sér og
gera upp slík mál við rétta aðila, lög-
reglu og verzlunareigendur, fara á Jög-
reglustöðina og gefa þar sínar skýrslur
— í margra augum er það svo að
þeim finnst ekki saknæmt að ,,fá sér" i
verzlunum eftir að búið er að brjóta
rúður og auðvelt er að komast inn
Þessi hugsunarháttur sló okkur mjög í
byrjun og þau álykta líka sem svo að
þau séu ekki sek ef þau ná að taka
eitthvað úr búðum án þess að af-
greiðslufólkið sjái það. þá sé það sök
afgreiðslufólksins að vera svo klaufa-
legt að láta stela af sér
— En þessi hugsunarháttur ristir
ekki djúpt og við reynum að hafa áhrif
á hópinn í heild. Eitt af þeim markmið-
um sem útideildin starfar eftir er að
reyna í lengstu lög að gera ekkert sem
unglingarnir hafa ekki samþykkt og er
það vel fallið til þess að skapa traust
þeirra á útideildinni
Þeir félagar sögðu að það gæti
stundum tekið talsverðan tíma að
benda unglingunum á að eitthvað sem
þau höfðust að var rangt, eins og t d
þetta sem nefnt var fyrr í sambandi við
•innbrot, en sögðu að alltaf hefði tekizt
að Ijúka slíkum málum og þau innbrot
sem þeir hefðu verið látnir vita af
uppgerð af hálfu unglinganna. Þeir
nefndu að á margan hátt væri þetta
starf erfitt en það væri Ijóst eftir reynsl-
una sem fékkst í sumar að það væri
nauðsynlegt og það hefði sýnt sig að
bæði unglingar og foreldrar leituðu til
útideildarinnar af fyrra bragði eftir að-
stoð í ýmsum málum
Tengsl starfsliðs við unglinga leiddi
til þess að þeir sem vegna óframfærni
eða hræðslu hefðu ekki leitað aðstoðar
fyrr en í óefni var komið sneru sér til
útideildar Sýnt hefði verið fram á að
unglingar hafa þörf fyrir og óska eftir
tengslum við fullorðna, og hefði starfs-
liðið öðlast vitneskju um ástand ungl-
ingamála sem erfitt eða ógerningur
hefði verið að afla á annan hátt
— Yfirgripsmesti málaflokkurinn
voru mál sem á einn eða annan hátt
tengdust áfengisneyzlu Við notuðum
öll tækifæri sem gáfust til að ræða við
þau sem drukku og það er algengt að
það sé tvisvar í viku Þau samþykktu
oft að drekka minna, gera það aðra
hverja helgi eða að vera minna drukkin
en að hætta alveg er af og frá í því
sambandi má nefna, sögðu þeir, að
þau fá yfirleitt áfengi hjá kunningjum
eða eldri systkinum og ef aldur verður
lækkaður i 1 8 ár stækkar að mun sá
hópur sem getur aflað víns fyrir 1 2--
16 ára unglinga Misnotkun áfengis
stafaði af ýmsum orsökum. atvinnu-
leysi, heimiliserfiðleikum, félagslegri
einangrun eða skorti á áhugamálum og
greiddum við úr vandanum t.d. með
þvi að útvega vinnu og stundum var
nægilegt að gefa unglingunum tæki-
færi til að ræða mál sin og er greinilegt
að eitthvað hefur dregið úr drykkju-
skap
Þá nefndu þeir að ýmis persónuleg
mál, innbrot og kynferðismál hefðu
komið til kasta útideildar og í því
sambandi töldu þeir að fjöldi þeirra
unglinga 1 2— 1 6 ára sem væri farinn
að lifa kynferðislífi væri mun meiri en
almennt væri talið Erfiðleikar við að ná
í getnaðarvarnir yllu því að þær nýttust
ekki og af þvi leiddi ótímabæra þung-
un kornungra stúlkna Sammerkt slík-
um málum var að unglingarnir leituðu
ekki til útideildar fyrr en í óefni var
komið Þau úrræði sem útideild hafði
yfir að ráða var að visa á göngudeild
kvensjúkdómadeildar Landspítalans,
kynfræðsludeild Heilsuverndarstöðvar-
innar eða lækna
AIGLYSINGA-
SÍMINN EK:
SIGLFIRÐINGAFELAGIÐ
Frá Siglfirðinga-
félaginu
Siglfirðingar í Reykjavík og nágrenni. Jólatré-
skemmtunin verður á Hótel Sögu miðviku-
daginn 29. þ.m. kl. 3 — 6.
Miðar við innganginn. Nefndin.
œ CATERPILLAR
vélstjórar
útgeróarménn
NÁMSKEIÐ í meóferó og vióhaldi á CATERPILLAR
bátavélum veróur haldiö dagana 5-7janúar 1977.
Þeir aöilar sem áhuga hafa á þátttöku láti skrá
sig sem fyrst.
AUKIN PEKKING -
AUKIÐ ÖRYGGI
HEKLA HF
Caterpillor, Cat.og CB eru skrósett vörumerki
Laugavegi 170-172, — Sími 21240
'J