Morgunblaðið - 07.01.1977, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1977
15
Pide-maður
fær tæp 4 ár
Lissabon, 6. janúar. Reuter.
FYRRVERANDI starfsmaður
portúgölsku leynilögreglunnar
hefur verið dæmdur f þriggja ára
og nfu mánaða fangelsi fyrir að
skjóta skotum sem urðu mynd-
höggvara úr röðum kommúnista
að bana 1961.
Herréttur úrskurðaði hins veg-
ar, að ósannað væri að leynilög-
reglumaðurinn, Antonio Dom-
ingues, hefði skotið með þeim
ásetningi að myrða listamanninn
eins og sækjandi hélt fram.
Domingues var starfsmaður
Pide/ D.G.S. sem var lögð niður
eftir fall Salazar-stjórnarinnar
1974 og hélt þvf fram að skotin
hefðu riðið af fyrir slysni þegar
honum varð fótaskortur og hann
missti byssuna er hann elti mynd-
höggvarann, Antonio Dias
Coelho.
Þegar dómurinn var lesinn varð
kurr í réttarsalnum og hrópað var
„Dauði yfir Pide og morðingjum."
Sækjandinn, Luso Soares, sagði
að dómnum yrði áfrýjað.
Rétturinn dró frá dómnum tvö
ár og sjö mánuði með tilliti til
þess tíma sem hinn ákærði hefur
setið inni og þrjá mánuði fyrir
góða hegðun þannig að Doming-
ues þarf aðeins að sitja 11 mánuði
í fangelsi í viðbót.
Samkvæmt lögum sem stjórn
vinstrisinna setti i fyrra er hægt
ERLENT
að dæma fyrrverandi starfsmenn
leynilögreglunnar I f jögurra til 12
ára fangelsi fyrir það eitt að hafa
verið f leynilögreglunni.
Leynilögreglumenn sem hafa
komið fyrir rétt hafa hins vegar
fengið vægari dóma vegna mild-
andi kringumstæðna. Aðeins einn
leynilögreglumaður hefur verið
sendur aftur í fangelsi.
Flokkar sósíalista og kommún-
ista hafa sagt að dómarnir hafi
verið of vægir en herinn hefur
dæmt f málunum og herdómstólar
eru óháðir stjórnvöldum.
Þrír
hengdir í
Damaskus
Damaskus, 6. janúar. Reuter.
TVEIR Sýrlendingar og einn
Palestínumaður voru hengdir í
dögun fyrir að koma af stað
sprengingum f Damaskus og
Aleppo í fyrra með þeim
afleiðingum að nokkrir biðu
bana.
Samkvæmt opinberri til-
kynningu sögðu þrímenn-
ingarnir fyrir rétti að þeir
hefðu fengið peninga, vopn og
sprengiefni frá írak. I tilkynn-
ingunni sagði, að Palestínu-
maðurinn væri félagi f hryðju-
verkasamtökunum „Svarti
september".
Fjórir aðrir Sýrlendingar
hafa verið dæmdir í ævilangt
fangelsi og sex voru dæmdir í
eins til sjö ára fangelsi.
Sprengjutilræðin í fyrra-
sumar áttu sér stað þegar sam-
búð baathista-stjórnanna í Sýr-
landi og írak versnaði í kjölfar
íhlutunar Sýrlendinga í
Líbanon.
Humphrey fær
sérstaka stöðu
Washington, 6. janúar. Reuter.
DEMÓKRATAR í öldungadeild
Bandarfkjaþings hafa búið til sér-
stakt embætti handa Hubert
Humphrey, fyrrverandi varafor-
seta, sem dró sig til baka 1 keppn-
inni við Robert Byrd um stöðu
leiðtoga demókrata f deildinni
þar sem hann vissi að hann
mundi tapa.
Humphrey hefur verið skipað-
Jenkins
tekur við
Brussel, 6. janúar.
Reuter.
Roy Jenkins, fyrrver-
andi innanríkisráðherra
Breta, tók í dag við stöðu
forseta framkvæmda-
nefndar Efnahagsbanda-
lagsins og fær það verk-
efni að hafa frumkvæði
um stefnu bandalagsins
og fylgjast með fram-
kvæmd hennar.
Jenkins tekur við af
Franeois-Xavier Ortoli
og getur gegnt embætt-
inu í allt að fjögur ár.
Fyrsta verk hans verður
að ákveða hvernig 12
fulltúrar framkvæmda-
nefndarinnar skipta með
sér verkum.
Humphrey
ur bráðabirgðaforseti öldunga-
deildarinnar og litið er á þá stöðu
sem viðurkenningarvott fyrir
langan starfsferil. Staðan veitir
honum engin völd og mun líklega
hverfa þegar hann lætur af þing-
mennsku.
Sagt er að Humphrey sé mjög
ánægður með nýju stöðuna. Hún
veitir honum rétt til að fylgja
þingleiðtogum demókrata til
Hvíta hússins og hann fær sér-
stakt starfslið og bifreið til um-
ráða.
Hann fær 52.000 dollara í laun á
ári, sömu laun og Robert Byrd og
8.000 dollara hærri laun en venju-
legir öldungadeildarþingmenn.
Humphrey er 66 ára.
Ford forseti varð fyrir smáóhappi þegar hann fór í skíðalyftu í Vail í Colorado
ásamt leyniþjónustumanninum Larry Buendorf þar sem hann missti annan
stafinn, er lyftan var aö fara af stað.
Juan Carlos hvet-
ur til aga í hemum
Madrid, 6. janúar. Reuter.
JUAN Carlos konungur hvatti f
dag til aga og trúmennsku 1 hern-
um og herforingjar fullvissuðu
hann um stuðning heraflans við
tilraunir til að breyta stjórnmála-
kerfinu.
„Við lifum á erfiðum tfmum,“
sagði konungur f nýjársboði,
tveimur vikum eftir breytingar
sem hann gerði á yfirstjórn
öryggisþjónustunnar og rak f jóra
hershöfðingja til að binda enda á
ólgu f heraflanum.
Hann bað yfirmenn hersins að
hlýðnast skipunum með þjóðar-
hag fyrir augum, jafnvel þótt þeir
yrðu þar með að breyta gegn póli-
tiskri sannfæringu sinni.
Aðstoðarlandvarnaráðherrann,
Manuel Gutierrez Mellado hers-
höfðingi, lýsti yfir tryggð herafl-
ans við konung og lagði áherzlu á
nauðsyn aga og samstöðu gagn-
vart sögusögnum, illkvittinni
gagnrýni og slúðursögum.
Gutierrez Mellado hershöfðingi
sagði að gera yrði nútímabreyt-
ingar á heraflanum og útvega
honum betri hergögn svo hann
gæti gegnt hlutverki sínum á
næsta áratug. Þannig gæti her-
aflinn haft árangursríkt samstarf
við herafla annarra ríkja um
varðveizlu friðar.
Stjórnmálasérfræðingar segja
að orð hershöfðingjans sýni að
herinn óttist að Spánverjar verji
ekki nógu miklu fé til varnar-
mála.
Gutierrez Mellado hershöfðingi
sagði að herinn styddi konunginn
í tilraunum hans til að breyta
stjórnmálakerfinu og þjóðfélags-
skipulaginu á Spáni og ítrekaði að
hann mundi ekki skipta sér af
stjórnmálum.
Um 100 unglingar sem krefjast
náðunar 200 pólitfskra fanga
reyndu að ganga til Carabanchel-
fangelsis i Madrid en hópnum var
dreift.
Pólsk yfirvöld
neita ásökunum
Varsjá, 6. janúar.AP.
PÓLSK yfirvöld hafa gert harða
hrfð að sjálfskipaðri „varnar-
nefnd verkamanna“ og sakað
hana um að kynda undir
pólitfskri ólgu og bera fram til-
hæfulausar sakir á hendur lög-
reglumönnum.
Lucjan Czubinski rikissaksókn-
ari skýrði þingnefnd svo frá að
lögreglan hefði verið sökuð um að
misþyrma fólki sem tók þátt í
óeirðum í Ursus og Radom 25.
júní í nokkrum bréfum sem sum
hefðu verið með undirskriftum.
Czubinski sagði að rannsókn
hefði leitt I ljós, að þessar ásakan-
ir væru rakalausar að sögn pólsku
fréttastofunnar.
Varnarnefnd verkamanna er
skipuð 20 menntamönnum og hef-
ur safnað fé handa fjölskyldum
sem voru viðriðnar uppþotin gegn
verðhækkunum á matvælum i
sumar. Yfirvöld i Póllandi telja
nefndina ólöglega og hafa sakað
hana um að vera óvin þjóðar-
innar.
Czubinski sagði að nokkrir
þeirra sem hefðu undirritað bréf-
in þar sem lögreglan er sökuð um
hrottaskap hefðu játað að þeir
hefðu verið neyddir til að undir-
rita þau og fengið peninga I stað-
inn.
Hann sagði einnig, að nokkrir
neituðu þvi að hafa skrifað undir
bréfin. Þetta kvað hann sönnun
þess, að hópur manna, sem hefði
áhuga á því að kynda undir
pólitfskri ólgu, hefði staðið fyrir
undirskriftum og bréfasending-
um til þess að bera fram tilhæfu-
lausar sakir á hendur lögregl-
unni.
Jardskjálfti á
Nýju-Guineu
Hong Kong, 6. janúar.
NTB.
Kröftugur jarðskjálfti
varð í morgun á norður-
hluta eyjunnar Nýju-
Guineu á Kyrrahafi og
mældist í Hong Kong.
Jarðskjálftinn mældist
6.9 stig á Richterskvarða.
Enn hafa ekki borizt fréttir
um tjón.