Morgunblaðið - 07.01.1977, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1977
25
fclk f
fréttum
Anna á von á barni.
+ Anna prinsessa og Mark Phillips eru glöð og hamingjusöm á
nýjustu myndunum sem birst hafa af þeim og ástæðan er sú að
nú er sagt að Anna eigi von á barni. Sjaldan hefur barnsvon í
Englandi vakið jafn mikla athygli. Anna er aðalumræðuefni í
teboðum og á „pubunum". Anna er sem kunnugt er mikii
hestakona og hún tét einhvern tíma þau orð falla að hún væri fús
að fórna fjölskyldu-lífi og börnum fyrir hestamennskuna, en hún
virðist hafa skipt um skoðun. Fyrir um það bil hálfu ári voru
uppi háværar raddir um að þau Anna og Mark væru að skilja. Það
var kappaksturshetjan Jackie Stevart sem var eitthvað að gefa
Önnu hýrt auga, en nú er allt fallið { Ijúfa löð og Englendingar
bíða í ofvæni eftir að Elfsabet drottning verði amma.
+ Sagt er að hjónaband
Audrey Hepburn og læknisins
Andrea Dotti sé að fara út um
þúfur og muni hún ætla að
taka saman á ný við fyrrver-
andi eiginmann sinn, Mel
Ferrer. Þau sjást oft saman í
Sviss þar sem þau heimsækja
son sinn Sean.
+ Leikkonan Valerie Perrine,
sem leikur eiginkonu Dustins
Hoffmans I verðlaunamynd-
inni „Lenny“ segir að amerfsk-
ir eiginmenn séu alltof þægir.
Þeir láta konurnar stjórna.
Þeir láta eiginkonurnar um
fjármál heimilisins. „Ég veit
ekki hvers vegna og ég held að
það gæti ekki gerzt ( neinu
landi öðru. Og þó að það sé f
tfsku að konur gangi f karl-
mannsklæðum og vilji f einu
og öllu standa karlmönnum
jafnfætis vil ég að karlmaður-
inn sé húsbóndi á sfnú heim-
ili,“ segir Valerie.^
+ Þessi fallega sænska kisa
lifði það af að vera grafin f
fönn f 10 sólarhringa. Kisa
hvarf frá heimili sfnu 14.
desember og fannst hvergi
þrátt fyrir leit. Svo var það á
sjálfan aðfangadag að kona
nokkur var á gangi á þjóðveg-
inum skammt frá heimili kisu
og heyrði einkennilegt hljóð
undir snjónum. Hún fór að
grafa f snjóskaflinn og þar
fann hún kisu. Hún hafði graf-
ið sér rúmgóða holu f skaflin-
um en var frelsinu fegin og
virtist ekki mjög illa haldin.
Lfklegt er talið að snjóplógur
hafi rótað snjó yfir kisu og
hún ekki komist út af sjálfs-
dáðum.
Stálgrindarhús
Efni í 2100 fm. stálgrindarhús til sölu. Tilbúið
til afgreiðslu strax af vörulager í Reykjavík.
Vegg- og loftklæðning er fulleinangruð máluð
utan og innan.
Upplýsingar í síma 37454. Heimasimi
81871.
Einkaritaraskólinn
Fullskipað er í Kjarna B — Skrifstofuþjálfun-
ina. Pitmans-próf í Ensku: Intermediate 2 þann
5. febrúar, Correspondence & Report Writing
þann 2. apríl. Getum tekið nokkra nemendur.
1 4 nemendur tóku fyrsta prófið 1 3. nóvember.
Allir stóðust prófið.
Mímir,
Brautarholt 4, s. 10004.
Fáum nýja sendingu af
SUBARU;
fyrir miðjan janúar
VINSAMLEGAST ENDURNÝIÐ PANTANIR
BÍLLINN — SEM ALLIR
TALA UM
framhjóladrifsbíll
sem verður
fjórhjóladrifsbíll með einu
handtaki inni í bílnum —
sem þýðir að þú kemst
nærri hvert sem er á
hvaða vegi sem er.
SUBARU
fjórhjóladrifsbíllinn, sem klifrar eins og geit,
vinnur eins og hestur en er
þurftalítill eins og fugl.
VERÐ CA. KR. 1,950 ÞÚSUND
INGVAR HELCASON
Vonorlondi v/Sogoveg — Simar 84510 og 8451 1