Morgunblaðið - 07.01.1977, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.01.1977, Blaðsíða 32
AUGLÝSINÍiASÍMÍNN ER: 22480 JHorgunbtabib AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 IHorðimlitabiti FÖSTUDAGUR 7. JANUAR 1977 — segir sovézka skáksambandið, en biður íslendinga að draga ekki tilboðið til baka SKÁKSAMBAND Islands hefur fengið tilkynningu um það frá sovézka skáksambandinu fyrir milligöngu Alþjóða skáksambandsins, að sovézka skáksambandið telji veðurfarsskilyrði á lslandi ekki nægiiega heppileg fyrir Tigran Petrosjan eigi einvfgi hans við Victor Kortsnoj að fara fram hér. Sovézka sambandið óskar þó eftir þvf við Skáksam- band tslands að tilboð þess standi viku í viðbót á meðan þess sé freistað að finna cinvíginu stað. Islenzka tilboðið rennur út 15. janúar næstkomandi. LOÐNA — Fyrsta loðnan á þessu ári barst til Siglufjarðar f fyrrakvöld og var Hilmir SU 171 fyrstur að landi, en skipið var með 530 lestir, sem fengust um 40 mílur NA af Kolbeinsey. Nokkrum mfnútum eftir Hilmi kom svo Sæbjörg VK með 270 lestir. Myndirnar tók Steingrímur Kristinsson er löndun úr Hilmi var að hefjast, á stærri myndinni eru tveir skipverja að fylgjast með hvernig gengur í landi. En litla mvndin sýnir Þorstein Erlingsson skipstjóra í brúarglugga llilmis. Samkvæmt upplýsingum Einars Einarssonar, forseta Skák- sambands íslands, getur brugðið til beggja vona um það enn, hvort einvígi stórmeistaranna fer fram hér á landi í febrúar næstkom- andi. Einar kvað forystumenn Skáksambandsins ávallt hafa gert sér það ljóst, því að móts- staðurinn væri fyrst og fremst háður samþykki keppenda og í öðru lagi, ef þeir ekki kæmu sér saman, úrskurði Alþjóða skák- sambandsins. Einar Einarsson kvaðst í allan gærdag hafa reynt að ná í forseta Alþjóða skáksam- Krafla gefur við núverandi aðstæður 10 megawatta afl Það er um það bil sama aflið og Laxárvirkjunarsvæðið þarf SAMKVÆMT mælingum á borholunum við Kröflu hefur það afl, sem þær gefa, verið reiknað út og að því er Karl Ragnars, verk- fræðingur hjá Orkustofn- un, sem séð hefur um boranir á svæðinu, sagði, Á vísanamálið: Ríkissaksóknari krefst áframhald- andi rannsóknar ÞÓRÐUR Björnsson rfkissak- sóknari hefur með bréfi dagsettu 5. janúar s.l. krafizt áframhald- andi rannsóknar á ávísana- málinu. Bréfið er stflað til umboðsdómarans, Hrafns Braga- sonar, og í því er mörkuð sú stefna, sem ríkissaksóknari vill, að verði tekin við framhalds- rannsóknina. I bréfinu eru nefnd fjögur atriði, sem saksóknarinn vill að unnin verði frekar. I fyrsta lagi að gera aðgengilega skrá um allar ávfsanir án raunverulegrar innistæðu. 1 öðru lagi verði kann- að f hve ríkum mælf útgeTendur hafi notað ávfsanir til að halda við ávísanakveðju. I þriðja lagi hvaða yfirdráttarheimildir útgef- endur ávfsana höfðu. 1 f jórða lagi verði rannsakaður þáttur ein- stakra bankastarfsmanna f mál- ist þér fyrir-um „hvort rannsókn skuli fram halda og þá hvaða stefnu skuli taka um framhald- andi rannsókn." Af ákæruvaldsins hálfu er þess krafist að þér haldið áfram rannsókn málsins og tekin verði sú stefna, er nú verður lýst: Framhald á bls. 31 reyndist það vera 13 mega- wött. Er þar um að ræða brúttóframleiðslu og er þá búizt við að nettófram- leiðslan sé 10 megawött. Það afl er einmitt það, sem vantar til þess að unnt sé að annaraforkuþörfá veitu- svæði Laxárvirkjunar. Karl Ragnars sagði að þetta gufuafl nægði til þess að knýja áfram annan hverfil Kröfluvirkjunar og kvað hann því unnt að halda áfram framkvæmd- um með þetta gufuafl á staðnum. Þá kvað Karl og gufuaflið hafa verið nokk- uð sveiflukennt, þannig að það hefur aukizt og minnk- að á víxl. Er því einhver óstöðugleiki í svæðinu. Borunum lauk eíns og áöur hefur komið fram fyrir jól, en áfram er haldið við bygginga- framvkæmdir og er nú verið að tengja holurnar á svæðinu. Karl kvað enga ákvörðun enn hafa ver- ið tekna um það, hvar boranir hæfust í vor og kvað hann tals- verðan vanda að ákveða það á meðan óróinn er í svæðinu. Karl sagði að minnsta afl, sem hugsanlega væri unnt að komast af með við rekstur annars hverfis- ins, væri 3 megawött brúttó, en nettóaflið væri svo til niður I ekki neitt. bandsins, dr. Max Euwe, en hann hefði hvorki verið á skrifstofu þess né svarað síma heima hjá sér. Þá var framkvæmdastjóri Framhald á bls. 18 21% hækkun á ýsu en 7% á þorski VERÐLAGSNEFND hefur ákveðið nýtt hámarksverð á ýsu og þorski til neyt- enda. Hlaut hækkunin staðfestingu ríkisstjórnar- innar í gær. Samkvæmt upplýsingum Georgs Ólafssonar verð- lagsstjóra hækkar kílóið af ýsuflökum úr 308 kr. í 372 krónur eða um tæpt 21% og ýsa með haus hækkar úr 138 krónum kg í 168 krónur, eða um rúmt 21%. Þorskflök hækka úr 308 krónum kg í 330 krón- ur eða um 7% og þorskur með haus hækkar úr 138 krónum kg i 148 krónur, eða um 7%. Að sögn verðlagsstjóra eru þessar hækkanir eingöngu vegna hækkana á almennu fiskverði til útgerðarmanna og sjómanna, en nýtt verð gekk í gildi um ára- mótin. Hækkaði þá ýsan um 25% en þorskur um 8,5%. Fyrirframgreiðslan 60% FYRIRFRAMGREIÐSLU- HLUTFALL skatta hefur verið ákveðið 60% miðað við álagða skatta frá í fyrra. Er þetta sama hlutfall og ákveðið var f fyrra, en þá voru þó 2% að auki vegna sameiginlegrar innheimtu opinberra gjalda f Reykjavfk og á Seltjarnarnesi á sjúkra- tryggingagjaldi, sem þá kom fyrst til. Þetta gjald er nú inni- falið f báðum viðmiðunum og er því ekki sérstök þörf fyrir að taka tillit til þess. 120 milljónir kr. í hluta- fé til kaupa á bílaskipi ■ Hlutafélag stofnað um skipakaupin í næstu viku og skipið jafnvel til íslands í marzmánuði V eðurf ar óhag- stætt Petros jan Bréf ríkissaksóknara til Hrafns Bragasonár fer í heild hér á eftir: Með bréfi, dags. 27. f.m., hafið þér, hr. umboðsdómari, sent embætti ríkissaksóknara fjórar skjalamöppur í máli, sem þér hafið til rannsóknar samkvæmt umboðsskrá, dags. 24. ágúst s.l., „vegna umfangsmikillar notk- unar innstæðulausra tékka, sbr. skýrslu Seðlabanka Islands til yfirsakadómarans í Reykjavík, dags. 9. þ.m.,“ eins og segir í umboðsskránni. í fyrrgreindu bréfi yrðar spyrj- ÁÆTLAÐ er í byrjun næstu viku verði stofnað nýtt skipaféiag í Reukjavík, en að þessu félagi munu standa bílainnflytjendur og fiskútflytjendur. Hafa þegar safn- azt 120 milljónir króna í hlutafé hins nýja félags og er fyrirhugað að festa kaup á hílaskipi, sem yrði komið hingað til lands í byrjun marzmánaðar. Kostar skipið 350 milijónir króna og er tæplega 1000 tonn að stærð. Það er fyrirtækið Bílaábyrgð, sem aðallega hefur staðið að undirbúningi hins nýja félags, en Eimskipafélag íslands, sem á sínum tíma var talið að myndi standa að þessum skipakaupum með Bílaábyrgð, mun ekki lengur vera inni í myndinni. Bílaábyrgð er hlutafélag innan Bilgreinasambandsins og að því standa nær allir bílainnflytjend- ur á landinu, ásamt nokkrum inn- flytjendum varahluta og verk- stæðiseigendum. Var skömmu fyrir áramót hleypt af stokkunum hlutafjársöfnun með stofnun nýs skipafélags í huga og kaup á tæp- lega 1000 tonna skipi hingað til lands. yar að stofnfé fyrir- tækisins yrði 150 milljónir króna og hafa þegar safnazt 120 milljón- ir. Er fyrirhugað að stofnfundur hins nýja hlutafélags verði i byrj- un næstu viku. Auk bílainnflytjendanna standa fiskútflytjendur að stofn- un þessa fyrirtækis og sagði Geir Þorsteinsson, sem er formaður Bílaábyrgðar og Bílgreinasam- bandsins, i samtali við Morgun- blaðið í gær að fiskútflytjendur hefðu strax og þetta mál hefði verið kynnt fyrir þeim sýnt því mikinn áhuga. — Þeir sáu þegar hve slíkt skip hefði stórkostlega Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.