Morgunblaðið - 18.01.1977, Page 16

Morgunblaðið - 18.01.1977, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANUAR 1977 fltoggpiittlirlMfófr Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar RitstiArr.2ríu!!ííúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Atvinna fyrir alla er kjörorö, sem felur i sér tvenns konár þjöö- félagsieg þýðingu. í fyrsta lagi er hún forsenda þeirr- ar verðmætasköpunar, sem er undirstaða velferðar- þjóðfélagsins og sambæri- legra framtíðar lifskjara og í nágrannalöndum okk- ar. í annan stað er atvinnu- öryggið; möguleikinn til að sjá sér og sínum farborða; aö vera virkur þátttakandi i önn þjóðlífsins, grund- vallaratriði í lífshamingju hvers einstaklings. Landbúnaður og sjávar- útvegur hafa um langan aldur verið meginþættir i þjóðarbúskap íslendinga. Svo verður enn um fyrir- sjáanlega framtíð. Vísinda- legar niðurstöður hafa bó fært okkur heim sanninn um, að bæði fiskstofnar og gróðurmold háfa viss tak- mörk, sem ekki má fara yfir, ef vel á að vera. Að hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarc^- Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10100. Aðalstræti 6, simi 22480. auki hefur tæknivæðing samtímans leitt til veru- legrar framleiðniaukning- ar í þessum atvinnugrein- um, án verulegs viðbótar- vinnuafls. Það er þvi ljóst að eitthvað nýtt verður til að koma, ef mæta á at- vinnuþörf vaxandi þjóðar á næstu árum og áratugum. 1 þessum efnum er fyrst og fremst horft til iðju og iðnaðar. Leggja verður höfuóáherzlu á almennan iðnað. hggði fyrir heima- markað og til útflutnings; og hyggja að þvi, að veru- legur vöxtur iðnaðar hefur margföldunaráhrif í at- vinnusköpun, þar sem hann kallar jafnframt á margs konar þjónustu í öðrum atvinnugreinum. Vöxtur iðnaðar skapar nýja breidd í atvinnulífi -okkar, margskonar at- vírru- og menntunartæki- færi og gerir okkur óháðari þeim sveiflum í efnahags- lífi, sem fylgt hafa ein- hæfni í þjóðarbúskapnum. Landbúnaður og sjávarút- vegur verða eftir sem áður tveir af þremur meginþátt- um verðmætasköpunar — og ómissandi hráefnagjaf- ar iðnaðarins. Þegar talað hefur verið um auðlindir íslands, hef- ur einkum verið horft til fiskstofna og gróðurmold- ar, sem eðlilegt er. Á síðari áratugum hefur sú auð- lind, sem felst í innlendum orkugjöfum, fallvötnum og jarðvarma. bætzt í hóp hinna tveggja. Sýnt þykir að þessi auðlind muni eiga vaxandi þátt í velmegun þjóöarinnar, enda er orkan undirstaða iðju og iðnaðar. Áþreifanlegur veruleik- inn hefur kennt okkur, að hinar stærri virkjanir byggjast, bæði markaðs- lega og rekstrarlega, á til- urð orkufreks iðnaðar. Þannig var álverið og orku- nýting þess talin forsenda Búrfellsvirkjunar og vænt- anleg járnblendiverk- smiðja í Hvalfirði Sigöldu- virkjunar. Þessi stóriðja var ekki einvörðungu markaðsforsenda orkunn- ar, heldur jafnframt liðir ímýjum atvinnutækifær- um og þung lóð á vogarskál gjaldeyrissköpunar þjóðar- innar, en staða hennar á þeim vettvangi hefur verið mjög neikvæð undanfarió. Á þessum nýja vettvangi eru þó mörg víti að varast, einkujm varðandi mengun. Þaó verður að gæta þéss að sá ávinningur, sem stór- iðjan færir, verði ekki of dýrkeyptur; komi ekki með bakreikning í glötun verö- mæta, sem við eigum fyrir og ekki verða metin til fjár. Þessi hætta verður ekki um of undirstrikuð. Sem betur fer er völ margs kon- ar mengunarvarna, sem hljóta að verða skilyrði af okkar hálfu fyrir tilkomu frekari stóriðju. í þessu efni þurfum við að standa fast í ístaðinu. Við íslendingar verðum Áskriftargjald 1100.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasólu 60.00 kr. eintakið. Áhugi á álveri að marka stefnu fram í tím- ann í stóriðjumálum. Og við þurfum að fara með gát og fyrirhyggju á þeim vett- vangi. Staðsetning slíkra fyrirtækja skiptir og mjög miklu máli, ekki einungis með tilliti til mengunar- hættu, heldur einnig til að fyrirbyggja óeðiilega byggðaröskun og tilfærslu- röskun í vinnuafli milli at- vinnugreina. Þaö er því eðlilegt, að skiptar skoðan- ir séu um, hvar slikan at- vinnurekstur skuli stað- setja. Nú er ljóst aó bæði Norð- ur-Þingeyingar og Vestur- SkaftfeííÍTigár hala' áhuga á, að ný álverksmiðja verði reist í þeirra heimabyggó- um. Þessi áhugi tengist nýrri eða nýjum stór- virkjunum hér á landi. Hann virðist einnig tengjast möguleikum í hafnargerð, einkum viö Dyrhólaey, en hafnleysi á Suðurströndinni hefur staðið margháttuöum möguleikum byggðarlaga þar fyrir þrifum. Staðarval þarf að byggjast á nákvæmri, vis- indalegri athugun, bæói varðandi mengunarvarnir og önnur áhrif á nær- liggjandi byggó, ef slíkur valkostur þykir æskilegur af íslenzkum stjórnvöldum, eóa óhjákvæmilegur með tilliti til eðlilegrar þróunar í nýtingu innlendra orku- gjafa. Litid vid hjá starfsmönnum við Kröflu Ósjálfrátt alltaf á verði og við öllu búnir” GOS eða ekki gos. Framkvæmdir ganga sinn gang við Kröflu og starfsmenn þar leggja nótt við dag til að allt megi vera fullbúið á tilsettum tíma. Veðurfar hefur gert mannskapnum erfitt fyrir að undanförnu og tafið framkvæmd- ir nokkuð. Það eru þó önnur^ vandamál, sem eru stærri. Ilvað boðar skjálftavirknin á Kröflu- svæðinu? Verður ef til vill eldgos þar? Tekst að útvega næga gufu til að knýja afstöðina? Þessar og þvillkar spurningar leita meira og minna á hugi fólks en enginn veit svarið enn þó margvfslegar yfirlýsingar hafi verið gefnar. En það er I rauninni ekki hausverkur almennra starfsmanna við Kröflu að svara þeim. Jörundur Guðlaugsson, múrari. Morgunblaðsmenn voru á ferð við Kröflu á laugardaginn og hittu þá nokkra starfsmenn að máli. Meginhlutinn var þó í helg- arfrli og aðeins um 30 manns gistu búðirnar við Kröflu um helgina. Undanfarið hafa verið um 150 manns við Kröflu, en voru hátt f 300 þegar mest var I fyrra- sumar. Mörgum verkefnum ér lokið hjá undirverktökum við Kröflu og önnur eru á lokastigi, þannig að mannskap hefur verið fækkað. Til dæmis eru engir bor- menn lengur við Kröflu, þeir luku sfnum verkefnum fyrir jól er þeir luku við II. og sfðustu holuna á svæðinu. Ætli dýpt hol- anna, sem þeir boruðu, sé ekki um 15 þtúsund metrar ef dýpi þeirra allra er lagt saman. Á laugardaginn voru múrarar og rafvirkjar að störfum f stöðvar- húsinu við Kröflu og jarðvfsinda- menn óku um svæðið á snjósleð- um og jeppum við ýmiss konar mælingar. Múrararnir notuðu heigina til að pússa stiga f stöðv- arhúsinu og við aðra slfka vinnu, sem þeir geta ekki unnið þegar fjölmennur starfhópur er við vinnu sfna f húsinu. Við spjölluðum stuttlega við Jörund Guðlaugsson múrara úr Kópavogi, sem starfar hjá fyrir- Starfsmenn á leið heim úr vinnu úr stöðvarhúsini tækinu Jóni og Einari á Húsavík. Sagði Jörundur að vinna þeirra væri langt komin. Frágangur og flísalagnir væru þó eftir og sömu- leiðis að leggja í hluta gólfs stöðv- arhússins. Er það sjálfsagt með voldugri gólfum, sem um getur, því það er í rauninni tvöfalt. Ofan á þykku gólfinu, sem víðast þætti nóg, kemur önnur gólfpiata, álíka þykk og járnbundin. Aðspurður um það hvort mikið væri talað um gos og slika hluti, sagði Jörundur svo ekki vera. — Það er hending ef maður heyr- ir talað um gos og það er víst alveg öruggt að menn sofa fast á næturnar eftir 14 tíma tarnir, en eru ekki að brjóta heilann um jarðskjálfta, eldgos og þess hátt- ar, sagði Jörundur. VINNA OG AFTUR VINNA Fyrirtækið Rafafl, sem er sam- vinnufélag fjölmargra rafvirkja, sér um raflagnir í stöðvarhúsinu, kæliturnunum, tengivirkið og úti- lýsingar á staðnum. Þeir Ólafur Arason tæknifræðingur og Sig- urður Magnússon rafvirki hjá Rafafli fylgdu okkur um stöðvar- húsið, en áður en lagt var f þá ferð spurðum við hvað starfs- menn við Kröflu gerðu f sinum fáu tómstundum og hvort mikið væri hugsað og talað um gos með- al starfsmanna. (Ennþá þessb áleitna spurning blaðamanna.). — Lífið hérna byggist á vinnu og aftur vinnu og til þess eru menn komnir hingaó, svöruðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.