Morgunblaðið - 18.01.1977, Síða 25

Morgunblaðið - 18.01.1977, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANUAR 1977 33 Kristin Bjarnadóttir stór:" Ég lék leikrit fyrir sjálfa mig og seinna ásamt öðrum börnum í sveitinni. Við höfðum góðan tíma þvi skólatiminn var aðeins þrir mánuðir á ári. Þegar ég var ákveðin i að verða leikkona var ég send i heimavistar- skóla og þar var ég i þrjá vetur og tók siðan gagn- fræðapróf. í Reykjavík fór ég i Þjóðleikhúsið og þá var ég alveg viss, ég ætlaði að verða leikkona og ekkert annað, þó að foreldrar min- ir mótmæltu og systkini min gerðu grin að mér. Leiklistarskólinn var lokað- ur en ég sneri mér til þekkts leikara sem var með námskeið i leiklist. Með náminu vann ég ýmist i verslunum eða á skrifstof- um. Ég var sparsöm og dag einn átti ég nóga peninga til að fara til Danmerkur, og i Odense var ég svo heppin að komast á hálfs árs reynslunámskeið í leiklist- arskóla til að vita hvort ég gæti lært dönsku. Það gekk vel og ég lauk skólanum. Siðasta árið sem ég var þar lék ég mörg smáhlutverk. Það gaf litið i aðra hönd, en það bjargaðist með náms- lánum og ég er stórskuldug ennþá. Nokkrir félagar min- ir úr skólanum stofnuðu leikklúbb og buðu mér að vera með. Klúbburinn starf- aði i eitt ár og við lékum fjöldann allan af leikritum aðallega fyrir börn og ungl- inga. Síðast liðið sumar fékk ég svo vinnu í „Café- teater" i Skindergade og þar er ég nú í annað sinn." Þar voru i desember sýndir tveir einþáttungar eftir Tennessee Williams og í öðrum þeirra leikur Kristin Bjarnadóttir aðalhlutverk- ið, gleðikonu er liggur fyrir dauðanum og berst siðustu baráttu við lifið og menn- ina. Það er erfitt að vera leikkona i Danmörku i dag og hafa ekki fastan samning. Það' þarf þolin- mæði, þrautseigju og litil- læti. Alla þessa eiginleika finnur maður i ríkum mæli hjá Kristínu Bjarnadóttur, bóndadótturinni frá íslandi: Fátæku Önnu i sjónvarp- inu. Fátæku Kristinu i hversdagsleikanum. Þvi er spáð að Kristinu muni ekki skorta verkefni á næstunni þvi hún hefur hlotið miklar vinsældir fyrir sjónvarps- þættina um Önnu. Punktur punktur komma strik fyrsta skáldsaga Péturs Gunnarssonar erkominút í þriðju útgáf u myndskreytt af Gylfa Gislasyni „Húmor er leiðarljós í frásagnargerð Péturs Gunn- arssonar . . . Það er oft hrein unun að lesa þenn- an texta . . . hrífandi skemmtileg og umhugsunar- verð . . . dýrleg lesning." Árni Þórarinsson, Vísir. Iounn, sími 12923 Anna er fátœk stúlka + Við höfum áður sagt frá islensku stúlkunni Kristinu Bjarnadóttur sem leikur „Fátæku Önnu" i danska sjónvarpinu. Nýlega var grein um Kristinu i danska Billede-blaðinu og þar segir orðrétt: Fátæka Anna er i raun og veru fátæk. Það er ekki bara í sjónvarpsþátt- unum sem hún er auralaus, hún hefur oft haft úr litlu að spila. Nú í desember hef- ur hún leikið i litlu leikhúsi í Sindergade i Kaupmanna- höfn og þénar dável á þvi, en stundum hefur hún þurft að fá styrk úr atvinnu- leysissjóði danska leikara- sambandsins. Einnig hefur hún passað börn og unniðá skrifstofu. Það var þvi kær- komið tækifæri sem hún fékk þegar hún hitti rithöf- undinn og blaðamanninn Erik Nörgaard i Haderslev og hann bauð henni hlut- verk Önnu i sjónvarpsþátt- um sem hann var að gera ásamt Herman Stilling og Edmondt Jensen. Faðir minn er bóndi á Norður-íslandi segir Kristin, þar sem snjór er yfir öllu i marga mánuði á ári, stundum fram á vor. Þar ólst ég upp ásamt fimm systkinum og auðvitað gerðu allir ráð fyrir að ég yrði bóndakona. En i út- varpinu heyrði ég lesið upp og leikið og ég sagði vifi sjálfa mig: „Þetta ætla ég að gera þegar ég verð KRISTÍN Bjamadóttir I hlutverki Önnu. frettum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.