Morgunblaðið - 20.01.1977, Síða 31

Morgunblaðið - 20.01.1977, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANUAR 1977 31 Enska 1 # knatt- spyrnan í GÆRKVÖLDI fóru fram eftir- taldir leikir í ensku knattspyrn- unni: Enska deildarbikarkeppnin: Derby — Blackpool 3—2 l.deild: Manchester Utd. — Bristol City 2—1 Skotland — úrvalsdeild: Aberdeen — Rangers 3—3 Reyðarfjörður: Ný löndunartæki tekin 1 notkun þegar fyrsta loðnan barst Reydarfirdi. 19. jan. FYRSTA loðnan barst til okkar í dag, þegar Árni Sigurður AK 370 kom með 380 tonn af loðnu til síldarverksmiðjunnar. Tekin voru í notkun ný löndunartæki, sem eru með sjálfvirkar vogir, og hægt er að landa 250 tonnum á klukkutíma. Reyndust tækin ágætlega. 35 manns munu hafa vinnu við verksmiðjuna þegar allt er komið í gang og lífgar þetta mikið upp á staðinn. Fleiri bátar eru væntanlegir í kvöld og nótt. Báturinn Gunnar er á netaveið- um og er afli mjög tregur í net. Til dæmis kom Gunnar inn með 3'/2 tonn á mánudagsnótt eftir 3 lagnir. Snæfugl er nýfarinn á loðnuveiðar. Veður er gott hér í dag, en mikið er búið að snjóa og mikill snjór í plássinu. — Ureta. Stofnlánadeildin: Sameiginleg- ar tillögur frá nefndinni — TILLÖGUR nefndarinnar eru nú til meðferðar hjá ríkisstjórn- inni og á þessu stigi get ég ekki tjáð mig um þær, sagði Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráðherra, er blaðið leitaði álits hans á til- lögum nefndar þeirrar, sem unn- ið hefur að endurskoðun laga um Stofnlánadeild landbúnaðarins en eins og fram hefur komið í blaðinu, gera tillögur nefndarinn- ar m.a. ráð fyrir því að lagt verði 1% gjald á búvöru við sölu henn- ar til neytenda. Er tekjum af gjaldinu ætlað að mæta að hluta kostnaði, sem deildin hefur orðið að bera vegna útgjalda af teknum lánum umfram tekjur af veittum lánum. Halldór sagði, að tillögurnar hefðu verið gerðar af nefndinni samhljóða en í henni áttu sæti fulltrúar Stofnlándeildar, Seðla- bankans, tveir þingmenn frá hvorum stjórnarflokkanna og einn þingmanna Alþýðubanda- lagsins en þingmenn þessir eiga jafnframt sæti i bankaráði Búnað- arbankans, sem fer með stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Fyrsta loðnan til Eskifjarðar Eskifirdí. i9. janúar. FYRSTA loðnan kom til Eski- fjarðar f dag og voru þrfr bátar komnir inn, allir með fullfermi, og fleiri væntanlegir. Vetrarver- tfð hefur gengið illa, það sem af er, varla gefið á sjó fyrir línubáta og netabátar fiskað Iftið. Eskfirðingar halda árlegt þorrablót sitt i Valhöll n.k. laug- ardag og verður fjölmenni að vanda og margt til skemmtunar. Mótsstjóri að þessu sinni er Ragn- ar Björnsson húsasmiður. Allmik- ið hefur snjóað undanfarið og skíðalyftan hefur snúist siðustu daga og margt manna verið við Ók á bíl og stakk af HARÐUR árekstur varð á þjóð- veginum rétt vestan við Selfoss klukkan 14 í gær. Bifreið hafði verið lagt þar vegna bilunar og voru þrjú börn í bifreiðinni, á aldrinum 1 —10 ára, en móðir þeirra hafði farið að sækja aðstoð. Uerðist það þegar hún var nýlega farin, að ekið var á kyrrstæðu bifreiðina og hún stórskemmd, en börnin sluppu ómeidd. Tjónvald- urinn fór af vettvangi án þess að gera vart við sig, en elsta barnið taldi að þarna hafi verið um fjög- urra dyra amerískan bil að ræða, líklega Mercury Comet, og hefur hægri hlið hans skemmst. Eru þeir sem geta veitt upplýsingar i málinu beðnir að hafa samband við rannsóknarlögregluna. Álits land- búnadarrádu- neytisins var leitað HALLDÖR E. Sigurðsson land- búnaðarráðherra hefur beðið Morgunblaðið að leiðrétta, að það, sem haft er eftir honum í gær þess efnis, að viðskiptaráðuneytið hefði hingað til veitt útflutnings- leyfi fyrir landbúnaðarafurðir án samráðs við landbúnaðarráðu- neytið. Þetta er ekki rétt. Hið rétta er að viðskiptaráðuneytið hefur venjulega leitað álits land- búnaðarráðuneytisins áður en slík leyfi hafa verið veitt. Svo var í því tilviki, sem veitt var út- flutningsleyfi fyrir lOOtonnum af undanrennufuftinu sl. haust, en Halldór sagðist ekki hafa vitað um að svo hefði verið gert, og var það vegna fjarveru hans af land- inu, þegar leyfið var veitt. Halldór tók fram að það væri hins vegar ákvörðun beggja ráðu- neytanna, að framvegis yrði um að ræða nánari samvinnu við- skiptaráðuneytisins og landbún- aðarráðuneytisins áður en út- flutningsleyfi fyrir landbúnaðar- afurðir yrðu veitt. — Stal lyklum og bíl Framhald af bls. 32. eyri, sem varnarliðsmenn höfðu greitt íslenzku smyglurunum fyr- ir fíkniefnin. Skömmu eftir áramót óskuðu bandarísk heryfirvöld eftir lög- sögu yfir manninum, og varð rík- issaksóknari við þeirri ósk. Var maðurinn fluttur frá Reykjavík til Keflavíkur, og þar var hann úrskurðaður i 30 daga gæzluvarð- hald. Hafði maðurínn setið inni tæpan helming tímans þegar hann brauzt út. — Yfirgáfu svæðið í nótt Framhald af bls. 32. þegar umbrot urðu I Gjástykki, land seig og gufur brutust út. Sagði Eysteinn að óróinn núna væri heldur minni en þegar gaus I Leirhnúk I desember 1975. Þá hefur það einnig gerst nú eins og í nóvember s.l. að stöðvarhúsið við Kröflu byrjaði að síga eftir margra vikna ris. Þegar mælingar voru gerðar um miðnættið I nótt, hafði húsið sigið um hálfan milli- metra á rúmum klukkutíma, sem er mjög hratt sig og hélt sigið áfram. Starfsmenn Almannavarna mættu til starfa laust eftir mið- nætti vegna þróunar mála á Kröflusvæðinu. Almanna- varnaráð ríkisins hélt fund I gær- dag, og þar mun hafa komið fram vilji þess um að vinna yrði lögð niður á Kröflusvæðinu frá og með deginum I dag og stæði vinnu- stöðvunin næstu 10 daga. Á fund- inum I gær var ennfremur rætt erinda Almannavarnanefndar Mývatnssveitar varðandi aukið öryggi þar I sveit. Lagði nefndin þar m.a. til að lokið yrði við varnargarða, sem byrjað var á s.l. sumar I Bjarnarflagi, sunnan Kísilverksmiðjunnar. Er jarðýta komin á staðinn. Guðjón Petersen, framkvæmda- stjóri Almannavarna, sagði við Mbl. I nótt, að brottflutningur starfsfólksins við Kröflu hefði gengið mjög vel og harðar en menn hefðu átt von á. Var áform- að að halda áfram vakt I miðstöð Almannavarna I Lögreglustöðinni i Reykjavik fram eftir nóttu. — Kaupa rækju- togara Framhald af bls. 2 verður honum siglt til Danmerk- ur, þar sem nýju rækjuvinnslu- tækin verða sett í hann. Að sögn Jóhanns er formlegt samþykki Fiskveiðasjóðs fyrir kaupunum ekki komið enn, en meðmæli Siglingamálastofnunar- innar liggja þegar fyrir. Jóhann kvaðst vera bjartsýnn á djúprækjuveiðar norður af ís- landi, þó svo að stutt reynsla væri komin á þær. Því miður hefði veður verið þannig I haust að vart hefði gefið á sjó síðan I október. Það væri enn verra þegar Aflatryggingarsjóður hlypi ekki undir bagga þegar ekki gæfi á sjó eða illa fiskaðist hjá rækjubátum og þessu þyrfti að breyta fljótt. En sem dæmi um rækjuaflann sagði Jóhann að Snorri Snorrason skipstjóri hefði fengið 70 tonn af rækju á 45 tonna bát I september- mánuði s.l. Nýi togarinn þyrfti hins vegar að fiska 500 lestir af rækju á ári til að afkoman yrði góð, en verðmæti 500 tonna af rækju miðað við núverandi verð- lag væri tæpar 200 milljónir króna. Að lokum sagði Jóhann, að Sölt- unarfélagið hefði fengið sérstak- lega góða fyrirgreiðslu I Lands- banka íslands og þá sérstaklega af hálfu Jónasar Haralz banka- stjóra. Sömu sögu væri hins vegar ekki hægt að segja er Snorri Snorrason útgerðarmaður og skipstjóri hefði reynt að kaupa rækjuskip i fyrra, en þá hefði málið verið stöðvað á síðustu stundu af Útvegsbankanum. — Baskafáni Framhald af bls. 1. Franco einræðisherra bann- aði á sínum tíma notkun þjóð- fána Baska á þeirri forsendu að hann væri vatn á millu þeirra, sem væru fylgjandi að- skilnaðarstefnu. — Kaíró Framhald af bls. 1. á bak við múgæsingar og átök vegna verðhækkan- anna, en vinstri sinnaðir stjórnmálamenn halda því fram, að stefna stjórnar- innar i efnahagsmálum komi aðeins til góða fá- mennum forréttindahópi. — Andófsmenn Framhald af bls. 1. hendur blaðamanninum Jiri Lederer, og sé hann sakaður um að hafa „rýrt orðstfr Tékkó- slóvakíu erlendis", en fyrir sllkt brot hljóti menn allt að þriggja ára fangelsisdóma. Hið opinbera málgagn tékk- nesku stjórnarinnar Rude Pravo segir I dag, að engar „galdraof- sóknir“ fari fram I Tékkó- slóvakíu. Blaðið gagnrýnir mjög þau ummæli Bruno Kreiskys, for- seta Austurríkis, I gær, en það var eftir honum haft, að hann ætlaði að hafa samráð við aðra jafnaðar- mannaleiðtoga I Vestur-Evrópu um leiðir til.að koma tékkneskum baráttumönnum fyrir mannrétt- indum til hjálpar. Blað brezka kommúnistaflokks- ins, „Morgunstjarnan“ skorar I dag á tékknesk yfirvöld að láta af ofsóknum á hendur þeim sem undirrituðu „Mannréttindi 77“, — þeir fari aðeins fram á að hald- in verði ákvæði Helsinkir yfirlýsingarinnar. A sömu lund eru ummæli fréttaskýrenda I útvarpi Páfa- garðs í dag, og portúgalska þingið fordæmdi I dag handtökur vegna „Mannréttinda 77“ með atkvæð- um allra þingmanna, nema kommúnista. Formaður þing- flokks kommúnista á portúgalska þinginu sagði, að tillagan væri Ögrun við stjórn Tékkóslóvakíu og staðfesti hún „and- kommúniska" stefnu stjórnarinn- ar i Lissabon. — Carter sver Framhald af bls. 1. náðun, og hafa annað hvort særzt I bardögum I Víetnam eða hlotið heiðursmerki fyrir frammistöðu sína I styrjöldinni. Þá var eitt af síðustu embættisverkum Fords að gefa „Tókýó-Rósu“ upp sakir, en hún flutti bandarískum hermönn- um áróðursboðskap fyrir Japani I síðari heimsstyrjöldinni. „Tókíó- Rósa“ var fundin sek um föður- landssvik árið 1948 og sat I fangelsi rúm sex ár. 1 dag ræddi Ford við ýmsa þjóðarleiðtoga I síma, þar á meðal Leonid Brezhnev. í samtalinu við hinn sovézka leiðtoga lét Ford I ljós vonir um að þeir Carter héldu áfram að byggja ofan á þann grundvöll, sem lagður var I Vladivostok árið 1974, en þar komust þeir Ford og Brezhnev að samkomulagi um að stefna að tak- mörkun vopnabúnaðar. m — Eg var í góðu formi. . . Framhald af bls. 3 Í gær stóð til að þeir Friðrik og Kortsnoj hittust I Wijk aan Zee, en af því varð ekki af einhverjum ástæðum. Hér á eftir birtist skák þeirra Frið- riks og Timmans I gær. Ilvítt: Friðrik Ólafsson Svart: Jan Timman 1. d4 — Rf6, 2. Rf3 — b6, 3. c4 — e6, 4. g3 — Ba6, 5. Da4 — De7, 6. a.3 — Dd6, 7. Rbd2 — c5, 8. e4 — Dc6, 9. Dxc6 — Rxc6, 10. d5 — Rd4, 11. Rxd4 — cxd4, 12. b4 — e5, 13. Bd3 — Hc8, 14. Ke2 — h5, 15. h3 — h4, 16. g4 — Be7, 17. f4 — d6, 18. a4 — Bd8, 19. a5 — bxa5, 20. b5 — Bb7, 21. Rb3 — a6, 22. Rxa5 — Bxa5, 23. Hxa5 — axb5, 24. cxb5 — 0-0, 25. fxe5 — dxe5, 26. Ba3 — IIa8, 27. Bb4 — IIxa5, 28. Bxa5 — Ha8, 29. Bd2 — Ha2, 30. Hcl — Re8, 33, 32. Bb4 — Ha8, 33. Be7 — Bc8, 34. b6 — f6, 35. d6 — Kf7, 36. Bb5 — Be6, 37. b7 — Hb8, 38. Ba6 — Bd7, 39. Hc8 og svartur gefst upp. — Ingólfur Arnarson Framhald af bls. 2 var 11,7 lestir samkvæmt útreikn- ingum L.Í.U. Bjarni Benediktsson fékk 3.512 lestir og var aflaverð- mætið 143.8 millj. kr. og afli á úthaldsdag 10.3 lestir. Þormóður goði fékk 2.925 tonn, aflaverð- mæti 131.3 millj. kr. og afli á úthaldsdag 8.5 lestir. Hjörleifur fékk 1.945 lestir, aflaverðmæti 91.5 millj. kr. og afli á úthaldsdag 7.4 lestir. — Blóðþrýst- ingurinn . . . Framhald af bls. 5 farnir að snúast til reynslu eftir tvo mánuði. Undir niðri býr nokkur uggur I brjósti fólks. þó svo virðist ekki á yfarborðinu. Öryggismálin hafa mik- ið verið f brennipunkti undanfarna daga og sýnist sitt hverjum um framkvæmd ýmissa öryggisatriða Bæklingur frá Almannavarnaráði rtkisins er inni á hverju herbergi I skálum starfsmanna. Er þar Tjallað um hugsanlegt hættuástand á Kröflusvæðinu og hvernig fólk þar á að bregðast við Kaflarnir í þessum bækling bera heitin aðvörunarkerfi, viðvaranir og flótti. Einnig er sérstök rás á talstöðinni, sem notuð er milli Reynihllðar og Kröflu er ber heitið Róttinn, Vonandi þarf ekki að nota þessa rás. Vonandi þarf læknanem- inn, sem er við Kröflu, ekki að nota kunnáttu sina I læknisvlsindum Klukkan 23 á hverju kvöldi ekur lllugi Jónsson frá Reykjahllð, fyrrum bóndi og bilstjóri með meiru, upp á hæðina fyrir norðan stöðvarhúsið. Þar leggur hann bifreið sinni og byrjar varðstöðu sína, sem stendúr til morguns. Horfir lllugi Jónsson út I sortann alla nóttina og er við öllu búinn. í bil sinum hefur hann talstöð og getur þvi látið vita ef eitthvað óvenjulegt kemur upp á. Á skjálftavaktinni i Reynihlíð er vakt allan sólarhringinn. Þau Halina Guðmundsson og Hjörtur Tryggva- son skiptast á og standa átta tíma vaktir i senn. Halina, sem er pólsk að uppruna og jarðeðlisfræðingur að mennt, sagði okkur á dögunum að leiðinlegast væri að vera á vakt á næturnar. Helzt væri að lesa góða gók og drekka kaffi. Fáir kæmu I heimsókn og þvi sjaldan hægt að taka i spil til að fá timann til að llða Stundum væri llka meira en nóg að gera við að fylgjast við hreyfingum á skjálftamælunum þremur, úr Reyni- hlið, Gæsadal og á Kröflusvæðinu. Virknin hefur aukist siðustu daga og sérstaklega hafa skjálftarnir stækk- að. þó fjölgunin hafi ekki verið ýkja mikil. Breytingar á holunum við Kröflu eru miklar jafnvel frá degi til dags Enn neðar en þær ná eru mikil umbrot, kvikan er á hreyfingu. Hvað það boðar vita menn i rauninni ekki — Kissinger Framhald af bls. 14 horfði oft og tfðum, að telja mönn- um vlSa um heim trú um þaS, aS Bandarikin væru enn til forystu fallin. Þetta var umtalsvert afrek, og þaS þurfti mikið til. Á stundum rak Kissinger ekki einungis erindi Bandarikjanna erlendis heldur kom fram fyrir forsetana I flestum greinum, þegar þeir voru ekki menn til þess sjálfir sökum ringls eSa reynsluskorts. Þennan leik hefSi hann ekki getaS leikiS nema þvl aðeins, aS hann var þegar orSinn „stjarna", og þurfti orSiS varla annað en sýna sig svo aS ofbirtu sló I augu beggja, stuSningsmanna og and- stæSinga Bandarlkjanna, og þeir gleymdu þvl hvert sinn, aS þau voru I háska stödd. Þessi töfra- brögS voru og enn athyglisverSari fyrir þá sök, aS aldrei var meS öllu vlst, aS þau væru einungis töfra- brögS. Fyrir skömmu var Josef Luns. aðalritari NATO, beðinn að taka saman álit satt á Kissinger I fáum orðum að loknum ferli. Luns komst þá svo að orði: „ Hann á sér engan llka. Annar eins mun ekki koma eftir hann." — Bruninn . . . Framhald af bls. 5 leyti fór varaliðið að koma á stað- inn. Skipulagsleysi með fáum mönnum við mikinn eld I húsi, er varla hægt að tala um, þar gegnir hver maður ákveðnu starfi. Brunahanar I Grjótagötu og Bröttugötu voru ekki notaðir við slökkvistarfið, þvi vitað er að þeir gefa ekki nægilegt vatn á mikinn eld. Á vakt við húsið eftir brunann var tengt við brunahan- ann I Grjótagötu og var hann í lagi, en brunahaninn I Bröttugötu var óvirkur. i upphafi slökkvistarfs varð reyksprenging í húsinu. sem orsakaði að rishivðin varð alelda. Eftir það breiddist eldurinn ekki meira unt húsið og tókst að halda honum innan þeirra rnarka, þar til hann varð slökktur. Eins og sjá mátti á húsinu eftir brunann, var árangur af slökkvt- starfinu góður. 19. janúar 1977. Sig. Gunnar Sigurðsson varaslökkviliðsstjóri Óli Karló Olsen. aðalvarðsst jón.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.