Morgunblaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
32. tbl. 64. árg.
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Dubcek lýsir stuðn-
ingi við mannrétt-
indayfírlýsingu ’77
Vln, 10. febrúar. AP.
ALEXANDER Dubcek,
sem settur var af sem leið-
togi tékkneska kommún-
istaflokksins eftir innrás
Sovétherjanna í Tékkð-
slóvakíu 1968, hefur lýst
yfir stuðningi sfnum við
„mannréttindayfirlýsingu
77“, að því er austurríska
blaðið Arbeiterzeitung
Alexander Dubcek
skýrði frá í dag. Hefur
blaðið þetta eftir manni
sem hefur verið f beinu
sambandi við Dubcek.
Dubcek starfar á skrif-
stofu skðgræktarstjðrnar-
innar f Bratislava og hann
hefur ekki getað undirrit-
að mannréttindayfirlýs-
inguna þar sem öryggislög-
reglan sér um að halda
honum einangruðum frá
umheiminum.
Dubcek segir að sjónarmið
mannréttindayfirlýsingarinnar
séu þau sömu og komi fram f
óteljandi bréfum, sem hann hefur
skrifað. Hann vísaði á bug fyrri
fréttum um að hann hefði neitað
að undirrita yfirlýsinguna. Marg-
ir leiðtoga andstöðunnar í Tékkó-
slóvakiu, þar á meðal Jiri Hajek,
fyrrverandi utanríkisráðherra,
hafa sagt að það sé ómögulegt að
komast í samband við Dubcek til
að fá undirskrift hans á mannrétt-
indayfirlýsinguna.
Dubcek tók við af stalinistanum
Antonin Novotny og var leiðtogi
kommúnistaflokksins á umbóta-
tímabilinu, sem leiddi til innrásar
Varsjárbandalagslandanna 1968.
Waldheim:
Jarðarför Jðrdanfudrottningar. — Æðstu menn jórdanska hersins bera kistu Aliu drottning-
ar við jarðarför hennar f gær. Hún fðrst f flugsfysi. Sjá frétt S bls 15. ,\p simamynd.
PLO sækist ekki leng-
ur eftir allri Palestínu
Jerúsalem, 10. febrúar. Reuter
Aðalframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, Kurt
Waldheim, sagði fsraelsk-
um ráðherrum f dag að
leiðtogar palestfnuaraba
væru reiðubúnir til eftir-
gjafa til að tryggja friðar-
samninga í Mið-
Austurlöndum, samkvæmt
heimildum innan SÞ. Sam-
kvæmt þeim skýrði Wald-
heim, sem nýlega átti við-
ræður við Yasser Arafat,
formann Frelsishreyfing-
ar Palesfnu, PLO, frá því
að PLO sæktist ekki lengur
eftir allri Palestínu,
heldur gætu samtökin sætt
sig við litla landræmu
meðfram Israel.
Waldheim átti i dag fund með
utanríkisráðherra ísraels, Yigal
Allon, og slðan Yitzak Rabin for-
sætisráðherra, Shimon Peres
varnarmálaráðherra ásamt Allon.
S.Þ. heimildirnar herma að Allon
hafi sagt Waldheim að hann tryði
ekki á stefnubreytingu PLO fyrr
en samtökin hefðu breytt stefnu-
yfirlýsingu sinni. Samkvæmt
henni er krafist stofnunar sjálf-
stæðs ríkis á öllu þvi svæði
Framhald á bls. 19
Haavik játar að hafa
njósnað síðan 1949
Ósló, 10. febrúar. Reuter.
GUNVOR Galtung Haavik, ritari I
utanrikisráðuneytinu, hefur við-
urkennt að hafa stundað njósnir í
þágu Sovétrikjanna i næstum 30
ár, samkvæmt upplýsingum L.J.
Dohrenfelt rfkissaksóknara.
Sagði hann að Haavik, sem hand-
tekin var fyrir tveim vikum, hefði
játað við réttaryfirheyrslur að
hafa byrjað að starfa fyrir
sovézku leyniþjónustuna árið
1949.
„Það vœri gaman að hitta
Fischer á fornum slóðum ’
—sagði Spassky í samtati við Mbl
í gœr—Kemur hingað 20. febrúar
„ÉG HLAKKA mikið til að
koma aftur til tslands og var
rétt f þessu að ganga frá far-
miðapöntun fyrir mig og konu
mfna hjá Loftleiðum og við
komum til tslands frá
Lúxemborg sfðla dags 20.
febrúar“, sagði Boris Spassky
fyrrum heimsmeistari f skák,
er Morgunblaðið náði tali af
honum f París í gær. Hljóðið í
Spassky var gott, hann sagðist
vera f góðum formi og bjart-
sýnn á árangur sinn f einvfginu
við Hort. Spassky var sagt frá
boði Skáksambandsins til
Bobby Fischer og hann sagði:,,
Það eru skemmtilegar fréttir,
það myndi vissulega setja
meiri skákblæ á mótið ef
Fischer kæmi sem gestur og
það er aldrei að vita nema hann
þiggi boðið, ef hann heldur að
fólkið sé sér vinsamlegt. Það
væri vissulega gaman að hitta
Fischer aftur á fornum slóð-
um“.
Aðspurður hvers vegna hann
hefði ákveðið að koma svo
snemma sagði Spassky: „Ég er
að hugsa um það að vera búinn
að venjast islenzku loftslagi og
aðstæðum og búa mig vel undir
einvigið áður en keppnin hefst.
Einnig hefði ég hug á að sýna
eiginkonu minni eitthvað af
umhverfinu og athuga hvort
ekki er hægt að koma henni á
Spassky
hestbak, en hún er mikil áhuga-
manneskja um hestamennsku.
Hún hlakkar mikið til að koma
og ég hef sagt henni mikið um
landið."
Spassky sagðist nú vera að
bíða eftir svari frá sovézka
skáksambandinu við beiðni
sinni um að Smyslov, sem verð-
ur aðstoðarmaður hans, komi
til Islands á sama tima og hann
sjálfur svo að þeir geti i sam-
einingu búið sig undir keppn-
ina. Hann sagðist hafa verið
niðursokkinn í það undanfarið
að undirbúa sig, með lestri og
rannsóknum og auk þess hefði
hann teflt 6 æfingaskákir við
bandaríska stórmeistarann
Kavalek fyrir skömmu og sigr-
að 4—2. Spassky sagðist telja að
einvigið gæti orðið sér
strembið, hann hefði nokkrum
sinnum teflt við Hort, en aðeins
unnið hann einu sinni, hinar
skákirnar hefðu endað I jafn-
tefli.
Þá starfaði hún við norska
sendiráðið í Moskvu og kveðst
hún hafa látið sovétmenn fá skjöl
úr sendiráðinu. Eftir að hún kom
aftur til Ósló 1958 lét hún af
hendi skjöl úr utanrikisráðuneyt-
inu og fékk greiðslu fyrir, sagði
saksóknarinn.
Dohrenfelt sagði að frú Haavik
hefði játað að hún hefði gengið í
lið með KGB, leyniþjónustu
Sovétrikjanna, 1949. Hún hefði
átt marga fundi með KGB mönn-
um í Moskvu 1949 til 1956 og svo
aftur í Ósló eftir 1958. KGB lét
hana fá handtösku með leynihólf-
Framhald á bls. 19
Kveikti í sér
á skrifstofu
Aeroflot
París. 1». feb. NTB.
TUTTUGU og sjö ára gamall
franskur bankamaður lézt í kvöld
á sjúkrahúsi f Parfs eftir að hafa
kveikt f sér inni f söluskrifstofu
sovézka flugfélagsins Aeroflot.
Sjónarvottar segja að maðurinn
hafi haft bensfn með sér inn á
skrifstofuna sem er við Champs-
Elysees. Hellti hann þvf yfir sig
og varð alelda á örfáum sekúnd-
um. Hann var fluttur f skyndi á
sjúkrahús þar sem hann lézt eftir
nokkrar klukkustundir. Maður-
inn mun hafa viljað mótmæla þvf
hvernig sovézk stjórnvöld fram-
kvæma Helsingforsyfirlýsinguna.