Morgunblaðið - 11.02.1977, Síða 4
4
MOHCiLXBLAÐIÐ. FÖSTL'DACíUR 11. FEBHUAR 1977
LOFTLEIDIR
H 2 1190 2 11 88
<g
BÍLALEIGAN
51EYSIR
LAUGAVEGI 66
CAR RENTAL
ggmu 24460
• 28810
DATSUN _
7,5 I pr. 100 km
Bílaleigan Miðborg
Car Rental Q A QOi
Sendum 1-94-921
n
F
22-0-22-
RAUOARÁRSTÍG 31
V_______________/
Bergsveinn
Ólafsson kjör-
inn heiðursfélagi
Læknafélags
Reykjavíkur
STJÓRN Læknafélags Reykjavfk-
ur samþvkkti einróma á fundi
sínum fyrir nokkru að gera Berg-
svein Ólafsson að heiðursfélaga
L.R. og hefur honum verið afhent
heiðursskjal því til staðfestingar.
Bergsveinn Ólafsson varð
kandídat frá H.í. 1931 og að loknu
framhaldsnámi í Noregi og Þýzka-
landi var hann viðurkenndur sér-
fræðingur í augnlækningum 1936.
Bergsveinn hefur veriö mjög
virkur i félagsmálum lækna og
gegnt fjðldamörgum trúnaðar-
störfum, m.a. í stjórn L.R. 1937 —
44 og formaður 1953 — ‘59. Þá
hefur hann verið í stjórn Elli- og
örorkutryggingasjóðs lækna frá
stofnun hans 1954 og Styrktar-
sjóðs ekkna og munaðarlausra
harna islenzkra lækna 1944 — ‘76,
einnig í stjórn Domus Medica frá
1960 og tók við formennsku á s.l.
vori.
Útvarp Reykjavík
FÖSTUDKGUR
11. febrúar
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl) 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Guðni Kolbeinsson
heldur áfram sögunni af
„Briggskipinu Blálilju“ eftir
Olle Mattson (3).
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttir kl. 9.45. Létt lög milli
atriða.
Spjallað við bændur kl.
10.05.
Passíusálmalög kl. 10.25:
Sigurveig Iljaltested og
Guðmundur Jónsson syngja.
Páll tsólfsson leikur á oregl
Dómkirkjunnar f Reykjavík.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Hljómsveitin Fílharmonfa
leikur „Gullöldina“ svftu
eftir Sjostakovitsj; Robert
Irving stj. / Ilja Ilurnfk og
Pavel Stepán leika fjórhent á
pfanó Tilbrigði op. 23 eftir
Brahms / Sinfóníuhljóm-
sveitin f Liége leikur
„íberfu“ myndrænt tónverk
fyrir hljómsveit eftir
Debussy Paul Strauss stjorn-
ar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar
Tilkv nningar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir Tilkynningar
(16.15 Veðurfregnir)
16.20 Popphorn
17.30 (Jtvarpssaga barnanna:
,3orgin við sundið" eftir Jón
Sveinsson (Nonna) (11).
17.50 Tónleikar.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
SÍÐDEGIÐ
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Móðir
og sonur“ eftir Heinz G.
Konsalik (3).
15.00 Miðdegistónleikar
Placido Domingo syngur
arfur úr óperum eftir
Puccini, Bizet, Verdi o.fl.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir.
Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Þingsjá Umsjón: Kári
Jónasson.
20.00 Tónleikar Sinfónfu-
hljómsveitar tslands f
Háskólabfói kvöldið áður;
fyrri hluti. Hljómsveitar-
stjóri: Karsten Andersen
Sinfónfa nr. 2 f D-dúr op. 36
eftir Ludwig van Beethoven.
20.45 Leiklistarþáttur í umsjá
Sigurðar Pálssonar.
21.15 „La valse" eftir Maurice
Ravel Gfsli Magnússon og
Halldór Haraldsson leika á
tvö pfanó.
21.30 Utvarpssagan: „Lausn-
in“ eftir Árna Jónsson
Gunnar Stefánsson les sögu-
lok (17).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Lestur Passfusálma (5).
22.25 Ljóðaþáttur Umsjónar-
maður: Óskar Halldórsson.
22.45 Áfangar Tónlistarþáttur
sem Ásmundur Jónsson og
Guðni Rúnar Agnarsson
stjórna.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
11. febrúar
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Kötturinn úr sekknum.
Bresk heimildamynd um
blettatígurinn f Afrfku.
Hann er bændum enginn au-
fúsugestur, þvf að hann ger-
ir mikinn usla f búsmala
þeirra hvenær sem færi
gefst. Eínn bóndi hefur þó
tekið að sér blettatfgra, sem
bæklast hafa af völdum
dýraboga og skotmanna.
Þýðandi og þulur Bogi Arn-
ar Finnbogason.
21.00 Kastljós.
Þáttur um fnnlend málefni.
Umsjónarmaður Sigrún
Stefánsdóttir.
22.00 Ég elska þig, Rósa.
(Ani ohev otah, Rosa).
Israelsk bfómynd frá árinu
1972. Aðalhlutverk Michal
Bat-Adam og Gabi Otter-
man.
Myndin gerist f Jerúsalem
um sfðustu aldamót. Rósa er
ung kona, sem nýlega er orð-
in ekkja. Hún tekur að sér
mág sinn, sem er enn á
barnsaldri, og elur hann
upp, og samkvæmt æva-
fornri hefði eiga þau að gift-
ast, þegar hann er fulitfða
karlmaður.
Þýðendur Elfas Davfðsson
og Jón O. Edwald.
23.15 Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
12. febrúar 1977
17.00 Holl er hreyfing
Norskur myndaflokkur um
léttar Ifkamsæfingar eink-
um æltaðar fólki, sem komið
er af léttasta skeiði. Hópur
roskins fólks sýnir æfing-
arnar. 2. þáttur
Þýðandi og þulur Sigrún
Stefánsdóttir. (Nordvision
— Norska Sjónvarpið)
17.15 Iþróttir
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.35 Emil f Kattholti
Sænskur myndaflokkur
Þegar Lfna fékk tannpfnu
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Sögumaður Ragn-
heiður Steindórsdóttir.
19.00 Iþrðttir
Hlé
20.00
20.25
Fréttir og veður
Auglýsingar og dagskrá
20.30 Fleksnes
Norskur gamanmyndaflokk-
ur, gerður f samvinnu við
sænska sjónvarpið.
Radfóglópurinn
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son. (Nordvísion — Norska
Sjónvarpið)
20.55 Gftarleikur f sjónvarps-
sal
Sfmon Ivarsson leikur lög
eftir Bach og Visée.
Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
21.10 Rfkarður þriðji
Leikrit Shakespeares, kvik-
myndað árið 1955.
Leikstjóri Laurence Olivíer.
Aðalhlutverk Laurence
Olivier, John Gielgud,
Ralph Richardson og Claire
Bloom.
Leikurinn gerist f Englandi
á sfðari hluta fimmtándu
aldar. Skömmu eftir að Ját-
varður fjórði hefur verið
krýndur konungur, hefur
Rfkarður bróðir hans, sem
er geðveili kroppinbakur,
tilraunir til að sölsa undir
sig konungdóm.
Textagerð Déra Hafsteins-
dóttir.
23.40 Dagskrárlok.
K lukkan 22.00:
Ég elska þig Rósa’
ísraelsk bíómynd
Á DAGSKRÁ sjónvarpsins
í kvöld er ísraelsk bíómynd
frá árinu 1972. f aðalhlut-
verkum myndarinnar, sem
ber nafnið „Ég elska þig
Rósa“, eru Mical Bat-
Adam og Gabi Otterman.
Gr myndinni „Eg elska þig
Rósa“. Rósa ásamt mági
sínum, sem vart er kominn
af harnsaldri.
Þýðendur eru Elfas Da-
víðsson og Jón O. Edwald.
í stuttu máli er sögu-
þráður þessi: Myndin ger-
ist í Jerúsalem um siðustu
aldamót. Rósa er ung kona,
sem nýlega er orðin ekkja.
Hún tekur að sér mág sinn,
sem er enn á barnsaldri, og
elur hann upp, þvi sam-
kvæmt ævafornri hefð eiga
þau að giftast, þegar hann
er fulltíða karlmaður.
Að því er segir, lýsir
mynd þessi ekki landi og
þjóð eins og sumir myndu
búast við. Þetta er sér-
kennileg og tær ástarsaga.
Staðurinn er Jerúsalem og
tíminn síðustu aldamót.
Þarna búa hlið við hlið
Gyðingar, sem halda fast i
sína trú, og Arabar. Mynd-
in sýnir hve samantvinnuð
samskipti þessara tveggja
þjóðerna voru í reynd og
ættu margir sem myndina
sjá erfitt með að greina þar
í sundur.
Þótt svo að daglegt líf í
ísrael eöa Palestínu nú á
dögum sé frábrygðið því,
sem sem það var um síð-
ustu aldamót eða þegar
mynd þessi á að gerast,
ráða trúarbrögð ennþá
miklu.
Eftir sex daga stríðið
urðu fjölmargar konur í ís-
rael ekkjur og margar
þeirra urðu að hlíta þeim
aldagömlu trúarskyldum
sem eftirfarandi kvikmynd
mun lýsa.
Mynd þessi er gerð í
Jerúsalem. Leikstjóri er
Moshe Mizrahi, sem er ætt-
aður úr Austurlöndum
nær. Því er sagt að hann
hafi getað náð hinum
smæstu blæbrigðum mann-
legra samskipta og tilfinn-
inga fólks, sem búið hefur
á þessu svæði, sem myndin
lýsir, um langar aldir.
Þessar brosandi litlu stúlkur eru fsraelskar. Ef einbver þeirra verður
einn góðan veðurdag ekkja gæti það kannski orðið hennar hlutskipti
að giftast mági sfnum, þ.e. ef hún þarf að hlíta þeirri aldagömlu
siðvenju.