Morgunblaðið - 11.02.1977, Síða 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
jnoraunbUíiiti
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHtrgunblabib
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÍJAR 1977
Kröfluvirkjun:
Gangsetning fyrri
vélar með álagi
eftir tvo mánuði
Kostnaður áætlaður 7,8 milljarðar króna í lok ársins —
Framleiðir 3—4 MW með þeirri gufu sem er fyrir hendi
FRAMKVÆMDUM verður haldið áfram á þessu ári við vinnsluboran-
ir til gufuöflunar fyrir Kröfluvirkjun og sömuleiðis framkvæmdum
við stöðvarhús og gufuveitu til að geta tekið fyrri vélasamstæðu
stöðvarinnar í notkun. Kemur þetta fram í niðurstöðum greinargerðar
til iðnaðarráðherra er rædd var á fundi ríkisstjórnarinnar á þriðju-
daginn.
(Ijósm. Mbl. Friöþjófur.)
Niðursetning véla og tækja til-
Kröfluvirjunar hefur gengið
vel og er þessi mynd tekin
nýlega i Stöðvarhúsinu.
Sprengiefni
notað til að
losa Jötunn
„ÞAÐ ER rétt, að við munum
jafnvel nota sprengiefni til að
losa sundur rörin sem eru föst f
holunni og erum við nú að undir-
búa það, en Jötunn er nú búinn
að vera fastur ( holunni við
Laugaland ( eina viku,“ sagði ts-
leifur Jónsson verkfræðingur,
forstöðumaður Jarðborana rfkis-
ins, f samtali við Morgunblaðið f
gærkvöldi.
Jötunn var kominn á 463 metra
dýpi þegar hann festist fyrir viku
siðan og hefur reynst árangurs-
laust að losa hann þar. Það er
mjög dýrt þegar bor sem Jötunn
festist, því leigan er í kringum
milljón á dag.
tsleifur sagði, að ekki væri út-
séð hvort öll rörin næðust upp, þó
þeim tækist að losa um þau með
sprengiefni. Hins vegar væri
notkun sprengiefnis eitt af þeim
ráðum sem notuð væru þegar
Framhald á bls. 19
Sjá einnig bls. 10
Samkvæmt tímaáætlun er nú
gert ráð fyrir að tengingu holu 6
verði lokið um næstu mánaðamót,
holu 7, 9 og 11 fyrstu viku í marz
og holu 10 í apríl, segir í greinar-
gerðinni. Áæltað er að þeim verk-
þáttum sem nauðsynlegir eru
vegna gangsetningar fyrri vélar
verði lokið 31. marz. Gangsetning
véla með álagi gæti þá orðið um
miðjan apr'íl. Lagningu háspennu-
línu frá Kröfluvirkjun til Akur-
eyrar mun væntanlega ljúka um
mánaðamótin febrúar-marz. Gerð
tengivirkis á Akureyri er nærfellt
lokið og verður hægt að taka lín-
una í notkun í byrjun marz. Fyrst
yrði stöðin rekin i tilraunarekstri
meðan ýmiss konar prófanir færu
fram og byrjunarörðugleikar í
sjálfum rekstrinum væru yfir-
unnir.
1 greinargerðinni kemur fram
að samkvæmt bráðabirgðayfirliti
nemur kostnaður við Kröfluvirkj-
un í árslok 1976 samtals rúmlega
6.4 milljörðum króna og í ár er
áætlað að vinna við Kröflu fyrir
1.4 milljarða, þannig að áætlað er
að í lok ársins verði kostnaður
Framhald á bls. 31
Kvart-
milljón
stolið
ÞJÓFNAÐUR var framinn í
Miðbæjarskólanum gamla í
fyrrakvöid. 1 húsinu eru
Námsflokkar Reykjavíkur
með starfsemi, og var stolið
kventösku frá einum kenn-
aranna. í töskunni voru 250
þúsund krónur í reiðufé, 4
bankabækur með nokkur
hundruð þúsund króna inn-
stæðu, tvö ávísanahefti og
tvær útfylltar launaávísanir.
Málið er i rannsókn.
(Ljósm. Mbl. RAX).
BRÆLA hefur verið á miðum Suðurnesjabáta síðustu daga og í höfninni í Sandgerði lá í gær mikill floti báta,
smárra og stórra, með tilheyrandi frumskógi siglutrjáa. Sæljóminn, Báran, Sæbjörgin og margir, margir fleiri
lágu þarna hlið við hlið, þeir smærri fremst, en eftir því sem utar dró í höfninni urðu skipin stærri.
„Útlánatakmörkunin getur valdið
erfíðleikum hjá mörgum fyrirtækjum’
MORGUNBLAÐIÐ hafði f gær samband við bankastjóra hjá Útvegs-
bankanum og Landsbankanum og spurði þá hvaða áhrif 6% útlána-
aukningin, sem ákveðin hefur verið, hefði á útlánastarfsemi bankanna
á næstunni. Það kom fram hjá bankastjórunum, að þeir álfta að mörg
fyrirtæki geti lent f erfiðleikum vegna þessa, vegna verðbólgunnar f
landinu, hins vegar væri lausafjárstaða sumra bankanna þannig að
þeir yrðu að halda að sér höndum.
Algjört löndunaröngþveiti
GlFURLEGT löndunaröngþveiti
er nú hjá loðnuskipunum og til að
losna við aflann verða þau að
sigla mikið til Vestmannaeyja og
Siglufjarðar, en það er tæpíega
sólarhringssigiing hvora leið. Á
Austfjörðum er ástandið þannig,
að þar býður fjöldi skipa eftir
löndun en ekkert rými losnar þar
fyrr en á morgun, laugardag en
þá losnar 5500—6000 tonna pláss
frá Raufarhöfn til Hafirar f
Hornafirði.
Til marks um þaö hve skipin
bíða lengi eftir löndun og þurfa
að sigla langt, þá voru aðeins 2
loðnuskip á miðunum í gær-
morgun, hin voru öll í landi að
bfða eftir löndun eða á leið til
lands með afla og á útleið, en alls
eru 74 skip komin á ioðnuveiðar.
Heildarloðnuaflinn á vertiðinni
var í gær orðinn 195 þúsund lest-
Framhald á bls. 31
„Eins og kom fram i tilkynn-
ingu Seðlabankans er svigrúm
bankanna sáralítið til aprilloka,"
sagði Ármann Jakobsson banka
stjóri Útvegsbanka Islands þegar
Morgunblaðið ræddi við hann.
„Nú þegar er búið að lána tölu-
vert fé sérstaklega frá Útvegs-
bankanum og Landsbankanum í
sambandi við undirbúning vertíð-
ar. Útlánatakmörkunin verður
sjálfsagt mörgu fyrirtækinu erfið
í okkar verðbólguþjóðfélagi, á ég
von á og víst er þetta alltaf sama
sagan og verður á meðan þessi
voðalegi bölvaldur er hér.“ -
Þá sagði Ármann, að á vissan
hátt gæti útlánatakmörkunin
bitnað á útgerðinni og fisk-
vinnslustöðvunum, og þá sér í lagi
þegar þessir aðilar þyrftu á
skyndifyrirgreiðslu að halda.
„Miðað við vaxandi þörf allra til
að fá lán, þá er auðséð að útlána-
takmörkunin næstu mánuði mun
valda mörgum fyrirtækjum erfið-
leikum. Þessi ákvörðun átti ekki
að koma neinum á óvart, þetta er
eins og þjóðfélagið okkar er, við
höfum ekki ráð á meiru, og getum*
ekki eytt meiru," sagði Sigur-
björn Sigtryggsson bankastjóri
hjá Landsbanka tslands í samtali
við Morgunblaðið. „Það er ljóst að
næstu mánuði verður mikið að-
hald í útlánum bankanna eða þar
til þetta mál verður tekið til
endurskoðunar."