Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977 5 „Þannig var vfða umhorfs f Perú eftir jarðskjálftana. íbúar í fiskibæn- um Chimbote leita að ættingjum f rústum húsa sinna. Þar hafa fjörutfu prðsent allra húsa hrunið til grunna eða skemmst og a.m.k. 300 farist. (Mhl. 5. jiínf. 1970) Klukkan 18.50: Börnin í Perú — eftir eina ægileg- ustu jardskjálfta, sem sögur fara af Klukkan 18.50 er á dagskrá sjónvarpsins þátturinn: Börn um vfða veröld og heitir sá, sem við sjáum f kvöld Börnin í Perú. Gina Lollobrigida i myndinni „Bread, Love and Fantasy“ árið 1953. En fyrir þá mynd hlaut hann kvikmyndaverðlaun. Hann kvæntist fjórðu eigin- konu sinni Lauren Bacall, árið 1945, og léku þau saman i ótal myndum. Hún lifir mann sinn og er enn að leika. Ein af hennar siðari myndum var Austurlanda- hraðlestin, byggð á sögu Agötu Christie. Önnur þekkt stjarna í myndinni í kvöld er Gina Lollobrigida. Hún er fædd á ítalíu árið 1927. Lagði stund á sigilda leiklist við aka- demiu I Róm I hartnær fimm ár. Frumraun hennar var I myndinni „Love of a Clown“ eða „Ást á trúði“. Hún þótti strax gædd óvenjumiklum yndisþokka og sökum þess hve glæsileg hún var (er) vakti hún fljótlega eftir sína fyrstu mynd athygli á alþjóðavett- vangi. Frá árunum 1950 allt til 1972 lék hún í mörgum stórmynd- um undir stjórn leikstjóra eins og Luigi Comencini og má þá nefna myndina „Bread, Love and Fantasy" sem gerð var árið 1953. Siðari ár hefur hennar helzta áhugamál verið ljósmyndun og ejgj alls fyrir löngu gaf hún út bók með ljósmyndum, sem hún hefur tekið viðsvegar um heiminn, m.a. i heimsókn hjá Fidel Castro á Kúbu. Vorið 1970 urðu einhverjir mestu jarðkjálftar, sem sögur fara áf í Andesfjöllum og I kjölfar þeirra urðu gífurleg skriðuföll. Myndin, sem við sjáum í kvöld segir frá uppbyggingarstarfi i fjöllunum á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna 1722, tveim- ur árum eftir jarðskjálftann. Myndin er tekin í dal þar sem tveir bæir fóru alveg i kaf, eða grófust undir skriðunum. Þar er fylgst með systkinum, sem misstu foreldra sina í skjálftunum og vinna eins og fleiri að upp- byggingu bæjarins, sem þau bjuggu I, en þar hafa S.Þ. og ríkisstjórn Perú komið upp bráða- birgðaþorpi, þegar myndin er tek- in. í Morgunblaðinu hinn 4. júni segir m.a. um jarðskjálftana í Perú: „Átta daga þjóðarsorg hef- ur verið fyrirskipuð í Perú, þar sem óttazt er að allt að 50 þúsund manns hafi farist í jarðskjálftun- um og fánar blöktu í hálfa stöng hvarvetna í landinu í dag. Slæmt veður og samgönguerfiðleikar hamla björgunarstarfi, sem er haldið áfram af fullum krafti og hjálparsendingar hafa borizt frá mörgum löndum, þar á meðal Chile, Argentinu og Bandaríkjun- um. Vegir til jarðskjálftasvæðisins hafa lokazt vegna skriðufalla og sprungumyndana og hjálparsveit- ir grafa i leðju og aur í leit að fólki, sem kann að hafa komist lífs af...“ Daginn eftir, 5 júni segir enn- fremur i Mbl.: „Taugaveikifarald- ur hefur gosið upp meðal ibúa i fjölmörgum rústaborgum Perú. Þá vofir hættan á frekari jarð- skjálftum enn yfir og aðfaranótt fimmtudags voru jarðhræringar i höfuðborginni svo kröftugar, að fólk þusti þúsundum saman, skelfingu lostið út úr hýbýlum sinum. Ekkert teljandi tjón varð þó í það sinnið og ekki slys á fólki. Enn eru að berast fréttir utan af landi um þorp og bæi, sem ger- samlega hafa þurrkast út úr í þessum ægilegu jarðskjálftum síðustu daga og tala látinna hækk- ar stöðugt. Samkvæmt siðustu skýrslum stjórnvalda hafa um 50 þúsund látist og er óttast að ekki séu öll kurl komin til grafar enn. Þá eru um 600 þúsund heimilis- og eignalausir eftir náttúruham- farirnar." Þýðandi myndarinnar um börn- in i Perú er Stefán Jökulsson. 93 rithöfundar hlutu 32,8 millj. í starfslaun LAUNASJÓÐUR rithöfunda hefur úthlutað 293 mánaðarlaunum til 93ja rithöfunda, en samtals nam fjárveiting til sjóðsins á fjárlögum 1977 32.759.000 krónum. Alls bárust umsóknir frá 129 áðilum um starfslaun f röska 700 mánuði. Sjóðsstjórnin úthlutaði 6 rithöfundum starfslaun I 7 mánuði. 13 f 5 mánuði, 38 fengu þriggja mánaða starfslaun og 36 tveggja mánaða. I fréttatilkynningu frá Launa- sjóði rithöfunda, sem Morgun- blaðinu barst i gær, segir m.a., að i reglugerð sjóðsins segi að árs- tekjum hans skuli varið til þess að greiða islenzkum rithöfundum starfslaun samkvæmt byrjunar- launum menntaskólakennara. Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa íslenzkir rithöfundar og höfundar fræðirita. Þá er heimilt að greiða úr sjóðnum fyrir þýðingar á is- lenzku. Starfslaunin eru veitt eftir um- sóknum. Höfundur, sem sækir um og hlýtur starfslaun i þrjá mánuði eða lengur, skuldbindur sig til þess að gegna ekki fastlaunuðu starfi meðan hann nýtur starfs- launa. Tveggja mánaða starfslaun skulu einungis veitt vegna verka sem birzt hafa næsta almanaksár á undan og þeim fylgir ekki kvöð um að gegna ekki fastlaunuðu starfi. Umsóknarfrestur rann út 31. desember siðastliðinn og bárust eins og áður segir umsóknir frá 129 aðilum. Þeim hefur öllum ver- ið svarað og skrá um úthlutunina send menntamálaráðuneyti. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið fékk i gær, hlutu eftirtaldir rithöfundar starfslaun að þessu sinni: 7 mánaða starfslaun fengu: Guðbergur Bergsson, Ingimar Er- lendur Sigurðsson, Kristinn Reyr, Pétur Gunnarsson, Tómas Guð- mundsson. 5 mánaða starfslaun fengu: Birgir Sigurðsson, Erlendur Jóns- son, Gréta Sigfúsdóttir, Guð- mundur Danielsson, Jóhannes Helgi, Jón Óskar, Oddur Björns- son, Ólafur Haukur Símonarson, Sigurður Pálsson, Steingerður Guðmundsdóttir, Vésteinn Lúð- víksson, Þorgeir Þorgeirsson, Þóroddur Guðmundsson - frá Sandi. 3ja mánaða starfslaun hlutu: Ása Sólveig, Ási í Bæ, Baldur Óskarsson, Bergsveinn Skúlason, Björn Bjarman, Björn J. Blöndal, Einar Bragi, Dr. Einar Ólafur Sveinsson, Eiríkur Sigurðsson, Geir Kristjánsson, Guðmundur L. Friðfinnsson, Guðmundur Frí- mann, Guðmundur G. Hagalín, Guðmundur Steinsson, Gunnar M. Magnúss, Hannes Sigfússon, Hrafn Gunnlaugsson, Jón Björns- son, Dr. Jón Gíslason, Sr. Jón Thorarensen, Jón úr Vör, Jökull Jakobsson, Kjartan Ólafsson, Kristján frá Djúpalæk, Krist- mann Guðmundsson, Magnea frá Kleifum, Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi, Nina Björk Árnadótt- Framhald á bls. 18 I>rír Islendingar heidradir af Bretadrottningu BRETADROTTNING hefur nýverið heiðrað þrjá íslendinga og veitt þeim heiðursmerkið „Order of the British Empire". Var meðfylgjandi mynd tekin er sendiherra Breta hér á landi, Mr. K.A. East, afhenti heiðursmerkin á heimili sínu. T. v. K.A. East, sr. Oskar J. Þorláksson, fyrrv. dómprðfastur, sr. Jakoh Jónsson dr. theol., fvrrv. sóknarprestur, Þórarinn Jónsson kennari við Stýrimannaskólann. „Pétur og Rúna” á Dalvík LEIKFÉLAG Dalvíkur frumsýndi föstudaginn 25. febr. leikritið „Pétur og Rúnu“ eftir Birgi Sigurðs- son. Leikstjóri er Guðrún Alfreðsdóttir. Með hlutverk í leikritinu fara: Rúnar Lund leikur Pétur, Guðný Bjarnadóttir Rúnu, Svanhildur Björgvinsdóttir móður Péturs, Theódór Júlíusson bróður Rúnu, Sólveig Hjálmarsdóttir Kiddý, Kristján L. Jónsson Manna, Sveinbjörn Hjörleifsson bilsjórann og Einar Arngrímsson vinnu- félaga. Á myndinni sést t.f.v. Svanhildur Björgvinsdóttir (móðir) Guðný Bjarnadóttir (Rúna) og Rúnar Lund (Pétur). Leikurinn gerist i eld- húsi í gömlu timburhúsi í Reykjavík á okkar dögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.