Morgunblaðið - 02.03.1977, Side 13

Morgunblaðið - 02.03.1977, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977 13 Endurhæfmg mikil-1 vægasta verkefnið | — segja forystumenn félagsins í TILEFNI af 25 ára afmæli S.L.F. hefur verið leitað til nokkurra for- ystumanna félagsins og þeir spurðir hvað þeim væri I huga við þessi tlmamót. Svavar Pálsson, sem var formaður félagsins I 20 ár og jafnframt framkvæmdastjóri langt af þann tfma, sagði að án lifandi áhugamanna innan lækna- stéttarinnar hefði félagið aldrei orðið að þvf sem það væri og vildi hann sérstaklega minnast þeirra próf. Jóhanns heitins Sæmunds- sonar og dr. Snorra Hallgrfms- sonar. Þeir og fleiri læknar hefðu ávallt verið til ráðgjafar þegar teknar voru stefnumarkandi ákvarðanir. Haukur Kristjánsson, yfirlæknir, taldi mjög brýnt að starfsemi S.L. F. héldi áfram, enda væri mikill fjöldi fólks sem þyrfti á endurhæfingu að halda. Ef hægt væri að koma á skipulögðum flutningi sjúklinga að og frá endurhæfingastöðvum væri hægt að koma f veg fyrir að þeir lokuð- ust inni á stofnunum, eins og hann orðaði það. Friðfinnur Ólafsson sagði þetta um framtíðarverkefni félagsins: Þó að Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hafi látið ýmislegt gott af sér leiða, sfðan það var stofnað fyrir 25 árum, til þess að létta undir með fötluðu og lömuðu fólki, er langur vegur frá þv! að nóg sé að gert. Framtfðarverkefni félagsins eru vissulega mörg og stór. Ég nefni aðeins örfá. Það þarf ennþá að gera mikið til þess f okkar þjóðfélagi að gera fötluðu fólki kleyft að komast leiðar sinnar á sem eðlilegastan hátt. Gildir þetta bæði utanhuss og innan. Það þarf að kenna þessu fólki að vinna sem flest störf og skapa þv! möguleika til þess. Það þarf að gefa þessu fólki kost á að skemmta sér, að ferðast utanlands og innan og yfirleitt að lifa eins eðlilegu Iffi og þeir lifa, sem ekki þurfa að bera kross fötl- unarinnar. Og svo fyrst og sfðast verður að leggja allt kapp á endurhæfingu. bæði að hún geti byrjað nógu fljótt og öllum tiltækum ráðum sé beitt til þess að hún beri sem mestan árangur. Þar má einskis láta ófreistað, hvorki að því er snertir húsakost. hjálpartæki eða vel menntað starfsfólk. Félagið vill vinna að öllum þess- um efnum eftir fremstu getu f framtfðinni og heitir á alla vini sfna að duga þvf vel, um leið og það þakkar þeim fjölmörgu, sem hafa á liðnum árum lagt þvf lið. Við eigum að gera Iff allra eins eðlilegt og bærilegt og hægt er — það er meginmarkmið þessa félags. Reykjadalur f Mosfellssveit. Starfsemin í æfingastöðinni að Háaleitis- braut 13 starfa nú 10 sjúkraþjálf- arar auk lækna og sérfræðinga, en alls starfa þar 35 manns, þar af 20 f fullu starfi. Á þeim tuttugu árum sem liðin eru frá því að Styrktarfélag lam- aðra og fatlaðra hóf fyrst rekstur æfingastöðvar, að Sjafnargötu 14, hafa alls 7.555 sjúklingar fengið 222.452 æfingameðferðir á vegum þess. Er þá ótalinn fjöldi æfinga- meðferða sem fötluð börn hafa fengið á sumardvalarheimilinu I Reykjadal. Til að gefa nokkra hugmynd um, hvað þessi þáttur i starfi félagsins hefur aukizt gífurlega að umfangi þau tuttugu og fimm ár, sem liðin eru frá stofnun þess, má nefna að fyrsta árið sem æfingastöðin að Sjafnargötu var starfrækt, komu þangað 240 sjúkl- ingar og fengu 4406 meðferðir. Á síðasta ári komu 779 sjúklingar í æfingastöðina að Háaleitisbraut 13 og fengu 22664 meðferðir. Félagið hefur sem fyrr segir staðið fyrir rekstri sumardvalar- heimilis fyrir fötluð börn. Alls munu á sjöunda hundrað börn hafa notið slíkrar dvalar þau átján sumur sem starfsemin Framhald á bls. 18 Frá sundlauginni. t biðstofunni að Háaleitisbraut 13 er oft þröngt og þó eru tugir fólks á biðlista til að komast til nauðsynlegrar meðferðar. JAN Dobrezelewski Kammertónleikar Austurbæjarbló 28. febr. 1977 Flytjendur: Jan Dobrzelewski, fiðluleikari, Guðmundur Jóns- son, pfanóleikari. Efnisskrá: J.S. Bach: Partita nr. 3 f E-dúr M. Ravel: Sónata f G-dúr A. Corelli: Sónata I d-moll op. 5 nr. 12. R. Schumann: Sónata í a-moll op. 105 nr. 1 Á tónleikum Tónlistarfélags- ins i Austurbæjarbíói á mánu- dagskvöldið komu fram franski fiðluleikarinn Jan Dobrezelewski og Guðmundur Jónsson píanóleikari, en langt er um liðið sfðan nafn hans hefur sést á tónleikaskrám. Á efnisskrá voru verk eftir J.S. Bach, A. Corelli, M. Ravel og R. Schumann. Jan Dobrzelewski er ágætur fiðluleikari. Hann hefur góða tækni og fallegan tón. Hann lék af öryggi og festu á hverju sem gekk og hikaði hvergi. I einleikspartítu Bachs komu kostir hans vel í Ijós, en verkinu gerði hann prýðileg Tónllst eftir EGIL FRIÐLEIFSSON skil. G-dúr sónata Ravels er aðlaðandi verk, en viðkvæm í samspili og vandmeðfarin, eins og raunar flest sem frönsku impressionistarnir sömdu. Þeir félagar gerðu margt laglegt í þessari sónötu, þó ekki væri flutningur gallalaus. í sónötu Corellis fataðist píanistanum, sem virtist koma honum úr jafnvægi, og hann náði sér ekki á strik eftir það. Og þó betur gengi í sónötu Schumanns var leikur hans litlaus. Dobrezelewski hélt hins vegar ótrauður áfram, en samleikur þeirra var í molum, og er ástæðulaust að fjalla frekar um það. Það veitist áreiðanlega engum auðvelt að stíga upp á konsertapallinn eftir áralangt hlé. Kraftakarlar og sagnalist Fyrirlestur í Norræna húsinu OLAV Bö, þjóðháttafræðingurinn norski, vel þekktur hérlendis, er nú í heimsókn á íslandi í boði Norræna hússins. Hann er fæddur 1918 I Bygland í Setesdal, eiriu auðugasta héraði Noregs hvað snertir ýmis konar þjóðleg fræði, en þó einkum visur og sagnir. Olav Bö varði árið 1955 doktorsritgerð um „Heilag Olav i norsk folketradisjon". Hann hef- ur ekki aðeins gefið út norskar þjóðvisur (Stev 1957, Norske ballader 1973) og þjóðsagnir (Norsk natur i folketru og segn 1974), heldur einnig kannað ým- islegt um alþýðumenningu, þjóð- siði og venjur, og m.a. gefið út bækurnar Norsk ski'tradisjon (1966), Vár norske jul (1970) og Folkemedisin og lærd medisin (1972), og 1962 gaf hann út á ensku bók um fálkaveiðar. Olav Bö, sem varð prófessor i þjóðháttafræði við Oslóarháskóla Olav Bö 1974, heldur einn háskólafyrir- lestur og talar auk þess i Norræna húsinu, fimmtudag 3. mars kl. 20.30 um efnið „Kjempekarar og forteljekunst i Setesdal". Valdimar Björnsson gestur Isl.-ameríska VALDIMAR Björnsson, fyrrum fjármálaráðherra Minnisota- fvlkis f Bandarfkjunum, hefur þegið boð Islenzk-amerfska félagsins um að sit ja sem heiðurs- gestur á árshátfð félagsins, sem haldin verður f Vfkingasal Hótel Loftleiða laugardaginn 5. marz n.k. Valdimar mun halda aðalræðu árshátíðarinnar en Sigurður Björnsson syngur einsöng með undirleik Carl Billich. Aðgöngumiðar verða afhentir á miðvikudag og fimmtudag að Nes- haga 16 og eru félagsmenn hvattir til að tilkynna þátttöku sem allra fyrst vegna mikillar aðsóknar. Valdimar Björnsson fyrrum ráðherra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.