Morgunblaðið - 02.03.1977, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977
t
Útför móður minnar,
SIGRÍÐAR EIRÍKSDÓTTUR,
Steinsholti,
verður frá Stóra-Núpskirkju, laugardaginn 5 marz kl 14
Þórir Haraldsson,
og aðrir vandamenn.
t
Útför móður okkar og tengdamóður
ÓLAFÍU BJARNADÓTTUR
fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 3 mars kl 1 30
Sveinn Björnsson Kristin Ingvarsdóttir
Bjarni Björnsson Kristjana Brynjólfsdóttir
Guðmundur Kr. Björnsson Else Björnsson
Eiginmaður minn t KRISTMANN KRISTINSSON,
Birkihvammi 16. Kópavogi
lést 26 febrúar s 1 Steinunn Sigurjónsdóttir.
Faðir okkar
GEORG GUÐMUNDSSON,
lést í Landakotsspítala 28 febrúar
Sigurveig Georgsdóttir,
Guðmundur Georgsson,
Magnús Georgsson.
t
Þökkum Innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eigin-
manns, míns, föður okkar, tengdaföður og afa.
HALLMUNDAR JÓNSSONAR,
frá Meira-Garði, Dýrafirði,
Guðrún Jóna Guðmundsdóttir,
Marvin Hallmundsson. ólöf Árnadóttir,
Jónasina Hallmundsdóttir. Sveinn Hafberg.
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir flytjum við öllum sem vottuðu okkur hluttekmngu við
fráfall og útför eíginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa
ÓSKARSKR SIGURÐSSONAR
bifreiðarstjóra,
Kirkjuvegi 6, Hafnarfirði.
Una Nikulásdóttir
Nikulás S H Óskarsson
Borgþóra G. Óskarsdóttir Hannes Benediktsson
Hansína G. Óskarsdóttir Kristinn j. Karlsson
Oddný S. Óskarsdóttir Óskar J.B. Jónsson
Örn Ægir Óskarsson Elin Guðmundsdóttir
og barnabörn.
t
Við þökkum innilega samúð og vinarhug vegna andláts,
BJÓRNS ÓLA PÉTURSSONAR
Sérstakar þakkir tíl Ólafs Gunnlaugssonar læknis, og hjúkrunarfólks á
Landakotsspítala. fyrir frábæra umönnun I veikindum hans
Þuríður Guðmundsdóttir,
Haukur Björnsson, Kristín Jónsdóttir,
Pétur Björnsson, Olga Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Sigurður Björnsson, Hildur Sigurbjörnsdóttir
Steingrímur Björnsson og Bryndis Snæbjörnsdóttir.
t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður og afa,
FRIOBJÖRNS ÞORSTEINSSONAR
frá Vik i Fáskrúðsfirði
sérstakar þakkir til hjúkrunarliðs og lækna fyrir góða aðhlynningu í veikindum hans á deild 7-A Borgarspítalans
Áslaug Friðbjörnsdóttir Guðmundur Magnússon
Sigurpáll Friðbjörnsson Jóna Mortensen
Jón Friðbjörnsson Sveina Lárusdóttir
Björn Friðbjörnsson Ólafia Jónsdóttir
Egill Friðbjörnsson Guðlaug Þórðardóttir
Aðalsteinn Friðbjörnsson Geir Friðbjörnsson
Þórhallur Friðbjörnsson og barnabörn.
Oddný Stefánsdótt-
ir—Minningarorð
F. 25. september 1891.
D. 23. febrúar 1977.
Hið snögglega andlát frú Odd-
nýjar kom mér mjög að óvörum,
því fyrir skömmu var hún gestur
á heimili mínu, hress og kát að
vanda. Að vísu var aldurinn orð-
inn nokkuð hár, en þrátt fyrir
nokkur áföll, lét hún aldrei bil-
hug á sér finna.
Oddný Stefánsdóttir var fædd
að Ásunnarstöðum í Breiðdal 25.
september 1891. Foreldrar henn-
ar voru Stefán Árnason, bóndi að
Ásunnarstöðum, og kona hans,
Helga Lúðvíksdóttir Kemp. Bróð-
ir Oddnýjar var hinn kunni vísna-
smiður og vegaverkstjóri Lúðvík
Kemp. Móður sína missti Oddný
þegar hún var rúmlega 3ja ára.
Á unga aldrei stundaði Oddný
músiknám hjá séra Vigfúsi
Þórðarsyni á Hjaltastað, og var
organisti i Eydalakirkju á árun-
um 1908 — 1912. Kenndi hún
siðar orgelleik í mörg ár eftir það,
og einnig handavinnu, en hún var
með afbrigðum mikil handa-
vinnukona.
í Kennaraskóla íslands innrit-
aðist hún árið 1912 og lauk þaðan
burtfararprófi árið 1915. Þá sótti
hún matreiðslunám i 6 mánuði í
Kvennaskólanum i Reykjavík
veturinn 1915 — 16, en það ár, 14.
maí, giftist hún Björgólfi Stefáns-
syni, sem þá vann í Leðurverzlun
Jóns Brynjólfssonar í Reykjavik.
Árið eftir stofnaði Björgólfur,
ásamt vini slnum Theódór Bjarna
frá Rauðará, „Skóverzlun B.
Stefánssonar & Bjarnar", sem
þeir ráku saman þar til árið 1925,
en það ár keypti Björgólfur
eignarhluta Theódórs og rak fyr-
iriækið áfram undir nafninu
„Skóverzlun B. Stefánssonar".
Eftir lát manns síns, en hann dó
14. des. 1938, rak hún ásamt
Björgólfi yngra verzlunina þar til
árið 1955 að verzlunin hætti. Á 25
ára afmæli verzlunarinnar stofn-
aði Oddný Verðlaunasjóð Björg-
ólfs Stefánssonar við Verzlunar-
skóla íslands.
Þeim Björgólfi og Oddnýju varð
ekki barna auðið, en tóku tvö
bróðurbörn Oddnýjar sem kjör-
börn. Þau eru Oddný, sem er gift
Pétri Thorsteinsson, sendiherra,
og Björgólfur, kvæntur Unni
Jóhannsdóttur. Auk þess ólu þau
upp hálfsystur Oddnýjar, Sigríði
Jóhönnu, sem giftist til Banda-
ríkjanna manni að nafni William
Kelly. Stefán, faðir Oddnýjar,
kvæntist þrisvar og eignaðist með
þriðju konu sinni tvö börn. Pétur
og Sigríði. Þau hjón önduðust
með stuttu millihili þegar Sigríð-
ur var aðeins nokkurra mánaða
gömul. Pétri var komið fyrir norð-
ur i landi, en Oddný hafði engar
vöflur á, brá sér austur og sótti
hálfsystur sina. Olst hún upp hjá
þeim hjónum og var komið til
mennta. Lauk hún prófi frá
Verzlunarskóla Islands og var sið-
ar við framhaldsnám í Bretlandi.
Björgólfur lauk einnig námi frá
sama skóla, en Oddný yngri lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um i Reykjavík. Þetta var i miðri
heimsstyrjöldinni og ekki auðið
að sækja nám til Evrópu, stundaði
hún þvi nám við Háskóla Islands í
eitt ár, en þá opnaðist mögueiki á
háskólanámi i Bandaríkjunum.
Hikaði hún ekki við að fara þang-
að í skipalest, og lauk þar námi í
viðskiptafræði með mjög góðri
einkunn.
Margar verzlunarferðir fór
Björgólfur til útlanda og fylgdi
Oddný honum iðulega á þeim
ferðum. Eftir að hún var orðin
ekkja dvaldi hún oft langdvölum
erlendis hjá sendiherrahjónunum
Oddnýju og Pétri, t.d. i Moskvu,
París, Bonn og Washington. Naut
hún þess að fylgjast með uppeldi
dóttursona sinna.
Sextán ára gamall réðst ég í
þjónustu Björgólfs og varð vistin
nærri sautján ár. Það varð mér
góður skóli, þvi reglusemi og
heiðarleiki í viðskiptum var sett
öllu ofar. Oddný tók mér strax
með alúð og vinsemd, og hefir sú
vinátta haldist æ síðan.
Heimili þeirra hjóna bar þess
ljósan vott hversu myndarleg hús-
móðirin var. Reglusemi, snyrti-
mennska og smekkvisi og umfram
allt gestrisni þeirra hjóna var
rómuð. Það var þvi oft gestkvæmt
á heimili þeirra, og margar góðar
endurminningar eigum við hjón-
in frá þeim samkvæmum, sem
okkur var boðið í. Þar var hús-
bóndinn hrókur alls fagnaðar.
Einn var sá gestur, sem ég
minnist sérstaklega að kom þar
oft. Það var skáldið Guðmundur
Friðjónsson frá Sandi. Við lát
Björgólfs sendi hann Oddnýju
stef, sem mér er ekki kunnugt um
að birst hafi á prenti, og finnst
mér ekki úr vegi að birta það hér.
FalHn er forsæla
á fótstig þinn —
yfir augu þfn,
að óvörum.
Signi sál þfna
sólargeisli,
vaki þór vonir,
vinkona mfn. G.F.
Að lokum vil ég minnast með
aðdáun þess, hversu annt þau
hjón létu sér um uppeldi og vel-
ferð þeirra barna, sem þeim var
trúað fyrir. öllum var þeim komið
til góðra mennta, og ekkert til
sparað að þeim liði sem best.
Enda voru þau hjón einstaklega
barngóð.
Öllum aðstandendum sendum
við hjónin okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Magnús Þorgeirsson.
„Deyr fé deyja frændur,
deyr sjálfur eð sama.
En orðstfr deyr aldreigi,
hveim sér góðan getur.“
„1 upphafi var orðið, og orðið
var hjá Guði... 1 því var líf, og
lifið var ljós mannanna."
I dag verður amma okkar til
moldar borin. Okkur barnabörn-
um hennar, er efst I huga á
þessum degi, að þeim sem gengur
á Guðs vegum mun vel farnast að
eilifu. Amma okkar sýndi okkur
veg kærleikans með fordæmi og
áttum við þvi með henni margar
góðar stundir. Við þökkum henni
fyrir það veganesti, sem hún
hefur veitt okkur.
Blessuð sé minning hennar.
Barnabörnin.
Minning:
Jóhann Garðar Björns-
son vélsmíðameistari
F. 7. febrúar 1917
D. 17. febrúar 1977.
Skeiðið er runnið og dagur aó
kvöldi kominn. Vinur minn
Jóhann Björnsson er látinn að oss
öllum finnst löngu fyrir aldur
fram rétt sextugur að aldri.
Löng og farsæl kynni okkar átt-
um við að þakka Gfsla vini okkar í
Ási þegar hann kallaði okkur
saman unga drengi til að stofna
Sendisveinafélag Reykjavikur
haustið 1931 og upphófust okkar
Jóhanns fyrstu kynni sem urðu að
lífstíðar vináttu. Jóhann var þá
sendisveinn hjá Kjöt og fisk en ég
hjá heiðursmanninum Ludvig
Storr og varð sú dvöl min hjá
honum vísir að lífsstarfi mínu.
Hálfdán Helgason, forstjóri í
Kjöt og fisk, hefur oft minnst
þess við mig hve frábær ungling-
ur Jóhann var, dugmikill og trúr.
Þegar hann var 16 ára réðst
hann í iðnnám, vélvirkjun, hjá
Vélsmiðjunni Steðja h/f hér í
Reykjavík hjá miklum sóma-
mönnum og lauk þar námi tvi-
tugur að aldri með miklu lofsorði.
Jóhann var mikill fyrstu
einkunnar maður alla tið, stund-
vís, áreiðanlegur og einn hugvit-
samasti og fjölhæfasti vélsmiður
sem útskrifast hefur frá Steðja
h/f. Það segir sína sögu að 23j ára
var Jóhann ráðinn sem yfirvél-
smiður i Dósagerð Reykjavikur.
Árið 1943 urðu mikil straumhvörf
I lífi Jóhanns þegar hann kvænt-
ist eftirlifandi eiginkonu sinni,
Þórunni Sigurjónsdóttur. Þau
eignuðust 10 börn og reyndist
Þórunn manni sínum alla tíð hin
styrkasta stoð, mikil og góð hús-
móðir og umhyggjusöm um hag
heimilisins því af litlu var oft að
taka.
Árið 1950 setti Jóhann á stofn
Vélsmiðjuna h/f ásamt okkur
tveimur, Agli Egilssyni og mér.
Þá kynntist ég fyrst f raun hinni
miklu hæfni Jóhanns, þvflíkur
völundarsmiður hann var og hve
mikill hugvitsmaður og er ég
sannfærður um að hefði Jóhann
verið fæddur í öðru umhverfi sem
stærra hefði verið í sniðum en
land okkar og þjóð þá myndi hann
hafa orðið frægur maður f fagi
sfnu fyrir uppfinningar.
Jóhann var góður drengur og
göfugur. Hann var vel af Guði
gerður. Hann var greindur vel,
stilltur og íhugull, kraftamaður,
samanrekinn og jafnframt gædd-
ur miklu jafnvægi og andlegum
styrkleika.
Hann kunni vel að vera glaður á
góðum stundum með vinum sfn-
um en öðrum þræði var hann mik-
Framhald á bls. 18
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall eiginkonu
minnar, móður okkar og tengdamóður
RAGNHEIÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Ægissiðu 96.
Magnús Kristinsson,
Ágústa Kristín Magnúsdóttir, Sigurður Jónsson,
Soffía Magnúsdóttir. Kristinn Guðjónsson.