Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977 29 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10 — 11 FRÁ MÁNUDEGI r\M n En vist mín þar leiddi hugann að þeim skrifum, sem oft hafa verið í blöðum, og oft hafa verið hrein ádeila á læknastéttina og hjúkrunarlið spítalanna, en minna um hitt getið, sem gert er vel. Ég vil sér í lagi taka fram, að ég var erfiður sjúklingur og hafði allt á hornum mér fyrstu dagana, enda var ég mjög kvalinn eftir uppskurð á báðum fótum. Hjúkrunarkonurnar fengu því vægast sagt óblíðar viðtökur hjá mér á meðan kvalirnar voru sem mestar. En nú hlýt ég að biðja þær þar á afsökunar, því ég komst sannarlega að raun um að þarna var mjög gott og hæft starfslið, sem ég flyt nú beztu þakkir fyrir góða umönnun. Því skyldi þá heldur ekki gleymt, að hinn góði beinasér- fræðingur Jóhann Guðmundsson læknir á miklar þakkir fyrir það, hvað honum tókst vel að lagfæra þessa slæmu fætur mína. En ekki er öll sagan sögð. Þegar mér fór að batna var ég sendur á Hótel Rauða kross Islands og voru þar þær beztu móttökur, sem ég hefi fengið um ævina og er ég þó búinn að ferðast vítt og breitt um landið, enda starf mitt lengstum bifreiðaakstur. Ég held að ég mæli fyrir munn flestra, sem á hótelinu voru þegar ég segi, að þar var fyrsta flokks þjónusta, mjög góður matur og viðmótið í alla staði elskulegt. Mín skoðun er sú, að allir er stunda þjónustustörf, ættu að taka sér til fyrirmyndar starfslið Rauðakrossins á hóteli þeirra. Þeim öllum færi ég mínar beztu kveðjur og þakkir. Og að endingu: Skylt er í þessu sem öðru að hafa ætíð það sem sannara reyn- ist. Því hefur undirritaður vanist og sendir því pistil þennan. Jóhann Þórólfsson." Ofanritað bréf er svona svolítið úr annarri átt en verið hefur eins og lesendur hafa eflaust tekið eft- ir, þess er sjaldnar getið sem vel er gert, það heyrist frekar um hitt sem miður fer. En hvað um það — flest bréfin sem berast um þessar mundir fjalla um bjórinn á einn eða annan hátt og það gerir næsta bréf einnig, ritað af fjórum heiðurskonum og er svohljóð- andi: % Dauð borg? „Háttvirti Velvakandi. Við lestur greinar Hrafns Gunnlaugssonar um bjórfrum- varpið sem birtist í Mbl. þann 25. febr., urðum við okkur þess með- vitandi að fleirum en okkur finnst Reykjavík dauð borg. En hvers vegna? Hvað vantar? Það vantar staði þar sem fólk getur hitzt og talað saman í ró og næði. Að vísu er hér einn staður, Mokka, sem virðist gegna slíku hlutverki, en er það nóg? Það vantar litla staði með nýrri menn- ingu í stað þeirra steingeyma sem kallaðir eru skemmtistaðir Reyk- víkinga. Því ekki að nýta Grjótaþorpið í hjarta Reykjavíkur og skapa þar svipaða kvöldstemmningu og tiðk- ast í borgum erlendis? Gerum Reykjavík að skemmti- legri borg. Opnum litlar bjórkrár með léttri tónlist, þar sem fólk getur hitzt alla daga vikunnar. Við erum sammála Hrafni um sölu og dreifingu bjórssins, þ.e. að selja hann aðeins í Á.T.V.R. og bjórkrám þar sem ströngustu reglum og aldurstakmörkunum er fylgt. Er ekki fáránlegt að banna sölu bjórs, en leyfa hina áfeng- ustu drykki? Við biðjum fleiri um að láta álit sitt í ljós. Rósa Gísladóttir, Anna Þórisdóttir, Þóra Andrésdóttir og Dís Kolbeinsdóttir. Þessir hringdu 0 Mun varla batna Hjalti Björnsson: — „Hafni Gunnlaugssyni finnst eitthvað vanta i bæjarlífið en ég er ekki sáttur við það hvað hann kallar Reykjavik, né heldur SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á heimsmeistaramóti unglinga 1976, sem haldið var í Groningen I Hollandi um áramótin, kom þessi staða upp í skák Schússlers, Sví- þjóð, sem hafði hvitt og átti leik, og Kristensens, Danmörku. Hinn f 19 ára gamli Schússler er núver- andi skákmeistari Svíþjóðar og olli þvi frammistaða hans á heimsmeistaramótinu löndum hans nokkrum vonbrigðum. Hér er hann þó I banastuði og fléttar skemmtilega. að hann ætli að hressa upp á borgina með bjórnum sbr. grein hans í Mbl. nýlega. Hann vill fá eitthvert líf í tuskurnar með því að leyfa bjórinn, en ég held að það vanti eitthvað annað, þetta er ekki meinið sem herjar á Reykja- vík. Ég held að ástandið muni ekkert batna þótt bjórinn verði leyfður. — Þannig geta menn haft mismun- andi skoðanir á hlutunum, menn eru bæði með og á móti bjórnum. (Að lokum er hér ein lítil spurn- ing:) % Faðir vor — hætt? Maður sem hlustar yfirleitt á morgunbænina spyr hvort prestar séu hættir að lesa faðir vor. Hann segist hafa tekið eftir því að það séu frekar yngri prestarnir sem sleppa því, og hvort það sé vegna breyttrar kennslu í guðfræði- deildinni. Hann sagðist líka hafa tekið eftir þessu sama stundum í Helgistundinni í sjónvarpinu. Þessari spurningu er hér með komið á framfæri og svari verður léð rúm, ef einhver vill veita það. HOGNI HREKKVÍSI Sigmar og Guðjón Kristjánssynir frá Eldjárnsstöðum á Langanesi í stofunni i húsi þeirra á Þórshöfn. Báðir halda þeir á fagurlega skreyttum flaggstöngum, en f baksýn má sjá, ramma skreytta með marglitum kuðungum. „Þetta er eng- in list, bara til gamansgert” hjálpleg við að safna bobbunum saman. — Við höfum nú litið gert af þvi að selja þessa gripi, sem við búum til bræðurnir, sagði Sigmar. — Þó hefur þetta farið allvíða í gegnum vini og kunningja og þá jafnt innanlands sem utan. Halldór smíðar gripina fyrir mig, en ég reyni síðan að skreyta þetta eftir beztu getu. Ég skil ekki hvað þið viljið með þetta á Morgun- blaðinu. Þetta er engin list, bara gert sér til gamans og til að hafa eitthvað fyrir stafni, sagði Sigmar. — áij BRÆÐURNIR Guðjón og Sigmar Kristjánssynir frá Eldjárnsstöðum á Langa- nesi hafa dundað sér við það undanfarin ár að smíða ramma, flaggstangir, öskjur og fleira smálegt og skreyta listilega með marg- víslegum tegundum kuðunga, smáum og stór- um. Búa þeir bræður báðir nú á Þórshöfn og fóru þeir að sinna þessari iðju eftir að Sigmar veiktist alvar- lega árið 1965 og hefur hann ekki síðan getað stundað almenna vinnu. Sagði Sigmar í spjalli við Morgunblaðið á dögunum að það væri mikið verk að safna kuðungunum saman og hreinsa þá síðan. Hann hefði þó fengið góða aðstoð frá góðu fólki og hefðu krakkarn- ir á Þórshöfn verið sérlega Viðgerð á Múlafossi boðin út MÚLAFOSS, sem lenti í árekstri við norska skipið Lys Point í fyrri viku, er nú kominn til Kaup- mannahafnar eftir bráðabirgða- viðgerð i Halmstad i Svíþjóð. í gær var þeim varningi, sem var i SIG6A V/öGA £ 1/iVtK4U skipinu, skipað upp úr þvi. Var það mest saltfiskur og hefur allur varningurinn meir eða minna skemmzt vegna sjávarins, sem komst i lestirnar. Sjópróf fara fram i Kaupmannahöfn. Samkvæmt upplýsingum Óttars Möller, forstjóra Eimskipafélags íslands h.f., er álitið að ekki taki mjög marga daga að gera við skip- ið. Viðgerðin verður nú boðin út i Kaupmannahöfn og mun liklegast á morgun koma í ljós, hvar við- gerð fer fram og hvað hún muní þá taka langan tíma.. 31. Be7!! — Re3 (Siðasta hálm- stráið hjá svörtum. Ef nú 32. Bxf6?? þá Hdl mát. 31... Dxe7, 32. Dxg7+ og 31. . . Kxe7,32. Hxe7+ var vitaskuld gjörsamlega vonlaust fyrir svart) 32. Bxd8 og svartur gafst upp. WKí WÆtö VI/ÁM AoRA? ,Wnn mr/sr viann a s?4nvrí?i I^áKILLU 06 MEQOR tíTfv(ÖSlNA M<IL Ml'N 06 LÆJOR Vttá <AKA Af YÍBK WE60Z < A? YtBVsm^JtfTn N6 ANA 06 W)ÁL?AV m ylE? ÚR VUVh- [UMYlo&W- 0«? Y1BK " ;a wm >06 o o

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.