Morgunblaðið - 02.03.1977, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977
31
Axel Axelsson átti mjög góðan leik með íslenzka landsliðinu i gærkvöldi. Hann skoraði sjö mörk sjálfur og átti
gullfallegar línusendingar sem gáfu mörk. Hefur Axel ekki verið betri i annan tíma.
I stuttu máli
B-heimsmeistarakeppnin í handknattleik
Linz. Austurríki 1. marz
tlRSIJT: tsland — Spánn 21—17 (11—9)
GANGUR LEIKSINS:
Mín. tsland
1. Geir
2. J6n (v)
3. Geir
6. Axel
8.
9. Axel
10.
11. Axel
12.
14.
14. ÓlafurE.
16.
18.
22. Viðar (v)
23. ólafurJ.
24.
25. 9:8 Alpzu
27.
27. ÓlafurJ.
29. ÓlafurJ.
Hálfleikur
32.
34. Axel
36. ÓlafurJ.
37.
39. Geir
40. Viðar (v)
40.
44. Axel
47. Axel
51.
51. Azel
52.
53. ólafurJ.
55.
57. ÓlafurJ.
58.
58. Björgvin
59.
Spánn
1:0 2:0 3:0 4:0
4:1 5:1 Rochel (v)
5:2 6:2 Alpzu
6:3 G. Lopez
6:4 7:4 Novoa
7:5 Novoa
7:6 8:6 9:6 Taure
9:7 Uria
9:9 10:9 11:9 Uria
11:10 Rochel
12:10
13:10
13:11 G. Lopez
14:11
15:11
15:12 G. Lopez
16:12
17:12
17:13 Rochel (v)
18:13
18:14 Taure
19:14
19:15 Novoa
20:15
20:16 Alpzu
21:16
21:17 Hernandez
IVIÖRK ISLANDS: Axel Axelsson 7. Ólafur H.
Jónsson 6, Geir Hallsteinsson 3, Viðar
Sfmonarson 2, ólafur Einarsson 1, Björgvin
Björgvinsson 1, Jón H. Karlsson 1.
MÖRK SPANAR: Rochel 3. Alpzu 3. G. Lopez
3, Novoa 3. Taure 2, Uria 2. Hernandez 1.
BROTTVtSANIR AF VELLI: Ólafur H. Jóns-
son, Axel Axelsson og Þórarinn Ragnarsson f
2 mín. hver, Jose Novoa og De Andres f 2
mfn.
MISHEPPNUÐ VÍTAKÖST: Rochel og Alpzu
áttu vftaköst f stöng og út f fyrri hálfleikn-
um.
DÓMARAR: Rodil og Ohlsson frá Danmörku
og dæmdu mjög vel.
AHORFENDUR: 500—60«.
ERFIÐUR HJALLIVAR YFIRSTIGINN í GÆR
- möguleikar íslands aukast verulega eftir sigur yfir Spánverjum
Frá Sigtryggi Sigtryggssyni, fréttamanni Mbl. í Linz.
ÍSLENZKA handknattleikslandsliðið náði einum af sín-
um beztu leikjum í gærkvöldi er það bar sigurorð af
Spánverjum í B-heimsmeistarakeppninni í handknatt-
leik í Linz-Sporthalle í Austurríki, 21—17. Þessi sigur
var okkur afskaplega mikilvægur, og eykur vonir um að
íslendingum auðnist að ná því takmarki sínu að komast í
A-heimsmeistarakeppnina í Danmörku að ári. Reyndar
er enn ein hindrun á leiðinni þangað — Hollendingar —
en við þá verður leikið á fimmtudaginn. Miðað við það
sem við höfum séð til Hollendinga má ætla að íslenzka
liðið sé til muna sterkara, en víst er þó að enginn leikur
er unninn fyrr en hann er búinn. Hollendingarnir komu
á óvart í leik sfnum við Norðmenn og unnu þá, og þeir
töpuðu fyrir Austur-Þjóðverjum með aðeins einu marki
meira en íslendingar topuðu fyrir þeim.
Það var mikil gleði ríkjandi
meðal íslenzku leikmannanna
eftir leikinn í gærkvöldi. Þeir
féllust í faðma og hylltu þjálfara
sinn, Janusz Cerwinski, óspart.
Þvi var ekki að neita að leikmenn-
irnir höfðu verið dálítið kvíðafull-
ir áður en gengið var til leiksins
við Spánverjana, þar sem miklar
sögur hafa gengið að undanförnu
um hversu sterkir þeir væru. Og
vist er að Spánverjar eiga góðu
liði á að skipa. Þeir töpuðu ekki
leiknum í gærkvöldi vegna þess
að þeir væru með slakt lið, heldur
eingöngu vegna þess að íslending-
ar náðu sínu bezta fram og sýndu
afbragðsleik, yfirvegaðan og vel
Utfærðan.
Þótt það væri fyrst og fremst
góð samvinna í íslenzka liðinu,
sérstaklega í varnarleiknum, sem
skóp sigurinn, er því ekki að neita
að í gærkvöldi áttu nokkrir leik-
manna íslenzka liðsins algjöran
stjörnuleik. Þar ber fýrst að
nefna Ólaf Benediktsson, mark-
vörð, sem átti þarna einn af
sínum beztu leikjum fyrr og síðar,
og segir það töluverða sögu um
frammistöðu hans, að hann varði
hvorki meira né minna en níu
skot af línunni frá Spánverj-
unum.
Axel Axelsson átti einnig í gær-
kvöldi einn bezta leik sem hann
hefur sýnt með islenzka landslið-
inu allt frá því að íslendingar
unnu sinn eftirminnilega sigur
yfir Frökkum i undankeppni
heimsmeistarakeppninnar í hand-
knattleik 1975. Var Axel bókstaf-
lega óviðráðanlegur fyrir
spænsku varnarleikmennina.
Hann skoraði sjálfur sjö mörk,
sum hver með ógurlegum þrumu-
skotum, þar sem varla var unnt að
koma auga á knöttinn fyrr en
hann lá i marki Spánverjanna, og
fjórum sinnum átti Axel linu-
sendingar inn á Ólaf Jónsson, sem
gáfu mörk. Þessar sendingar voru
lika stórkostlega fallegar, komu
óvænt og það jafnvel utan af miðj-
um velli.
Ólafur H. Jónsson var einnig í
miklum ham í þessum leik, ekki
síður í vörninni en i sókninni og
þegar Ólafur er jafn grimmur í
varnarleik sinum og hann var i
gær, má bóka að það er ekki auð-
velt að komast framhjá honum.
Óskabyrjun
tslenzka liðið fékk sannkallaða
óskabyrjun í leiknum í gær, en
þar var ekki um neina tilviljun að
ræða, heldur afleiðingu þess að
okkar menn komu mjög ákveðnir
til leiks og léku stórskemmtilega
iltfærðan handknattleik á upp-
hafsmínútunum. Staðan var orðin
4—0, þegar 6 mínútur voru liðnar
af leiknum, og þessi góða byrjun
hefði átt að gefa liðinu byr undir
báða vængi. Svo var þó ekki, þar
sem Spánverjar tóku að saxa á
forskotið og tókst að jafna leikinn
í 9—9, þegar langt var liðið á fyrri
hálfleikinn. Átti islenzka liðið
þarna sinn daufasta kafla í leikn-
um, og bar nokkuð á mistökum í
sóknarleiknum. Vörnin stóð hins
vegar jafnan fyrir sínu.
En samvinna þeirra Ólafs H.
Jónssonar og Axels Axelssonar
færði íslendingum tvö mjög svo
mikilvæg mörk á lokamínútum
fyrri hálfleiksins, þannig að
staðan að honum loknum var
11—9 fyrir ísland
Aukin forysta
Í seinni hálfleiknum tókst
Spánverjum aldrei að jafna hvað
þá meira. Minnstur var munurinn
eitt mark, er staðan var 11—10 á
upphafsminútum hálfleiksins.
Um miðjan hálfleikinn var staðan
orðin 17—12 fyrir ísland og þar
með mátti segja að sigurinn væri
íhöfn. Upp úr þessu fór lika að
gæta örvæntingar í leik Spánverj-
anna, þeir fóru að reyna skot sem
ólíklegt var að bæru árangur, og
misstu greinilega trú á að þeir
hefðu möguleika í leiknum. Und-
ir lokin slakaði íslenzka liðið
einnig örlítið á í varnarleiknum,
enda hinn mikilvægi sigur þá
kominn í höfn.
Nýtingin
Nýting íslenzka liðsins í sóknar-
leiknum verður að teljast allgóð í
þessum leik. Ef litið er á frammi-
stöðu einstakra leikmanna, þá átti
Axel flest skot, 13 talsins, og hann
skoraði 7 mörk. Auk þess átti Ax-
el 5 línusendingar sem gáfu mörk.
Tvisvar tapaði Axel knettinum til
Spánverja.
Ólafur H. Jónsson átti 9 skot og
6 mörk.
Geir Hallsteinsson átti 5 skot og
3 mörk. Hann fiskaði eitt vítakast.
Viðar Símonarson átti 3 skot, 2
mörk, 2 línusendingar, sem gáfu
mörk, fiskaði 1 vítakast og tapaði
knettinum einu sinni.
Björgvin Björgvinsson átti 2
skot og 1 mark. Hann fiskaði 1
vítakast.
Jón H. Karlsson átti 2 skot og 1
mark. Hann tapaði knettinum
einu sinni.
Þorbjörn Guðmundsson átti 2
skot og ekkert mark.
Ólafur Einarsson átti 2 skot og 1
mark.
Þórarinn Ragnarsson átti ekk-
ert skot í leiknum, en hann tapaði
knettinum þrívegis.
„Gömlu jaxl-
arnir“ mest inná
Liðið sem lék í gærkvöldi var að
mestu hið sama allan leikinn.
Voru það „gömlu jaxlarnir", Geir,
Viðar, Ólafur Benediktsson, Ólaf-
ur H. Jónsson, Axel Axelsson,
Björgvin og Þórarinn, sem reynd-
ar skipti nokkuð oft við Jón H.
Karlsson. Sem fyrr greinir áttu
Ólafarnir og Axel stjörnuleik að
þessu sinni, en Viðar Símonarson
gaf þeim reyndar lítið eftir.
öryggi hans og rósemi virkaði
mjög vel á liðið, og það var varla
hægt að sjá hann gera mistök
leikinn út. Geir stjórnaði spilinu
eins og oftast áður, en i vörninni
var Geir hins vegar óákveðnari en
oftast áður, sérstaklega i fyrri
hálfleik, er hann missti Spánverj-
ana nokkrum sinnum framhjá
sér.
Allt gekk skemmtilega upp
— ÞETTA gekk allt skemmtilega upp hjá okkur, og þetta var stórffnn
leikur að mínu mati, sagði Ólafur H. Jónsson eftir leikinn I gærkvöldi.
— Þarna náðum við góðri vörn og markvarzlan fylgdi á eftir. Við
höfðum heyrt margar sögur um styrkleika Spánverja og vorum því
ákveðnir að berjast allt frá byrjun og gera hvað við gátum.
Samvinna okkar Axels tókst vel í þessum leik, og ég er sérstaklega
ánægður með hvað Axel stóð sig vel. Nú er takmarkið að vinna
Holland á fimmtudaginn, þá getum við Axel farið ánægðir til Þýzka
lands á föstudaginn, en við eigum leik í deildinni á laugardaginn og
spilum því ekki með íslenzka liðinu, ef það kemst í úrslitakeppnina í
Vín.