Morgunblaðið - 05.03.1977, Side 1

Morgunblaðið - 05.03.1977, Side 1
44 SÍÐUR OG LESBÖK 51. tbl. 64. árg. LAUGARDAGUR 5. ÍVIARZ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Stórtjón í Rúmeníu BrlRrad. 4. man. Reuler. KRÖFTUGUR jarðskjálfti varð f Rúmenfu í kvöld og olli miklu eignatjóni og manntjóni aðsögn Kúkarest-útvarpsins. Grátandi símastúlka, sem samband náðist við í Búkarest, sagði: „Það hefur orðið mikið tjón hérna" og endurtók orðin aftur og aftur. I Vfn sagði talsmaður veðurstofunnar þar að mikill jarðskjálfti hefði orðið norður af Búkarest, að hann virtist hafa valdið mestu tjóni f Transylvanfu og mælzt 7.2 stig á Richters-kvarða. Búkarest-útvarpið sagði að vatnslaust væri og rafmagnslaust vegna jarðskjálftans og truflanir hefðu orðið á fjarskiptum. Tals- maður rúmenska sendiráðsins í Vín sagði að allar síma- og telex- línur milli Búkarest og Vestur- Evrópu hefðu slitnað. Jarðskjálftinn fannst um alla Júgóslavíu og sums staðar í Ung- verjalandi, Ítalíu, Grikklandi, Austurríki og Sovétríkjunum. Búkarest-útvarpið kvaðst ætla að halda áfram útsendingum i alla nótt og sagði að stjórn lands- ins skoraði á alla þjóðina að „sýna stillingu" og „aðstoða björgunar- sveitir eftir mætti.“ • • Osku Tony Croslands dreift í á Grimsby, 4. marz. Reuter. ÖSKU Anthony Croslands heitins utanrfkisráðherra, þingmanns Grimsbys f 18 ár, var f dag dreift úr dráttarbát f ósa Humber-fljóts. Ekkja Croslands, Susan, tvær dætur hennar og nokkrir nánir vinir voru um borð f dráttarbátnum Brend Fisher sem öskunni var dreift úr. „Ráðstafanir verður að gera til að skrúfa fyrir gas í öllum bygg- ingum,“ sagði útvarpið. „Leggið ekki bílum og bíðið ekki nærri alvarlega skemmdum húsum og byggingum," sagði útvarpið enn fremur. Útvarpið skoraði á þjóðina að hjálpa við að hreinsa burtu rústir eftir jarðskjálftann. Það sagði að „allir vinnandi menn yrðu að mæta á vinnustöðum" og aðstoða svo að „efnahagslífið stöðvaðist ekki“ og „tryggja að allir fengju nóg af vatni og mat.“ Rúmenska sendiráðið í Belgrad sagði að Búkarest virtist hafa orðið hart úti. Símastúlka í Bel- grad fékk þær fréttir að mikið eignatjón hefði orðið í miðborg- Framhald á bls. 24. Amin þakkar Kúbumönnum Nairobi, 4. marz. Reuter. IDI AIVIIN forseti ræddi f dag við fulltrúa Sovétrfkjanna og Kúbu og þakkaði þeim fyrir stuðning við Uganda að sögn útvarpsins f Kampala. Forsetinn sagði jafnframt yfir- manni heraflans, Isaac Lumago hershöfðingja, að menn hans yrðu að vera við þvf búnir að hrinda hvers konar árás. Amin hefur sagt að hann hafi fengið þær upplýsingar f bréfi að 2.600 bandarfskir, brezkir og fsraelskir málaliðar sæki fram í Kenya til árásar á Uganda. Hann segir Ifka að fallhlffaárás sé fyrirhuguð og innrásarlið hafi tekið sér stöðu á landamærum Tanzaníu. Háttsettir embættismenn í Kampala hafa sagt flóttamönnum sem komu í dag frá Uganda til Nairobi í Kenya að öryggissveitir Framhald á bls. 32 David Owen, hinn nýi utanrfkisráðherra Breta, ræðir við Khaled, Konung Saudi-Arabíu, sem hefur legið f sjúkrahúsi f London f þrjár vikur. Ian Smith sigraði - með naumindum Salisbury, 4. marz. Reuter. IAN SMITH forsætisjáðherra sigraði með naumindum upp- reisnarmenn f flokki sfnum f dag og tryggði sér stuðning þingsins við fyrirætlanir sfnar um aukið Ian Smith. jarðnæði handa blökkumönnum. Smith fékk nákvæmlega þau 44 atkvæði sem hann þurfti til i ) fá samþvkkta nauðsvnlega laga- breytingu, en stjórnmálasérfræð- ingar segja að hann hefi stórbætt stöðu sfna sem leiðtogi Rhódesfu. Sex blökkumenn björguðu stjórninni með þvf að greiða henni atkvæði. Aðrir 10 blökku- menn sem sitja á þingi tóku ekki þátt f atkvæðagreiðslunni. Tólf þingmenn Rhódesfufylkingar- innar greiddu atkvæði gegn til- lögunni sem þeir sögðu stofna öryggi hvftra manna í hættu. Þar með verður sú breyting á jarðnæðislögum að innan við 0.5% 39 milljóna hektari lands í Rhódesíu verður eingöngu f eign hvitra manna. Áður var kveðið á um að jarðnæði skiptist jafnt milli hvítra manna og svartra. Uppreisnarmennirnir undir forystu Ted Sutton-Pryce að- stoðarráðherra segja að breytíng- in verði til þess eins að blökku- menn krefjist fleiri tilslakana. Smith telur hana hins vegar nauð- synlega til að fá blökkumanna- leiðtoga innanlands til viðræðna um framtið Rhódesíu þannig að finna megi lausn sem hljóti viður- kenningu erlendis. Izvestia rædst á sendifulltrúa Listahátíð breytt að kröfu Rússa í Ítalíu R6m, 4. marz. Reuter. RtJSSAR hafa beitt opinberum þrýstingi til að koma f veg fyrir að listahátfðin í Feneyjum (Biennale) f sumar verði helguð andófsmönn- um f Austur-Evrópu, og forstöðumaður hátfðar- innar, Carlo Ripa di Meana. hefur sagt af sér f mótmælaskyni. Sovézki sendiherrann, Nikita Ryjov, sagði að Rússar og aðrar Austur-Evrópuþjóðir mundu hætta við þátttöku sfna f hátfðinni ef hún yrði helguð andófsmönnum. ftalski kommúnistaflokkurinn sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins og sagði að forstöðu- menn hátfðarinnar ættu að geta starfað sjálf- stætt og án erlendra afskipta. Ripa de Meana sagði að hann hefði verið kallaður f utanrfkisráðuneytið þar sem honum hefði verið sagt að finna „diplómatfska lausn“ á málinu og kvaðst telja að slfk lausn jafngilti þvf að þegja. „Getur Feneyja-hátfðin starfað frjáls á ftalíu eða verður hún að beygja sig fyrir nauðungartil- skipunum frá Sovétrfkjunum?" spurði Ripa de Meana f afsagnarbréfi. „Feneyja-hátfðin ætti, eins og allir viðburðir af þessu tagi, að stuðla að eflingu vinsamlegra samskipta þjóða f stað þess að valda erfiðleikum eða óánægju með samskipti rfkja,“ sagði Ryjov f yfirlýsingu. ftalska stjórnin stendur að mestu ein undir kostnaði við listahátfðina. Washington, 4. marz. Reuter. CYRUS Vance.utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi í Washington í dag að hann teldi ekki að stuðningur Carters forseta við sovézka andófsmenn mundi spilla fyrir bættri sambúð Bandarfkjamanna og Rússa. í Moskvu sakaði stjórnarmál- gagnið Izvestia nokkra banda- ríska sendifulltrúa i dag um að vera útsendarar leyniþjónustunn- ar CIA. Blaðið segir að þeir hafi fengið til liðs við sig Gyðinga sem berjist gegn stjórninni. Árás Iz- vestia er taiin alvarlegasti mót- leikur Rússa gegn gagnrýni Cart- ers forseta. Á blaðamannafundi sinum sagði Vance að hann færi í opin- bera heimsókn til Kína siðar á árinu. Hann og samstarfsmenn hans hafa að und:nförnu rann- sakað skjöl frá stjórnartið Nixons forseta til að kanna hvort nokkuð er hæft í því að á þeim árum hafi verið gerður leynisamningur við Kínverja. Aðspurður sagði Vance á blaða- Framhald á bls. 24 Ishkov til nýs fundar í Brussel BrUssel, 4. marz. NTB. FISKIMÁLARÁÐHERRA Sovét- rfkjanna, Alexander Ishkov, fer á mánudag til Brussel til nýrra við- ræðna við fulltrúa Efnahags- bandalagsins um gagnkvæmar fiskveiðiheimildir. Ætlunin er að reyna að ganga frá texta þar sem gerð verði grein fyrir meginreglum verndunarráð- stafana, kvótakerfis og veiðiheim- ilda. Samkomulag hefur tekizt að Framhald á bls. 32

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.