Morgunblaðið - 05.03.1977, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 05.03.1977, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MARZ 1977 VIÐSKIPTI w Umsjón: Pétur J. Eiríksson Líkur á samdrætti 1 bandarískum áliðnaði HORFUR eru á meiriháttar sam- drætti í álframleiðslu f norð- vesturríkjum Bandarfkjanna, sem eru eitt helzta álframleiðslu- svæðið, vegna þess að alvarlegur vatnsskortur hefur truflað raf- orkuframleiðslu vatnsaflsvirkj- ana. Alcoa, sem er stærsti álfram- leiðandinn f Bandarfkjunum, er nú um það bil að stöðva starfsemi f einum af fimm kerskálum Vancouver-versins f Washington- fylki, en framleiðslugeta versins er 115.000 lestir á ári. Aðrir leiðandi framleiðendur á umræddu svæði, en á því eru 30% ársframleiðslu Bandaríkjanna framleidd, ætla einnig að tak- marka framleiðsluna. Kaiser Aluminium segir, að það sé aðeins tímaspursmál hvenær dregið verði úr framleiðslunni i verk- smiðjunni í Mead í Washington, en framleiðslugeta hennar er 206.000 lestir. Áliðnaðurinn á einnig í erfið- leikum í austurríkjunum, þar sem kuldi og skortur á jarðgasi hefur haft neikvæð áhrif á framleiðslu og eftirspurn. Ástandið þar er þó hvergi eins slæmt og í vestur- ríkjunum þar sem það getur orðið mjög alvarlegt fyrir framleið- endur og heimsframboð á áli. Því er spáð að framleiðslutapið geti orðið 350.000 lestir á þessu ári I Bandarikjunum og Kanada, þar sem tæplega helmingur ál- framboðs i heiminum, sem er 11 milljónir lesta, er framleiddur. Þetta getur þýtt minnkandi fram- boð, ekki sizt ef haft er i huga að verulega er farið að ganga á birgðir bandarskra álverksmiðja, og meiri skort á áli við lok þessa áratugar en gert hafði verið ráð fyrir. Bliss b.v.: Nýtt fyrirtæki Iscargo og Bleckmann í Hollandi ISCARGO h.f. og hollenzka dreif i ngarfyrirtækið Bleckman hafa stofnað nýtt fyrirtæki í HoIIandi, Bliss b.v., sem mun starfa að alhliða vöruafgreiðslu og flutningsmiðlun. Bliss mun hefja starf- semi 1. apríl f Rotterdam Iscargo: Ný flugfragtþjón- usta við London ISCARGO hefur tekið upp nýja vöruflutningaþjónustu við Lond- on. Hefur fyrirtækið stundað reglubundið flug með vörur á milli London og Reykjavfkur með viðkomu I Rotterdam sfðan 15. október. Um er að ræða flug einu sinni 1 viku. Brezka flugfélagið British Air Ferries flýgur með vörur frá Southend-on-Sea, skammt austan við London til Rotterdam á fimmtudögum. Sfð- an tekur Iscargo við þeim 1 Rotterdam og flýgur með þær heim á föstudögum. Þessir flutn- ingar hafa farið ört vaxandi að sögn Ilallgrfms Jónssonar, fram- kvæmdastjóra Iscargo, og mun fyrirtækið flytja á þennan hátt tvö til fjögur tonn vikulega. vegna flutninga til og frá fslandi og afgreiða og miðla vörum og flutn- ingum fyrir önnur fyrir- tæki. Mun það m.a. annast útvegun leiguflugs fyrir Iscargo og önnur flugfélög. Viðræður hafa staðið yfir um samstarf á milli Iscargo og Bleckmann, en það fyrirtæki er stórt flutn- inga- og dreifingafyrir- tæki. Bleckmann hefur einnig náð samböndum við nokkur íslenzk útflutnings- og innflutningsfyrirtæki og tekið að sér flutninga og dreifingu fyrir þau. Bliss b.v. er að 50% eign Iscargo og 50% eign Bleckmann. Hallgrímur Jónsson, framkvæmdastjóri Iscargo, sagði Morgunblað- inu að stofnun fyrirtækis- ins hefði í för með sér verulega hagkvæmni fyrir Iscargo og viðskiptavini fyrirtækisins, hvað snerti afgreiðslu og flutning á vörum til og frá Rotter- damflugvelli. Þá kæmist Iscargo betur inn á fragt- flugsmarkaðinn í Evrópu sem hefði í för með sér meiri flutninga. Hallgrím- ur sagði að samstarfið við Bleckmann væri þegar farið að bera góðan árangur fyrir Iscargo í auknum flutningum. 6,9% farþegaaukning Flugleiða í fyrra TÖLUVERÐ aukning varö á flutningum flugvéla FlugleiSa f áætlunar- og leiguflugi á árinu 1976. Alls fluttu flugvélar Flugfélags íslands, Loftleiða og International Air Bahama 714.394 farþega en 1975 nam þessi tala 668.462 og aukningin er þvi 6.9%. i Aðalfundur Kaupmannasamtakanna: Aukning varð í öllum greinum farþegaflutninga á áætlunarleiðum og somuleiðis í leiguflugi. Þar bættist við pílagrímaflug Loftleiða I Afríku og leiguflug Flugfélags íslands til Spánar jókst. Þá varð veruleg aukning á Sama skattlagning á öll rekstr arform vöruflutningum. Rétt er að hafa í huga að flugrekstur stóvaðist algjörlega I tvær vikur á áianu vegna verkfalla. Aætlunarflug milli landa Nokkur aukning varð á áætlunarflugi á millilandaleiðum, bæði yfir Norður Atlantshaf og á milli íslands og Evrópu. Yfir Norður Atlantshafið voru fluttir 254.199 farþegar en 243.982 árið áður. Aukningin er þvi 4.2%. Meiri aukning varð á farþegaflutningum á Evrópuleiðum, eða 11.0%. Fluttir voru 127.794 farþegar en voru 115.153 árið áður. Samanlagt jukust þvl farþegaflutningar Flugfélags íslands og Loftleiða á þessum leiðum um 6.4%, GUNNAR Snorrason var endur- kjörinn formaður Kaupmanna- samtaka Islands á aðalfundi sam- takanna, sem haldinn var á fimmtudag. Þorvaldur Guó- mundsson var kosinn varaformað- ur Fulltrúaráðsfundur kýs sfðan aðra stjornarmenn. Nokkrar ályktanir voru sam- þykktar á fundinum. Meðal ann- ars er hvatt til þess að verzluninni verði ekki íþyngt frekar en orðið er með nýjum skattaálögum, og að öll verzlunarform verði sett við sama þorð i skattlagningu, hvort sem um er að ræða einkafyrir- tæki, hlutafélög, sameignarfélög eða samvinnufélög. í ályktun um lánamái er sett fram sú ósk að löggjöf verði sett um lánasjóð verzlunarinnar, sem tryggi framgang hugmynda og til- lagna félagssamtaka verzlunar- Gunnar Snorrason innar um lánamál Segir sfðan að verzlunin eigi að sitja við sama borð í lánamálum og aðrar at- vinnugreinar. Minnt á skyldur innflyt jenda í ályktun um tolla- og aðflutn- ingsgjöld er fagnað lækkun slíkra gjalda, sem stuðla að lækkun vöruverðs í landinu. Bent er á að þrátt fyrir lækkanir á tollum og aðflutningsgjöldum, séu margs konar vörur enn of hátt skattlagð- ar af ríkinu. Er látið i ljós það álit að stefna beri að þvl að vöruverð hérlendis sé ekki hærra en f ná- lægum löndum. í því sambandi minnir fundurinn á skyldur inn- flytjenda að tryggja hagstætt inn- kaupsverð á aðfluttum vörum. Þá er hvatt til þess að Verzlun- arbankinn fái rétt til sölu erlends gjaldeyris til jafns við ríkisbank- ana og ríkisstjórnin er minnt á loforð sitt um nýja verðlagslög- gjöf. úr 359.135 farþegum I 381.993. j áætlunarflugi International Air Bahama á milli Nassau og Lúxemborgar voru fluttir 73.064 farþegar. Vöruflutningar I áætlunarflugi milli landa jukust verulega. Yfir Norður- Atlantshaf voru fluttar 3.838 lestir en á Evrópuleiðum 1.344 lestir. Aukning- in miðað við árið á undan varð því 20.8%. Minni aukning innanlands Aukning farþegaflutninga innanlands varð aðeins 0.3% og voru fluttir 205.756 farþegar á slðasta ári miðað við 205.176 farþega 1975. Fjölförn- ustu leiðir innanlands voru á milli Reykjavíkur og Akureyrar, Vestmannaeyja, ísafjarðar og Egilsstaða. Vöruflutningar i innanlandsflugi námu 4.387 lestum sfðasta ár en 4.960 lestum árið áður. Mikil aukning leiguflugs Á sfðastliðnu ári flugu flugvélar Flugleiða mörg leiguflug til meginlands Spénar og til spænsku eyjanna Kanarfeyja og Mallorka. Samtals voru fluttir 22.392 farþegar í þessum ferðum en voru 13.426 1975 og er þvf um 66.8% aukningu að ræða. Pflagrfmaflug á milli Kanó I Nfgeríu og Jeddah f Saudi-Arabfu voru nú flogin f fyrsta sinn og voru fluttir f þeim 15.330 farþegar. Farþegar f öðrum leiguflugferðum voru 15.859. Samtals urðu farþegar i leiguflugi með flugvélum Loftleiða. Flugfélags íslands og International Air Bahama 53.581 en voru 32.21 5 árið áður og því er um 66.3% aukningu að ræða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.