Morgunblaðið - 05.03.1977, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.03.1977, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MARZ 1977 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA I0100KL. 10—11 , FRÁ MÁNUDEGI chMt/jjaní*''aa'u\i Steyptar eða malbikaðar gang- stéttir eru miklu hættuminni gangandi fólki en hellulagðar. E.t.v. eru þær ekki eins fagrar útlits, en mikið er til vinnandi að gera gangstéttir svo úr garði að ekki valdi slysum. Allar ráðstaf- anir sem geta komið f veg fyrir slys eru mikilvægar. I.A.“ Frá Keflavfkurflugvelli barst eftirfarandi bréf fyrir nokkru: % Þakklæti fyrir veitta aðstoð „Ég vil biðja yður um aöstoð til að koma á framfæri innilegu þakklæti mfnu til óþekktrar konu, sem var sérstaklega góð við son minn er hann heimsótti Reykjavfk 21. febrúar. Þar sem þetta var bandarfskur frídagur, átti hann og Önnur bandarísk börn frí í skólanum og notuðu daginn til að heimsækja Reykjavfk. Þegar hann sá mörg börn að leik á fsnum á tjörninni, fór hann þangað að leika sér. Þar sem hann þekkti ekki hve hættu- legur fs getur verið, vegna þess að hann hefur alið aldur í heitari hlutum Bandarfkjanna mestan hluta ævi sinnar, varð honum á að renna sér yfir þunnan blett f ísn- um og féll niður um ísinn. Hann klifraði hjálparlaust uppúr, en var gegnblautur frá mitti og niðurúr. Vagninn, sem átti að flytja börnin til NATO-stöðvarinnar, átti ekki að koma fyrr en eftir þrjá tíma og vegna þessa var drengurinn f hættu, bæði gat hann orðið ilia innkulsa og það, sem var honum meira virði, þetta gat eyðilagt heimsóknina til Reykjavíkur. Hann var því f mikl- um vanda. Þá kemur til hans góð kona, sér hann rennblautan og bað hann koma með sér. Hún tók hann með sér f leikhúsið við tjörnina og klæddi hann f þurr föt og skó — lfklega fatnað, sem er eign leik- félagsins — og bað hann koma eftir tvo tfma. Hann fór sína leið, mjög hamingjusamur, og er hann kom til baka biðu hans föt hans, nú þurr og hlý. Eins og vænta má af dreng á hans aldri, þá gleymdi hann að fá nafn þessarar góðu konu. Ég er innilega hreykinn að þjóna f varnarliði Islands og vita, hve gott og hjálpsamt fólk er hér. Mfnar innilegustu þakkir til þessarar óþekktu konu, frá þakk- látum föður f varnarliði Islands. P.J. Thorpe, CDR. U.S.N." Þessir hringdu . . . O Bjórinn er óhollur Þ.M.: — Aðeins smá-innlegg frá mér um bjórmálið. Ég var að lesa f Pósti Þjóðviljans að bjórinn væri mjög hollur og það hef ég reyndar séð áður að menn telja hann eitthvað mjög hollan. En ég Segi hann er óhollur. Ég átti frænda í Kanada, sem drakk mikinn bjór og hann fitnaði af honum, eins og tftt er með þá sem drekka bjórinn. Á miðjum aldri fékk hann slag og var veikur í mörg ár, fékk oft slag eftir það, og náði sér eiginlega aldrei upp. Einnig veit ég um fleiri dæmi slíkra veikinda — hef heyrt um það í Bretlandi, Þýzkalandi og Danmörku — menn fitna og fá bjórvömb. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursscn A SKÁKÞINGI Leningrad 1976 kom þessi staða upp í skák Rut- mans, sem hafði hvítt og átti leik, og Bikovs: 25. Rxh5! — Bd7 (Eftir 25. .. gxh5, 26. Dx5 á svartur enga vörn vi 27. Hh3) 26. Rg3 — Re6, 27. Hed3 — Dc8, 28. Rf5! — Rf4, (Eða — 28... gxf5, 29. Hh3 og mátar) 29. Bxf4 og svartur gafst upp. Röð efstu manna á mótinu varð þessi: Zeitlin 11 vinninga af 15 mögulegum. 2.—4. Bukhman, Karasev og Faibisovich 9!4 v. % Hvar fást umferðarlögin? Ásgeir Árnason: — Hún er að mörgu leyti góð þessi keppni Samvinnutrygginga um umferðina og ýmislegt í sam- bandi við hana og það er mikill spenningur fyrir henni hér á heimilinu. En þegar kemur að þvi að svara si ðustu spurningunni verður að hafa umferðarlögin við höndina, því þar er talað um hvort eigi betur við þessi eða hin greinin f umferðarlögunum. í framhaldi af þvf mætti spyrja hvar sé þau að fá og hvort fólk ætti ekki að eiga greiðan aðgang að þeim — það bætti án efa úr umferðarmenningunni ef fólk gæti haft þau við höndina. — Velvakandi fékk þær upp- lýsingar á skrifstofu lögreglu- stjórans f Reykjavík, að þar lægju umferðarlögin alltaf frammi og gæti hver sem er farið þangað og orðið sér úti um eintak ókeypis, en þau eru undantekningalaust alltaf til þar. KVENNADEILD m Reykjavíkurd. R.K.I. Fræðsla um sjúkravinastarf kvennadeildarinnar hefst miðvikudaginn 9. mars kl. 20.30 í kennslusal Rauða kross íslands, Nóatúni 21. Flutt verða erindi um eftirfarandi efni: 1. Rauði krossinn og starfsemi kvennadeildar. 2. Störf í sölubúðum sjúkrahúsa. 3. Störf í sjúklingabókasöfnum. Væntanlegum sjúkravinum er næstu daga gefið tækifæri til þess að kynnast starfsemi sjálfboðaliða í sjúklingabókasöfnum, sölu- búðum og öðrum starfsgreinum deildarinnar, en fræðslunni lýkur miðvikudaginn 23. mars með erindum um: 1. Velferðarmál aldraðra. 2. Framkomu í starfi. Þátttaka tilkynnist í sima 28222 eða 14086 i síðasta lagi 7. mars. Stjórnin. MONO- SKITT RAFKNÚNAR JÁRNKLIPPUR Við höfum hafið innflutning á vönduðum léttbyggðum rafknúnum járnakljppum frá V-Þýzkalandi. Hér er um að ræða tvær gerðir og klippir sú stærri allt að 20 mm kambstál. ger#1/12 gerð1/20 Klippigeta: alltað12mm alltað20mm stál eða tvö stál eða tvö 8.5 mm samtimis 12mmsamtímis Togþol stáls: Aflþörf. Hámarks afköst Lengd: Þyngd: 55 kp/fmm 600 W 35 skurðir/min. 470 mm 6,2 kg 55 kp/fmm 1500W 30 skurðir/min. 550 mm 1 1.4 kg Við leigjum einnig út Mono-skitt járnaklippurnar ásamt ýmsum öðrum tækjum, sem notuð eru í byggingaiðnað- inum. Leitið nánari upplýsinga. (sMI&CO HF. Laugavegi 178

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.