Morgunblaðið - 05.03.1977, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.03.1977, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MARZ 1977 FH með víðavangshlaup Frjásíþróttadeild FH mun á næst- unni gangast fyrir vfðavangs- hlaupum með nýstárlegu sniði. Verður fyrsta hlaupið um helgina og er fyrirkomulag hlaupanna þannig að allir þátttakendur fá verðlaunaskjal. Þeir sem hlaupa einu sinni fá skjal með einni stjörnu, en þeir sem taka þátt f öllum hlaupunum frá skjal með fimm stjörnum, eða eina stjörnu fyrir hvert hlaup. Fyrsta hlaupið verður á laugar- dag og Jiefst við Lækjaskóla og hefst kl. 16.00, en síðar er ætlunin að hlaupið verði fimm næstu laugardaga. Laugardaginn 12. marz kl. 15.00, er hins vegar ætlunin að hafa „opið hlaup“ og standa vonir til að flestir beztu hlauparar landsins taki þátt f því. Verður hlaupið 6—7 km. Stjarnan sigraði Leikni með 1 marki í jöfnum leik STJARNAN sigraði Leikni 20—19 í afar slökum og leiðinleg- um leik í 2. deild karla í hand- knattleik á þriðjudagskvöldið eft- ir að staðan f leikhléi var 12—9 Stjörnunni f vil. I lið Sjtörnunnar vantaði 2 af fastamönnum þess, þá Eyjólf Bragason og Magnús Teitsson, auk þess sem Gunnar Björnsson kom aldrei inn á og var það greinilegt að fjarvera þeirra veikti liðið mikið. Gangur leiksins var svo þannig að Stjarnan hefði frumkvæðið mestan hluta leiks- ins, og f leikhléi var staðan orðin 12—9 henni f vil. Stjarnan hélt forystunni svo fram undir lok seinni hálfleiksins en þá komst Ásmundur Kristinsson, Leikni, yfir, 18—17, með 2 góðum mörk- um, en Stjarnan gerði svo 3 mörk í röð áður en Leikni tækist að skora og urðu úrslit þvi 20—19 Stjörnunni f vil. Mörkin fyrir Stjörnuna gerðu: Björn Bragason 7, Viðar Halldórs- son 3, Magnús Andrésson, Logi Ólafsson, Magnús Árnason og Árni Árnason 2 hver, Guðmundur Ingvason og Baldur Svavarsson 1 hvor. Mörkin fyrir Leikni skoruðu: Finnbjörn Finnbjörnsson 8, Ásmundur Kristinsson 4, Hafliði Kristinsson 3, Ásgeir Elíasson, Guðmundur Vigfússon, Guð- mundur Elíasson og Árni Einars- son 1 hver Maður leiksins: Finnbjörn Finnbjörnsson. HG Flestir beztu júdómenn landsins verða meðal keppenda á Islandsmótinu f ár. Júdómenn munu hafa æft að kostgæfni að undanförnu, þannig að óhætt er að slá þvf föstu að keppni islandsmótsins verður hin skemmtilegasta. Júdómeistaramótið á morgun Íslandsmeistaramótið f Júdó hefst nú um helgina og verður keppt f iþróttahúsi Kennara- háskóla islands. Meistaramótið verður nú með öðru sniði en oft- ast áður, þar sem keppt verður þrjár helgar 1 röð. Er slfkt talið óhjákvæmilegt, þar sem nú er 1 fyrsta sinn keppt f sjö þyngdar- flokkum — voru fimm áður og eins er keppendafjöldinn orðinn Ungu mennimir fá tækifærið í leiknum við Tékka í dag Frá Sigtryggi Sigtryggs- syni, fréttamanni Mbi. f Linz ANDRUMSLOFTIÐ í her- búðum fslenzka handknatt- leiksliðsins f Linz f gær var meira en Iftið fráhrugðið þvf sem var fyrst eftir að liðið kom til Austurrfkis. Öll spennan var horffn, og menn greinilega hin- ir ánægðustu með það að tak- markinu var náð. Leikurinn við Tékka f dag skiptir ekki miklu máli, en þó er greinilegt að jafnt leikmenn sem liðsstjórar fslenzka liðsins leggja mikið upp úr þvf að vel gangi f þeim leik. Væri það óneitanlega kór- óna á góð afrek fslenzka liðsins f þessari keppni ef þvf tækist að hreppa þriðja sætið, ekki sfzt vegna þess að það var f riðli með Austur-Þjóðverjum, sem eiga örugglega lang-bezta liðið f þessari keppni, og að flestra mati er þar um að ræða eitt af þremur beztu liðum f heimi um þessar mundir. Ólafur H. Jónsson og Axel Axelsson héldu til Þýzkalands f gær, þar sem þeir munu leika með liði sfnu, Dankersen, f þýzku 1. deildar keppninni f handknattleik f dag. Hefur Janusz Cerwinski, þjálfari fs- lenzka liðsins, ákveðið að þeir fjórir leikmenn sem Iftið sem ekkert hafa verið með f leikj- unum til þessa fái allir tæki- færi til þess að spreyta sig f leiknum við Tékka f dag. Eru þetta þeir Kristján Sigmunds- son markvörður, Bjarni Guð- mundsson, Þorbergur Aðal- steinsson og Viggó Sigurðsson. Ekki var endanlega ákveðið f gær, hvernig fslenzka liðið verður skipað f leiknum f dag. Þó gefur auga leið að annað hvort Gunnar Efnarsson eða Ól- afur Benediktsson leika ekki með f dag, og myndi það ekki koma á óvart þótt Janusz gæfi Ólafi hvfld, en hann hefurstað- ið f fslenzka markinu nær allan tfmann, alla leikina, og varið það af mikilli snilld. Sem fyrr greinir leika Íslend- ingar og Tékkar um þriðja sæt- ið f keppninni og fer leikurinn fram f Linz. Þar leika einnig Hollendingar og Frakkar um sjöunda sætið. t Vfn leikahins vegar Austur-Þjóðverjar og Svf- ar um fyrsta sætið og Spánverj- ar og Búlgarar um fimmta sæt- ið. A-löndin Dregið verður um riðlaskipan f A-heimsmeistarakeppninni í Danmörku 17. marz n.k. og er ekki ólíklegt að-fulltrúi frá HSÍ verði þar viðstaddur. Rétt er að rifja hér upp hvaða lönd hafa unnið sér rétt til þess að taka þátt f A-keppninni og barátt- unni um heimsmeistaratitilinn. Þau eru eftirtalin: 1. Þau sex lönd er urðu efst á Ólympiuleikunum í Montreal: Sovétríkin, Rúmenía, Pólland, V-Þýzkaland, Júgóslavfa og Ungverjaland. 2. Danmörk, sem gestgjafi í keppninni. 3. Þau sex lönd sem efst urðu f B-keppninni f Austurríki: A- Þýzkaland, Sviþjóð, ísland, Tékkóslóvakía, Spánn og Búlg- aría. 4. Eitt lið frá Asíu, eitt lið frá Ameríku og eitt lið frá Afríku. Þegar dregið verður um riðla- skipan verður þátttökulöndun- um skipt eftir styrkleika, en leikið verður í fjórum fjögurra liða riðlum. Vegna frammi- stöðu Islendinga f keppninni í Austurrfki, standa vonir til þess að íslendingar fái ekki nema tvö sterk lið f sinum riðli. Vilja semja við Agúst ÞJÁLFARI liðs þess f Kremz í Austurrfki, er íslendingar léku æfingaleik við fyrir heims- meistarakeppnina, hefur kom- ið að máli við Ágúst Svavarsson og spurzt fyrir um það hvort Ágúst hefði áhuga á að koma utan og leika með liði sfnu. t viðtali við Morgunblaðið í gær sagðist Ágúst hafa sýnt áhuga á að ræða mál þetta frekar, og kanna hvað f boði væri. Hefði verið afráðið að þjálfarinn hefði nánara samband við sig á næstunni. Knattspyrnudómaranámskeið hefst mánudaginn 7.3 '77 kl. 20.30 í Félags- heimi Vals. K.R.R. K.D.R. slfkur, að ekki er unnt að koma mðtinu fyrir á einum degi. Segja má að aðalhluti mótsins verði nú um helgina, en þá verður keppt í karlaflokkunum. Hinn mikli keppendafjöldi i mótinu hefur orðið til þess að þátttaka er nú f fyrsta sinn háð lágmarksgráðun. Aðeins þeir sem náð hafa 4 kyu eða hærri gráðu hafa rétt til að taka þátt f 6 þyngstu flokkunum, en í þeim léttasta nægir gráðan 5 kyu. Flestir beztu júdómenn lands- ins verða meðal keppenda á mót- inu á morgun, en það hefst kl. 14.00. Má að venju búast við hörð- um átökum og skemmtilegri keppni, en sem kunnugt er hafa íslenzkir júdómenn vakið á sér athygli á undanförnum árum. Þannig varð t.d. Gísli Þorsteins- son Norðurlandameistari f sfnum þyngdarflokki á sfðasta Norður- landamóti, og fleiri íslendingar voru f fremstu röð á því móti. Annar hluti mótsins verður svo 13. marz n.k., einnig í Iþróttahúsi Kennaraháskólans. Verður þá keppt í kvennaflokkum og f þyngdarflokkum unglinga 15—17 ára og 20. marz fer svo þriðji hluti mótsins fram og verður þá keppt i opnum flokki karla og kvenna. Ekki verður keppt við Saudi-Araba í ár LJOST er nú, að ekkert verður úr landskeppni 1 frjálsfþróttum á milli tslendinga og Saudi-Arab: 1 sumar, að þvf er Örn Eiðsson, formaður Frjálsfþróttasambands- ins, tjáði Mbl. (gær. Eins og menn rekur minni til, var fulltrúi frá Saudi-Arabiu gest- ur á Evrópuþingi frjálsiþrótta- manna sem háð var í Reykjavík sl. haust. Þreifaði fulltrúinn þá fyrir sér með samskipti við íslendinga f frjálsíþróttum. Bauð FRI þá til landskeppni hér f Reykjavik í ágúst. Svarskeyti barst frá Saudi- Aarabfu í gær þar sem keppninni var hafnað á þeim forsendum, að á þeim tíma sem FRÍ byði til keppninnar hefðu S-Arabar mikið að gera heimafyrir með alls konar mót. Sæu þeir sér því ekki fært að koma til Reykjavíkur, en buðust þó til að halda opnum möguleik- um fyrir hugsanleg samskipti landanna árið 1978. Að sögn Arn- ar er keppnisskrá fslenzkra frjás- fþróttamanna svo ströng, að óhugsandi er að endurnýja boð um keppnina á öðrum tfma en upphaflega var boðið, þ.e. im 20. ágúst. Fræðsluráðstefna, tækninefndar KSÍ TÆKNINEFND K.S.I. gengst fyr- ir fræðsluráðstefnu fyrir stjórn- endur knattspyrnudeilda, sem hefst laugardaginn 12. marz n.k. kl. 10.00 f.h. stundvfslega f Álfta- mýrarskólanum, Reykjavík. Stjórnandi verður Reynir G. Karlsson, æskulýðsfulltrúi. Meðal efnis, sem tekið verður fyrir, er: 1. Skipulag knattspyrnudeilda, störf og verkaskipting. 2. Starfsáætlanir stjórnar. 3. Samstarf við þjálfara — skipulagt kennslustarf. 4. Veigamikil atriði úr lögum og reglugerðum KSl. 5. Réttindi og skyldur félaga, sem þátt taka í UEFA-keppnum. Stjórn KSI og Tækninefnd mæta á ráðstefnunni. Gert er ráð fyrir umræðum um hvern þátt. Áætlað er að ráðstefn- unni Ijúki kl. 18.00 sama dag. Þátttökutilkynningar berist skrif- stofu KSl fyrir þriðjudag 8. marz. TVEIR KVENNALEIKIR AÐEINS tveir leikir I 1. deildar keppni kvenna I handknattleik fara fram um helgina. Þór og Vlkingur leika á Akureyri kl. 16.00 I dag og kl. 15.00 á morgun leika I Hafnar- firSi FH og Fram. Enginn leikur verU- ur I 2. deild um helgina. ÞRIR LEIKIR I KORFU JUM HELGINA fara fram þrirleikir i 1. deildar keppni íslandsmótsins i körfuknattleik. I dag kl. 15.00 leika fS og KR i fþróttahúsi Kennarahá- skólans og strax a8 þeim leik loknum leika V: lur og Fram. eða kl. 16.30. Á morgun, sunnudag kl. 17.00 leika t f þróttahúsinu ÁsgarSi i GarSa- bæ Breiðablik og ÍR Ef a8 likum lætur geta leikir þessir or8i8 mjög tvisýnir og skemmtilegir, — þó er óhætt a8 slá þvi föstu a8 ÍR-ingar eru mjög sigurstranglegir, þótt ekki sé meira sagt. i leik sinum vi8 botn- Ii8i8 UBK á morgun, og KR er likleg- ur sigurvegari i leiknum vi8 stú- denta. Hins vegar má búast vi8 tvi- sýnum úrslitum i leik Vals og Fram, en þessi Ii8 komu mjög á óvart um siSustu helgi. og má þa8 segja a8 þau hafi sett keppnina í 1. deild úr þeim skordum, sem flestir áttu von á a8 hún yr8i i.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.