Morgunblaðið - 16.03.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.03.1977, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 60. tbl. 64. árg. MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 10 daga á lífi í húsarústum Búkarest \ Búkarest, 15. marz. AP. NÍTJÁN ára piltur, Sorin Crainic, fannst lifandi í dag undir rústum 10 hæða fjölbýlishúss í Búkarest, 10 dögum eftir að það hrundi í jarð- skjálftanum. Læknar urðu furðu lostnir þegar Crainic var færður til þeirra og sögðu að hann væri óslasaður og við furðugóða heilsu. Þeir sögðu að sjaldgæft væri að fólk lifði af vatnsleysi lengur en fjóra eða fimm daga. Um helgina var 58 ára gamall kennari grafinn upp úr rústum heimilis slns þar sem hann hafði hafzt við I átta daga. Rúmenska fréttastofan Agerpress sagði að Crainic hefði verið innilokaður I 265 klukkustundir. Fréttastofan sagði i dag að nú væri vitað með vissu að 1541 hefði beðið bana I jarðskjálftanum, þar af 1391 í Búkarest og 11.275 slazast, þar af 7.576 í Búkarest. Crainic (sjúkrahúsi f gær, — til hægri rústirnar þar sem hann fannst. Simamynd AP Andófsmenn í Moskvu: Shtern sleppt - Shcharanski var handtekinn Moskvu — 15. marz. Reuter. STUNDU eftir að opinber til- kynning var birt f Moskvu um að Mikhaeil Shtern hefði verið lát- Tilræðið kosninga- brella? Sjá grein á bls. 15 □-------------------------------O Nýju-Delhi — 15. marz — Reuter STÆRSTI stjórnarandstöðu- flokkurinn á Indlandi lýsti þvi yfir í dag, að tilræðið við Sanjay Gandhi, son Indiru, væri upp- spuni einn og kosningabrella. I gær birti stjórn Indiru fregn þess Framhald á bls 30 inn laus úr fangabúðum handtók lögreglan annan andófsmann af Gyðingaættum, Anatoli Shchar- anski. Hann var handtekinn við heimili sitt f Moskvu að viðstödd- um tveimur bandarfskum frétta- mönnum. Shcharanski er einn þriggja málsvara Gyðinga, sem ásakaðir voru um njósnir f þágu Bandarfkjanna f hinu opinbera málgagni Sovétstjórnarinnar, Iz- veztíu, fyrr f þessum mánuði. Undanfarnar tvær vikur hafa átta óeinkennisklæddir lögreglu- menn fylgzt náið með ferðum Shcharanskis, en hann hefur búið hjá félaga sfnum, Vladimir Slep- Framhald á bls 30 Bandaríkin hefja her- gagnaflutninga tíl Zaire Kúbumenn í forystu innrásarliðsins? Washington — 15. marz — AP—Reuter BANDARIKJASTJÖRN tilkynnti f dag, að hafnir væru her- og hjálpargagnaflutningar til Zaire, þar sem sannanir lægju nú fyrir um það, að staðhæfingar stjórnar landsins um innrás frá Angóla ættu við rök að styðjast. Sagði talsmaður stjórnarinnar, að óyggjandi sannanir um að Kúbu- Til Moskvu með 21 gísl Madrid — 15. marz — AP — Reuter FLUGRÆNINGINN,sem nú hefur 21 gfsl á valdi sfnu, skipaði f kvöld flugmanni Iberia- þotunnar að fljúga áleiðis til Moskvu. Þar gæti hann gefizt upp án þess að þurfa að óttast lögregl- Flugræninginn er ítalskur, 36 ára aö aldri, og um borð er þriggja ára dóttir hans, sem flogið var eftir til Fflabeinsstrandarinnar í morgun. Frá Fflabeinsströndinni var flogið til Alsír, þar sem eld- sneytisgeymar þotunnar voru fylltir, og þaðan var flogið til Torino á Italiu þar sem maðurinn ætlaði að fá framselda aðra dóttur sína, fimm ára að aldri, en móðir hennar neitaði að láta hana fara Framhald á bls 30 menn væru f innrásarliðinu lægju enn ekki fyrir. Hann kvaðst Kortsnoj vann Kortsnoj Petrosjan Sjánánar bls. 16 — 17. Barga, ítalfu 15. marz. VIKTOR Kortsnoj bar f dag sigurorð af fyrrverandi landa sfnum, Sovétmanninum Tigran Petrosjan, f biðskák þeirra frá í gær. Petrosjan gaf skákina eftir 70 leiki. Þegar hann hafði stöðvað skákklukk- una til merkis um uppgjöf, gekk hann rakleitt úr salnum án þess að taka í höndina á Kortsnoj. Staðan í einvíginu er nú 3:2 Kortsnoj f hag. í miðopnu blaðsins í dag er skákin skýrð. ekkert geta sagt um það að sinni hverjir stæðu fyrir innrásinni, en sagði að vitneskja lægi nú fyrir um að innrásarliðið hefði sótt framhjá borgunum þremur, sem það hefði náð á sitt vald f sfðustu viku, Kapanga, Kisengi og Dilolo. Þá var tilkynnt í Washington, að verðmæti gagnanna sem flutt yrðu til Zaire á næstu dögum næmi einni milljón dala. Hefði flutningavél lagt af stað í morgun, og önnur væri á förum næstu daga. Fregnir frá bandaríska sendi- ráðinu i Zaire herma, að bardagar i suðurhéruðum landsins hafi aukizt nokkuð undanfarna daga, og séu 10 bandarískir trúboðar á valdi innrásarliðsins. Haft var eftir hinni opinberu fréttastofu Zaire í dag, að Kúbu- menn væru fyrir innrásarliðinu, sem teldi um 5 þúsund manns. Þá var haft eftir ónafngreind- um heimildum f Briissel f dag, að innrásarliðið frá Angóla teldi að- eins 500 manns, og væri innrásin gerð að undirlagi manha Moise Tshombe, sem verið hafa í Angóla frá þvi að uppreisnin í Katanga var bæld niður árið 1965. Pólland: 730 vilja opinbera rannsókn Varsjá — 15. marz — Reuter. 730 stúdentar við háskólann f Varsjá hafa undirritað skjal þar sem skorað er á löggjafar- samkundu Póllands að skipa sérstaka rannsóknarnefnd til að kanna hvað hæft sé f ásökunum um að lögreglan hafi beitt verkamenn ofbeldi f uppþotunum, sem urðu vegna verðhækkana stjórnarinnar f sumar sem leið. Andófsmenn i Varsjá skýrðu frá þessu í dag, og sögðu að 10 stúdentar hefðu gengið á fund Stainislaw Gucwa þingforseta s.l. miðvikudag og afhent honum skjalið. Áður hefur fjöldi Pólverja krafizt þess að skipuð verði opinber nefnd til að kanna hvað hæft sé í ásökunum um barsmiðar og misþyrmingar, en yfirvöld hafa ekki svarað slfkum kröfum. Hins vegar hafa opinberir fjölmiðlar í landinu haft eftir saksóknara rfkisins, að þessar ásakanir séu „tilhæfulausar og byggðar á lygum". Tékkóslóvakía: Nýtt mann- réttindaskjal - „Skjal nr. 7” Prag — 15. marz — NTB. BARÁTTUMENN fyrir mannréttindum f Tékkóslóvakfu birtu f dag skjal þar sem gagnrýndar eru ráðstafanir stjórnar landsins vegna erfiðleikanna á vinnumarkaði og opinber afstaða til jafnréttismála kynjanna. I yfirlýsingunni, sem ber yfirskriftina „Skjal nr. 7“, segir m.a. að stöðugur samdráttur f þjóðarframleiðslunni og vaxandi óánægja hinna vinnandi stétta séu afleiðingar af lélegum vinnuskilyrðum og miklu atvinnuleysi, sem yfirvöld sjái til að komist ekki f hámæli. Þá •segir f yfirlýáingunni: „Flestar konur f Tékkóslóvakíu starfa utan heimilis, — ekki af þvf að þær æskja þess heldur af brýnni þörf þar sem laun eigin- manna þeirra eru f lágmarki." Þá er vísað til félagslegrar könnunar, sem leitt hafi í-ljós, að 46.8 af hundraði verkafólks hafi verið ánægt með störf sín rétt fyrir innrás Varsjárbandalagsins f landinu i ágúst 1968, en sam- kvæmt könnuninni hafi aðeins 0.9 af hundraði sömu sögu að segja nú. Segir i yfirlýsingunni, að þetta sýni glöggt að markmið sósialismans eigi ekki aðeins að vera þróun í átt til félagslegs öryggis heldur einnig þróun í átt til einstaklingsfrelsis. Sömu aðilar og stóðu að „Mannréttindum ’77“ undirrita „Skjal nr. 7“. Meðal þeirra er Jan Patocka, er lézt s.l. sunnudag af heilablóðfalli, sem hann fékk eftir 11 klukkustunda látlausar yfirheyrslur lögreglunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.