Morgunblaðið - 17.03.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1977
A 8. hundrad þús-
unda kr. stolid úr
Öskjuhlíðarskóla
INNBROT var framið f öskju-
hlfðarskólann í Reykjavfk f fyrri-
nótt. Þjófurinn eða þjófarnir
unnu miklar skemmdir á hús-
næði skólans f leit að verðmæt-
um. Meðal annars brutu þeir
hurðina á eldtraustum peninga-
skáp og höfðu þaðan á brott með
sér á áttunda hundrað þúsund
króna f peningum og ávfsunum,
aðallega þó peningum. Málið er f
rannsókn.
Innbrotið uppgötvaðist ekki
fyrr en í gærmorgun, þegar fólk
mætti þar til vinnu. Þjófarnir
höfðu brotið upp fjórar hurðir og
f tveimur þeirra höfðu þeir brotið
þykkt öryggisgler. í einu herbergi
skólans er eldtraustur peninga-
skápur og var hann brotinn upp.
Þar voru geymdir ýmsir sjóðir
skólans og einnig happdrættis-
sjóður, sem Foreldra- og kennara-
félag skólans hafði umsjón með.
Höfðu þjófarnir á brott með sér
öll verðmæti úr skápnum að
undanskildum nokkrum
ávísunum.
Ennfremur hurfu verkfæri úr
skólahúsinu, m.a. stórt kúbein og
er talið að þjófarnir hafi notað
það við iðju sína.
Stórgallar koma fram í Herjólfi:
Vidgerd
20 millj.
MIKLIR og alvarlegir
gallar hafa komið fram f
skut Vestmannaeyjaferj-
unnar Herjólfs, og hefur
skipið nú verið f slipp um
tveggja vikna skeið.
Starfsmenn Stálvíkur og
Stálsmiðjunnar vinna nú
að því að lagfæra þessa
galla, en talið er að það
kosti um 20 millj. króna.
Unnið að þvf að styrkja skut
Herjólfs f slippnum f Reykja-
vík f gær. Ljósm.Mbl.: RAX
kostar
króna
Gert er ráð fyrir að Her-
jólfur fari á flot á ný á
sunnudag eða mánudags-
morgun.
Ólafur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri Herjólfs, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær,
að fljótlega eftir að skipið hefði
komið til landsins hefði komið
fram titringur í því að aftan og
hefði þessi titringur sífellt auk-
izt. Þegar skipið hefði svo verið
tekið í slipp hefði komið í ljós,
að suða á plötum hefði bilað og
sprungur komið fram f skutn-
um.
— Við erum að vonum mjög
óhressir yfir þessum galla, sér-
staklega þegar tekið er tillit til
þess, að aðeins er búið að sigla
skipinu um 1500 klst., en það er
í notkun að meðaltali um 6Í4
klst. á dag, sagði hann en sem
betur fer er skipið enn í ábyrgð
skipasmíðastöðvarinnar í Nor-
egi sem smfðaði það.
Þá sagði Ólafur, að smíðaaðili
skipsins og eins Norsk verifas,
sem tók Herjólf út, hefðu viður-
kennt að skipið væri ekki nægi-
lega sterkt að aftan. Auk þessa
hafa komið fram tæringarrákir
í skrúfu skipsins og kann eng-
inn skýringu á því enn.
Skutur Herjólfs verður nú
allur styrktur, í stað 8 mm járns
verður sett 12 mm og eins verða
settir bitar milli banda og drag-
ar upp undir bílaþilfarið. Gera
menn sér vonir um um að það
nægi til að gera skipið eins og
til var ætlazt í upphafi.
Fyrstu dýriní
Dýraspítalann
FYRSTU dýrin verða tekin í
Dýraspftala Watson um páskana,
en þar er þó ekki um að ræða sjúk
dýr, heldur dýr fólks sem hyggst
bregða sér úr bænum um páskana
og er í vandræðum með heimilis-
dýr sfn. Dýraspftalinn er nú nær
fullbúinn til þess að taka til
starfa fyrir sjúk dýr, en reiknað
er með að hann taki formlega til
starfa f vor.
Eins og fram hefir komið í frétt-
um í Morgunblaðinu eru fram-
kvæmdir við uppbyggingu Dýra-
spítalans langt komnar. Búr fyrir
sjúk dýr er þegar búið að setja
upp, en eftir er að ganga frá ýms-
um smáatriðum. Þar sem starf-
semin er ekki formlega hafin hef-
ur verið ákveðið að taka heimilis-
dýr f vörzlu yfir páskana. Fólk
sem fer í leyfi yfir hátfðar hefur
oft verið í vandræðum með að
koma dýrunum sínum fyrir, en
dýrahjúkrunarkona mun sjá um
vörzluna og verður vakt yfir dýr-
unum allan sólarhringinn. Sigfrfð
Þórisdóttir gefur upplýsingar um
gæzluna í símum 27458 eða 26221.
Hreinn Halldórsson, nýbakaður Evrópumeistari f kúluvarpi, tók aftur
til starfa I gær við akstur strætisvagna Reykjavfkur eftir skottúrinn til
Spánar þar sem hann skaut öllum beztu kúluvörpurum Evrópu ref
fyrir rass. Hreinn kom beint af æfingu f vinnuna og hann var meira að
segja með lyftingabeltið á sér. Ljósmynd Mbl. Friðþjófur.
Morðsaga
út á land
KVIKMYNDIN Morðsaga hefur
verið mjög vel sótt f Reykjavfk
sfðan hún var frumsýnd s.l. laug-
ardag. T.d. hefur fólk komið f
rútu frá Akranesi til þess að sjá
myndina f Reykjavfk.
I dag hefst hringferð Morðsögu
í kringum landið, en sýningar
halda þó áfram i Stjörnubiói í
Reykjavík. Fyrsta sýningin utan
Reykjavíkur verður í Bæjarbíói í
Hafnarfirði í kvöld, en þar verður
myndin sýnd fram yfir helgi og
sýningar hefjast f Félagsbíói f
Keflavík í næstu viku. Þá mun
ákveðið samkvæmt upplýsingum
Reynis Oddssonar kvikmynda-
tökumanns, að Morðsaga verði
páskamynd í Borgarbíói á Akur-
eyri, en pantanir hafa streymt inn
á myndinni frá fjölda staða á
landinu. Tvö eintök af myndinni
eru til á landinu.
Spilakvöld
í Hlíða- og
Holtahverfi
FÉLAG sjálfstæðismanna f Hlfða-
og Holtahverfi heldur sfðasta
spilakvöldið f 3ja kvölda keppn-
inni I kvöld í Valhöll, Bolholti 7.
Byrjað verður að spila klukkan
20.30.
Davíð Oddsson, borgarfulltrúi,
mun flytja stutta ræðu í léttum
dúr.
Góð verðlaun. Aðgangur ókeyp-
is. Sjálfstæðisfólk er velkomið
Vaxtakjör bankanna leiðrétt:
Vextir á viðbótarlánum út á
útflutningsafurðir hækkaðir
SEÐLABANKINN ákvað I gær að andi viðskiptabankar treysta sér verður fjárhæð þessara lána
breyta nokkuð reglum um vexti
við innlánsstofnanir án þess að
um almenna vaxtabreytingu væri
að ræða. Með þessum breytingum
er Seðlabankinn að leiðrétta mis-
ræmi I vöxtum, sem m.a. hefur
gilt frá 1974 og er þar mikilvæg-
asta breytingin á vaxtakjörum
svokallaðra viðbótarlána við-
skiptabankanna út á útflutnings-
afurðir. Þar voru vextir 11% en
verða nú jafnir vfxilvöxtum.
Morgunblað inu barst í gær
fréttatilkynning frá Seðlabankan-
um, þar sem segir:
„Bankastjórn Seðlabankans
hefur að höfðu samráði við banka-
ráðið ákveðið nokkrar breytingar
á reglum um vexti við innláns-
stofnanir án þess að um almenna
vaxtabreytingu sé að ræða. Er hér
bæði verið að leiðrétta misræmi,
sem komið hefur fram innan
vaxtakerfisins og gera minni hátt-
ar tæknilegar breytingar á gild-
andi vaxtaákvæðum. Breytingarn-
ar taka gildi frá og með 21. þ.m.
Mikilvægasta breytingin er sú,
að felld hafa verið niður sérstök
vaxtaákvæði, sem gilt hafa um
viðbótalán viðskiptabankanna út
á útfluningsafurðir. Verða þessi
lán heðan í frá með venjulegum
víxilvöxtum, en hafa verið með
11% vöxtum. Var þessi breyting
nauðsynleg vegna þess að viðkom-
ekki lengur til þess að veita þessi
lán með vöxtum, sem eru veru-
lega undir venjulegum sparisjóðs-
vöxtum, en þannig hefur þessu
verið háttað síðan 1974. Jafn-
framt leiðir þessi breyting til
meiri jöfnunar lánskjara milli at-
vinnuvega. Afurðalán með fyrsta
veðrétti í útflutingsafurðum, sem
fjármögnuð eru af Seðlabankan-
um, verða eftir sem áður með 8%
vöxtum, þannig að eftir þessa
breytingu verða meðalvextir af
75% afurðalánum Seðlabanka og
viðskiptabanka samanlögðum um
10% á ári, og eru það langhag-
stæðustu lánskjör, sem í gildi eru
á bankalánum hér á landi.
Einnig hefur verið ákveðið að
hækka vexti af sérstökum
rekstrarlánum til útgerðarfyrir-
tækja, svokölluðum útgerðarlán-
um, úr 11% i 13%, en jafnframt
hækkuð um 25%. Mun Seðiabank-
inn veita viðskiptabönkunum sér-
staka fyrirgreiðsiu vegna þessar-
ar hækkunar.
Vaxtaaukainnlán þau, sem tek-
in voru upp á siðastliðnu ári og
bera 22% vexti, hafa reynst mjög
vinsæl, en til að standa undir
vaxtakostnaði af þeim hafa nú
verið nokkuð rýmkaðar heimildir
viðskiptabanka og sparisjóða til
þess að veita vaxtaaukaútlán af
því fé, sem þannig er ávaxtað.
Loks hefur verið ákveðið að
breyta nokkuð ákvæðum um töku
vanskilavaxta. I fyrsta lagi eru nú
sett sérstök ákvæði um töku van-
skilavaxta af skuld í erlendum
gjaldeyri, ef skuldin heldur
áfram að vera með gengisákvæð-
um eftir gjaldaga. I öðru lagi
verður nú óheimilt að leggja van-
Framhald á bls. 24
Sigurður Kristjánsson
sparisjóðsstjóri látinn
51 kílós „þorsk-
langamma”
FYRIR nokkrum dögum fékk
snurvoðarbátur, sem rær á
Lofotenmiðin f N-Noregi, risa-
þorsk og þegar hann var veginn
kom f ljós að hann vó hvorki
meira né minna en 51 kfló, og
samkvæmt fréttum frá Noregi
er þetta einn stærsti þorskur,
sem þar hefur fengizt. Ekki er
ólfklegt, að 3000—4000 kr. hafi
verið greiddar fyrir þorskinn
upp úr sjó.
Þegar í land var komið var
gert að þorskinum og hann
hausaður og þá reyndist hann
ekki vera nema 19 kíló. Norskir
fiskifræðingar segja að
þorskurinn hafi verið um það
bil 20 ára gömul hrygna og því
löngu orðin amma og lang-
amma. Að sögn fiskifræðing-
anna er það mjög sjaldgæft að
vigt þorsks fari upp fyrir 43
kíló, en vitað er um þorska sem
hafa veiðzt á Lofoten-miðunum
og verið 46 og 47 kfló.
SIGURÐUR Kristjánsson, fyrr-
verandi sparisjóðsstjóri f Siglu-
firði, er látinn. Hann fæddist f
Sveinbjarnargerði á Svalbarðs-
strönd 24. okt. 1888. Sigurður
nam f Gagnfræðaskóla Akureyrar
1906—1907, en prófi frá Verzlun-
arskóla Islands lauk hann 1909.
Hann varð kaupmaður og útgerð-
armaður í Siglufirði um langt
skeið auk þess að vera sparisjóðs-
stjóri, en þvf starfi gegndi hann
um nær hálfrar aldar skeið frá
1920.
Sigurður stofnaði fiskvinnslu-
fyrirtækið ísafold s.f. f Siglufirði
árið 1933 og síldarverksmiðjuna
Gránu rak hann um 10 ára skeið
frá 1934. Hann var sænskur kon-
súil í Siglufirði frá 1926 og gegndi
því embætti um áratuga bil.
Fjölda ára sat Sigurður í síldar-
útvegsnefnd og hann var kjörinn
bæjarfuiltrúi í fyrstu bæjarstjórn
isafjarðar 1914. Hann var kjörinn
heiðursborgari ísafjarðar 1958.
Fyrri kona Sigurðar var Anna
Sigrún Vilhjálmsdóttir, en eftir-
lifandi kona hans er Þórarna Er-
lendsdóttir.