Morgunblaðið - 17.03.1977, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1977
3
Nýtt íþróttahús
við Glerárskóla
sHMi
herra. Þá talaði Helgi M. Bergs,
bæjarstjóri, en sfðasti ræðu-
maður var Vilberg Alexanders-
son, ’ skólastjóri Glerárskóla.
Hann lýsti fögnuði sínum og
nemenda sinna með hið nýja
hús, þakkaði öllum, sem að
hefðu unnið og óskaði þeim,
sem þarna eiga eftir að dveljast
við leik og starf, allra heilla.
Aó ioknum ræðuhöldum fór
fram fimleikasýning pilta og
stúlkna úr skólum bæjarins og
síðan sýndu nokkrir áhuga-
menn á ýmsum aldri blak.
Vígsluhátíðinni lauk með kaffi-
samsæti í Glerárskóla í boði
stjórnarnefndar hússins, en
hana skipa: Hermann Sig-
tryggsson, formaður, Ingimar
Eydal, ritari, og Hilmar Gísla-
son. Húsvörður hefir verið ráð-
inn Samúel Jóhannsson.
Húsið er 7300 rúmmetrar að
stærð og skiptist í tvo aðalhluta,
búnings- og hliðarherbergi, 475
fm, og íþróttasal, sem er 630
fm. Keppnissvæði í sal er 18x33
fm, en skipta má salnum í
tvennt með tjaldvegg, þegar
kennsla fer fram. Gólfið er
klætt sérstökum dúk og í það
felldar festingar fyrir ýmisleg
íþróttaáhöld og tæki. Lofthæð
var í fyrstu áætluð 6 m, en var
hækkuð í 7 m, meðan á bygg-
ingu hússins stóð, og tafði sú
breyting nokkuð fyrir því, að
verkinu lyki. Það hófst I maí
1975 og er nýlokið nema frá-
gangi utanhúss, sem lokið verð-
ur við í sumar. Listskreyting
verður á stöfnum íþróttasalar,
og er Snorri Sveinn Friðriksson
höfundur hennar.
Fimleikafólk sýndi listir sýnar við vfgslu fþróttahúss Glerárskóla.
Ljósmyndir Mbl. Sverrir Pálsson.
Hönnuðir hússins eru: Arki-
tektateikningar: Teiknistofa
húsameistara Akureyrarbæjar.
— Burðarþolsteikningar: Guð-
mundur Guðlaugsson og Gunn-
ar Jóhannesson, verkfræðing-
ar. — Loftræsi- og hitalagnir:
Verkfræóistofan Ármúla 1. —
Raflagnateikningar: Aðalgeir
Pálsson, verkfr. — Vatns- og
skólpteikningar: Verkfræði-
stofa Sigurðar Thoroddsen.
Kostnaður er orðinn þessi tal-
inn í milljónum króna:
Byggingarkostnaður 103,2
Gólffsal 7,8
Föst fþróttatæki og skilveggur 4,8
Laus íþróttatæki 10,3
Vmis áhöld og tæki 1,9
Áætlaðar framkvæmdir á lóð 2,0
Alis 130,0
Eru þá ótalin kaup á ýmsum
íþróttaáhöldum, sem fyrir dyr-
um standa, en þau eru áætluð
um 10 milljónir króna.
Mönnum ber saman um, að
húsið sé afar fallegt og glæsi-
legt og allur frágangur af hálfu
verktaka hinn vandaðasti.
Sv.P.
Sigurður Óli Brynjólfsson, for- | Helgi M. Bergs, bæjarstjóri,
maður skólanefndar Akureyr- ávarpar samkomugesti.
ar.
Akureyri, 12. marz.
NVTT og vandað fþróttahús við
Glerárskóla var hátíðlega vfgt f
dag að viðstöddum mörgum
nemendum skólans og gestum.
Hermann Sigtryggsson, fþrótta-
fulltrúi Akureyrarbæjar, stýrði
athöfninni, sem hófst kl. 16.
Liðin eru 33 ár sfðan fþróttahús
hefir verið reist og tekið í notk-
un á Akureyri, og 70 ár frá þvf
að skólalþróttahús (MA) var
sfðast reist.
Verktaki við smíði hússins
var Smári h/f, og talaði Tryggvi
Pálsson, fulltrúi verktakans,
fyrstur og lýsti byggingafram-
kvæmdum. Við lok ræðu sinnar
afhenti hann húsið Hauki Har-
aldssyni arkitekt, fulltrúa húsa-
meistara Akureyrar og eftirlits-
manni bæjarins við smíði húss-
ins. Haukur lýsti húsinu og
búnaði þess, en afhenti síðan
lyklavöldin Sigurði Öla Bryn-
jólfssyni, formanni skólanefnd-
ar Akureyrar, sem flutti ræðu
og bar m.a. saman aðbúnað og
aðstöðu skólafólks nú og þegar
hann sjálfur var nemandi Gler-
árskóla í æsku sinni. Loks flutti
hann kveðjur menntamálaráð-
Borgin opnar unglinga-
athvarf í V esturbænum
ÆSKULVÐSRAÐ Reykjavfkur
og Félagsmálastofnun Reykja-
vfkurborgar taka á næstunni f
notkun unglingaathvarf og er ráð-
gert að þar geti fengið inni 6 til 8
unglingar á aldrinum 14 til 16
ára. Hinrik Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Æskulýðsráðs,
sagði f samtali við blaðið f gær, að
þetta unglingaathvarf yrði starf-
rækt f húsnæði, sem Fræðslu-
skrifstofa Reykjavfkur hefur til
afnota við Ilagamel og væri hug-
myndin sú að starfrækja athvarf-
ið með svipuðum hætti og þau
skólaathvörf, sem nú eru rekin á
nokkrum stöðum f borginni.
Fram kom hjá Hinriki að at-
hvarf þetta er einkum ætlað ung-
lingum, sem hætt hafa f skóla og
er gert ráð fyrir að athvarfið
verði samastaður unglinganna á
tímabilinu frá þvf að þau hætta að
vinna síðdegis og fram að hátta-
tíma á kvöldin en þá eiga þau að
fara til heimila sinna. Hinrik
sagði a þarna ætti þessum ung-
lingum að gefast tækifæri til að
hafa með sér félagslegt samneyti,
auk þess, sem þau gætu leitað
eftir ráðgjöf hjá starfsfólki at-
hvarfsins vegna vandamála sinna.
— Fyrst og fremst verður þetta
samfélag unglinganna og starfs-
mennirnir munu fylgjast með
hvernig þeim vegnar á vinnustöð-
um og reyna að sjá til þess, að
þeir, sem ekki hafa vinnu, fái
eitthvað að gera, sagði Hinrik.
Þá hefst á næstunni starf svo-
kallaðrar útideildar, sem starf-
rækt er af Félagsmálastofnun og
Æskulýðsráði en starf hennar
felst i því að starfsmennirnir eru
Taxti efnalauga
hækkar um 3%
RlKISSTJÓRNIN hefur staófest
samþykkt verðlagsnefndar um
3% hækkun á taxta efnalauga.
Hækkunin stafar af hækkun
vinnulauna.
á ferli á kvöldin og leitast við að
komast í samband við þá krakka,
sem mikið eru úti á kvöldin og
hafa að öðru leyti óeðlilega úti-
vist. Nokkur reynsla hefur þegar
fengizt af starfi útideildarinnar
en hún starfaði um skeið í tegnsl-
um vi Fellahelli, félagsmiðstöð
Æskulýðsráðs. Nú er ætlunin að
útideildin starfi út frá tveimur
stöðum, Fellahelli og Tónabæ, og
eru veittar til þess starfs um 4
milljónir króna á þessu ári.
— Með þessum starfsþáttum,
unglingaathvarfi og útideild,
gefst tækifæri til að veita ung-
lingum aðstoð, sem ekki hefur
verið hægt nema að litlu leyti
hingað til. Varðandi unglingaat-
hvarfið er von okkar að takast
megi að veita þeim unglingum
aðstoð, sem dottið hafa út úr skóla
á unglingastigi og eiga oft við
ýmis vandamál að stríða. Við ger-
um ráð fyrir að unglingarnir komi
I unglingathvarfið fyrir atbeina
útideildarinnar eða i gegnum
skólana og Sálfræðideild skól-
anna en þetta starf kemur til með
að tengjast starfi fræðsluyfir-
valda, sagði Hinrik. Til starfsemi
unglingaathvarfsins eru á þessu
ári veittar 4 milljónir króna og er
gert ráð fyrir að starfsfólk þar
verði sem svari til 2ja til 3ja
starfsmanna en störf á unglinga-
athvarfinu og í útideildinni verða
unnin af starfsfólki þeirra stofn-
ana, sem að þeim standa.
Kjósarsýsla
SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ Þor-
steinn Ingólfsson i Kjósarsýslu
efnir til fjölskyldubingós i Fólk-
vangi á morgun, föstudag 18.
marz kl. 21.00. Húsið verður opn-
að kl. 20.00. Góðir og fjölbreyttir
vinningar verða. Ágóði af bingó-
inu rennur til hljóðfærakaupa i
Félagsgarð. Allir eru velkomnir.
Bygginganefnd verð-
ur að heimila flutn-
ing og niðurrif húsa
Á FUNDI byggingarnefndar
Reykjavfkur 1 sl. viku var sam-
þykkt að gera nokkrar breyt-
ingar á byggingarsamþykkt
Reykjavíkur. Meðal þeirra
breytinga sem þar hlutu sam-
þykki var að eftirleiðis þarf
einnig leyfi byggingarnefndar
til flutnings eða niðurrifs á
húsi.
Hingað til hefur þurft sam-
þykki nefndarinnar fyrir öllum
nýbyggingum, breytingum á
húsnæði og breytingum á notk-
un húsnæðis, en hins vegar
hafa húseigendur verið sjálf-
ráðir hvort þeir flyttu hús af
lóðum eða létu rífa þau nema
öðru vfsi væri kveðið á um.
Byggingarnefnd klofnaði í
þessu máli, en breytingartillag-
an náði fram að ganga með fjór-
um atkvæðum gegn þremur. Þá
lýsti slökkviliðsstjóri því einnig
yfir að hann væri andvígur
greininni, en hann situr fundi
nefndarinnar, þó að hann hafi
ekki atkvæðisrétt.
Utanríkis-
rádherra
Svíþjóðar
í opinbera
heimsókn
KARIN Söder, utanrfkisráðherra Svíþjóðar, kemur 1 opinbera beim-
sókn til Islands dagana 21.—22 marz næstkomandi.
I fylgd með ráðherranum verða Sverker Aström, ráðuneytisstjóri
sænska utanríkisráðuneytisins, og fleiri embættismenn. Auk fundar
með Einari Agústssyni og embættismönnum utanrikisráðuneytisins
mun Karin Söder eiga viðræður við forseta tslands og fara í skoðunar-
ferð um Reykjavík, að þvi er segir i fréttatilkynningu frá utanrikis-
ráðuneytinu.
Prestskosningar í Hafnarfirði:
Hvetja alla
til að sýna
drengskap
UM NÆSTU helgi verða prest-
kosningar í Hafnarfirði í tveim-
ur sóknum þar, Hafnarfjarðar-
sókn og nýrri sókn, sem kennd
er við Vfðistaði. 1 gömlu sókn-
inni eru umsækjendur tveir,
Auður Eir Vilhjálmsdóttir og
Gunnþór Ingason, en í nýju
sókninni er einn umsækjandi,
Sigurður Guðmundsson.
í Hafnarfirði hafa gengið op-
in bréf, sem borin hafa verið i
hús. Af því tilefni hafa um-
sækjendurnir birt „Orðsend-
ingu til Hafnfirðinga", sem
hljóðar svo: „Við hörmum mjög
opið bréf, sem í dag hefur verið
borið i hús í Hafnarfirði, svo og
allar sögusagnir af sama toga.
Við mótmælum harðlega að
prestskosningar skuli notaðar
með þessum hætti, og hvetjum
alla til að sýna drengskap og
sanngirni hver sem hlut á að
máli.
Hafnarfirði, 15. marz 1977.“
Undir skrifa svo prestarnir
þrír: Auður Eir Vilhjálmsdótt-
ir, Gunnþór Ingason og Sigurð-
ur Guðmundsson.