Morgunblaðið - 17.03.1977, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1977
19
Larsen
Hvítt
eða svart
Mönnum er í fersku minni
upphaf þess einvigis sem
stendur yfir hér á landi, þegar
dregið var um það hvor kepp-
enda ætti að hefja einvígið með
hvítu taflmönnunum. Alþjóða-
skáksambandið, FIDE, hefur
sett mjög ákveðna reglu um
hvernig sá dráttur fari fram og
það ekki af ástæðulausu. Miða
með nafni hvors keppenda er
sungið inn í sitthvort umslagið.^
Þeim keppanda, sem talinn er
hafa komist lengra í undan-
farandi keppni, er veitt tæki-
færi til að velja umslag. (I
þessu tilviki var það Hort, þar
sem hann komst lengra í milli-
svæðakeppninni i Manilla s.l. I
sumar en þar varð henn einn af
þremur efstu en Spassky hafn-
aði í miðjum hópi). Hort valdi
umslag með nafni Spassky og
þess vegna átti Spassky að velja
peð úr hendi Horts. Eins og
menn muna gerði Hort
viróingarverða tilraun til þess
að fela peðin, en án árangurs,
Spassky valdi hægri hönd Horts
sem geymdi hvíta peðið. Þar
með hafði Spassky hlotið fyrsta
ávinninginn, hann hóf einvígið
með hvítu mönnunum. Sú
skoðun er nefnilega ríkjandi
hjá þorra skákmann að hag-
stæðara sé að stýra hvítu tafl-
mönnunum heldur en þeim
svörtu. Flestir kjósa að hafa
frumkvæóið sem lengst, ráða
ferðinni og vera leik á undan.
Áhrifamáttur hvíta liðsins er
þó engan veginn svo gífurlegur
sem ætla mætti, sem betur fer,
því ella blasti við tortíming
skáklistarinnar. Með aukinni
tækni og þekkingu hefur þessi
munur minnkað. Skákmeist-
arar nútímans þaulkanna hin
mismunandi varnarkerfi fyrir
svartan og verður býsna vel
ágengt, þannig að smám saman
er vörn svarts orðin svo góð að
ekki þýðir lengur að ætla sér
sigur gegn henni og þá er tekið
það ráð að dusta rykið af ein-
hverri gamalli byrjun, þar sem
vörnin er kannski öllum
gleymd, nema hvað hún stend-
ur einhvers staðar í gamalli
skákbók. Skákunnendur kann-
ast við nöfn eins og Sikileyjar-
vörn, Franska vörn, Caro —
Can vörn, Kóngs-indverska
vörn o.s.frv. en hver og ein
spannar svo mörg afbrigði að
nægir í heila bók.
I áskorendakeppninni 1968
unnust 17 skákir á hvítt en 11 á
svart. En í áskorendakeppninni
1974 reyndust þeir til muna
sigursælli sem stýrðu hvítu
mönnunum, eða af samtals 15
vinningsskákum vannst ein-
ungis ein á svart, allar hinar á
hvítt. Þessi eina vinningsskák
með svörtu var 3. skák Byrnes
og Spasskys en hún var jafn-
ffamt skemmtilegasta skák
þess einvígis. Spassky fórnaði
Kortsnoj
Portisch
Petrosjan
drottningunni fyrir tvo „létta“
menn, þ.e. riddara og biskup,
en það þykja yfirleitt heldur
óhagstæð skipti fyrir svo
sterkan mann. Um þessa skák
hafði Tal þetta að segja: „Það
er ekki auðveld ákvörðun að
fðrna drottningu fyrir tvo iétta
menn án þess að sjá nokkuð
þvingað framhald sem leiðir til
vinnings. Siík ákvörðun er
aldrei auðveld í hvaða keppni
sem er, hvað þá 1 áskorenda-
móti þegar staðan er jöfn í ein-
víginu. Slík taflmennska
táknar einungis það að Spassky
hafði „tilfinningu" fyrir stöð-
unni og hugrekki en það var
aðalsmerki hans á hans bestu
árum.“
Spassky
— Hort
Sammerkt með öllum fjórum
einvígjunum er hversu mörg
jafntefli keppendur gera enda
ekki óeðlilégt þegar um svo
jafna menn er að ræða. Af
fyrstu fimm skákum þeirra fé-
laga hafa fjórar endað með
jafntefli en í þeirri 3. tókst
Spassky að vinna eftir miklar
sviptingar; Hort féll á tíma i
flókinni stöðu. Ég gat um það i
grein um þessi einvígi hvaða
baráttuaðferðir eru notaðai
þegar annar keppandinn ei
kominn með einum vinnigi
meira í einvíginu: „Þurfi annar
keppandinn að vinna upp tap
eða kannski töp og á því geta
úrslitin oltið, upphefst mikið
sálarstrfð sem gæti stigmagnast
með hverri skák og því meir
sem nær dregur lokum. Brátt
iamast baráttuþrek þess sem
undir er í baráttunni, hann
byrjar að vanmeta sína eigin
hæfiieika og ofmeta hæfileika
mótherjans.“ Af ýmsum ástæð-
um mun ég ekki ræða ítarlega
um þá félaga að sinni, en
greinilegt er að um mjög jafna
baráttu er að ræða og því munu
úrslit ekki ráðast fyrr en í
síðustu skákunum, að öllum
líkindum.
Polugajevsky
— Mecking
Hinn ungi brasilíski skák-
meistari, Mecking, sem aðeins
er 25 ára gamall, hefur vakið á
sér töluverða athygli í ein-
víginu. Mecking er ekki ein-
ungis þjóðhetja og átrúnaðar-
goð Brasilíu heldur allrar
Suður-Ameríku og eru miklar
vonir bundnar vió þennan
skáksnilling. í síðustu áskor-
endakeppni tefldi Mecking við
Kortsnoj og varð sú barátta æði
spennandi frá upphafi. Þó svo
skákmenninir legðu ekki fram
neina skriflega kvörtun til
skákstjóra gerðu þeir það oft-
sinnis munnlega. Mecking
þykir minna talsvert á Fischer
fyrir þær sakir að hann er ákaf-
lega viðkvæmur fyrir öllum
hljóðum eða hreyfingu á
Hugleidingar
um áskorenda-
einvígin fjögur
Hecking og Bela, eiginkona Kortsnoj, og Kortsnoj.
Larsen og Portisch.
Skák
eftir GUNNAR
GUNNARSSON
keppnisstað. Þegar hann tefldi
við Kortsnoj og átti leik fór
hann fram á það við hann að .
vera stilltur og sitja kyrr í
sætinu og láta sem minnst á sér
bera til þess að trufla eki
meðan hann væri að hugsa. Á
slíkum stundum veitir hann
miklu meira athygli því sem er
að gerast í kringum hann en því
sem er að gerast á skákborðinu.
Eftir fréttum að dæma frá
Sviss virðist sækja í sama farið;
taugaóstyrkur hrjáir hann
mjög, svefnleysi og fleira
slæmt. En skáksnilldin hefur
ekki brugðist honum ennþá, því
hann hefur teflt geysivel, enda
þótt hann sé einum vinning
undir í einvíginu eftir tapskák í
2. skákinni. Hann er því í svip-
aðri aðstöðu og Hort og Larsen.
Polugajevsky hins vegar hefur
reynst vandanum vaxinn og
teflt af hugkvæmni engu síður
og missti t.d. af vinning í 1.
skákinni. Haldi svo fram sem
horfir virðist sá taugasterkari
og reyndari bera sigur af hólmi,
sem sé Polugajevsky. Til fróó-
leiks má geta þess að hvor
keppandi getur beðið um frest
á að tefla alls þrisvar sinnum
eftir samráð við lækni einvíg-
isins. Alls má því fresta skák-
um 6 sinnum. I öllum einvígj-
unum nema hér á landi hafa
keppendur notfært sér þessa
heimild.
Larsen
— Portisch
Einvígi þessara kappa
byrjaði með mjög sannfærandi
vinningsskák Portisch, en þeir
sömdu fljótlega um jafntefli í 2.
skákinni. I þriðju skákinni
tókst Larsen að jafna metin
með vinningsskák eftir langt og
strangt endatafl. í fjórðu skák-
inni missti Larsen þolinmæðina
og fórnaði manni og síðar
öðrum til sem hann að vísu
fékk til baka en Protisch varð-
ist vel og vann. Fimmta skák
þeirra endaði með friðsömu
jafntefli. Sjöttu skákinni tapaði
Larsen og er því 2 vinningum
undir. Hin staðfasta tafl-
mennska Portisch með rólegri
en markvissri uppbyggingu
virðist því ætla að verða
árangursríkari en leikfléttustíll
Larsens. Þeir félagar eiga það
sammerkt með Spassky og Hort
að þar ríkir friður og vinátta og
sannur íþróttaandi og engir
erfiðleikar nema þá einna helzt
það að tónleikahald Hjálpræðis-
hersins virðist hafa truflað tafl-
mennsku þeirra og valdið nokk-
urý röskun!
Petrosjan
— Kortsnoj
Allar skákir þessara skák-
jöfra hafa endað með jafntefli
fram að þessu og allar eftir
tiltölulega fáa leiki. Leiðinlegt
andrúmsloft ríkir í þessu ein-
vígi. Skákmennirnir talast ekki
við og takast ekki i hendur eftir
skák eins og siður er meðal
skákmanna. Þrúgandi spenna
sem þessi reynir á þolrifin og sá
ber sigur úr býtum sem þolir
þetta betur, því þeir virðast
standa jafnt við skákborðið.
Slík framkoma varpar rýrð á
skáklistina og ber að harma.
Petrosjan hefur sér til aðstoðar
þrjá skákmeistara frá Sovét-
ríkjunum en Kortsnoj nýtur að-
stoðar hollensks skákmeistara,
Ree að nafni. Kortsnoj taldi sig
missa af vinningsleið í þriðju
skákinni og má því segja að
hann hafi komist nær því að fá
vinning.