Morgunblaðið - 17.03.1977, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1977
t
ÞURÍÐUR EGGERTSDÓTTIR,
andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur þriðjudaginn 1 5 marz
Fyrir hönd ættingja
Sæmundur G. Sveinsson
t
Eiginkona min, móðir, amma og tengdamóðir
SVAVA KLARA HANSDÓTTIR.
(fœdd isebam)
Barmahlið 12,
lért á Landspítalanum að morgni þess 14 marz sl Jarðarförin auglýst
slðar
SigurðurO. K. Þorbjarnarson,
Lúther Garðar Sigurðsson,
Lúther Leifur Garðarsson,
Geirþrúður Pálsdóttir
t
Eiginmaður minn. faðir okkar og stjúpfaðir
SIGURÐUR KRISTJÁNSSON
frá Siglufirði,
verður jarðsunginn frá Frlkirkjunni i Reykjavik, föstudaginn 18 marz
kl 1 30eh
Þráinn Sigurðsson Halldóra Thorlacius
Sigurjóna Sigurðardóttir Steinunn Thorlacius
Vilhjálmur Sigurðsson Edda Thorlacius
Þórarna Erlendsdóttir
t
Utför systur minnar,
KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR,
Leifsgötu 5
verður gerð frá Kotstrandakirkju laugardaginn 19 marz kl 2 e.h
Bílferð verður frá Umferðamiðstöðinni kl 1.
Fyrir hönd systkina,
Sigrfður Jónsdóttir.
Eiginkona mín, t
ANNA SVEINSDÓTTIR.
Varmalandi. Skagafirði.
verður jarðsungin frá Reynistaðakirkju, laugardaginn 19 marzkl. 2.
Sigurður Konráðsson
Móðir mín og tengdamóðir
JÓHANNA STEFÁNSDÓTTIR
frá Raufarhöfn
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 18 marz kl 10 30
f.h
Bjorn Onundarson
Sigríður Sigurjónsdóttir.
t
Kveðjuathöfn um eiginmann minn og föður okkar
EIRÍK SKÚLASON
frá Mörtungu, Háaleitisbraut 26
er lézt 10. marz, verður í Fossvogskirkju föstudaginn 18 marz kl.
13.30 Útförin verður gerð frá Prestbakkakirkju á Síðu laugardaginn
1 9. marz kl. 1 3 30
Helga S. Friðbjörnsdóttir. Svala Eirfksdóttir,
Rannveig Eirllcsdóttir. Arnþrúður Þ. Eirfksdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
SÓLVEIGAR HVANNBERG
Sérstaklega þökkum við Elliheimilinu Grund
umönnun.
fyrir alúð og góða
Guðrún Hvannberg.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
Hjónaminning:
Ingibjörg Sesselja Jónasdóttir og
Þórður Guðmundsson á Völlum
Ingibjörg
Fædd 19. febrúar 1908
Dáin 19. janúar 1977
Þórður
Fæddur 3. mars 1905
Dáinn 7. maí 1975.
Utför Ingibjargar var gerð 29.
jan. sl. frá Sólheimakapellu þar
sem hún var lögð við hlið manns
síns, að viðstöddu miklu
fjölmenni. Eftir athöfnina var
öllum boðið til kaffidrykkju í
Ketilsstaðaskóla, að hennar fyrir-
lagi.
Ingibjörg var sérlega vel gerð,
hún var vel greind, vinföst, hlé-
dræg, gestrisin og gjafmild.
Ingibjörg var fædd i Vatnsdals-
gerði í Vopnafirði, foreldrar
hennar voru Helga Jónsdóttir og
Jónas Jóhannesson. Þau eignuð-
ust fimm börn, þrjár dætur og tvo
drengi. Snemma mun heilsuleysi
hafa herjað á heimilið, börnin
náðu ekki háum aldri og hjónin
ekki heldur. Ingibjörg missir
móður sína þegar hún er sjö ára
gömul, ári síðar er hún tekin i
fóstur til hjónanna Ingibjargar
Sveinsdóttur og Björns Sigurðs-
sonar á Hrappsstöðum í sömu
sveit, og er eftir það sem þeirra
eigið barn.
Árið 1929 flyst Ingibjörg með
fósturforeldrum sínum að Völlum
á Kjalarnesi, þar bjuggu þau á
hluta jarðarinnar. Ingibjörg
tengist þarna vináttuböndum við
fólkið sem bjó á móti fóstufor-
eldrum hennar og hélst sú vinátta
til hinstu stundar hennar, þar á
meðal eru hinir alkunnu Kistu-
fellsbræður. Ingibjörg var ekki
langdvölum á Völlum, hún var á
ýmsum stöðum þar efra og einnig
í Reykjavík.
Árið 1937 ræðst Ingibjörg
bústýra austur í Mýrdal til
Elíasar Guðmundssonar í Péturs-
ey. Til heimilis hjá Elíasi var
Þorður bróðir hans. Kynni Ingi-
bjargar og Þórðar leiddu til þess,
að þau giftu sig hinn 30. október
árið 1938.
Guðmundur Þðrður var góður
og glaður félagi, fullur bjartsýni
eins og flest ungt fólk sem
kynnist ungmennafélagshreyfing-
unni, hann tók virkan þátt í öllu
félagslifi sem var mikið á þeim
tima, enda margt ungt fólk á flest-
um heimilum. Þó að sjósókn væri
æði mikil frá söndunum í Mýrdai
á þessum árum, fóru þó margir
ungir menn á vertið á vetrum,
ýmist til Vestmannaeyja eða á
togara sem var mjög eftirsótt.
Þórður var nokkrar vertiðir á
togara, þar ásamt fleiri Mýrdæl-
ingum unnum við saman. Hann
var þar sem annarsstaðar hinn
ágæti vinur og félagi.
Eins og áður segir giftust þau
Ingibjörg haustið 1938. Jarðir
lágu ekki á lausu á þeim tíma, en
bæði voru þau hneigð til sveita-
búskapar, svo það varð að ráði að
Fædd 8. aprfl 1921.
Dáin 3. mars 1977.
í dag er til moldar borin dóttir
mín, Guðlaug Sigríður Sveinsdótt-
ir, Langholtsvegi 140, Reykjavík,
eftir langa og erfiða sjúkdóms-
legu.
Guðlaug fæddist á Seljalandi,
Vestmannaeyjum, en móðir henn-
ar var Jónína Sigurbjörg Jóns-
dóttir frá Hlið, Austur-
Eyjafjöllum, sem látin er fyrir
mörgum árum, en faðir hennar er
sá sem þessar línur ritar.
Er Guðlaug var á fyrsta ári
flutti hún með foreldrum sinum
að Hlíð og síðan að Nýiendu í
sömu sveit, þar sem hún ólst upp
sin bernskuár.
Árið 1936 missti Guðlaug móður
sina og árið 1938 flyst hún ásamt
þau fengu afmælda spildu úr
Péturseyjarlandi sem nýbýli.
Efnin hafa ekki getað verið
mikil. en lögboðin lán hafa þau
fengið. Með dugnaði þeirra
sjálfra og hjálp góðra manna
tókst þeim að byggja lítið ibúðar-
hús og gripahús sem þeim nægði í
bili. Þau nefndu býlið Velli, hinar
góðu minningar Ingibjargar frá
Völlum á Kjalarnesi hafa eflaust
ráðið þeirri nafngift. Þetta bæjar-
stæði er eitt hið fegursta á slétt-
Framhald ð bls. 27
mér og eftirlifandi börnum mín-
um til Hafnarfjarðar. Þegar til
Hafnarfjarðar kom fengum við
inni hjá sæmdarhjónunum Jónu
Jónsdóttur og Þórði Þórðarsyni,
kaupmanni þar í bæ.
Munum við seint geta þakkað
þeim hjónum allt það, sem þau
gerðu fyrir okkur á þessum erfiðu
tímum.
Ung giftist Guðlaug Pétri
Sveinssyni og hófu þau búskap i
Hafnarfirði, en slitu samvistum
eftir nokkurra ára sambúð.
Fyrir tæpum 20 árum kynntist
hún eftirlifandi manni sinum
Klemenzi Kristmannssyni frá
Hlöðversnesi á Vatnsleysuströnd,
og hófu þau búskap þar og síðan í
Vogum, en 1963 fluttust þau að
Langholtsvegi 140, Reykjavík.
í millitíðinni bjó hún nokkur ár
með Gunnari Júliussyni.
Guðlaugu varð 13 barna auðið,
sem öll eru á lífi. 9 eru gift, en
fjögur eru enn I föðurhúsum.
Eins og sést að framansögðu hef-
ur oft verið stormasamt á lífsferli
Guðlaugar og erfiðleikar miklir
við að sjá fyrir þessum stóra
barnahópi, og veit ég að Guðlaug
vildi þakka öllum þeim mörgu,
sem oft veittu henni liðsinni þeg-
ar erfiðleikar og veikindi voru
hvað mest.
Þá veit ég að Guðlaug vildi
þakka eiginmanni og hinum stora
barnahópi sinum fyrir allt gott á
umliðnum árum.
Að endingu vil ég þakka Laugu
minni fyrir allt og sendi henni
hinstu kveðjur frá mér, eigin-
manni, systkinum, börnum,
barnabörnum og tengdabörnum.
Ég bið guð að leiða hana og
blessa, biessuð sé minning henn-
ar.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma^g"|angamma.
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR,
frá Holti, Neskaupstað,
er andaðist aðfaranótt laugardag 12. marz Verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju föstudaginn 18 marz kl 3e.h Fyrir hönd vandamanna,
Sigþrúður Sigurðardóttir Jón Finnbogason
Jón Svan Sigurðsson Jóna 1. Jónsdóttir
Valur Sigurðsson Hulda Hannesdóttir
LeifurÖrn Dawson Camilla Ragnars
bamabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls
KRISTINS HLÍÐAR
SuBurgötu 110, Akranesi
Eiginkona og börn.
t
Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts og jarðarfarar
KRISTÍNAR BJARNADÓTTUR,
saumakonu
Vandamenn.
Guðlaug Sigríður
Sveinsdóttir—Minning
Sveinn Guðmundsson.