Morgunblaðið - 17.03.1977, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1977
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
ið undir þessi ummæli, það er
margoft sem dæmi eru um slíkt
tillitsleysi hvar sem er i bænum.
0 Um grunn-
skólamálin
„Virðulegi Velvakandi
Að undanförnu hafa grunn-
skólapróf níunda bekkjar verið
hvað mest til umræðu og i Kast-
ljósa sjónvarpsins þann fjórða
þessa mánaðar var skóla-
kerfunum lýst, hinu nýja, því
gamla og loks hinu norska. Gjarn-
an vildi ég að skólakerfinu yrði
breytt í líkingu við það norska og
óska þess að þjóðin sé á sama
máli. Það vita sennilega allir
tslendingar hvernig nemendum
þessa niunda bekkjar eru tak-
mörk sett til inngöngu í fram-
haldsdeildir. En norska kerfið
setur nemendum engin takmörk,
þeir geta sem sagt ekki fallið i
niunda bekk grunnskóla. Og það
eiga þeir í Noregi lof skilið fyrir,
þvi að fjölbreytni i námi er svo
mikil og nemendu læra það mikið
hvort sem þeir þurfa eitt ár eða
tvö að það er algjör óþarfi að setja
þeim takmörk vegna lélegrar
frammistöðu í prófunum. Það
virðist allt vera lagt upp úr því að
skvetta prófunum af eins og véla-
vinnu. Og það á einnig við í sam-
bandi við mörg fög i kennslunni.
Eftir veturinn eiga þeir að vita
nóg til að geta tekizt á við ýmis
vandamál á nútímaþjóðfélagi.
Mesti ljóminn af norska kerfinu
er þó þegar nemendur vilja taka
sér á hendur framhaldsnám, það
sem þeir kjósa og vilja læra og
taka sér sjálfvalið ævistarf, fá
þeir það óhindrað þó með því skil-
yrði að standa sig vel í því og það
gera þeir. Það er margt sem
þvingað er upp á skólafólk i námi,
t.d. hér a ' landi. Ahugamaður i
læknisfræði getur ekki farið í það
nám, þvi hann féll i stærðfræði-
inni og íslenzku, — fögum
óskyldum læknisfræðinni. Þjóð-
félag okkar hefur orðið af mörg-
um hæfileikamönnum þegar
skólakerfið hefur fellt nemanda í
fagi óskyldu áhugamáli hans.
Innleiðum norska skólakerfið
hér á landi, þvi hugsunin bak við
það mun skapa margt gott þjóð-
félagi okkar til bóta.
Oanægja nemenda virðist ekki
aðeins ríkja í 9. bekk grunnskóla
helduí i framhaldsskólunum
einnig. Þar virðist hraði vera
númer eitt, ekki aðeins í prófum
heldur bæði við lestur og einnig
kennslu. Svona fyrirkomulag hjá
menntamálaráðuneyti getur auð-
veldlega haft í för með sér aftur-
för þar sem svo mikið er lagt upp
úr hraða. Námið verður þá einskis
nýtur leikaraskapur og hálfkák
sem betra væri látið ósnert. Því
ekki að lesa aðeins minna og læra
það vel. Menntamálaráð: Vertu
svo gott að íhuga þetta mál örlátið
betur.
Virðingarfyllst,
Einar Yngvi Magnússon,
Heiðargerði 35, R.“
Þessir hringdu . . .
0 Brauðin
molast
Þrjár húsmæður, sem
verzla mikið við bakarí H. Bridde
vað Háaleitisbraut, hafa haft sam-
band við Velvakanda og beðið
hann að koma á framfæri eftir-
farandi beiðni til bakarísins:
„Hvernig stendur á því að
bændabrauðin góðu hafa versn-
að? Undanfarið hafa þau verið
svo laus að það er ekki hægt að
skera af þeim heillega sneið. Þau
bara molast niður. Getið þið ekki
bætt um betur? Gott væri einnig
að geta fengið þessi brauð í minni
stærð.“
Þetta var beiðni húsmæðranna
um bændabrauðin góðu eins og
þær sögðu og bökurunum er að
sjálfsögðu heimilt að svara hér og
skýra út af hverju þetta stafar, ef
þeir óska þess.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Nú stendur yfir i Tallin í Eist-
landi minningarmót um hinn
látna eistneska stórmeistara Paul
Keres.
Stöðumyndin hér að neðan er
einmitt frá mótinu. Það er
Gipslis, Sovétríkjunum sem hefur
hvítt og á leik gegn landa sínum
Nei.
33. Hxd6+! cxd6 (eða 33. ... Kc8
34. De6+) 34. De6+ Kc7 35. IIf7 +
Kb8 (35. ... Dxf7 var engu betra
vegna 36. Dxf7+ Kb6 37. Dd7) 36.
Dxd6+ og svartur gafst upp. Að
loknum 11 umferðum á mótinu
var staðan þessi: 1—2. Tal og Uhl-
mann 8 v. 3. Romanishin 7!4 v. 4.
Gipslis 6Ví v. Guljko hefur 6
vinninga og tvær biðskákir og
Bronstein 6 v. og eina biðskák.
% Hættuleg
farartæki
Skfðamaður:
— Ég hef eins og þúsundir ann-
arra skíðamanna hér á Suður-
landi farið í Bláfjöllin öðru hvoru
í vetur svona þegar snjór hefur
verið nægur. Það sem ógnar
okkur skiðamönnum þó meira en
snjóleysið eru blessaðir menn-
irnir sem þeysa um allt á sínum
merkilegu vélsleðum og eru oft-
lega stórhættulegir. Þeim var á
sínum tíma að mig minnir bannað
að aka ofan vegarins, eða austan
hans, en þá fóru þeir vestur fyrir
hann og það er litlu betra. Þar er
fólk sem er gangandi á skiðunum
— eða með öðrum orðum, Blá-
fjöllin eru fremur land skiða-
manna en snjósleðamanna og ég
held að þeir verði að taka fullt
tillit til þess arna. Þeir hafa án
efa nóg rúm annars staðar til að
stunda iþrótt sína og mér finnst
að þeir þurfi ekki endilega að
velja sér stað innan um skíða-
fólkið. Kannski eru það bara fáir
einstaklingar sem þetta gera, en
ég vildi eigi að síður koma þessari
ábendingu á framfæri. —
— Námskeið
Framhald af bls. 13.
sjálfum sér, eins og oft vill verða
þegar margir eru saman komnir.
— Hvernig fólk er það, sem
sækir námskeið?
— Einkum er það fullorðið fólk,
eða fólk, sem komið er af skóla-
aldri, því að yfirleitt á skólafólk
hér á höfuðborgarsvæðinu kost á
slikri fræðslu i skólanum.
Hér er mikið af fólki, sem hefur
áhuga á myndlist og vill notfæra
sér þá fræðslu sem stendur til
boða. Við höfum lagt áherzlu á að
gefa sögulegt yfirlit og útskýra
siðan grundvallarhugtök og
tæknileg atriði jöfnum höndum
út frá því — fjöllum um mynd-
Bifneiðasala
Notaóir bílartil sölu
Hornet 4ra dyra '74, '75
Hornet 2ja dyra '74
Hornet Hatchback '74 '75
Hornet Sportabout station '74
Matador 4ra dyra '74
Matador 2ja dyra Coupé '74
Wagoneer 8 cyl. sjálfskiptur
'72. '74.
Wagoneer 6 cyl beinskiptur,
'71. '72. '73.'74, '75
Cherokee 8 cyl. sjálfskiptur
'74
Cherokee 6 cyl. beinskiptur
'74
Jeepster Commando
fallegur bill '73
Jeep CJ 5 með blæju '74, '75
Jeep CJ 5 með húsi '73. '74
Willys jeppar
'55, '64. '65. '66
Hunter '70, '71, '72. '74
Hunter Super sjálfskiptur '74
Sunbeam 1 250 og 1 500
'70. '71. '72.
Sunbeam 1 600 Super '66
Lancher 1200 2ja og 4ra dyra
'74. '75
Lancher 1400 4ra dyra '74
Galant 1 600
de luxe og grand luxe '74
Galant 1400 Custom '74
Cortina
'66. '70. "71, '73. '74
Escord '70, '73, '74
Morris Marina '74
Austin Mini '74
Bronco '71, '73, '74
Landrover Diesel '69
Volkswagen '68, '73, '74
Saab 96 '71. '72, '73
Saab 99 '71, '72, '73, '75
Lada '74, '75
Peugeot 404 diesel,
einkabill '74
Peugoet 505 '73
Ford Country Sedan station
'71
Frambyggður rússajeppi,
Camper '72
Fiat 128 '74, '75
Dodge Charger 8 cyl.
beinskiptur, '74
Skoda 100 S '71
Mercury Comer, sjálfskiptur
með Powerstýri '74
Opel Record '71
Fiat 850 '70
Nýir bíiar
Cherokee '77
Jeep CJ 5 '77
Sunbeam 1 600 super 4ra dyra,
'77
Lancher 1 200 og 1400
2ja og 4ra dyra, '77
Galant Sigma '77
Hornet 4ra dyra sjálfskiptur
'77
Allt á sama stað
EGILL,
VILHJALMSSON
HF
Laugavegi 118 - Sími 15700
Al (iLVSIN(i.\SI.MINN EH:
22480
JRarjjimblníiiti
greiningu, myndbyggingu, hug-
myndagrundvöll og ýmis önnur
atriði, sem að gagni mega koma.
— Þátttakan i námskeiðunum
sem nú eru að hefjast, virðist ætla
að verða með ágætum, og því er
rétt að þeir sem hafa hug á að
sækja þau, tilkynni þátttöku sina
til safnsins sem fyrst. sagði Ölaf-
ur Kvaran að lokum.
HÖGGDEYFAÚRVAL
FJAÐRIR
KÚPLINGSDISKAR
KÚPLINGSPRESSUR
SPINDILKÚLUR
STÝRISENDAR
VIFTUREIMAR
KVEIKJUHLUTIR
FLEST í RAFKERFIÐ
HELLA aðalluktir, lukta-
gler, luktaspeglar og
margs konar rafmagns-
vörur
BOSCH luktiro.fi.
S.E.V. MARCHALL lukt-
ir
CIBIE luktir.
LJÓSASAMLOKUR
BÍLAPERUR allar gerðir
RAFMAGNSVÍR
FLAUTUR 6—24 volt
ÞURRKUMÓTOR
6—24v
ÞURRKUBLÖÐ
ÞURRKUARMAR
BREMSUBORÐAR
BREMSUKLOSSAR
ÚTVARPSSTENGUR
HÁTALARAR
SPEGLAR í úrvali
MOTTUR
HJÓLKOPPAR
FELGUHRINGIR
AURHLÍFAR
MÆLAR alls konar
ÞÉTTIGÚMMÍ OG LÍM
HOSUR
HOSUKLEMMUR
RÚÐUSPRAUTUR
FELGULYKLAR
LOFTPUMPUR
STÝRISHLÍFAR
KRÓMLISTAR
BENSÍNLOK
TJAKKAR l’/z—30T
VERKSTÆÐISTJAKKAR
FARANGURSGRINDUR
BÖGGLABÖND
ÞOKULJÓS
SMURSPRAUTUR
PÚSTRÖRAKLEMMUR
RAFKERTI
LOFTFLAUTUR
BENZÍNSÍUR
EIRRÖR+ FITTINGS
BRETTAKRÓM
VERKFÆRI
SLÍPIPAPPÍR
VATNSDÆLUR
ÞVOTTAKÚSTAR
BARNAÖRYGGIS-
STÓLAR
BARNABÍLBELTI
BÍLBELTI
HNAKKAPÚÐAR
ÖSKUBAKKAR
MÆLITÆKI f. rafgeyma
SWEBA sænskir úrvals
rafgeymar
ISOPON OG P-38 beztu
viðgerða- og fylliefnin
PLASTI-KOTE spray
lökkin til blettunar o.fl.
Athugið
allt úrvalið
l^^naust kt
Stðumúla 7—9
Sími82722