Morgunblaðið - 19.03.1977, Síða 17

Morgunblaðið - 19.03.1977, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977 17 Gunnar Eyjófsson (Clov) og Helgi Skúlason (Ilamm) f Endatafli Becketts. Lelklist eftir JÓHANN HJÁLMARSSON lega vandmeðfarið, skiptir sköpum í sýningunni. Gunnar Eyjólfsson sýnir þjónslund Clovs og uppreisn hans að lok- um. Með hógværum, en mark- vissum leik hefur hann áhorf- endur algerlega á valdi sinu. Það var gaman að sjá Gunnar í þessu hlutverki, en það er mjög ólíkt öðrum hlutverkum hans. Túlkun hans á Clov er land- vinningur á merkum leikara- ferli. Mér virðist að varla sé unnt að leika Beckett á tslandi án Arna Tryggvasonar, enda er tæpast kostur að skila hlutverki Naggs betur en Árni gerði. Nell Guðbjargar Þorbjarnardóttur sýndi hina kunnu leikkonu í nýju og óvæntu ljósi. Hún hef- ur ekki leikið álíka hlutverk áður. Túlkun hennar á Nell er eftirminnileg. Það fer einkar vel á því að á Litla sviði Þjóðleikhússins séu sýnd framúrstefnu- og absúrd- verk eins og Endatafl. Ein- hvern veginn finnst manni að Litla sviðið þurfi að vera vett- vangur tilrauna. Vonandi verð- ur svo í framtíðinni. En Enda- tafl Becketts eins og leikrit hans öll er að verða klassískt í leikritagerð aldarinnar. Enda- tafl var frumsýnt 1957 og er að vissu marki beint framhald Beðið eftir Godot. Athyglisverð er sú hugmynd sem kemur fram 1 bókarkafla eftir Jan Kott sem birtur er í leikskrá, að Beckett hafi sótt fyrirmynd sína að þeim Hamm og Clov til Jarlsins á Glostri og Játgeirs í Lé konungi eftir Shakespeare. Það er skemmtileg tilviljun að þessi verk eru nú flutt samtím- ist í Þjóðleikhúsinu. Ljóst ætti lika að vera að hinir mestu byltingarmenn í leikritun eru ekki jafn óháðir hefðum eins og margir vilja halda fram. Listin þróast aðeins i anda timans hverju sinni. LEIKLJÓÐ í ÖSKUTUNNUM Jafnvel kunnir og fastmótaðir leikarar sýndu á sér nýjar hlið- ar og á ég þá einkum við Gunn- ar Eyjólfsson og Guðbjörgu Þorbjarnardóttur. 1 leikritum Becketts skiptir að sjálfsögðu allt máli, hvert orð, hver hreyfing. Gervi per- sónanna er mikilvægt. „Við byggjum leikinn að miklu leyti kringum gervin og persónurnar í gervunum," segir leikstjórinn í fyrrnefndri hugleiðingu sinni. Þar stendur líka: „Ahorfand- inn á að finna að leikurinn er í gervi, ýktu, afskræmdu. Gervið á að undirstrika sálarástandið, hugboðið sem leikurinn lýsir. Gervin mega i senn virka óhugnanleg og afkáraleg." Þessi ætlun leikstjórans hefur að minu mati tekist. Gervi leik- aranna sem er verk Björns G. Björnssonar er frábært, en þá má ekki gleyma hlut Margrétar Matthíasdóttur, förðunar- og hárkollumeistara. Andlitsgervi Arna Tryggvasonar og Guðbjargar Þorbjarnardóttur bera handbragði hennar vitni. Leikmyndin miðlar réttum blæ endaloka og heimshruns. Helgi Skúlason leikur Hamm, Gunnar Eyjólfsson Clov. Fall- ast má á þann skilning leik- stjórans að Hamm sé likaminn, Clov sálin. Sálin verður frjáls þegar likaminn deyr. En ekki er nauðsynlegt að ráða öll tákn verksins. Sálin (Clov) getur í rauninni ekkert farið því að úti er auðn og tóm. Allt er sifelld endurtekning. Hamm er lamaður og blindur, bundinn við hjólastól, á allt undir Clov sem ekki getur set- ið. I öskutunnunum búa faðir hans og móðir, Nagg leikinn af Arna Tryggvasyni og Nell leik- inn af Guðbjörgu Þorbjarnar- dóttur. Þau eru dæmd til að búa í öskutunnum og verða að láta sér nægja að imynda sér að þau séu enn manneskjur. Þau eru hluti af hugarheimi og lífi Hamms sem er miðpunktur verksins, enda alltaf á miðju sviði nema þegar Clov ekur honum um. öll samskipti þeirra, orð og gerðir er eilíf endurtekning. Hver dagur er öðrum líkur, dauðinn líkn. Helgi Skúlason skilar hlut- verki Hamms af kunnáttu og öryggi. Þetta hlutverk er ákaf- ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ, LITLA SVIÐIÐ: ENDATAFL eftir Samuel Beckett. Þýðendur: Gylfi Baldursson og Jakob Möller. Lýsing: Kristinn Daníelsson. Leikmynd og búningar: Björn G. Björnsson. Leikstjóri: Hrafn Gunnlaugsson. LEIKRIT SAMUELS BECKETTS eru öðrum þræði ljóð. Leikljóð mætti kalla þau. Beckett ástundar hið hálf- kveðna í túlkun persóna sem komnar eru að leiðarlokum, eru að biða eftir einhverju sem þær vita ekki hvað er. Margt er gef- ið í skyn í samræðum persón- anna, en fátt sagt afdráttar- laust. Haldi áhorfandinn að hann sé að komast að niður- stöðu um tilgang höfundar er hann umsvifalaust sviptur þeirri blekkingu. Ný óræð setn- ing kliðar í eyrum hans, ný ráðning skýtur upp kollinum. Besta leiðin til að njóta leikrita Becketts er að nálgast þau á sama hátt og ljóð, leyfa þeim að orka á hugann uns þau ljúkast upp. „Beckett nefnir ekki hlutina og útskýrir, heldur sýnir okkur þá. Persónurnar tala ekki um angist sína, þær eru angistin sjálfÞetta eru orð leikstjór- ans, Hrafns Gunnlaugssonar, i Hugleiðingu um Endatafl í leik- skrá. Þar kemur fram margt fleira athyglisvert um Enda- tafl, enda sýningin grundvölluð á skilningi leikstjórans. Eg held að sýningin mótist að nokkru af því að leikstjórinn er sjálfur ljóðskáld og á auðvelt með að tileinka sér hugmyndaheim Becketts. Það gefur henni byr undir vængi. A sýningu Endatafls varð mér það ljóst sem stundum hef- ur hvarflað að mér að leikrit Becketts eiga sértaklega vel við íslenzka leikara. Sumir þeirra virðast fæddir Beckettleikarar eins og til dæmis Árni Tryggva- Son. Það er eitthvað í leikritum Guðbjörg Þorbjarnardóttir (Nell). Becketts sem höfðar til þeirra. Kannski er það hið ljóðræna andrúmsloft? Einnig mætti leiða getum að þvi að stjórn- leysi Becketts, hin kaldhæðna afstaða til lifsins væri þeim að skapi. Það skal ósagt látið. En Endatafl á islenzku leiksviði er enn einn sigur Becketts á Islandi og um leið leikaranna og ekki sist leikstjóra. I heild sinni vitnaði sýningin um öguð vinnubrögð og hugkvæmni. NAMSKEIÐIÐ SETT — Davið Oddsson, formaður Æskulýðs- ráðs, lengst til hægri á myndinni, setur námskeiðið. Á myndinni sést hluti þátttakenda. UM ÞESSAR mundir stendur á vegum Æsku- lýðsráðs Reykjavíkur fé- lagsmálanámskeið fyrir fulltrúa úr æskulýðsfélög- um f borginni. 45 unglingar á félagsmálanám- skeiði hjá Æskulýðsráði Rvíkur Námskeiðið er haldið að Fri- kirkjuvegi 11, og var sett af for- manni Æskulýðsráðs Reykjavik- ur, Davíð Oddssyni, sl. mánudags- kvöld. AIls eru þátttakendur 45, úr 13 skólafélögum, 3 æskulýðsfé- lögum safnaða, 2 barnastúkum, 1 skátafélagi og 2 ungtemplarafé- lögum. Á námskeiðinu eru kennd almenn undirstöðuatriði I starfi félaga, fundarstjórn, fundarsköp- um og ræðumennsku. Leiðbein- endur eru Tryggvi Gunnarsson og Ólafur Oddsson, en á námskeið- inu er stuðzt við námsefni frá Æskulýðsráði ríkisins. Æskulýðs- ráð Reykjavíkur stendur straum af ölluih kostnaði við námskeiðið, en það er einn þáttur i viðleitni til að styrkja frjálst félagsstarf æskufólks í borginni. Áframhaid á starfi þessu er fyrirhugað snemma í haust Heimspekifyrirlestur á vegum Félags áhugamanna „AÐ GERA og að vera“, eða „Sk.vldu stjórnmál hljóta að vera siðlaus?" nefnist fyrirléstur, sem Þorsteinn Gylfason lektor flytur í dag, sunnudag, á vegum Félags áhugamanna um heimspeki. Fjöltefli í gróðurhúsi og Bústaðakirkju AÐSTOÐARMENN skák- meistaranna Horts og Spasskys munu hafa nóg að gera um helgina. þvf þá tefla þeir fjöltefli bæði f Reykjavfk og úti á landi. Smyslov teflir f dag við Ak- ureyringa og á mánudaginn klukkan 20.30 teflir hann við sunnlenzka skákmenn f gróðurhúsinu Eden f Hvera- gerði. Dr. Alster teflir f dag við reykv/skt skólafólk f Bú- staðakirkju og hefst fjöltefl- ið þar klukkan 14. Erindi Þorsteins snýst um efni á mörkum heimspekilegrar sálar- fræði og siðfræði, aðallega um viljahugtakið og siðferðishugtak- ið. Fyrirlesturinn er fluttur i minningu enska heimspekingsins Gilberts Ryles, sem lézt á síöasta ári. Fundarstaður er Lögberg, hús lagadeildar Háskóla Islands og hefst fyrirlesturinn kl. 14.30 og er öllum opinn. Gilbert Ryle.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.