Morgunblaðið - 26.03.1977, Page 1

Morgunblaðið - 26.03.1977, Page 1
40 SIÐUR 69. tbl. 64. árg. LAUGARDAGUR 26. IVIARZ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. milli Rams Tassfréttastofan: Bandaríkjamanna að taka af skarið Simamynd-AP EBE 20 ÁRA — Giscard D’Estaing Frakklandsforseti, Leo Tindemann, forsætis- ráðherra Belgíu, Helmut Schmidt, kanslari V-Þýzkalands, Joop den Uyl, forsætis- ráðherra Hollands, og James Callaghan, forsætisráðherra Bretlands rabba saman skömmu fyrir 20 ára afmælisfund EBE í Róm ígær. Sjá frétt á bls. 19. Moskvu, 25. marz. AP-Reuter. ÞAÐ er Bandaríkjamanna að taka af skarið um framgang bættrar sambúðar Sovétríkjanna og Bandarfkjanna á næstunni segir f grein, sem einn helzti fréttaskýr- Jákvæðar viðræður Evensens í Moskvu andi Sovétríkjanna, Yuri Kornilov, ritaði og Tass- fréttastofan birti í kvöfd, daginn fyrir komu Cyrus Vance, utan- rfkisráðherra Bandarfkjanna, til Moskvu til viðræðna við sovézka ráðamenn. í greininni er lögð áherzla á möguleika á samkomulagi um SALT II og einnig í Miðaustur- löndum. Einnig er fjallað um auk- ið samstarf á sviði efnahags- og viðskiptamála, sem sagt er að ým- is bandarisk lög komi i veg fyrir og sameiginlegar aðgerðir til að banna og eyða eiturefnavopn- um. Kornilov segir að þjóðir heims séu sannfærðar um að viljinn til að halda frið muni að lokum ráða og að samskipti Bandaríkjanna og Sovétrikjanna muni komast i eðli- legt horf. Hins vegar segir Kornilov að margir stjórnmála- Framhald á bls 22. Deilur Moskvu, 25. mar/. NTB. FYRSTI viðræðufundur Jens Evensens, hafréttarmálaráð- herra Noregs, og Alexanders Ishkovs, sjávarútvegsráðherra Sovétrfkjanna, í 5. umferð fiskveiðisamninga landanna var í Moskvu í morgun og sagði Evensen að honum loknum að þeir hefðu einbeitt sér að þvf að reyna að komast að sam- komulagi um miðlínu á hinu umdeilda 60 þúsund fermflna svæði í Barentshafi. Evensen sagði að viðræðurnar hefðu verið mjög jákvæðar „enda ekki vanþörf á, þvf að mörg erfið vandamál eru óleyst." I þessum viðræðum verður ekkert fjallað um skiptingu fiskikvóta, en það verkefni hefur verið falið sérstakri nefnd norskra og sovézkra embættismanna, sem mun koma saman til fundar eftir páska i Ósló. Evensen sagði í dag að ógerningur væri að segja um hvort tækist að leysa öll vanda- Framhald á bls 22. og Desias leystar Gengið frá stjórnarmyndun í dag Nýju Delhí, 25. marz. AP. Seint f kvöld virtist sem tekist hefði að leysa deilurnar milli Morarji Desaí, forsætisráðherra Indlands, og Jagjivans Rams, leiðtoga Kongresslýðræðisflokksins, og að endanlega yrði gengið frá stjðrnar- myndun á morgun, laugardag. Desai birti f kvöld, eftir fund með Ram, lista með nöfnum 19 væntanlegra ráðherra f stjórninni og var nafn Rams þar næstefst á blaði. Ekkert var tilkynnt um verkaskiptingu ráðherranna. Stjórnmyndunin hefur nú tafist I tvo sólarhringa vegna deilna Desais og Rams, en Ram var mjög óánægður er Desai var útnefndur forsætisráðherra og sagði að ekki hefði verið ráðgast við sig og stuðningsmenn Rams sögðu sumir hverjir að einræðisskipulag hefði verið á valinu, en engin formleg atkvæðagreiðsla fór frarn. Þess f stað tilkynnti J.P. Narayan, einn af leiðtogum Janataflokksins, eft-' ir að hafa ráðgast við flokksmenn, að Desai væri hinn nýi leiðtogi Janataflokksins og 4. forsætisráð- herra Indlands frá því að það hlaut sjálfstæði. Deilurnar leystust siðan i kvöld. eftir að Desai hafði farið heint til Framhald á bls 22. Kúbumenn og Bandaríkja- menn á fyrsta fundi í 16 ár Washington 25. marz. Reuter AP FULLTRUAR Bandarfkjanna og Kúbu komu saman til fundar f New York í dag til að ra‘ða gagn- Er ógnaröld í upp- siglingu í Pakistan? Jslamabad, 25. marz. AP-Reuter. RlKISSTJÓRN Pakistans lét I dag handtaka alla leiðtoga stjórnarand- stöðunnar I landinu og tilkynning var gefin út um að hver sá sem tæki þátt I mótmælaaðgerðum, yrði staðinn að hermdarverkum og öðrum andófsaðgerðum á götum úti yrði skotinn. Handtökurnar og viðvörun- in eru gerðar skv. heimild f neyðar* tandslögum, sem enn gilda I landinu frá þvl að strfðið við Indverja stóð yfir árið 1971. Greip Zulfikar Ali Buttho, for- sætisráðherra landsins, til þess- ara aðgerða til að koma í veg fyrir allsherjarverkfall í landinu, sem stjórnarandstaðan hafði boðað á morgun til að leggja áherzlu á fjölþættar kröfur sínar á hendur forsetanum. Margir stjórnmála- fréttaritarar telja hugsaniegt að ógnaröld sé i uppsiglingu f land- inu. Miklar deilur og óeirðir hafa verið í landinu frá þvf að úrslit voru kunn í þingkosningunum, sem fram fóru 7. þessa mánaðar, en f þeim fékk þjóðarflokkur Bhuttos 155 þingsæti af 200, en stjórnarandstaðan aðeins 36. Hafa leiðtogar stjórnarandstöðuflokks- ins, Þjóðarbandalagsins, sem er samsteypa 9 flokka, sakað Bhutto um kosningasvik. Krefst hún þess að forsætisráðherrann segi af sér, öllum pólitískum föngum verði sleppt, neyðarástandinu aflýst og kosningarnar 7. marz ógiltar. Boðað allsherjarverkfall átti að koma til framkvæmda á morgun á sama tíma og nýkjörið þing kæmi saman f fyrsta skipti. Bhutto leysti þingið upp 9. janúar sl. og boðaði til nýrra kosninga. Bhutto hefur árangurslaust reynt að koma á viðræðufundi með stjórnarandstöðuleiðtogunum til að reyna að leysa vandamálin að þvf er stjórnmálafréttaritarar segja, en leiðtogarnir hafa sagt að ekki væri um neitt að semja. 80 manns hafa látið lífið í óeirð- unum í Karachi, Lahore, Multan og Hyderobad á si. 18 dögum og gífurlegt eignatjón orðið af völd- um fkveikju og sprengjutilræða. kvæm fiskvciðiréttindi og mið- línu í kjölfar þess að báðar þjóðir færðu fiskveiðilögsögu sína út í 200 mflur 1. marz sl. Er þetta fyrsti fundur fulltrúa þjóðanna í 16 ár. Ekki var skýrt frá fundar- staðnum f New York í öryggis- skyni og talsmaður bandaríska utanrfkisráðuneytisins neiaði að segja hvort önnur mál en fisk- veiðimál hefðu verið ra*dd á fund- inum i dag. 8 fulltrúar frá báðum þjóðum tóku þátt í viðræðunum og gerðu grein fyrir afstöðu rfkisstjórna sinna og svöruðu spurningum. Fleiri slikir fundir eru ráðgerðir á næstu vikum, en ekki verður skýrt frá þeim fyrirfram. Svæðið, sem þarf að skipta er um 200 þúsund fermílur og er talið hugsanlegt að miðlinan verði dregin mitt á milli strandar S- Flórida og norðurodda Kúbu. Bandarikjamenn hafa gengið frá fiskveiðisamningum við margar þjóðir og hafa sérfræðingar á þvi sviði jafnan verið í forsvari fyrir samninganefndunum. í dag var það hins vegar Terence A. Todman aðstoðarutanríkisráð- herra, sein var formaður nefndar- innar og því er talið að rætt hafi verið um önnum mál en fiskveiði- mál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.