Morgunblaðið - 27.03.1977, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.03.1977, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ.SUNNUDAGUR 27. MARZ 1977 Móðir min INGIBJORG M. ÞÓROARDÓTTIR (DÍDÍ) frá Þorkelshóli Skúlagötu 72 andaðist 1 Landsspitalanum 25 marz Jarðaförin auglýst siðar Fyrir hönd aðstandenda Ragnar Austmar. t Dóttir min og systir SIGRÍÐUR JÓSTEINSDÓTTIR, er látin Emilla V. HúnfjörB. Jóna Jósteinsdóttir. t Sonur minn GUÐBJARTUR ÞÓRÐUR PÁLSSON. sem lést 21 marz. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 29 marz kl 3 siðdegis. Fyrir hönd barna, barnabarna og systkina híns látna Arndls ÞórBardóttir, Ólafur Ólafsson, Laufásveg 27. + HÖSKULDUR ÁRNASON gullsmiSur Sundstrnti 39. ísafirSi f. 6.6.'98 d. 21.3.‘77 verður jarðsunginn frá isafjarðarkirkju þriðjudaginn 29 marz kl. 2 00 e h AuBur GuBjónsdóttir böm. tengdabórn og bamaböm hins látna. + Útför eiginmanns míns og föður okkar MARELS S.V. BJARNASONAR HólmgarBi 10 fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 28. mars kl. 3 e.h. Sigurást Anna Sveinsdóttir Margrét I. Marelsdóttir Sveinn Marelsson + Minningarathöfn um ÓLAF JÓNASSON naeturvörB aB Reykjalundi. sem ættaBurerfrá KúastöBum, Svartárdal. fer fram mánudaginn 28 marz kl. 1 4 að Reykjalundi Sæberg ÞórBarson. + Hjartanlegar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför SIGURLÍNU HJÁLMARSDÓTTUR frá Tungu Daetur, fósturböm. bamabörn og aBrir aBstandendur. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóð ur, ömmu og langömmu GUÐRÚNAR GÍSLADÓTTUR Holti NeskaupstaB SigþrúBur SigurBardóttir Jón Finnbogason Jón Svan SigurBsson Jóna 1. Jónsdóttir Valur SigurBsson Hulda Hannesdóttir Leifur Örn Dawson Camilla Ragnars bamabörn og bamabamabörn. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur hlýhug í veikindum og við andiát og útför HERMÓÐS GUÐMUNDSSONAR. Arnesi Sérstakar þakkir til Kirkjukórs Skútustaðasóknar, sem annaðist söng og gaf alla sína vinnu Einnig Búnaðarsambands S-Þing Ræktunarsambandsins Arðs og Búnaðarfélags Aðaldæla, sem heiðruðu minningu hans með að kosta að öllu leyti útförina Jóhanna ÁlfheiBur Steingrlmsdóttir Völundur HermóBsson Halla L. Lof tsdóttir SigrlBur R. HermóBsdóttir Stefán Skaftason Hildur HermóBsdóttir Jafet S. Ólafsson Hilmar HermóSsson Áslaug A. Jónsdóttir. Jóhanna Jónsdóttir frá Innri Bug Minning Dáðir djúpra róta, dyljast þeim er skunda. Lindir himinhreinar hl jóðar verk sitt stunda. Þokkagyðjur þjóða þannig sífellt vinna sem að dug og dáðum dásamlega hlynna ((■uðm. Friðjónss.) Hinn 22. f.m. andaðist á sjúkra- húsinu í Stykkishólmi Jóhanna Jónsdóttir, föðursystir min. Jó- hanna var 18. barn þeirra hjóna Jóhönnu Vigfúsdóttur og Jóns Jónssonar hreppsstjóra á Elliða í. Staðarsveit, fædd 4. júlí 1888. Foreldrar hennar höfðu þá þeg- ar fylgt 10 börnum sínum til graf- ar — barnaveikin var í algleym- ingi á þeim árum. Mun ekki vonin og kvíðinn hafa barist um völdin í hjarta þeirra þennan bjarta júlídag, þar sem þau horfðu á litlu stúlkuna ný- fæddu, myndu þau fá að halda henni hjá sér? Ég hef oft reynt að setja mig í spor þessara margreyndu hjóna, sem voru afi minn og amma. Það fór þó svo að litla stúlkan átti langa ævi fyrir höndum. En afleiðingar þessa barnsburðar urðu dauðamein möðurinnar, eft- ir viku var hún látin. Litla stúlk- an hlaut nafn móður sinnar og varð augasteinn föður sins i raun- um hans. Stefania, sem var elst af systkinunum, gekk henni í móðurstað fyrstu árin. Það reyndi snemma á andlegt og likamlegt þrek þeirrar konu, en það er önn- ur saga. Þegar Jóhanna var á 4. árinu deyr faðir hennrdar úr blæðandi magasári. Hún mundi hann vel, þótt ung væri er hann lést. Þraut- ir hins margreynda manns fóru ekki fram hjá næmu skyni barns- hjartans. Um það ræddum við eitt sinn fyrir löngu. Jóhönnu er nú komið í fóstur tii þeirra sæmdarhjóna Guðrúnar Ólafsdóttur og Stefáns Guð- mundssonar, hreppsstjóra á Borg í Miklaholtshreppi. Systkinin hjálpuðust að því að gefa með henni. Þegar Halldór bróðir henn- ar stofnaði heimili fór hún til hans. En Halldór var giftur Ingi- ríði Bjarnadóttur, mikilli gáfu- og gæðamanneskju. Enda var Jó- hanna hjá þeim þar til hún sjálf stofnar heimili. Árið 1910 giftist hún unnusta sínum Þorgils Þor- giissyni og byrjuðu þau búskap að Bjarnarfosskoti í Staðarsveit, en fluttust til Ólafsvíkur eftir nokk- ur ár og siðar að Innri-Bug í Fróð- árhreppi, sem þau keyptu. Helg- SJÓN ER SÖGU RÍKARI. BENCO, Bolholti 4, Reykjavík. Sími 91 — 21945 ÞAÐ SEM ÞÚ ÆTTIR AÐ VITA UM COMBI-CAMP 2000: £ Mest seldi tjaldvagn á norðurlöndum. 4) Tekur aðeins 15 sek. að tjalda 2 nýjar gerðir af tjöldum. 0 Svefnpláss fyrir 2 fullorðna og 3 börn. 0 Möguleikará 11 ferm. viðbótartjaldi. 0 Sérstaklega styrktur undirvagn fyrir isl. aðstæður. 0 Okkar landskunna varahluta- og viðgerðarþjónusta. % Combi-Camp er stórkostlegur ferðafélagi. KOMIÐ! SKOÐIÐ! SANNFÆRIST! t Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð við andlát og jarðarf ör eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu ÖNNU SVEINSDÓTTUR frá Varmalandi Sigurður Konráðsson böm. tengdaböm og bamaböm. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNSBRANDSSONAR Kirkjuveg 37, Keflavlk Böm. tengdabörn og bamabóm. uðu þau þeirri jörð alla krafta sina og starfsorku meðan fært var. Síðustu 14 árin áttu þau heima i Ólafsvik. Þorgils andaðist árið 1975, höfðu þau þvi lifað saman i 65 ár. Börn þeirra eru: Guðlaug, ekkja, búsett í Reykjavík, Sólveig, dáin fyrir nokkrum árum, Þorgils, klæðskeri, búsettur í Reykjavík, kvæntur Steinunni Jóhannsdótt- ur, Jóhann, búsettur i Reykjavík og Óskar verkstjóri í Ólafsvík, kvæntur þýskri konu, Ingibjörgu að nafni. Auk þess ólu þau upp Dagmar Guðmundsdóttur, sem kom til þeirra tveggja ára gömul. Þetta eru aðeins örfáir drættir úr langri og stórbrotinni ævisögu. Jóhanna sagði mér sjálf, að hún hefði verið svo lánsöm að lenda í fóstri hjá góðu fólki, þegar faðir hennar dó. Systkinin munu hafa borið hana á höndum sér eftir því sem í þeirra valdi stóð. Munu ekki brennheitar bænir foreldranna hafa fylgt litlu stúlkunni, sem svo snemma varð að sjá þeim á bak. Eitt er víst, Jóhanna var búin óvenjulega miklu andlegu atgervi og sálarþreki. Hlutur einyrkjans hefur löng- um þótt erfiður og margur hefur þar fyrir goldið með heilsu sinni. Ekki er mér grunlaust um, að svo hafi veri með Jóhönnu frænku mína. Síðustu 20 árin voru hækjan og stafurinn förunautar hennar við dagleg störf. Undr- andi var ég á því hverju hún fékk afkastað með þessum hætti. En aldrei heyrði ég hana kvarta. Með bros á vör tók hún á móti manni og veitti ríkulega af nægtum kær- leika sins á sinn hógværa og kyrr- láta hátt. Þá sjaldan að fundum okkar bar saman, fór ég ávallt ríkari en ég kom. Enda varð mér stundum á að segja, ef fólk var að nöldra út af smámunum, að þau hefðu gott af þvi að heimsækja hana Jóhönnu frá Innri-Bug. Best munu börnin hennar og barna- börnin hafa fundið hve mikið au áttu þar sem hún var. Þau vildu líka allt fyrir hana gera sem unnt var. Þungur harmur var að þeim hjónum kveðinn, er Sóveig dóttir þeirra dó á besta aldri frá stórum barnahópi. Mér er minnisstætt er ég hitti Jóhönnu, skömmu eftir að hún svona fötluð, hafði lagt á sig erfiða ferð til þess að kveðja Sól- veigu, sem þá lá banaleguna. ,,Ég var að kveðja Sollu mina,‘ sagði hún. Það blikuðu tár í augunum en ekki brást henni röddin, svo mikla stjórn hafði hún á tilfining- um sínum. Jóhanna frænka mín var trúuð kona. Hún treysti fyrirheiti Frels- arans: ,,Ég er upprisan og lífið, sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.“ Hún hlakkaði til endurfundanna við ástvini sina í Ijósi þessa fyrirheits. Þess vegna beið hún þolinmóð eftir kallinu hinsta, þegar kraftar þrutu svo ekki varð lengur aðhafst. Það er undarlega bjart yfir sumu fólki, þrátt fyrir alla erfið- leika. Nýjum degi er heilsað á landi lifenda. Það bíða vinir í varpa, sem von er á gesti. Litla stúlkan frá Elliða hefur lokið langri og stundum erfiðri ferð og fyllt hóp ástvinanna, sem á undan voru gengnir. Hjn var góður fulltrúi þeirra í hjartahlýju og þolgæði. Guð blessi minningarnar um göfuga konu. Og mun nú ekki bjart um hóp- inn hennar ömmu? Ég trúi því. Jóhanna Vigfúsdottir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.