Morgunblaðið - 27.03.1977, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ.SUNNUDAGUR 27. MARZ 1977
GRANI göslari
Þaö er þella með kvenfólk, þella kvenlega, sem ég er svo veikur
fyrir!
Nei, herra, þetta er ekki rétt-
ur—, heldur nafn kokksins!
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Það er líkt með bridgespilara og
veiðimanni, að báðir hugsa mikið
um þá, sem sluppu. Að lokinni
rúbertukeppni hafði einn spilar-
anna sögu að segja um siðasta
spilið.
Gjafari suður, A—V á hættu.
Norður
S. D104
H. DG93
T. K86
L. KD9
Vestur Austur
S. K3 S. G92
H. Á108762 H. K54
T. ÁG3 T. 1094
L. G5 L. 10874
Suður
S. Á8765
H. —
Hver vill tvo fimm hundruð kalla til að fara í bíó
fyrir.
Hirðu-
leysi
um eigur
annarra
„Kæri Velvakandi.
Ætíð sæll og blessaður og þakka
þér fyrir síðast. Hallgrímur
Pétursson er þjóðskáld okkar Is-
lendinga. Ef við hefðum ekki
sálma hans væri ekki um svo auð-
ugan garð að gresja í bókmennt-
um okkar Islendinga, þó að
undanskildu sögualdarbókmennt-
um okkar. Mörg krafta- og
ákvæðaskáld höfum við átt.
En það var ekki ætlunin að gera
hér grein fyrir bókmenntum eða
skáldskap. Það sem vakti fyrir
mér með því að skrifa þessar lín-
ur var að vekja athygli bæjaryfir-
valda og borgarstjórnar á því
hirðuleysi sem rfkir hjá þeim,
sem nota áhöld frá bænum og á ég
þar heizt við bifreiðar, sem notað-
ar eru hjá hreinsunardeildinni.
Ég vil taka það fram að ég starfa
hjá hreinsunardeildinni og get
því talað af reynslu. Margoft hafa
tækin lent á verkstæði vegna van-
kunnáttu og hirðuleysis starfs-
manns. Þetta kostar allt peninga
og tima og auðvitað er þetta tekið
úr okkar vösum skattborgaranna.
Sumu af þessu má líkja við
hreina skemmdarverkastarfsemi
og skæruhernað. T.d. þegar stóll-
inn brotnar, sem tunnurnar eru
hífðar i, þvi að það er vitavert
gáleysi að búa svo um hnútana að
heilu vinnuflokkarnir eru að-
gerðarlausir heilu dagana. Ég tala
nú ekki um þau vinnubrögð sem
eru hjá sumum yfirmönnum í
bæjarvinnunni. Þeir hreinlega
sjá ekki skóginn fyrir trjánum.
Þegar svo ymprað er á einhverj-
um umbótum stinga þeir höfðinu
í sandinn og afsaka sig með því að
þeir verði að fara að landslögum.
Samt er það þeirra vilji að koma
sem flestum verkamönnum í gröf-
ina og það helzt lifandi.
Annað það sem er í ólestri hjá
bænum eru bótakröfurnar. Það
var samþykkt á fundi í Lindarbæ,
að mig minnir, um leið og bónus-
kerfið var tekið upp, að bærinn
borgaði skemmdir, sem starfs-
menn hans yllu. Það hafa orðið
vanefndir á þvi. Sem dæmi um
það ætla ég að nefna eftirfarandi
atburð. Einn „öskukall" braut
rúðu með kerru sinni á Ránargöt-
unni. Rúðan kostaði ísett 750,- kr.
Húseigandinn krafðist bóta, en
dráttur varð á framkvæmdum. Þá
tók hann til sinna ráða og setti
rúðuna i sjálfur og sendi bænum
sfðan reikninginn. Þetta sagði
hann mér sjálfur og get ég nafn-
greint hann ef út i það er farið.
En hverjar niðurstöðar á málinu
urðu veit ég ekki, hvort reikn-
ingurinn var endursendur eða
ekki.
Ég er ekki að mæla með þvi að
viðkomandi aðili sé látinn víkja
úr starfi, en samt er nokkur hætta
á því að farið sé að vantreysta
slíkum vinnukröftum. Við höfum
átt við ýmsa erfiðleika að etja, þar
á meðal þrjú þorskastrið, en ekki
gefist upp og lagt árar í bát. Geir
Hallgrímsson og stjórn hans hafa
staðið síg með prýði í þeirri bar-
áttu. Samt er ekki loku fyrir það
skotið að spónn falli úr aski hans,
ef fjórða þorskastríðið hefst og
Bretar fara að beita sér af alvöru.
Við skulum ekki gera okkur nein-
ar gyllivonir um áframhaldandi
sigra, ef við gerum ekki neinar
varúðarráðetafanir.
Með kærri kveðju,
Guðjón frá Mörk.“
Velvakandi getur nú tæpast séð
hvaða sakir eru fyrir hendi í bóta-
málinu, sem bréfritari nefnir, ef
lyktir þess eru ekki kunnar.
Reikningur var sendur, væntan-
lega greiðir borgin ekki fé nema
gegn framvísun reikninga. En
hvað um það — hirðuleysi er til á
flestum sviðum og fólk ber ekki
alltaf nógu mikla virðingu fyrir
því sem aðrir eiga.
# Um afnám
almennra
prestkosninga
„Það væri þarfaverk ef Al-
þingi og þjóðkirkjan gætu komið
sér saman um að létta af fólki á
einhvern hátt hinu fúla and-
streymi sem fylgir prestskosning-
um í núverandi mynd.
Ekki er alltaf hátt risið á um-
ræðum manna á meðal í Alþingis-
kosningum. En varla leggst það
skraf nokkurn tíma jafn lágt og
þegar á að velja sér sálusorgara.
Áhugaleysi almennt á kirkjumál-
um kemur fram, þar sem aðeins
einn prestur er í kjöri. Þá getur
kjörsókn orðið það aum að ekki
T. D752
L. Á632
Sagnirnar voru dálitið óeðlileg-
ar en vestur og austur sögðu alltaf
pass. Suður opnaði á einum spaða
og norður sagði tvö lauf. Suður
endursagði þá spaðalit sinn og
norður hækkaði í fjóra.
Vestur, sem einkennilegt nokk
hafði alltaf sagt pass, spilaði út
hjartaás en suður trompaði. Hann
tók þvínæst á spaðaás og spilaði
aftur spaða. Vestur skipti í lauf-
gosa, tekið i blindum og hjarta-
kóngurinn píndur af austri. Sagn-
hafi tók nú síðasta trompið af
austri með drottningu og spilaði
tígli frá blindum. Vestur tók
drottninguna með ás og spilaði sig
út á laufi.
„Þið sjáiö nú stöðuna," sagði
sagnhafi við nokkra áhugasama
áheyrendur. „Tígulkóngurinn
hótar vestri, að hann verði settur
inn á gosann svo hann verður að
láta hann í og þá get ég tekið á
hjartagosann og spilað siðan tígli.
Austur á þá bara eftir lauf á
hendinni og ég fæ tvo síðustu
slagina heima.“
„Mjög laglegt," sagði einn
spilarinn, sem beið eftir að geta
sagt frá öðru spili sjálfur. „Hvað
vannstu rúbertuna með mörgum
puntkum?“
„Því miður engurn," svaraði
spilarinn, „ég tók á hjartagosa og
fór tvo niður."
ROSIR - KOSSAR - 0G DAUÐI
Framhaldssaga eftir Mariu
Lang
Jóhanna Krist|ónsdóttir
þýddi
66
að forláta mér að grunur
manns beinist ögn að þér. Þú
virkar þannig á mig — afsak-
aðu hreinskilnina — eins og
samvizkan sé að íþyngja þér og
það ekki svo iftið.
Lýsing Christers var vissu-
lega sannfærandi og (ó gramd-
ist mér að Otto tók gagnrýni
hans rétt eins og hverju öðru,
auðmjúkur og feiminn f stað
þess að bera af sér.
— Ég freistaðist æ meira til
að brjóta heilann um af hverju
óstyrkur þinn stafaði, hélt
Christer áfram — og reyna að
finna orsakir fyrir honum. Og
smám saman barði ég saman
Ijómandi snyrtilega kenningu
um það...
Það var erfitt að skera úr um,
hversu alvarlegur hann var. En
það sem hann setti sfðan fram
og við kölluðurn sfðar „kenn-
ingin um Otto Malmer" var
bæði sannfærandi og hispurs-
laust og af öllu mátti Ijóst vera
að hann sló ryki f augu ýmissa
tilheyrenda sinna.
— Otto hefur sjálfur viður-.
kennt að hann þjáist f rfkum
mæli af minnimáttarkennd og
að hann sé sjúklega hlédrægur
gagnvart fólki. En þó skyldí
maður ekki túlka framkomu
hans á þann veg að hann eigi
ekki til sfnar sterku tiifinning-
ar og kenndir. Ég er sannfærð-
ur um að honum hefur þótt
mjög vænt um föður sinn, enda
þótt ég hallist að þvf að þar hafi
þrælsóttinn svokallaði vegið
þyngra á metunum. En alveg
sérstaklega er hann tengdur
konu sinni — tilfinningalega.
Helene hrökk við en ég vissi
ekki hvort viðbrögð hennar
voru sprottin af viðbjóði eða
undrun.
Christer sem einblfndi á Otto
spurði hægt.
— Má ég halda áfram...
Hjónaband ykkar er að þvf er
mér skilst afskaplega
óhamingjusamt samband, en ég
fmynda mér að Otto hafi þó
verið sæmilega ánægður meðan
hann gat fengið Helene til að
vera um kyrrt hér í Rauðhól-
um, og af fjárhagsástæðum var
hún tilneydd... En Frederik
Malmer sem var vitur gamall
maður gerði sér æ betur grein
fyrir þvf hversu mikil áþján
þetta lff var fyrir tengdadóttur
hans og þar sem það hafði upp-
haflega verið hann sem kom
þessu hjónabandi f kring fann
hann til ákveðinnar ábyrgðar
að þessu leyti. Nú hef ég fengið
á tilfinninguna að hamingja
Gabriellu og lukka hafi farið
sérstaklega mikið f taugarnar á
Ilelene og þegar hún horfði
upp á það sýknt og heilagt að
Pia var stöðugt að fara á stefnu-
mót við Björn Udgren og Puck
og Einar gengu um og lýstu af
hamingju og fullnægju langar
leiðir, hafi taugar hennar ekki
þolað þetta og á sunnudaginn
eftir klukkan hálfsjö grét hún
út við barm... tengdaföður
sfns. Tár hennar þá voru með-
valdur f þvf að hann sem hafði
reyndar áður hugsað sér að
breyta erfðaskrá sinni
ákvað að gera það og lofaði
henni að hún fengi hlutdeild f
arfinum.
Ég býst við að Otto hafi fyrir
tilviljun heyrt samtal ykkar ef
hann hefur til dæmis verið að
störfum fyrir utan gluggann
eða að llelene hefur ekki getað
á sér setið að hrósa sigri við
hann. Og sfðan kom til nýrra
átaka inni á skrifstofunni. Þá
reyndi Otto að fá föður sinn til
að endurskoða afstöðu sfna og
bað hann lengstra orða að
stuðla ekki að þvf að Helene
yrði efnaleg óháð, svo að hún
gæti farið. Faðirinn hefur oröið
svo fjúkandi vondur að þessi
bræði hefur sfðan orsakað að
hann fékk hjartaáfallið. Én
áður en Otto kom að máli við
hann hafði hann — ÁN ÞESS
OTTO VISSI — skrífað nýju
erfðaskrána.
Hann talaði lágt en af svo
miklum þunga að við gleymd-
um bæði stund og stað og aftur
fannst okkur við upplifa þann
hræðilega sólarhring sem þess-
ir atburðir höfðu gerzt á.