Morgunblaðið - 27.03.1977, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 27.03.1977, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ.SUNNUDAGUR 27. MARZ 1977 GRANI göslari Þaö er þella með kvenfólk, þella kvenlega, sem ég er svo veikur fyrir! Nei, herra, þetta er ekki rétt- ur—, heldur nafn kokksins! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Það er líkt með bridgespilara og veiðimanni, að báðir hugsa mikið um þá, sem sluppu. Að lokinni rúbertukeppni hafði einn spilar- anna sögu að segja um siðasta spilið. Gjafari suður, A—V á hættu. Norður S. D104 H. DG93 T. K86 L. KD9 Vestur Austur S. K3 S. G92 H. Á108762 H. K54 T. ÁG3 T. 1094 L. G5 L. 10874 Suður S. Á8765 H. — Hver vill tvo fimm hundruð kalla til að fara í bíó fyrir. Hirðu- leysi um eigur annarra „Kæri Velvakandi. Ætíð sæll og blessaður og þakka þér fyrir síðast. Hallgrímur Pétursson er þjóðskáld okkar Is- lendinga. Ef við hefðum ekki sálma hans væri ekki um svo auð- ugan garð að gresja í bókmennt- um okkar Islendinga, þó að undanskildu sögualdarbókmennt- um okkar. Mörg krafta- og ákvæðaskáld höfum við átt. En það var ekki ætlunin að gera hér grein fyrir bókmenntum eða skáldskap. Það sem vakti fyrir mér með því að skrifa þessar lín- ur var að vekja athygli bæjaryfir- valda og borgarstjórnar á því hirðuleysi sem rfkir hjá þeim, sem nota áhöld frá bænum og á ég þar heizt við bifreiðar, sem notað- ar eru hjá hreinsunardeildinni. Ég vil taka það fram að ég starfa hjá hreinsunardeildinni og get því talað af reynslu. Margoft hafa tækin lent á verkstæði vegna van- kunnáttu og hirðuleysis starfs- manns. Þetta kostar allt peninga og tima og auðvitað er þetta tekið úr okkar vösum skattborgaranna. Sumu af þessu má líkja við hreina skemmdarverkastarfsemi og skæruhernað. T.d. þegar stóll- inn brotnar, sem tunnurnar eru hífðar i, þvi að það er vitavert gáleysi að búa svo um hnútana að heilu vinnuflokkarnir eru að- gerðarlausir heilu dagana. Ég tala nú ekki um þau vinnubrögð sem eru hjá sumum yfirmönnum í bæjarvinnunni. Þeir hreinlega sjá ekki skóginn fyrir trjánum. Þegar svo ymprað er á einhverj- um umbótum stinga þeir höfðinu í sandinn og afsaka sig með því að þeir verði að fara að landslögum. Samt er það þeirra vilji að koma sem flestum verkamönnum í gröf- ina og það helzt lifandi. Annað það sem er í ólestri hjá bænum eru bótakröfurnar. Það var samþykkt á fundi í Lindarbæ, að mig minnir, um leið og bónus- kerfið var tekið upp, að bærinn borgaði skemmdir, sem starfs- menn hans yllu. Það hafa orðið vanefndir á þvi. Sem dæmi um það ætla ég að nefna eftirfarandi atburð. Einn „öskukall" braut rúðu með kerru sinni á Ránargöt- unni. Rúðan kostaði ísett 750,- kr. Húseigandinn krafðist bóta, en dráttur varð á framkvæmdum. Þá tók hann til sinna ráða og setti rúðuna i sjálfur og sendi bænum sfðan reikninginn. Þetta sagði hann mér sjálfur og get ég nafn- greint hann ef út i það er farið. En hverjar niðurstöðar á málinu urðu veit ég ekki, hvort reikn- ingurinn var endursendur eða ekki. Ég er ekki að mæla með þvi að viðkomandi aðili sé látinn víkja úr starfi, en samt er nokkur hætta á því að farið sé að vantreysta slíkum vinnukröftum. Við höfum átt við ýmsa erfiðleika að etja, þar á meðal þrjú þorskastrið, en ekki gefist upp og lagt árar í bát. Geir Hallgrímsson og stjórn hans hafa staðið síg með prýði í þeirri bar- áttu. Samt er ekki loku fyrir það skotið að spónn falli úr aski hans, ef fjórða þorskastríðið hefst og Bretar fara að beita sér af alvöru. Við skulum ekki gera okkur nein- ar gyllivonir um áframhaldandi sigra, ef við gerum ekki neinar varúðarráðetafanir. Með kærri kveðju, Guðjón frá Mörk.“ Velvakandi getur nú tæpast séð hvaða sakir eru fyrir hendi í bóta- málinu, sem bréfritari nefnir, ef lyktir þess eru ekki kunnar. Reikningur var sendur, væntan- lega greiðir borgin ekki fé nema gegn framvísun reikninga. En hvað um það — hirðuleysi er til á flestum sviðum og fólk ber ekki alltaf nógu mikla virðingu fyrir því sem aðrir eiga. # Um afnám almennra prestkosninga „Það væri þarfaverk ef Al- þingi og þjóðkirkjan gætu komið sér saman um að létta af fólki á einhvern hátt hinu fúla and- streymi sem fylgir prestskosning- um í núverandi mynd. Ekki er alltaf hátt risið á um- ræðum manna á meðal í Alþingis- kosningum. En varla leggst það skraf nokkurn tíma jafn lágt og þegar á að velja sér sálusorgara. Áhugaleysi almennt á kirkjumál- um kemur fram, þar sem aðeins einn prestur er í kjöri. Þá getur kjörsókn orðið það aum að ekki T. D752 L. Á632 Sagnirnar voru dálitið óeðlileg- ar en vestur og austur sögðu alltaf pass. Suður opnaði á einum spaða og norður sagði tvö lauf. Suður endursagði þá spaðalit sinn og norður hækkaði í fjóra. Vestur, sem einkennilegt nokk hafði alltaf sagt pass, spilaði út hjartaás en suður trompaði. Hann tók þvínæst á spaðaás og spilaði aftur spaða. Vestur skipti í lauf- gosa, tekið i blindum og hjarta- kóngurinn píndur af austri. Sagn- hafi tók nú síðasta trompið af austri með drottningu og spilaði tígli frá blindum. Vestur tók drottninguna með ás og spilaði sig út á laufi. „Þið sjáiö nú stöðuna," sagði sagnhafi við nokkra áhugasama áheyrendur. „Tígulkóngurinn hótar vestri, að hann verði settur inn á gosann svo hann verður að láta hann í og þá get ég tekið á hjartagosann og spilað siðan tígli. Austur á þá bara eftir lauf á hendinni og ég fæ tvo síðustu slagina heima.“ „Mjög laglegt," sagði einn spilarinn, sem beið eftir að geta sagt frá öðru spili sjálfur. „Hvað vannstu rúbertuna með mörgum puntkum?“ „Því miður engurn," svaraði spilarinn, „ég tók á hjartagosa og fór tvo niður." ROSIR - KOSSAR - 0G DAUÐI Framhaldssaga eftir Mariu Lang Jóhanna Krist|ónsdóttir þýddi 66 að forláta mér að grunur manns beinist ögn að þér. Þú virkar þannig á mig — afsak- aðu hreinskilnina — eins og samvizkan sé að íþyngja þér og það ekki svo iftið. Lýsing Christers var vissu- lega sannfærandi og (ó gramd- ist mér að Otto tók gagnrýni hans rétt eins og hverju öðru, auðmjúkur og feiminn f stað þess að bera af sér. — Ég freistaðist æ meira til að brjóta heilann um af hverju óstyrkur þinn stafaði, hélt Christer áfram — og reyna að finna orsakir fyrir honum. Og smám saman barði ég saman Ijómandi snyrtilega kenningu um það... Það var erfitt að skera úr um, hversu alvarlegur hann var. En það sem hann setti sfðan fram og við kölluðurn sfðar „kenn- ingin um Otto Malmer" var bæði sannfærandi og hispurs- laust og af öllu mátti Ijóst vera að hann sló ryki f augu ýmissa tilheyrenda sinna. — Otto hefur sjálfur viður-. kennt að hann þjáist f rfkum mæli af minnimáttarkennd og að hann sé sjúklega hlédrægur gagnvart fólki. En þó skyldí maður ekki túlka framkomu hans á þann veg að hann eigi ekki til sfnar sterku tiifinning- ar og kenndir. Ég er sannfærð- ur um að honum hefur þótt mjög vænt um föður sinn, enda þótt ég hallist að þvf að þar hafi þrælsóttinn svokallaði vegið þyngra á metunum. En alveg sérstaklega er hann tengdur konu sinni — tilfinningalega. Helene hrökk við en ég vissi ekki hvort viðbrögð hennar voru sprottin af viðbjóði eða undrun. Christer sem einblfndi á Otto spurði hægt. — Má ég halda áfram... Hjónaband ykkar er að þvf er mér skilst afskaplega óhamingjusamt samband, en ég fmynda mér að Otto hafi þó verið sæmilega ánægður meðan hann gat fengið Helene til að vera um kyrrt hér í Rauðhól- um, og af fjárhagsástæðum var hún tilneydd... En Frederik Malmer sem var vitur gamall maður gerði sér æ betur grein fyrir þvf hversu mikil áþján þetta lff var fyrir tengdadóttur hans og þar sem það hafði upp- haflega verið hann sem kom þessu hjónabandi f kring fann hann til ákveðinnar ábyrgðar að þessu leyti. Nú hef ég fengið á tilfinninguna að hamingja Gabriellu og lukka hafi farið sérstaklega mikið f taugarnar á Ilelene og þegar hún horfði upp á það sýknt og heilagt að Pia var stöðugt að fara á stefnu- mót við Björn Udgren og Puck og Einar gengu um og lýstu af hamingju og fullnægju langar leiðir, hafi taugar hennar ekki þolað þetta og á sunnudaginn eftir klukkan hálfsjö grét hún út við barm... tengdaföður sfns. Tár hennar þá voru með- valdur f þvf að hann sem hafði reyndar áður hugsað sér að breyta erfðaskrá sinni ákvað að gera það og lofaði henni að hún fengi hlutdeild f arfinum. Ég býst við að Otto hafi fyrir tilviljun heyrt samtal ykkar ef hann hefur til dæmis verið að störfum fyrir utan gluggann eða að llelene hefur ekki getað á sér setið að hrósa sigri við hann. Og sfðan kom til nýrra átaka inni á skrifstofunni. Þá reyndi Otto að fá föður sinn til að endurskoða afstöðu sfna og bað hann lengstra orða að stuðla ekki að þvf að Helene yrði efnaleg óháð, svo að hún gæti farið. Faðirinn hefur oröið svo fjúkandi vondur að þessi bræði hefur sfðan orsakað að hann fékk hjartaáfallið. Én áður en Otto kom að máli við hann hafði hann — ÁN ÞESS OTTO VISSI — skrífað nýju erfðaskrána. Hann talaði lágt en af svo miklum þunga að við gleymd- um bæði stund og stað og aftur fannst okkur við upplifa þann hræðilega sólarhring sem þess- ir atburðir höfðu gerzt á.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.