Morgunblaðið - 30.03.1977, Side 2
Ljósm.Mhl : Friðþjófur.
Fiskí af Halamiðum landað úr einum Isaf jarðartogaranna á sunnudag.
Eins og sjá má er hann ekki allur stór.
V innustöðvun
Slippstöðvar-
manna nú lokið
STARFSMENN Slippstöðvarinn-
ar, sem lögðu niður vinnu við
Kröflu á fimmtudaginn í siðustu
viku, mættu á ný til starfa síðdeg-
is f gær. Að sögn Einars Tjörva,
framkvæmdastjóra Kröfiunefnd-
ar, fóru mennirnir að nýju að
Kröfiu með þvf skillyrði að kröf-
ur Heilbrigðiseftirlitsins f Skútu-
staðhreppi yrðu uppfylltar.
r
Oþekktan
hlut rekur
á land við
Vattarnes
Fáskrúðsfirði 27. marz.
FYRIR helgina rak óþekktan hlut
á land á Vattarnesi við Reyðar-
fjörð og var hann dreginn á land
af Vattarnesbændum og fleirum
auk þess sem skipverjar á einu
varðskipanna aðstoðuðu. Hlutur
þessi sem er sívalt stálhylki um 4
m á lengd og allt að 2 m f þvermál
virðist mjög nýlegur, efnisþykkt
hans er um 10 mm og virðist hann
allur mjög sterkbyggður enda sér
svo til ekkert á honum þrátt fyrir
það, að landtakan var ekki mjög
mjúkleg, en hann stöðvaðist í
klettagjótu utanvert á tanganum.
Svo virðist sem efri endi hans,
sem er kúlulaga, snúi hugsanlega
upp í sjónum, neðar á belgnum
gengur 7“ sver stálvír í gegnum
baulur, en hinn endi hólksins
mjókkar niður í 1/2 m, á þeim
enda eru styrktarbitar sem ganga
að sverari endanum og eru þeir
úr um 18 mm þykku járni. 1
gegnum hólkinn endilangan er
gat og í báðum endum þess eru 4
rúllur hvorum megin. Helzt eru
menn að geta sér til að þetta geti
verið eitthvað frá oliuborunum í
NorðursjÓ. — Albert.
Voru kröfur eftirlitsins um úr-
bætur settar fram í 11 atriðum og
sagðist Einar Tjörvi mundu fara
að Kröflu 1 dag og í samráði við
fulitrúa Heilbrigðiseftirlitsins
reyna að koma þessum atriðum f
rétt horf. Vinnustöðvun af hálfu
Slippstöðvarmannanna 30 er þvf
lokið.
INNLENT
íslenzk matvælakynning opnuð:
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1977
15% af því er hann var stœrstur
FISKURINN, sem togararnir
hafa að undanförnu fengið á
Halamiðum, virðist að mestu vera
ókynþroska fiskur, þ.e. 4—5 ára
gamall af árgöngunum frá 1972
og 1973. Sigfús Schopka fiski-
fræðingur sagði í samtali við
Morgunblaðið f gærkvöldi, að
maður frá Hafrannsóknastofnun-
inni væri kominn um borð f einn
af togurunum til að kanna stærð
hans betur og sýni væru á leið
suður til rannsóknar. Uppistaðan
f afla togaranna sem veiða á þess-
um slóðum hefur að mestu verið
4—5 ára fiskur f allan vetur og
frá þvf f haust.
Að sögn Sigfúsar virðist fiskur-
inn sem veiðist á Halamiðum að
mestu vera fyrir ofan þau stærð-
armörk, sem sett hafa verið um
smáfisk, en hins vegar væri þetta
fiskurinn, sem menn stóluðu mest
á til að byggja upp íslenzka þorsk-
stofninn.
Það kom fram í sjávarútvegs-
ráðstefnunni í Hnffsdal á sunnu-
dag, að hrygningarstofn þorsksins
var aðeins talinn vera 180 þúsund
lestir á síðasta ári, en árið 1957
var hrygningarstofninn 1.2 mill-
jónir tonna. Er þvf hrygningar-
stofn þorsksins aðeins 15% af því
er hann var stærstur.
Á ráðstefnunni kom einnig
fram, að þegar kynþroska hluti
sfldarstofnsins var kominn niður I
1/10 af þvf sem hann var stærst-
ur, brast endurnýjunarhæfileik-
inn og enginn veit enn hve langan
tíma það tekur unz sá stofn hefur
náð sér. Sömu sögu er að segja af
v-grænlenzka þorskinum, því það
litur út fyrir að hann hafði beðið
endurnýjunarskipbrot.
Alþýðuflokkurinn:
Reiðubúinn 1 við-
ræður við Karvel
FLOKKSSTJÓRN Alþýðuflokksins hefur lýst sig reiðubúna til við-
ræðna við Samtök frjálslyndra og vinstri manna á Vestfjörðum
varðandi hugsanlegt samstarf við næstu Alþingiskosningar. Svar
flokksstjórnar Alþýðuflokksins kemur f kjölfar bréfs sem Karvel
Pálmason ritaði formanni Alþýðuflokksins fyrir hönd Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna á Vestfjörðum, en sfðan var sent áfram til
kjördæmisráðs Alþýðuflokksins á Vestfjörðum til umsagnar. Að sögn
Karvels Pálmasonar er enn allt óráðið hvenær og með hvaða hætti
þessar viðræður verða, þar sem hann kvaðst enn ekki hafa haft
tækifæri til að ræða samþykkt flokksstjórnar Alþýðuflokksins f þessu
efni við samstarfsmenn sfna vestra.
Bréf Karvels var ritað í kjölfar
kjördæmisráðstefnu SFV á Vest-
fjörðum á Núpi í september á sl.
ári en þar var samþykkt ályktun
er fól í sér að Samtakamenn á
Vestfjörðum vildu fá úr því skor-
ið hvort Alþýðuflokkurinn sem
heild eða í einstökum kjördæm-
um væri reiðubúinn til samstarfs
við Samtökin fyrir næstu kosning-
ar. Á ráðstefnunni voru kjörnir
fjórir menn til að annast fram-
gang þessa þáttar ályktunarinnar,
þeir Hendrik Tausen á Flateyri,
Jónas Helgason, ísafirði, Ragnar
Þorbergsson, Súðavík, og Karvel
Pálmason, Bolungarvík. I bréfi
sfnu 15. nóvember 1976 óskaði
Karvel formlega eftir því að þess-
ar viðræður gætu átt sér stað og
óskaði eftir þvf að þær gætu orðið
um það Ieyti sem þing ASÍ stóð.
Erindi Karvels Pálmasonar var
sent kjördæmisráði Alþýðu-
flokksins í Vestfjarðakjördæmi
til umsagnar og sendi kjördæmis-
ráðið umsögn sfna hinn 16. marz
sl. Kemur fram, að ráðið hefur af
ýmsum ástæðum, m.a. vegna sam-
gönguerfiðleika, ekki getað fjall-
að um bréf Karvels fyrr en þá. í
niðurstöðum kjördæmisráðs Ai-
þýðuflokksins er bent á að ekki
komi fram nánari skilgreining á
því í bréfi Karvels hvers konar
samstarf átt sé við en að líkindun
sé það samstarf um frambosmál.
Kjördæmisráðið tekur ekki af-
stöðu til þess hvort Alþýðuflokk-
urinn sem heild eigi að gefa kost
á kosningasamstarfi við SFV við
næstu Alþingiskosningar heldur
vísar þvf áfram til flokksstjórnar
eða flokksþings til umfjöllunar.
Kjördæmisráðið telur slíkt sam-
starf þó ólíklegt þar sem ekki
verði annað séð að loknum flokks-
stjórnarfundi SFV að flokkurinn
áformi að bjóða fram í eigin
nafni. Varðandi hinn þátt máls-
ins, þ.e. hugsanlegt samstarf Al-
þýðuflokksins f einstökum kjör-
dæmum við SFV, kemur fram að
ljóst sé að allar viðræður um sam-
starf í framboðsmálum f tilteknu
kjördæmi við flokka eða flokks-
brot eru í verkahring kjördæmis-
ráðs flokksins f þvf kjördæmi og
einskis annars. Þá kemur fram að
stjórn kjördæmisráðsins hefur
engan áhuga á að bjóða fram und-
Framhald á bls. 18
Fyrsti fundur með
sáttasemjara í dag
FYRSTI samningafundurinn um
kjarasamninga þá sem framund-
an eru verður með sáttasemjara,
Torfa Hjartarsyni, á Hótel Loft-
leiðum kl. 14 f dag. Verður þetta
fjölmennur fundur, en f
samninganefnd ASt eru 37
manns og 27 í samninganefnd
VSt. Nýskipuð sáttanefnd verður
á fundinum, en Torfi Hjartarson
er formaður hennar.
Síðastliðinn föstudag gekkst
forsætisráðherra, Geir Hallgríms-
son, fyrir fundi með sáttanefnd-
inni, aðilum frá Alþýðusambandi
tslands og Vinnuveitendasam-
bandi íslands. Var þar rætt um
tilhögun samningaviðræðnanna
og þátttöku stjórnvalda í þeim.
Var á funinum rætt um ýmis meg-
inatriði, sem væntanlega koma til
umræðu og frekari útfærslu á
fundinum í dag. Ymis atriði f
kröfum < Alþýðusambandsins
snerta ríkisvaldið beint og verða
sérstakir fulltrúar þess settir til
viðræðna um þau atriði. Þá er
einnig ljóst að semja þarf starfs-
skrá fyrir þessar margþættu við-
ræður.
„Við vonum að enginn
fari héðan svangur út”
færi fluttu ávarp dr. Gunnar
Thoroddsen, iðnaðarráðherra, og
Hjalti Geir Kristjánsson, for-
maður verkefnisráðs íslenzkrar
iðnkynningar. — Aðsóknin er
miklu meiri en við bjuggumst
við, sagði Pétur Sveinbjarnarson,
framkvæmdastjóri iðnkynningar,
f samtali við Mbl. sfðdegis í g*r-
Aðgangur er ókeypis, en börn
innan við 14 ára fá þó aðeins
aðgang í fyigd með fullorðnum.
Hjalti Geir Kristjánsson bauð
gesti velkomna og sagði í ávarp*
sínu að lengi hefði matvælakynn-
ing verið á döfinni, en ekki kom-
izt í framkvæmd fyrr en nú. Hann
kvaðst vona að slíkt brautrýöJ'
endastarf, sem nú væri hafið.
mætti verða upphaf að matv»la'
kynningum t.d. annað eða þriðj®
hvert ár, þar sem framleiðendu
Framhald á bls. >8
ISLENZK matvælakynning var f Hallveigarstfg f Reykjavfk að við-
gær opnuð f húsi iðnaðarins við stöddum gestum. Við það tæki-
Fiskur á Halamiðum
að mestu ókynþroska
Hrygningarstofn þorsksins aðeins