Morgunblaðið - 30.03.1977, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1977
Ásgeir Þ. Ólafsson héraðsdýralæknir:
„Hæstiréttur minn”
Rocky
bezta
myndin
BÓNDI einn f Borgarfirði, ágætur
maður, átti i máiaferlum við ná-
granna sfna út af landamerkjum
Missagnir í
útvarpsþætti
leiðréttar
Akranesi 28. marz.
I UTVARPSÞÆTTINUM
,Jlver er á Ifnunni? sfðast-
liðinn sunnudagsmorgun kom
fram, að árið 1921 hefðu engin
fyrirtæki verið starfandi á
Akranesi.
Akranes var löggiltur
verzlunarstaður á Alþingi árið
1864. Á árunum 1921 voru m.a.
starfandi atvinnu- og verzlunar-
fyrirtæki, sem hér segir:
Þofður Ásmundsson og fleiri,
með útgerð og fiskverkun frá
árinu 1906 og verzlun frá 1908
og íshúsrekstur frá 1915.
Haraldur Böðvarsson og Co.,
útgerð frá 1907 og íshúsrekstur
frá 1915, Bjarni Ólafsson og
Co., verzlun frá 1915 og þar að
auki útgerð og fiskverkun frá
1920. Kaupfélag frá 1919.
Sögulega séð ættu hlutaðeig-
endur að leiðrétta umsögnina f
næsta þætti. Annars er þessi
þáttur nokkuð góður en mætti
að margra áliti fjalla meira um
sögu og staðhætti viðkomandi
bæja og sveita. — Júlíus.
og veiðiréttindum. Þegar manni
þessum líkaði ekki úrslit mála f
héraði, áfrýjaði hann málum sfn-
um til Hæstaréttar og vann bæði
málin (aðskilin mál) fyrir réttin-
um. Þegar bóndinn vann mál
fyrir Hæstarétti í annað sinn var
haft eftir þessum ágæta manni —
Já, Hæstiréttur mínn.
Allfrægt er „Skjónumál"
Löngumýrar-Björns fyrir Hæsta-
rétti, en nefndur Björn lét hafa
eftir sér í blaðaviðtali, að hann
(Björn) hefði góða reynslu af
Hæstarétti og tryði honum til alls
hins bezta eins og reyndar allir
landsmenn gera.
Hæstiréttur var stofnsettur
1920, eftir að fullveldisviðurkenn-
ingin var fengin og var rétturinn í
fyrsta sinn 17. feb. 1920.
En fram að þeim tíma var æðsti
dómstóll í landinu svonefndur
landsyfirréttur, en sá dómstóll
var stofnaður árið 1800, eða um
það leyti, sem Alþingi var lagt
niður. Starfaði dómstóll þessi til
1919.
En á þessu tfmabili áttu íslend-
ingar aðgang að enn einum dóm-
stóli — það var Hæstiréttur Dana.
Áfrýjuðu Islendingar stundum
sfnum málum og fengu leiðrétting
sinna mála. Einna eftirminnileg-
asta dæmi um áfrýjun til Hæsta-
réttar Dana eru Skúlamálin svo-
nefndu, en Skúlamálin voru
landsfræg á seinasta áratug 19.
aldarinnar. Ekki verður sú saga
rakin hér, en þess aðeins getið, að
Skúli Thoroddsen áfrýjaði málum
sfnum til Hæstaréttar Dana. I
blaðafregn Kaupmannahafnar-
blaða frá marz 1895:
Hinn 15. febrúar var í Hæsta-
rétti (Dana) kveðinn upp dómur f
máli landsstjórnarinnar gegn
Skúla Thoroddsen fyrrv. sýslu-
manni. Niðurstaðan var eins og
vænta mátti eftir málfærslunni að
dæma, að Skúli Thoroddsen var
algerlega sýknaður.
Tilefni þess, að ég sting niður
penna og skrifa þessar línur er
það að ég sá í Morgunblaðinu í
dag dóm Hæstaréttar um bílskúr,
í Gnitanesi 10. Okkur veitti ekki
af að fá danskan Hæstarétt.
Vatikanið
veitti
milljarða
kr. aðstoð
Vatikaninu 29. marz. AP.
KAÞÓLSKA kirkjan safnaði á s.l.
ári um 3.7 milljörðum fslenzkra
króna á Vesturlöndum til þess að
styrkja kirkjur í kommúnista-
löndum og kristna menn, sem í
erfiðleikum áttu víðs vegar um
heim að því er sagði f tilkynningu
frá Vatikaninu í dag.
Tæpum einum milljarði króna
var úthlutað til aðstoðar kirkjum
f Sovétríkjunum og öðrum komm-
únistaríkjum, en afganginum af
fénu varið til aðstoðar flóttafólki
og kirkjum, sem f erfiðleikum
áttu i Afriku, Asiu, S-Ameríku ,og
Evrópu.
Los Angeles 29. marz.
Reuter.
FAYE Dunaway og Peter Finch,
sem lézt fyrr á þessu ári, hlutu
Óskarsverðlaunin fyrir beztan
ieik í aðalhlutverki í kvikmynd
árið 1 976. Eru verðlaun Finchs
fyrstu verðlaun, sem veitt eru
leikara að honum látnum.
Finch og Dunaway hlutu verð-
launin fyrir leik í myndinni
Network, sem er hörð ádeila á
sjónvarpsstöðvar i Banda-
ríkjunum.
Hnefaleikamyndin Rocky
hlaut verðlaun sem bezta mynd
ársins, en aðrar myndir, sem
kepptu við hana, voru m.a-
Allir menn forsetans og Net-
work. Jason Robards hlaut
Óskarsverðlaun fyrir beetah
leik í aukahlutverki sem Bea
Bradley, ritstjóri Washington
Post, i myndinni Allir meno
forsetans og Beatrice Straigi1*
hlaut verðlaun sem bezta leik-
kona í aukahlutverki fyrir hlut-
verk sitt í Network.
Um 75 milljónir Bandaríkja-
manna fylgdust með Óskars-
verðlaunaathöfninni í sjónvafp1
og um 170 milljónir manna
víða um heim, en hátíðinni var
BRflUil
BEZTU KAUPIN ERU
í BRAUN RAFMAGNSRAKVÉL
Rafmagnsrakvélar eru ekki allar eins.
Það sem greinir BRAUN rakvélar frá
öðrum tegundum eru rakblöðin, sem
eru platínuhúðuð og þau þynnstu á
markaðinum, Þessvegna kemst
BRAUN rafmagnsrakvélin næst skegg-
rótinni.
í öllum prófunum neytendablaða er-
lendis fær BRAUN rakvélin ætíð bestu
fáanlegu meðmæli. BRAUN rafmagns-
rakvélin sker sig líka úr þegar dómur er
lagður á form og hönnun. Ef einhver
dregur gæðin I efa, þá er efagjörnum
sem öðrum velkomið að prófa rakvélina
í verzlun okkar. — 7 gerðir fyrirliggj-
andi.
VERZLUNIN
Skólavöröustíg 1 — 3 og
Bergstaðastræti 7 - Sími 26788
Baader-Meinhof
réttarhöldun-
um f ramhaldið
Stuttgart. V-Þýzkalandi, 29. marz. Reuter.
RÉTTARHÖLDUNUM yfir félög-
um úr Baader-
Meinhofskæruliðahreyfingunni
var framhaldið I Stuttgart I dag
eftir að yfirréttur hafði vfsað frá
kröfum verjenda sakborninganna
um að ný réttarhöld yrðu fyrir-
skipuð eftir að upp komst að klef-
ar sakborninga höfðu verið hler-
aðir f 22 daga.
Fregnir um hleranir þessar ollu
miklum pólitískum úlfaþyt f V-
Þýzkalandi og var um tíma talið
að réttarhöldin, sem staðið hafa í
22 mánuði, yrðu lýst ógild. I úr-
skurði yfirréttarins segir að kröf-
unni um ný réttarhöld sé vísað frá
þar sem yfirvöld í landinu hafi
gert allt, sem í þeirra valdi stóð,
til að upplýsa málið.
Staðfest hefur verið, af hálfn
dómsmálaráðuneytisins í Baden-
Wuerttemberg, að klefar sak-
borninga hafi verið hleraðir tvö
tfmabil, samtals í 22 daga og allar
viðræður þeirra við lögfræðing2
sína teknir upp á segulband tij
þess að reyna að fá fregnir a*
meintum tilraunum til að frelsa
sakborninga úr haldi með vopna-
valdi. Sakborningarnir Andreas
Baader, Jan-Carl Raspe °@
Gudrun Ensslin eru sökuð um að
hafa staðið að fjölda sprengjutil;
ræða og rána í V-Þýzkalandi
1970—71. Fjórði sakborningUr;
inn, Ulrike Meinhof, framd*
sjálfsmorð, er hún hengdi sig 1
klefa sínum á sl. ári.
IRA beitir
sovézkum
eldflaugum
Belfast, N-írlandi 29. marz AP.
SKÆRULIÐAR frska lýðveldis-
hersins, IRA, beittu i dag sovézk-
um eldflaugum gegn brynvarinni
brezkri bifreið í Turf Lodge-
hverfinu í Belfast. Ein eldflaug-
anna hæfði bifreiðina og særðust
tveir brezkir hermenn alvarlega.
Ekki var sagt í frétt frá brezku
herstjórninni f Belfast af hvaða
gerð eldflaugarnir hefðu verið.
IRA-menn hafa hert mjög sókn
sina gegn brezkum hermön
og lögreglu, en lögregla og var u£
N-Irlands eru að mestu s >
mótmælendum. Sprengjus r {
ingum brezka hersins í ex
tókst í dag að gera óvirkar
mjög öflugar sprengjur,
komið hafði verið fyrir V1 ^orU
lögreglumanna í borginni.
40 kg af sprengjuefni i an
sprengjunni.