Morgunblaðið - 30.03.1977, Side 25

Morgunblaðið - 30.03.1977, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1977 25 Niels Pedersen er ekki mikill skákmaður. „Ég kann mannganginn,“ segir hann, „en ég tapa oftast. Ég tefli aðeins þegar mig langar til að handleika taflmennina mlna, það var miklu skemmtiiegra að búa þá til heldur en að tefla með þeim.“ Hér sést Niels til hægri tefla við eina af fyrirmyndunum. + Þeir eru dálítið frábrugðnir taflmönnum sem Hort og Spassky nota, þessir talfmenn sem vð sjáum hér á myndinni. Það er Niels Pedersen, danskur verka- maður, 66 ára gamall sem hefur skorið þá út í fílabein. Niels býr í Skanderborg og fyrirmyndirnar af tafl- mönnunum eru nágrannar hans. í fimm ár hefur hann eytt öllum sínum frístundum í vinnuherberginu sínu í kjallaranum við að búa til þessa sérkennilegu tafl- menn. Hann hefur alla sína ævi verið verkamaður en flestum frístundum sínum hefur hann varið til að skera út. Meðal fyrirmyndanna að taflmönnunum eru pósturinn með pósttöskuna og í einkennisbúningnum. Smiðurinn við steðjann, verkamaðurinn sem hallar sér fram á skófluskaftið og bóndinn með hendur f vösum, horfandi á svínin sín. Engir tveir taflmenn eru eins og hver um sig er sannkallað listaverk sem hefur verið metinn á 240 þúsund krónur, en þeir eru ekki til sölu. ffclk í fréttum nœstukjötbúð Hakkað ærkjöt kílóverð kr.550,- P f'ijrir ffóéan mai g::ði @ KJÖTIÐNAÐARSTÖD SAMBANDSINS — Minning Guðjón Framhald af bls. 23 hjá Rannsóknastofnun byggingar- iönaðarins að Keldnaholti. Kona Eggerts er ' Eygló Guðmunddóttir, og eiga þau tvo syni, Guðjón og Magnús. Báðar fjölskyldurnar hafa ávallt búið undir sama þaki og aldrei fallið skuggi á sambýlið. Eindregni mikil hefur ávallt ríkt milli íbúanna að Efstasundi 30, og sár mun söknuður sveinanna ungu er nú hafa séð á bak afa sinum. Foreldrar Guðjóns eignuðust fjögur börn, og var Guðjón elstur þeirra. Hin eru Magnús starfs- maður hjá Eimskip h/f, Elín Þóra og Ingibjörg. Milli systkinanna allra rikti ávallt samheldni og ástúð. Við orðin vegaskil vil ég þakka Guðjóni Bj. Guðlaugssyni ánægju- legar stundir í leik og starfi á æskustöðvunum i Hnifsdal og vin- áttu gegnum árin sem aldrei bar skugga á. Með Guðjóni er genginn drengur góður, trúr hverjum þeim málstað er hann tók tryggð við. Eftirlifandi konu hans, syni og systkinum, tengdadóttur, sonar- sonum og öðrum ættingjum hans og vinum flyt ég dýpstu samúðar- kveðjur. , Helgi Hannesson Ekki hafði ég starfað lengi hjá Áfengisvarnaráði er aldraður maður, lágur til hnésins en þéttur á velli, kom á skrifstofuna til min, bauð mig velkominn til starfa og kvaðst fús til liðveislu. Það var Guðjón Bj. Guðlaugsson sem til moldar er borinn i dag. Við nánari kynni af Guðjóni varð mér ljóst að hann var ekki einungis þéttur á velli heldur einnig þéttur i lund. Ungur hafði hann kynnst Góðtemplara- reglunni og verið um áratuga- skeið traustur liðsmaður þar í sveit. Hann ritaði margt um bindindismál og flest prýðilega. Hálfvelgja var eitur i beinum hans, hálfsannleikur draup aldrei úr penna hans. Hann vildi reiða öxina að rótum feyskinna trjáa fremur en daðra við þann vesal- dóm sem breytir grænum skógi I fúna kalkvisti. Hann var einlægur bannmaður. Guðjón Bj. Guðlaugsson var ágætlega hagorður. Mun mörg snjöll staka hans lifa lengi. — Siðasta grein hans birtist i Tímanum að honum látnum: Greindarleg og sterk hvatning lifsreynds manns og varnarorð í tilefni litt grundaðs tillöguflutn- ings á Alþingi um áfengt öl. Um leið og ég sendi fjölskyld- unni, sem jafnan studdi hann og styrkti í mannbóta- og hugsjóna- baráttu hans, hugheilar samúðar- kveðjr bið ég þess að íslensk bindindishreyfing megi um alla framtíð eiga í röðum sínum hug- djarfa menn á borð við Guðjón Bj. Guðlaugsson. Olafur Haukur Árnason Jarðarförin fer fram fá Fossvogs- kirkju kl. 1.30 i dag. Dr. Alster tefldi íVest- mannaeyjum TÉKKNESKI skákmeistarinn dr. Alster tefldi fjöltefli f Vest- mannaeyjum á laugardaginn. Tefldi hann 18 skákir, vann 11, gerði 6 jafntefli og tapaði einni skák. Sá sem vann kappann var Jón Sveinsson bifreiðastjóri, en jafntefli gerðu Arnar Sigur- mundsson, Björn Ivar Karls- son, Björg Ingi Magnússon, Karl Björnsson, Guðmundur Guðlaugsson og Sigurgeir Jóns- son. Á laugardag'skvöldið skoruðu 10 félagar úr taflfélaginu i Vestmannaeyjum á dr. Alster að tefla við þá fjöltefli með klukkum, sem hann gerði. Vann Alster 9 skákir en tapaði einni, fyrir Birni Ivari Karls- syni lækni. Sjómenn segja upp samningum og boða kjara- málaráðstefnu AÐILDARFÉLÖG Sjómanna- sambands Islands, að undan- skildum Vestfjarðafélögunum, hafa sagt upp þeim samningum um kaup og kjör sjomanna, sem staðfestir voru með lögum þann 6. september sfðastliðinn. Samningarnir falla þvf úr gildi 15. maf næstkomandi. Með tilliti til góðrar samstöðu sjómannastéttarinnar hefur sambandsstjórn Sjómannasam- bandsins boðað til kjaramála- ráðstefnu sjómanna, þar sem endanlega verður gengið frá þeim kröfum sem sjómenn munu berjast fyrir og standa sameiginlega að i næstu samn- ingaviðræðum, segir i frétt frá Sjómanasambandi íslands. Ráðstefnan verður haldin sunnudaginn 3. april á Hótel Sögu og hefst kl. 10.00. ÞÚ AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU ALGI.YSINGA- SÍMINN ER: 22480 Meistarakeppni K.S.Í. í kvöld kl. 8 á Melavelli VALUR — FRAM Komið og sjáið spennandi leik. Valur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.