Morgunblaðið - 31.03.1977, Síða 1

Morgunblaðið - 31.03.1977, Síða 1
48 SIÐUR 73. tbl. 64. árg. FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 25. þing Norður- landaráðs sett í dag Helsingfors, 30. marz. Frá Pétri J. Eiríkssyni. 25. ÞING Norðurlandaráðs verður sett á morgun, fimmtudag, en jafnframt er haldið upp á 25. ára af- mæli ráðsins. Mörg mái liggja fyrir þinginu, þ.á m. um sjðnvarpssamvinnu Norðurianda, orkumál, samvinnu gegn misnotkun fíknilyfja, samræming á stafsetningu og sameigin- leg barátta gegn póiitísk- um hermdarverkum. 25 ára afmælisins verður minnst og mun Uro Kekkonen Finnlandsforseti flytja hátiðar- ræðu. Nokkrum heiðursgestum hefur verið boðið til þingsins af tilefni afmælisins, þ.á m. Sigurði Bjarnasyni, sendiherra íslands í Bretlandi, sem er fyrrverandi for- seti Norðurlandaráðs. Á þinginu eiga sæti 78 þing- kjörnir fulltrúar, þar af 6 frá ís- landi. Fulltrúar íslands eru Ragn- hildur Helgadóttir, Gils Guðmundsson, Jón Skaftason, Gylfi Þ. Gislason, Sverrir Her- mannsson og Halldór Ásgrimsson. Þá sitja fjórir islenzkir ráðherrar þingið, þeir Geir Hallgrimsson forsætisráðherra, Matthías Á. Mathiesen fjármálaráðherra, Einar Ágústsson utanrikisráð- herra og Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra. Þá eru á þinginu Hjálmar. Ólafsson, for- maður Norræna féiagsins, og Jónas Eysteinsson, framkvæmda- stjóri Norræna félagsins, auk fjölda íslenzkra embættismanna og áheyrnarfulltrúa frá samtök- um ungs fólks i islenzku stjórn- málaflokkunum. Á tí. hundrað likkistur eru í flugskýlinu á Tenerife, þar sem hóp- ur lækna og hjúkrunar- liða hefur unnið þrot- laust að því að reyna að bera kennsl á Ifkin. Á morgun og föstudag hefjast flutn- ingar á þeim til heima- landanna, er lokið verður við viðgerö á flugvellin- um. SALT-viðræðumar fóru út um þúfur Vance fer vonsvikinn frá Moskvu Moskvu, 30. marz. AP — Reuter. JIMMY Carter Bandaríkjaforseti sagði á fundi með þingleiðtógum f YVashington f kvöld, að viðræður Cyrus Vance utanrfkisráðherra við Leonid Brezhnev, aðalritara sovézka kommúnistaflokksins, og Andrei Grómýkó, utanrfkisráð- herra Sovétrfkjanna, hefðu verið gagnlegar, þrátt fyrir að Sovét- menn hefðu hafnað tillögum Bandarfkjamanna um nýjan SALT-samning um takmörkun kjarnorkuvopna. Stjórnmálafréttaritarar sögðu í kvöld, er fréttist um afstöðu Sovétstjórnarinnar, að SALT- viðræðurnar hefðu þar með farið gersamlega út um þúfur að þessu sinni. Cyrus Vance, sem beðið hefur þrjá daga í Moskvu eftir svari við tillögunum, sagði von- svikinn á fundi með fréttamönn- um í Moskvu í dag, að Bandaríkja- menn hefðu lagt fram tvær tillög- ur, aðra mjög umfangsmikla, en hina einfaldari. Brezhnev hefði hafnað báðum Utanrikisráðherr- ann neitaði þvi að sovézku leiðtog- arnir hefðu hafnað tillögunum vegna óánægju yfir afskiptum Carters forseta af mannréttinda- málum i Sovétrikjunum. Vance sagði að Rússar hefðu hafnað til- lögunum vegna þess að þær hefóu ekki fallið í þann jarðveg, sem Rússar teldu að gerðu báðum aðil- um jafnt undir höfði. Vance sagði að árangurinn af för sinni til Moskvu hefði verið mjög lítill, sér hefði ekki einu sinni tekist að ná því að semja um ramma næstu samningaviðræðna. Vance sagði Framhald á bls. 26 „Þessi maður er brjálað- ur, hann drepur okkur öll” - hrópaði bandaríski flugstjórinn er KLM-þotan kom æðandi út úr þokunni Sanla Cruz, London og Washington, 30. marz. Reuter — AP. LJÓST ER nú að fiugstjóri Bandarfsku Pan-Am risaþotunnar Boeing 747 gerði örvæntingar- fulla tilraun til að beygja vél sinni út af flugbrautinni á Tenerife á Kanarfeyjum, er hann sá KI.M-þotuna koma æðandi út úr þokunni aðeins 100 metra f burtu. 1 segulbandsupptöku úr flugturninum heyrðist flugstjórinn, Victor Grubbs, hrópa: „Þessi maður er brjálaður, hvað er hann að gera, hann drepur okkur öll.“ Um leið sveigði hann vél sinni til vinstri út af hrautinni, en sekúndu síðar skall KLM-þotan á PanAtn f 45 gráðu horni á um 200 km hraða með þeim afleiðingum, að 580 manns hafa látið Iffið f mesta fli Þetta kom fram í frétt í Santa Crus-dagblaðinu í dag, sem skrifuð er af blaðamanni, sem segist hafa fengið að hlusta á segulbandsupptökur í flug- turninum af orðaskiptum flug- umferðarstjórnarmanna við flugmenn þotnanna tveggja. Skv. fréttinni voru síðustu orðaskiptin sem hér segir. KLM: „Tilbúinn til flugtaks", P'luturn: „Haltu stöðunni", Flugturn til Pan Am-þotunnar: Ertu kominn út af flugbraut- ysi sögunnar. inni?", PanAm: „Nei", Flug- turn: „Allt í lagi komdu þér út af henni og láttu vita þegar flugbrautin er auð“, Flugturn til KLM-þotunnar: „Vertu við- búinn, ég kalla í þig þegar flug- tak er heimilt". KLM: „Allt i lagi ég er kominn af stað.“ Nokkrum sekúndum seinna skall KLM á PanAm. Til viðbótar þessu segja fréttastofufregnir að flugstjóri PanAm-þotunnar hafi gert sér grein fyrir að KLM-þotan var kominn af stað og að hann hafi þrifið hátalara sinn og hrópað: „Segið þeim að fara ekki af stað“, en hátalari hans hafi hugsanlega verið stilltur inn á hátalakerfi þotunnar, því að að- stoðarflugmaðurinn hafi verið f sambandi við flugturninn. Hvað sem því líður hefur ekk- ert komið fram, um að flugum- ferðarstjórarnir hafi reynt að stöðva KLM-þotuna eftir að hún var komin af stað. Grubbs sagði við fréttamenn á Tenerife 50 milljarða króna skaðabótagreiðslur Þessi teikning er úr New York Times og sýnir hvernig Grubbs flugstjóri reynir í örvæntingu að sveigja vél sinni út af brautinni. í dag, skömmu áður en hann lagði af stað heim til Bandarikj- anna: „Ég hrópaði i hátalar- ann: „Segið þeim að hætta við flugtak, við erum enn á braut- inni." Grubbs sagði einnig við fréttamenn: „Samvizka min er fullkomlega róleg hvað störf mín snertir þessa stund, ég er sannfærður um að ég stjórnaði vél minni af hæfni og hlýddi þeim skipunum, sem flugturn- inn gaf mér." Deilurnar vegna þessa rnikla slyss mögnuðust i dag, er tals- menn KLM-flugfélagsins end- urtóku yfirlýsingu sina frá þvi í Framhald á bls. 26

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.