Morgunblaðið - 31.03.1977, Qupperneq 1
48 SIÐUR
73. tbl. 64. árg.
FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
25. þing
Norður-
landaráðs
sett í dag
Helsingfors, 30. marz.
Frá Pétri J. Eiríkssyni.
25. ÞING Norðurlandaráðs
verður sett á morgun,
fimmtudag, en jafnframt
er haldið upp á 25. ára af-
mæli ráðsins. Mörg mái
liggja fyrir þinginu, þ.á m.
um sjðnvarpssamvinnu
Norðurianda, orkumál,
samvinnu gegn misnotkun
fíknilyfja, samræming á
stafsetningu og sameigin-
leg barátta gegn póiitísk-
um hermdarverkum.
25 ára afmælisins verður
minnst og mun Uro Kekkonen
Finnlandsforseti flytja hátiðar-
ræðu. Nokkrum heiðursgestum
hefur verið boðið til þingsins af
tilefni afmælisins, þ.á m. Sigurði
Bjarnasyni, sendiherra íslands í
Bretlandi, sem er fyrrverandi for-
seti Norðurlandaráðs.
Á þinginu eiga sæti 78 þing-
kjörnir fulltrúar, þar af 6 frá ís-
landi. Fulltrúar íslands eru Ragn-
hildur Helgadóttir, Gils
Guðmundsson, Jón Skaftason,
Gylfi Þ. Gislason, Sverrir Her-
mannsson og Halldór Ásgrimsson.
Þá sitja fjórir islenzkir ráðherrar
þingið, þeir Geir Hallgrimsson
forsætisráðherra, Matthías Á.
Mathiesen fjármálaráðherra,
Einar Ágústsson utanrikisráð-
herra og Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra. Þá eru á
þinginu Hjálmar. Ólafsson, for-
maður Norræna féiagsins, og
Jónas Eysteinsson, framkvæmda-
stjóri Norræna félagsins, auk
fjölda íslenzkra embættismanna
og áheyrnarfulltrúa frá samtök-
um ungs fólks i islenzku stjórn-
málaflokkunum.
Á tí. hundrað
likkistur eru
í flugskýlinu
á Tenerife,
þar sem hóp-
ur lækna og
hjúkrunar-
liða hefur
unnið þrot-
laust að því
að reyna að
bera kennsl á
Ifkin. Á
morgun og
föstudag
hefjast flutn-
ingar á þeim
til heima-
landanna, er
lokið verður
við viðgerö á
flugvellin-
um.
SALT-viðræðumar
fóru út um þúfur
Vance fer vonsvikinn frá Moskvu
Moskvu, 30. marz. AP — Reuter.
JIMMY Carter Bandaríkjaforseti
sagði á fundi með þingleiðtógum
f YVashington f kvöld, að viðræður
Cyrus Vance utanrfkisráðherra
við Leonid Brezhnev, aðalritara
sovézka kommúnistaflokksins, og
Andrei Grómýkó, utanrfkisráð-
herra Sovétrfkjanna, hefðu verið
gagnlegar, þrátt fyrir að Sovét-
menn hefðu hafnað tillögum
Bandarfkjamanna um nýjan
SALT-samning um takmörkun
kjarnorkuvopna.
Stjórnmálafréttaritarar sögðu í
kvöld, er fréttist um afstöðu
Sovétstjórnarinnar, að SALT-
viðræðurnar hefðu þar með farið
gersamlega út um þúfur að þessu
sinni. Cyrus Vance, sem beðið
hefur þrjá daga í Moskvu eftir
svari við tillögunum, sagði von-
svikinn á fundi með fréttamönn-
um í Moskvu í dag, að Bandaríkja-
menn hefðu lagt fram tvær tillög-
ur, aðra mjög umfangsmikla, en
hina einfaldari. Brezhnev hefði
hafnað báðum Utanrikisráðherr-
ann neitaði þvi að sovézku leiðtog-
arnir hefðu hafnað tillögunum
vegna óánægju yfir afskiptum
Carters forseta af mannréttinda-
málum i Sovétrikjunum. Vance
sagði að Rússar hefðu hafnað til-
lögunum vegna þess að þær hefóu
ekki fallið í þann jarðveg, sem
Rússar teldu að gerðu báðum aðil-
um jafnt undir höfði. Vance sagði
að árangurinn af för sinni til
Moskvu hefði verið mjög lítill, sér
hefði ekki einu sinni tekist að ná
því að semja um ramma næstu
samningaviðræðna. Vance sagði
Framhald á bls. 26
„Þessi maður er brjálað-
ur, hann drepur okkur öll”
- hrópaði bandaríski flugstjórinn er KLM-þotan kom æðandi út úr þokunni
Sanla Cruz, London og Washington, 30. marz. Reuter — AP.
LJÓST ER nú að fiugstjóri Bandarfsku Pan-Am risaþotunnar Boeing 747 gerði örvæntingar-
fulla tilraun til að beygja vél sinni út af flugbrautinni á Tenerife á Kanarfeyjum, er hann sá
KI.M-þotuna koma æðandi út úr þokunni aðeins 100 metra f burtu. 1 segulbandsupptöku úr
flugturninum heyrðist flugstjórinn, Victor Grubbs, hrópa: „Þessi maður er brjálaður, hvað er hann að
gera, hann drepur okkur öll.“ Um leið sveigði hann vél sinni til vinstri út af hrautinni, en sekúndu
síðar skall KLM-þotan á PanAtn f 45 gráðu horni á um 200 km hraða með þeim afleiðingum, að 580
manns hafa látið Iffið f mesta fli
Þetta kom fram í frétt í Santa
Crus-dagblaðinu í dag, sem
skrifuð er af blaðamanni, sem
segist hafa fengið að hlusta á
segulbandsupptökur í flug-
turninum af orðaskiptum flug-
umferðarstjórnarmanna við
flugmenn þotnanna tveggja.
Skv. fréttinni voru síðustu
orðaskiptin sem hér segir.
KLM: „Tilbúinn til flugtaks",
P'luturn: „Haltu stöðunni",
Flugturn til Pan Am-þotunnar:
Ertu kominn út af flugbraut-
ysi sögunnar.
inni?", PanAm: „Nei", Flug-
turn: „Allt í lagi komdu þér út
af henni og láttu vita þegar
flugbrautin er auð“, Flugturn
til KLM-þotunnar: „Vertu við-
búinn, ég kalla í þig þegar flug-
tak er heimilt". KLM: „Allt i
lagi ég er kominn af stað.“
Nokkrum sekúndum seinna
skall KLM á PanAm.
Til viðbótar þessu segja
fréttastofufregnir að flugstjóri
PanAm-þotunnar hafi gert sér
grein fyrir að KLM-þotan var
kominn af stað og að hann hafi
þrifið hátalara sinn og hrópað:
„Segið þeim að fara ekki af
stað“, en hátalari hans hafi
hugsanlega verið stilltur inn á
hátalakerfi þotunnar, því að að-
stoðarflugmaðurinn hafi verið f
sambandi við flugturninn.
Hvað sem því líður hefur ekk-
ert komið fram, um að flugum-
ferðarstjórarnir hafi reynt að
stöðva KLM-þotuna eftir að
hún var komin af stað. Grubbs
sagði við fréttamenn á Tenerife
50 milljarða króna skaðabótagreiðslur
Þessi teikning er úr New York Times og sýnir hvernig Grubbs
flugstjóri reynir í örvæntingu að sveigja vél sinni út af brautinni.
í dag, skömmu áður en hann
lagði af stað heim til Bandarikj-
anna: „Ég hrópaði i hátalar-
ann: „Segið þeim að hætta við
flugtak, við erum enn á braut-
inni." Grubbs sagði einnig við
fréttamenn: „Samvizka min er
fullkomlega róleg hvað störf
mín snertir þessa stund, ég er
sannfærður um að ég stjórnaði
vél minni af hæfni og hlýddi
þeim skipunum, sem flugturn-
inn gaf mér."
Deilurnar vegna þessa rnikla
slyss mögnuðust i dag, er tals-
menn KLM-flugfélagsins end-
urtóku yfirlýsingu sina frá þvi í
Framhald á bls. 26