Morgunblaðið - 05.04.1977, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRIL 1977
IIANN byrjaði feril sinn sem
keppnismaður á skíðum árið 1964
er hann sigraði i skólakeppni f
Tárnaby, heimabæ sfnum í
Norður-Svíðþjóð. Þá var hann
aðeins sjö ára . Nú er pilturinn
orðinn 21 árs og er óumdeilanlega
bezti skfðamaður í heimi. Inge-
mar Stenmark sigraði í heims-
bikarkeppninni á skíðum f fyrra-
vetur og hann hefur nú endur-
tekið þann leik.
Sigurganga Stenmarks er þegar
orðin iöng og glæsileg, en á
örugglega eftir að verða enn
lengri. Ilann hefur unnið til
flestra þeirra verðlauna, sem
hann hefur átt möguleika á að
hreppa, að Ólympíugulli undan-
skildu. Á Ólympíuleikunum 1980
verður Stenmark þó sennilegast
en á leið á toppinn, þvf talið er að
skíðamaður sé ekki upp á sitt
bezta fvrr en eftir 25 ára aldur.
Það fer ekki á milli mála að
Ingemar Stenmark býr yfir ein-
stökum hæfileikum, en það eitt
hefur ekki dugað til að gera hann
að bezta skíðamanni í heimi.
Mikill vilji, sjálfsagi, góðir þjálf-
arar og þúsundir æfingatíma hafa
gert hann að þeirri stjörnu, sem
hann er í skíðaíþróttinni. Sérstak-
lega hefur ódrepandi vilji hans og
áhugi á æfingum vakið mikla at-
hygli og sennilegast öðru fremur
gert hann að því sem hann er í
dag.
Um Ingemar Stenmark hefur
margt og mikið verið skrifað og
blöðin þá oftast komizt að þeirri
niðurstöðu að Stenmark væri ein-
stakur í sinni röð. Þau hafa gjarn-
an kallað hann „Prófessorinn"
eða „Stóra tígurinn". Þessi nöfn
segja lítið um persónuleika hans
og fáum hefur tekizt að komast
inn fyrir skelina á þessum mikla
iþróttamanni. Hann er ekki
gefinn fyrir löng og mikil blaða-
viðtöl og honum er ekki lagið að
slá um sig með stórum orðum eins
og mörgum stjörnum, sem nærast
á þvi sem skrifað er um þær i
blöðum. Ingemar Stenmark er
fyrst og fremst hinn liðlega
tvítugi Stenmark frá Tárnaby.
Hann æfir knattspyrnu að
sumrinu með félaginu i heimabæ
sinum og gerir það til að styrkja
fæturna. Síðari hluta sumars
byrjar hann að æfa fyrir átök
vetrarins og leyfir sér ekki
minnstu hvild fyrr en öllum
helztu mótum er lokið.
Stenmark er hetja í Svíþjóð og
stöðugt fleiri unglingar taka hann
sér til fyrirmyndar. Áhugi á
skíðaíþróttinni fer stöðugt vax-
andi. Er Stenmark tryggði sér
endanlega sigur í Heimsbikar-
keppninni að þessu sinni var það í
Are i Svíþjóð og honum var
fagnað sem þjóðhöfðingja. Meðal
þeirra, sem óskuðu honum til
hamingju, var Karl Gústaf
konungur Svía. Stenmark sagði'
aðeins: — Það var gaman að
vinna sigur i þessari keppni og
það sem gerði sigurinn ánægju-
legastan var að ég skyldi innsigla
sigurinn heima í Sviþjóð, fyrir
framan foreldra mína og landa.
En hvernig er leið Ingemars
Stenmarks frá Tárnaby upp á
toppinn?
1964
Ingemar vinnur sín fyrstu
verðlaun er hann sigrar i skóla-
keppni á skíðum í Tárnaby.
1965
Ingemar tekur í fyrsta skipti
þátt í Andrésar-andar leikunum
(Kalle Anka). Hann varð sigur-
vegari og fékk sent viður-
kenningu að taka þátt í alþjóð-
legri Andrésar-andar keppni í
Trento á ítalíu. Þar tekur hann í
fyrsta skipti þátt í alþjóðlegri
keppni og verður 14. í c-flokki i
stórsvigi sama dag og hann
verður níu ára. Sigurvegari í a-
V _____________
Stenmark ásamt Karli Gústaf Sviakonungi.
1976 og 1977
Ingemar Stenmark sigrar bæði
árin í heimsbikarkeppninni. Sá
eini sem fær ógnað honum yfir
heildina er hinn störkostlegi
brunmaður Franz Klammer, en
hann stóð sig þó ekki eins vel
síöari hluta vetrar og í ár var það
Klaus Heidegger, sem varð í öðru
sæti — langt á eftir Stenmark.
— áij
Ingemar Stenmark a tullri ferð i sinni fyrstu Andrésar-andar keppni, aðeins átta ára gamall. Stenmark
hefur sagt að honum hafi jafnvel þótt vænna um sigur í þeirri keppni en heimsbikarkeppninni á skfðum.
EINSTÆÐ SIGURGANGA
SEM SENNILEGA ER ÞÓ
AÐEINS NÝLEGA HAFIN
flokki verður Gustavo Thoeni frá
Ítalíu. Norðmaðurinn Erik Háker
keppir i b-flokki.
1966
Ingemar nær ,,aðeins“ öðru
sæti í úrslitunum í Andrésar-
andar keppninni, þó svo að hann
sigri i stórsviginu.
1967
Ingemar keppir í fyrsta skipti í
b-flokki í úrslitum Andrésar-
andar keppninni. Aftur verður
hann í öðru sæti.
1968
Ingemar sigrar í b-flokki úr-
slitakeppninnar, sem sigurvegari
fær hann að taka þátt i mikilli
unglingakeppni í Puschberg f
Austurriki. Hann sýnir hina raun-
verulegu getu sina og sigrar eldri
andstæðinga sina í a- fiokki.
Austurríkismaðurinn Hansi
Hinterseer er meðal keppenda en
er dæmdur úr leik.
1969
Nær aðeins öðru sæti i
Andrésarkeppninni í Svíþjóð, en
keppir nú í fyrsta skipti í a-flokki
í þessari keppni.
1970
Hér lýkur Andrésar-
andar-árum Ingemars og hann
nær sínum þriðja sigri í þessari
keppni. Hann fær að taka þátt í
unglingamóti í Frakklandi og
gerir sér litið fyrir og sigrar fimm
landsliðsmenn frá Mið-Evrópu í
,,„samsíða-stórsvigi“ og vinnur
sinn athyglisverðasta sigur fram
til þess tima.
1971
Ár lítilla tiðinda, en stanzlausra
æfinga. Unglingurinn frá Tárna-
by er of gamall til að vera með i
krakkamótunum, en of ungur til
að ná árangri á mótum
fullorðinna.
1972
Ingemar sigrar alla beztu
skíöamenn Svía í Are-keppninni
og verður yngsti sigurvegarinn i
mótinu, enn tæplega 16 vetra.
Frumraun hans í unglingamóti
Evrópu er mislukkuð, hann fellur
bæði í svigi og stórsvigi.
1973
Aðeins hársbreidd frá sigri á
Evrópumóti unglinga, en dettur
þegar hann á eftir 5 hlió að marki
i stórsviginu — þá með örugga
forystu. Síðari hluta vetrarins
tekur hann forystuna sem óum-
deilanlega bezti svigmaður Svia.
1974
Nær fram hefndum eftír ósigur-
inn á Evrópumótinu og vinnur nú
stórsvigið á EM i Tékkóslóvakíu. I
upphafi keppnistimabilsins nær
hann i tvö fyrstu stigin i heims-
bikarkeppninm. I lok keppnis-
timabilsins slær hann í gegn og i
síðustu heimsbikarmótunum fær
hann sæti 3-2-4-2-2 og er um leið
talinn meðal' albeztu skíðamanna
i heimi.
1975
Hann vinnur fimm sinnum i
heimsbikarkeppninni og er kos-
inn bezti svig- og stórsvigsmaöur i
heimi. Tekst ekki að sigra í heims-
bikarkeppninni, þar sem hann
tapar fyrir Gustavo Thoeni i sam-
síðasvigi í síðustu keppninni.
Verður því að láta sér annað sætið
nægja. Er valinn bezti iþrótta-
maöur í Svíþjóð og á öllum
Norðurlöndunum þetta árið.
INGEMAR STENMARK