Morgunblaðið - 23.04.1977, Blaðsíða 44
— OG SVO segir Spassky f viAtali við Morgunblaðið, að þetta hafi
verið erfitt einvfgi, datt okkur f bug, að Hort gæti verið að hugsa á
þessari mynd, sem Friðþjófur tðk af honum f Hifðarfjalli við
Akureyri í fyrradag. 1 gærmorgun kom Hort f heimsðkn f hrað-
frystihúsið á Akureyri og hafði hann mörg orð um það hversu
snyrtilega honum fyndist farið með fiskinn f vinnslu. Sagðist hann
ekki hafa verið mikil fiskæta til þessa, en héðan í frá myndi hann
ðhræddur leggja sér fisk til munns, sem þá helzt yrði að vera frá
Íslandi. Annars dámaði stórmeistaranum ekki, þegar hann var
leiddur að fiski, sem var stærri en maðurinn, stðrlúða var það, á
þriðja hundrað pund.
Háskólinn vill
gefa út rannsóknir
Eiríks Jónssonar
á efnisföngum
Laxness í
Islandsklukkuna
RANNSÓKNASTOFNUN í bók-
menntum við Háskóla islands
hefur ðskað eftir þvf við Eirík
Jónsson, kennara, að fá til útgáfu
verk hans um efnisföng Halldórs
Laxness f talandsklukkuna, en
greinar Eirfks um þetta efni hafa
birzt í Lesbðk Morgunblaðsins.
Eirfkur Jðnsson staðfesti þetta
við Mbl. í gærkvöldi, og kvaðst
vona að honum tækist að ganga
frá efninu þannig, að bðkin gæti
komið út einhvern tíma á næsta
ári.
Eiríkur kvaðst nokkuð lengi
hafa fengizt við rannsóknirnar á
efnisföngum Laxness, en þó aðal-
lega einbeitt sér að þeim siðustu
tvö, þrjú árin. Aldrei sagðist hann
hafa rætt við skáldið persónulega
vegna þessa, en hins vegar hefði
beiðni hans um lán á handritum
úr Landsbókasafni verið borin
undir Laxness að hans ósk og
veitti skáldið fúslega leyfi til þess
aö Eirikur fengi handritin og
mun hafa látið góð orð fylgja með
um rannsóknir hans.
Samningamálin á Loftleiðum:
Afturkippur í vísi-
töluvidrædumar?
svaraði til þess fisks sem að öllu
jöfnu bærist til vinnslu.
Þá sagði Ragnar, að brátt kæmi
að því að Þormóður goði hætti
Framhald á bls. 26
ístak dæmdar
196 millj. króna
fráLandsvirkjun
GERÐARDÓMUR er fallinn f
máli milli ístaks og Lands-
virkjunar vegna framkvæmda við
Þórisvatn á árunum 1971—73.
Málið reis vegna umframkostnað-
ar og féll dómur á þá lund, að
istak skyldi bera 1/5 hans, en
Landsvirkjun 4/5, sem eru um
196 milljðnir króna.
Deilan reis út af greftri skurðar
út í Þórisvatn. ístak setti fram
kröfu um umframkostnað vegna
sérstakra erfiðleika, en Lands-
virkjun hafnaði henni og taldi að
verktakinn hefði átt að bera
ábyrgð og fulla áhættu i sam-
bandi við verkið. Gerðardómur-
inn skipti réttmætum umfram-
kostnaði milli aðila sem að fram-
an greinir, og nemur upphæðin,
sem Landsvirkjun skal greiða
með vöxtum og gengisbótum tæp-
um 200 milljónum króna. Gengis-
Framhald á hls. 31
B.Ú.R. heimilað
að semja um smíði á
togara við Stálvík
BORGARRÁÐ samþykkti ein-
rðma á fundi sínum í gær að
heimila Bæjarútgerð Reykjavfk-
ur að ganga til samninga við Stál-
vfk h.f. í Arnarvogi um smíði á
skuttogara fyrir B.C.R. Ef af
samningum verður á hið nýja
skip að afhendast á næsta ári, en
upphaflega voru aðilar á Vopna-
firði búnir að semja um smíði á
skipi, sem átti að ljúka þá, en þeir
hafa nú hætt við kaupin.
Ragnar Júlfusson, formaður út-
gerðarráðs Bæjarútgerðarinnar,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að ef samningar tækjust yrði
hinn nýi togari sams konar og
togarinn Elín Þorbjarnardóttir,
sem Stálvfk er nú að Ijúka við
fyrir Súgfirðinga.
Um ástæðuna fyrir þessari
ákvörðun sagði Ragnar, að við út-
tekt sem gerð hefði verið á Bæjar-
útgerð Reykjavíkur hefði komið í
ljós, að vinnslugeta fiskiðjuvers
fyrirtækisins væri mun meiri en
Dr. Jóhannes Nordal á ársfundi Seðlabankans:
ársfundi Seðlabankans, sem hald-
inn var f gær.
Jón Skaftason, formaður banka-
ráðs Seðlabankans, setti fundinn
og gerði hann nokkra grein fyrir
ársskýrslu bankans en sagt er frá
nokkrum efnisatriðum hennar á
viðskiptasíðu á blaðsíðu 32.
Síðan flutti Jóhannes Nordal
ræðu og gerði hann grein fyrir
þróun efnahagsmála þjóðarinnar
á sfðast liðnu ári og ræddi nokkur
þau vandamál, sem nú er við að
fást eða bíða úrlausnar. Hann
gerði grein fyrir minni viðskipta-
halla, sem nam 4,4 milljörðum
króna á sfðasta ári f stað rúmlega
24 milljarða 1975. Minnkaði við-
skiptahallinn því úr 11.5% af
verðmæti þjóðarframleiðslunnar
1975 f 1,7% 1976.
Þennan viðskiptahalla varð þó
enn að jafna með erlendum lán-
tökum en hins vegar dró úr
erlendri skuldaaukningu á árinu
1976 þannig að hún varð um 40%
Framhald á bls. 26
□ -----------------------------□
Ræða dr. Jóhannesar Nordal verður birl
f heíld f Morgunblaðinu á sunnudag.
□ --------I--------------------U
Það er skoðun bankastjðrnar
Seðlabankans að markaðsöflin,
það er að segja framboð og eftir-
spurn eftir lánsfé, eigi að ráða
mun meiru en nú er um dreifingu
útlána. Slfkt hefði f för með sér
aukna útlánagetu bankanna,
enda yrði sparif járeigendum
tryggð sömasamleg ávöxtun á
sparifé sfnu auk þess sem lánsféð
ætti að nýtast betur til arðbærs
rekstrar og f járfestingar, þar sem
allir sætu við sama borð varðandi
lánskjör og greiddu eðlilega raun-
vexti af öllu lánsfé. Kom þetta
fram f ræðu, sem dr. Jöhannes
Nordal, seðlabankastjöri, hélt á
Markaðsöflin verði meira
ráðandi um dreifingu útlána
Hjón létust í
bifreiðarslysi
HJÓNIN Sigurður Tómasson, 79
ára, og Marfa Sigurðardöttir, 67
ára, frá Barkarstöðum f Fljðts-
hlíð, létust f bílslysi á miðviku-
dagskvöld. Þau láta eftir sig fimm
uppkomin börn..
Slysið varð á Fljótshlíðarvegi á
móts við Hlíðarenda, um klukkan
20:30. Þegar lögregla og læknir
komu á vettvang voru hjónin
bæði látin, en bíllinn hafði oltið
út af veginum og farið einar þrjár
veltur niður aflíðandi vegarkant
um tveggja metra háan. Engin
vitni urðu að slysinu, en bíllinn
sást á hliðinni frá næstu bæjum.
Fóru menn að kanna málið og
voru lögreglan á Hvolsvelli og
læknir siðan strax kvödd til.
Að sögn lögreglunnar á Hvols-
velli fannst ekkert það athuga-
vert við bílinn, sem orsakað hefði
slysið, og er talið, að Sigurður,
Framhald á bls. 26
EINHVER afturkippur virðist
hafa hlaupið f viðræður um verð-
bætur á laun á fundum aðila
vinnumarkaðarins á Hðtel Loft-
leiðum f gær. Björn Jónsson, for-
seti ASl, kvað vinnuveitendur
hafa verið mjög jákvæða í við-
ræðum um hugmyndir ASÍ á
fimmtudag, en f gær kvað hann
ekki hafa kveðið við eins jákvæð-
an tón. Jðn H. Bergs, formaður
Vinnuveitendasambands tslands,
kvað vinnuveitendur á miðviku-
dag hafa tekið jákvætt undir það
að athuga, hvað í hugmyndum
ASÍ fælist og hann kvað þá athug-
un enn standa yfir.
Sáttafundur hófst á Loftleiðum
í gær klukkan 16 og stóð fram
undir klukkan 17. Verkamanna-
sambandi fundaði þó áfram um
gang mála og vinnuveitendur sátu
um stund og ræddu málin eða þar
til klukkan var langt gengin átta.
í fyrradag, fimmtudag, voru
fundir stuttir og kvað þá fremur
við jákvæðan tón milli aðila í visi-
tölumálunum eins og áður er get-
ið.
Hugmyndir Alþýðusambands-
ins eru að á hverju tímabili, sem
verðbót á laun er reiknuð fyrir,
verði reiknað út, hve biðtíminn,
þ.e. sá tími sem líður frá verð-
hækkun til útreiknings verðbót-
ar, hefur skert kaupmátt launa og
við næstu ákvörðun verðbótar
verði tapið af biðtímanum jafnað
út á þann tíma sem þá er eftir af
samningstímanum. Þessi tillaga
felur í sér fullkomna kaupmáttar-
tryggingu eða því sem næsta, en
slíkt kerfi hefur aldrei verið í
gildi hérlendis.
Hagfræðingarnir Ásmundur
Stefánsson og Brynjólfur Bjarna-
son voru fengnir til þess að skoða
þessa nýju hugmynd, sem fyrri
hugmyndir Alþýðusambandsins.
Fundu þeir enga tæknilega galla
á framkvæmd þessarar nýju hug-
myndar, að sögn Björns Jónsson-
ar, og voru þeir báðir sammála
um það. „Eftir liggur þá spurning
um efni málsins," sagði Björn og
hann bætti við að þegar ekki
væru tæknilegir annmarkar á
hugmyndunum, liti forysta ASl
svo á að algjör kyrrstaða væri á
viðræðunum á meðan ekki fengj-
ust svör frá vinnuveitendum og
niðurstaða fengist ekki. Morgun-
blaðið spurði, hvort um misskiln-
ing gæti hafa verið að ræða og
svaraði bá Björn: „Málið er ekki
Framhald á bls. 26