Morgunblaðið - 14.05.1977, Side 14

Morgunblaðið - 14.05.1977, Side 14
14 . MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1977 HLJOMLEIKAR í FÍLADELFÍU HLJÓMLEIKAR verða haldnir 1 Ffladelffu, Hátúni 2, í dag 14. maf, klukkan 20.00 Með þessum hljómleikum er vetrarstarfi iúðrasveitar Fíladel- fíu að Ijúka. Regluleg kennsla hefur farið fram í vetur og sam- æfingar haldnar vikulega. Undan- farin ár hefur kennari og stjórn- andi verið Sæbjörn Jónsson trompetleikari. Meðal annars verða flutt verk eftir Beethoven, Albert O. Davis og fleiri. Á þessum hljómleikum koma fram ungir nemendur í píanóleik. Þá mun blandaður kór safnaðar- ins syngja undir stjórn Árna Arinbjarnarsonar, einsöngvari með kórnum verður Svavar Guð- mundsson. —(FréttatilkynninK). NOKKRIR forráðamanna Skógræktarfélags Reykjavfkur f einu húsi Skógræktarstöðvarinnar f Fossvogi. Frá vinstri: Vilhjálmur Sigtryggs- son, frkvstj. SR, Guðmundur Marteinsson, formaður SR, Björn Ófeigs- son, gjaldkeri SR, og Lárus Bföndal, varaformaður SR. (ljósm. Mbl. ÓI.K.M) Skógræktarstöðin í Fossvogi: Sýnikennsla í með- ferð trjágróðurs SKÓGRÆKTARFÉLAG Reykja- víkur gengst í dag fyrir kynningu á meðferð trjágróðurs. Verður al- menningi boðið að koma í Skóg- ræktarstöðina í Fossvogi og fylgj- ast með sýnikennslu starfsmanna þar í því hvernig fara skuli með trjágróður. Á sams konar kynn- ingu sl. vor komu um 1000 manns til að fræðast um sama atriði. Með tilkomu núverandi Reykjanes- brautar í Fossvogi verða væntan- legir kynningargestir úr Reykja- vik að nálgast stöðina um Grens- ásveg og Eyrarlandsveg, eða af Háaleitisbrautinni niður gamla Klifveginn. Gestir sunnan að munu eiga greiðan aðgang að stöðinni af Reykjanesbrautinni. Að sögn forráðamanna Skógrækt- arféíags Reykjavikur þarf fólk ekki að koma neitt sérstaklega búið til kynningarinnar. Hefst kynningin kl. 14 og stendur fram eftir degi. Nemendasýning í Ásmundarsal ÁRLEG vorsýning myndlistarnema Myndlistarskólans, Mfmisvegi 15, verður f Ásmundarsal yfir helgina. I skólanum eru 250 nemendur þar af hundrað innan við sextán ára aldur. Skólastjóri er Katrfn Briem. Á sýningunni verða verk eftir hvern nemanda, sem sótt hefur námskeið skólans. Börn og ung- lingar munu sýna keramík, graf- ík, teikningar og grimur úr „pappamassa“. Þeir eldri sýna höggmyndir, en kennarar i högg- myndalist hafa verið Magnús Pálsson, Sigrún Guðmundsdóttir og Helgi Gislason. Þá eru á sýn- ingunni mikið af módelteikning- um, svo og málverkum. En kenn- arar í listmálun við skólann eru m.a. Hringur Jóhannesson, Þor- björg Höskuldsdóttir og Hilmar Helgason. Myndlistarskólinn á þrjátíu ára afmæli á þessu ári. Það er Ás- mundur Sveinsson myndhöggv- ari, sem leigir skólanum húsið en smíði þess var lokið einhvern tima á stríðsárunum. Skólinn fær bæði styrki frá ríkinu og Reykja- víkurborg og skólagjöld eru um þrettán þúsund krónur fyrir hálfs vetrar námskeið. Sagði skólastjór- inn, Katrík Briem, að margt fólk sækti námskeið ár eftir ár og hefði þar af leiðandi hlotið næga menntun til að sækja akademíur erlendis og fengi þá meðferðis ummæli frá skólanum. Nemendasýning Myndlistar- skólans verður opin frá kl. 2—10 laugardag og sunnudag. Helgi Hálfdanarson: í Þjóðviljanum 7. þ.m. var Þór- hallur Sigurðsson enn á stjái til andsvara við mig vegna sýningar á Lé konungi. Nú er samleikari hans og vopnabróðir," Sigurður Skúlason, einnig kominn á kreik að nýju, og hélt ég þó, að púðrið í þeim herbúðum væri varla orðið til skiptanna. Það verð ég þó að segja, að í aðra röndina dáist ég að tryggð þeirra Pilikiansmanna við meistara sinn; því ekki láta þeir deigan síga, hvernig sem málefnum reiðir af. Reyndar telur Þórhallur mig svo þrætu- gjarnan, að stundum hafi ég orð- ið að deila við sjálfan mig, þegar enginn annar hafi virt mig svars. Varla ætti ég þó að kvarta í þetta sinn, þvi ÞS telur upp fimm svar- greinar til mfn í blöðum að und- anförnu. Síðan hefur þeim enn fjölgað, og ef ég fæ and- mælendur í kippum vikulega fram á Jónsmessu, þá gæti þetta orðið sæmileg vertíð. Sannarlega gleður það mig stórum, að takast skyldi að vekja' menn til rækilegrar umhugsunar um íslenzka leikhúsmenningu. Að vísu er alltaf hætt við, að umræður sem þessar snúist upp í hégómlegt pex um aukaatriði, ef úr þeim tognar; og þetta sannast nú þegar á skrifum þeirra leikar- anna. Mér þykir leitt, að Þórhallur er í verra skapi í síðari grein sinni en þeirri fyrri, hvað sem veldur. Aftur á móti er Sigurður orðinn mælandi máli, þó enn sé hann fokreiður og ekki allt af setningi slegið í grein hans. Þórhaliur Sigurðsson vill fyrir hvern mun láta líta svo út, að mér þyki leikrita-þýðingar sjálfs mín svo góðar, að þar timi ég alls ekki að hrófla við neinu. Þarna veit ÞS betur, þó að hann kæmi því ekki fyrir sig. Það vill svo til, að við höfum unnið saman að sýningu á leik eftir Shakespeare, þar sem ÞS sjálfur var leikstjóri. Þessi samvinna varð í minum huga einstaklega ánægjuleg. Ég veit að ekki ber hann á móti þvi, að ég hafi viljað leggja mig allan fram að samræma sjónarmið leikstjóra og þýðanda, sem ekki er vist að ævinlega fari saman. Þetta gerði ég með gleði, enda sjálfsagt mál og ekki siður þakkar vert af minni hálfu en leikstjóra. Þess vegna þykir mér dálítið hart, að einmitt ÞS skuli reyna að snúa virðingu minni fyrir skáldskap þessa mikla snillings upp í viðkæmni út af mínum eigin bókstöfum. Sams konar samvinnu hef ég haft við marga íslenzka leikstjóra, og hún hefur ævinlega verið mér ánægju og þakkar efni. Ólafur M. Jóhannesson ritar grein í Morgunblaðið 30. f.m. og sakar mig um að einblina um of á túlkun leikstjórans á textanum og vanmeta aðra sjálfsagða þætti hverrar leiksýningar. Víst er um það, af öllum ágöllum þessarar sýningar þótti mér sá verstur, hvilík spjöll voru unnin á textan- um, sem ég held þó, að flestum beri saman um, að sé svo veiga- mikill þáttur í leikjum Shake- speares, að flest annað verði litil- vægt. Þar á ég ekki aðeins við sérvizkulega útúrsnúninga leik- stjórans, heldur einnig og engu síður, frekar og fávíslegar út- strikanir, þar sem margt það er burt höggvið, sem hvað sizt má hverfa, ekki aðeins það sem þótt hefur meðal þess skáldlegasta sem Shakespeare samdi, heldur og nokkuð af sjálfum máttarvið- um verksins, atriði sem eru með öllu ómissandi til skilnings. Þarna er því um að ræða annað og meira en túlkun á texta Shakespeares; texta hans er beinlinis breytt og það gróflega. Allir vita að oft þykir nauðsyn til bera að stytta löng leikrit til sýningar. Það liggur í hlutarins eðli að slik aðgerð er ævinlega mjög viðsjárverð; og hver heiðar- legur leikstjóri telur það helga skyldu sína að gæta þess umfram allt, að styttingar gangi ekki í berhögg við augljós markmið höfundarins. En þegar texti er rifinn og tættur á svo purkunar- lausan hátt sem hér er gert, og leikstjóri tekur það í tilbót upp hjá sjálfum sér að láta eitthvað af aðalpersónum leiksins reka sig í gegn upp úr þurru, þá er það ekkert annað en fölsun. Og það er óhæfa að mæla bót slíku fram- ferði í leikstjórn. Ef til vill má Þórhallur Sig- urðsson vera drýldinn yfir aðsókninni að Lé konungi eftir atvikum, þó að hún sé langt um minni en aðsókn að Shake- speares-leikjum hér á landi hef- ur skást orðið. Hún hefði þó a.m.k. þurft að drattast fram úr því, til að geta kallazt sigur- ganga, og auðvitað væri hún stór- sigur löngu áður en Vilhjálmur yrði hálfdrættingur við kappana Arnold ogBach. Hvert skyldi Þórhallur stefna öllu sínu þrasi um viðhorf mitt til islenzkra leikara, leikara og aftur leikara! Ég hef alls ekki verið að fjalla um íslenzka leik- ara, nema hvað ég virðist hafa móðgað ÞS gífurlega með þvi að hrósa íslenzkri leikarastétt í fyrstu grein minni, liklega meira en nokkurn tima hefur gert ver- ið. Það mátti öllum ljóst vera, að grein mín fjallaði um meðferð útlendings á tilteknu leikverki. Og hvernig getur manninum sýnzt ég vera að „draga leikarana í dilka“? Hvaða áhuga ætti ég að hafa á því! Þórhalli er sjálfum guðvelkomið að nafngreina i dularfullum tilgangi svo marga af starfsmönnum Þjóðleikhúss- ins, sem honum sýnist, og fyrir mér má hann skira þá til hvaða ofsatrúar sem honum dettur i hug, upp úr hvaða þvotta-löðri sem vera skal; þeir eru ekki hér til umræðu af minni hálfu. Það sem ég held fram, er þetta: Sýn- ing Hovhanness I. Pilikians á Lé konungi er hneyksli, — siðan ekki söguna meir. Fyrir þessari skoðun minni hef ég fært rök, sem hafa reynzt Pilikiansmönn- um ofviða; og þess vegna fara þeir undan í flæmingi. Ekki höfðu verjendur Piliki- ans fyrr bitið í skjaldarrendur en þeir yfirgáfu kastalann mikla, hina kynferðislegu söguskoðun sjálfa, sem átti þó að hýsa allt það sem máli skipti. Siðan hafa þeir einnig hlaupizt á brott úr þeim skotgröfum, sem áttu að verja skilning leikstjórans á text- anum; það er ekki lengur víst að hann sé svo óskeikull sem hann sjálfur vill vera láta; honum er bara jafn-frjálst og öðrum að segja hvað sem honum dettur í hug, þar sem ekki er endanlegs úrskurðar að vænta. Nú hafa þeir búizt um í hinzta viginu, sem er hin mikla snilld HIP i hreyfingum, stöðum, svipbrigð- um og látbragði, að ógleymdri hinni fimbulmögnuðu verk- stjórn. Á þeim Ólafi og Sigurði má helzt skilja, að þarna sé um að ræða svo útsmogna leyndar- dóma listarinnar, að þess sé eng- in von, að náungar af götunni, eins og ég og minir líkar, beri skynbragð á slíkt. Og Þórhalli verður tiðrætt um „algera van- þekkingu” mina á því, „hvernig unnið er i leikhúsi" og „hvernig leiksýning verður til“. Það er ljóst, að mér skal ekki haldast uppi að þykjast samt vita ýmis- legt um þá hluti. Það er mér ljúft að játa, að aðfarir HIP hljóta að hafa verið langt utan alls þess sem ég veit um starfsemi i leikhúsum. Enda hef ég ekki séð öllu átakanlegri lýsingu á verkstjórn en skýrslu Þórhalls Sigurðssonar sjálfs um Kappreiðar Fáks á sunnudag HINAR árlegu vorkappreiðar Fáks verða haldnar á skeiðvellin- um á Víðivöllum á sunnudag, 15. maf, og hefst mðtið kl. 14. Um 100 hestar munu taka þátt f keppn- inni og má nefna Stokkhðls-Blesa, Vafa og Fannar af þátttakendum f skeiði. 1 250 m stökki koma fram Iftt þekktir hestar, sem er gert ráð fyrir að sjást muni á kapp- reiðum á næstu árum, segir f frétt frá Fáki, og vænst er spennandi keppni f 350 m stökki. Að þessu sinni verður keppt í nokkrum nýjum íþróttgreinum á vegum hinnar nýstofnuðu íþrótta- deildar félagsins, t.d. gæðinga- skeið, fjórgang, fimmgang, hindr- unarstökk o.fl. og eru þetta hinar sömu keppnisgreinar og ákveðnar hafa verið fyrir Evrópumót is- lenzkra hesta, sem haldið verður I Danmörku seinni hluta sumars. Keppni hefst kl. 14 eins og áður sagði með keppnisgreinum íþróttadeildarinnar, en kapp- reiðarnar hefjast kl. 15 og mun veðbanki starfa eins og venjan hefur verið. Þess er getið f frétt frá Fáki, að það hafi vakið athygli hvað áhugi ungs fólks hafi verið áberandi nú um nokkurt skeið og muni það sérstaklega koma í ljós í hinum nýju kepnisgreinum á mótinu. Hreyf Þjóðieikhúsið, Litla sviðið: KASPAR EFTIR PETER HANDKE. Þýðandi: Guðrún Bachmann. Lýsing: Kristinn Danfelsson. Leikmynd og búningar: Magnús Tómasson. Leikgerð og leikstjórn: Nigel VVatson. í KASPAR styðst Peter Handke við söguna um Kaspar Hauser, en Kaspar þessi kunni aðeins eina setningu þegar hann fannst í NUrnberg árið 1828: Mig langar að verða hestamaður eins og pabbi var. Kaspar Hauser Iærði að tala og haga sér eins og annað fólk. Örlög hans urðu þau að hann var myrt- ur tuttugu og eins árs að aldri. Kaspar Hauser hefur orðið mörgum að yrkisefni. Hann hefur verið eins konar táknmynd villu- ráfandi manns sem ekki veit hvaðan hann er kominn eða hvert hann er að fara. Peter Handke fer frjálslega með söguna um Kaspar. Úr henni gerir hann nútíma- spegilmynd af manni sem er ieik- soppur f höndum annarra, mótast af umhverfi sínu án þess að geta veitt viðnám. Þessi maður er kunnur úr verkum ýmissa fram- úrstefnuhöfunda. gæti verið ný- skriðinn upp úr einni öskutunnu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.